Dagur - 02.02.1977, Síða 8
Bagur
AUGLÝSfNGASÍMI
Daguk
Akureyri, miðvikudaginn 2. febrúar 1977
RAKVÉLA-
BLÖÐIN
MARGEFTIR-
SPURÐU
KOMIN
SMATT & STÓRT
Yíða er vatnsskortur
Ási í Vatnsdal 31. janúar. Vetur
inn hefur verið ákaflega snjó-
léttur og er það ennþá, því hér
hefur úrkoman' verið svo sára-
lítil. Þetta lætur sig ekki án
vitnisburðar, því þrátt fyrir
nokkrar úrkomur í sumar, er
nú svo komið hér í sveit, að
vatnslaust er að verða á sumum
bæjum og er það mjög bagalegt
einkum þar sem margt er í
fjósi. Það er svo skrýtið í hon-
um Vatnsdal, að það eru þó
nokkrir bæir, sem eiga erfitt
með að fá nægilegt neysluvatn.
Einhvern tíma hefði þótt gott
til beitar hér um slóðir, fyrir
sauðfé, en nú gefa allir inni. Því
Plastbátar hafa víða rutt sér
verulega til rúms, enda hafa
þeir m. a. þá kosti, að ryðga
hvorki né fúna.
Skipasmíðastöð Guðmundar
Lárussonar á Skagaströnd hef-
Mjólkurbúðum
lokað
Mjólkursamsalan í Reykjavík
hætti um þessi mánaðamót
rekstri 42 mjólkurbúða sinna í
borginni, nema einni.
Háværar kröfur kaupmanna
og fleiri um þessa breytingu, og
að kaupmenn tækju að sér smá-
sölu mjólkur og mjólkurvara,
leiddi til lagasetningar um
þetta efni. - □
ur fengið plastbát einn erlend-
an og er það aðeins skrokkur-
inn. Þetta er 12—15 tonna bátur
og verður hann fullsmíðaður á
Skagaströnd og von fleiri báta
af sömu eða svipaðri stærð.
En skipasmíðastöðin stefnir
að því að smíða einnig báts-
skrokkana, eða smíða þessa
báta að öllu leyti. Stöðin hefur
þegar selt fyrstu bátana, og for-
ráðamenn skipasmíðastöðvar-
innar gera sér vonir um, að
bátar þessir verði talsvert ódýr-
ari en trébátar, ennfremur við-
haldskostnaðurinn. □
miður eru heyin heldur létt en
mikil að vöxtum. Tíð var stirð
í ágústmánuði og þá gekk illa
að þurrka heyin, svo þau hrökt-
ust. Við höfum fengið tvö erfið
heyskaparsumur, þótt sprettan
væri góð og höfum í því efni
fylgt Vesturlandinu og þar með
óþurrkasvæðinu.
Fólk getur farið hér um allar
jarðir á hvaða bíl sem er, og er
hvergi fyrirstaða, enda stendur
það nú til að halda þorrablót,
bæði hér í sveit og næstu sveit-
um.
íbúar Hvammstanga voru svo
heppnir að fá mikið heitt vatn
til viðbótar hjá sér, og með til-
tölulega litlum tilkostnaði.
Blöndósbúar eru þegar búnir
að fá heitt vatn og veit ég ekki
annað en hitaveituframkvæmd-
ir hefjist þar með vorinu.
Menn eru talsvert bjartsýnir,
þótt menn berji sér einnig.
Margir bændur hafa það sæmi-
legt held ég, en þó er nokkuð
um það að þeir eigi erfitt með
að ná saman endunum að þessu
sinni. G. J.
Loðnuvertíðin mun
betri en var í fvrra
Vegirnir eru að
opnast á ný
Flestir vegir tepptust um síð-
ustu helgi. Suðurleiðin er þó
fær vestur yfir Oxnadalsheiði.
Hins vegar var ófært til Dal-
víkur í gær og mestur snjór á
Hrísamóum. Von var til þess
talin síðdegis í gær, að vegur-
inn til Húsavíkur opnaðist und-
ir kvöldið. □
Akureyrartogarar
Kaldbakur landaði 17. janúar
106 tonnum. Aflaverðmæti 7.4
milljónir króna. Hann er vænt-
anlegur til hafnar í dag.
Svalbakur landaði 56 tonnum
30. janúar. Aflaverðmæti 4
millj. kr.
Sléttbakur landaði 25. janúar
120 tonnum. Aflaverðmæti 8.1
millj. kr.
Sólbakur landaði 27. janúar
78 tonnum. Aflaverðmæti 5.2
millj. kr.
Harðbakur landaði 21. janúar
163 tonnum. Aflaverðmæti 11
millj. kr. □
FRÁ LÖGREGLUNNI
Á AKUREYRI
Nokkrar falsaðar ávísanir eru í
umferð á Akureyri og vinnur
lögreglan að rannsókn málsins.
Þá biður lögreglan þess getið,
að nokkur reiðhjól séu í hennar
vörslu, og hvetur eigendur til
að vitja þéirr* hið fyrsta. □
í gær bárust fréttir af miklum
afla síðasta sólarhring. 4- bátar
ferigu 13.270 lestir og frá mið-
nætti til hádegis í gær höfðu
16 bátar tilkynnt afla til við-
bótar, á fimmta þúsund lestir.
í fyrrinótt var tekið á móti
fyrstu loðnunni á Hornafirði og
þrær fylltar og frá Vopnafirði
og þangað suður er nú ekkert
þróarrými.
Loðnu hefur nú verið landað
á fimmtán stöðum. Til Seyðis-
Hestar
Sauðárkróki 1. febrúar. Ingimar
Pálsson og Jóhann Þorsteinsson
reka tamningastöð hér á Sauð-
árkróki og sækja hestaeigendur
fast að koma tamningahrossum
sínum þangað. Þar komast
færri að en áhugi er á. Hvert
námskeið stendur tvo mánuði
og eru tekin 26 hross til tamn-
fjarðar höfðu borist yfir 1- þús-
und lestir á mánudaginn og á
átjánda þúsund til Siglufjarðar
og 13.700 lestir höfðu borist til
Neskaupstaðar, miðað við mánu
dag. Þá hafði 61 skip fengið ein-
hvern afla. í vikulok var aflinn
104 þúsund lestir, en á sama
tíma í fyrra var hann 54 þúsund
lestir. En síðan á laugardags-
kvöld hefur mikið aflast, þrátt
fyrir óhagstætt veður suma
dagana. □
ingar í einu. Eigendur leggja til
fóðrið.
Auk þessa taka ýmsir að sér
að temja fyrir aðra og svo temja
hestamenn fyrir sjálfa sig. Að
öllu þessu samanlögðu er ekki
að undra þótt mikið sé riðið út
um þessar mundir, enda hest-
færi með ágætum og hefur
BAKARAR LÆKKUÐU
VERÐIÐ
Þeir sjónvarpsþættir, sem fjöll-
uðu um verðlagsmál seint á
liðnu ári, vöktu athygli. Þar
virtist það fram koma, að ís-
lenskir innflytjendur gerðu
óhagstæð innkaup erlendis, enn
fremur, að það væri liagur
þeirra þar sem álagningin væri
reiknuð í hundraðshlutum og
hvetti því ekki til hagstæðustu
innkaupa. Nú lækkuðu brauð í
verði og um það var sagt, að
bakarar hefðu keypt inn ódýr-
ari vörur eða fundið hagstæða
markaði. Virðist þetta dæmi
benda til þess, að víðar væri
unnt að ná liagstæðari vöru-
kaupum, ef verðlagskerfið væri
hvetjandi í þá átt en ekki letj-
andi, svo sem vera þykir.
i ' '"*■!
NÚ VERÐUR FYLGST MEÐ
VERÐLAGI ERLENDIS
í nýlegri þingræðu viðskipta-
ráðherra kom fram, að Verð-
lagsskrifstofan hefði þegar tek-
ið upp samstarf við norræn
verðlagsyfirvöld og nái það
m. a. til samanburðarathugana
á vöruverði, og að fylgst yrði
með verðmyndun erlendis.
ILLA STADDIR EF ÞEIR
SJÁ EKKI SJÓINN
Fyrir skömmu var frá því sagt,
að haftyrðlar liefðu fundist
langt frammi í Eyjafirði, eftir
allhvassa norðanátt. Á Akur-
eyri fundust margir, bæði lif-
andi og dauðir og þegar hlánaði
komu fleiri í ljós. Sömu sögu er
að segja í Ólafsfirði og í Fljót-
um, að þar fundust margir og
flestir dauðir, sumir alllangt frá
sjó. En fuglar þessir, sem eru
hánorrænir úthafsfuglar, tapa
fluginu ef þeir villast á land og
sjá ekki sjó, og eru þá bjargar-
lausir. Eini varpstaður þeirra
hér á landi er Grímsey, og hafa
þó ekki fundist þar nema örfá
verið. Allt er þetta fyrr á fei'ð-
inni en oftast áður, og von um
góða erlenda markaði mun hafa
þessi áhrif.
Mikið er af álitlegum ung-
viðum, vel ættuðum, t. d. undan
Sörla, Glæsi, Abel og Náttfara.
Allt eru þetta kunnir kynbóta-
hestar. G. Ó.
hreiður. Sjómenn hafa sagt frá
mjög stórum hópum haftyrðla
norðan við land í vetur.
GEFIÐ SÉRKENNILEGUM
FUGLUM GAUM
Á laugardaginn bauð gestrisinn
nágranni þeim er þetta ritar til
kaffidrykkju en bað að koma
að kjallaradyrunum. Ekki var
kaffiboð sjaldgæft í þessu húsi,
heldur kjallaraleiðin. Þetta mál
skýrðist fljótlega. Við aðaldyr
hússins hafði snjó verið vand-
lega sópað af stórum dyrapalli
og þar nutu fuglar góðgerða,
bæði nokkrir tugir auðnutittl-
inga, svartþröstur og glóbryst-
ingur, og þessa fugla mátti ekki
styggja. Svartþrestir eru frem-
ur sjaldgæfir hér á þessum árs-
tíma og raunar alltaf og gló-
brystingurinn, scm er á stærð
við auðnutittling, með gulbrúna
bringu, er enn sjaldgæfari. Á
dyrahelluna kom að þessu sinni
aðeins einn skógarþröstur, og
enginn gráþröstur, enda eru
gráþrestir styggir og aðeins
einn sást á flugi. Þeir, sem hafa
yndi af því að gefa út fuglum á
vetrum, ættu að gæta þess vand
lega, ef í heimsókn koma sjald-
gæfir fuglar.
FÓR BÓNARVEGINN
TIL FORSÆTISRÁÐHERRA
Það vakti nokkra furðu, þótt
við ýmsu megi búast af Alþýðu-
flokknum, þegar Gylfi Þ. Gísla-
son bar fram þá bæn sína við
forsætisráðherra, að hann ryfi
stjórnarsamstarfið við fram-
sóknarmenn og efndi til alþing-
iskosninga. Var ekki laust við,
að forsætisráðherra og dóms-
málaráðherra leyfðu sér að gera
örlítið skop að 9. þingmanni
reykvíkinga af þessu tilefni á
Alþingi. Dómsmálaráðherra
benti á, að vantrauststillaga
væri betur við liæfi og kallaði
bæn Gylfa ástarjátningu til
Sjálfstæðisflokksins.
GYLFI HALDINN SPENNU
En meðal annars sagði forsætis-
ráðherra: „Mér finnst sannast
að segja sú ályktun nærtæk af
orðum hæstvirst 9. þingmanns
reykvíkinga, að hann sé hald-
inn spennu. Það cr alveg nægi-
legt, að við búum í landi jarð-
skjálfta, sem við getum ekki
gert að eða komið í veg fyrir.
En það er of mikið af því góða,
(Framhald á blaðsíðu 7)
Kona
í morgunslopp
Grenivík 31. janúar. Hér er ver-
ið að æfa sjónleik í tveim þátt-
um, og heitir hann Kona í
morgunslopp. Stefnt er að frum
sýningu í næsta mánuði. Leik-
stjóri er Gestur E. Jónasson, '5n
leikendur eru sex talsins.
Veðráttan er þannig, að síðan
á föstudag hefur verið norðan-
hríð, mikill snjór kominn og
allir vegir ófærir. Fyrir helgina
réru bátar en öfluðu lítið, enda
hið versta veður báða dagana.
P. A.
og reiðmenn