Dagur - 16.02.1977, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGTJR
LX. ARG. AKUREYRI, MEÐVIKUDAGINN 16. FEBRÚAR 1977 7. TÖLUBLAÐ
m\,
Haldið áfram
viö Kröflu
Iðnaðarráðuneytið óskaði
álits hæfustu manna um
stöðu Kröfluvirkjunar og
fjallaði ríkisstjórnin um
álit þetta á a. m. k. tveim
fundum sínum. Niðurstöð-
ur nefndarinnar voru þess-
ar:
Haldið verði áfram, nú
á þessu ári vinnsluborun-
um til áframhaldandi gufu-
öflunar fyrir Kröfluvirkj-
un.
Haldið verði áfram fram-
kvæmdum við stöðvarhús
og gufuveitu að því marki
sem nauðsynlegt er til þess
að geta tekið fyrri vélar-
samstæðu stöðvarinnar í
notkun.
Lokið verði við lagningu
háspennulínu frá Kröflu-
virkjun til Akureyrar. □
VaðlaheiÖi -
Gagnheiði
Menntamálaráðuneytið hef
ur 'heimilað Ríkisútvarp-
inu að standa fyrir sitt
leyti að því með Pósti og
síma á koma örbylgjusam-
bandi austur frá Vaðla-
heiði til Gagnheiðar, og að
endumýja stöðvar þær,
sem eru að syngja sitt síð-
asta, svo sem við Blöndu-
ós, Stöðvarfjörð, Breiðdals-
vík, Hornafjörð, Lágafell,
Langholt og Laugardals-
hóla. Með þessu á að stór-
bæta þjónustuna við út-
varpsnotendur. Áætlaður
kostnaður Ríkisútvarpsins
við þessar framkvæmdir
er áætlaður 100 milljónir
króna. □
-
■■■
■
Pf|
Ullar- og
skinnavörur
Útflutningsmiðstöð iðnaðar
ins hefur upplýst, að út-
flutningur ullar- og skinna
vara hafi á síðasta ári auk-
ist um 55,8% að verðmæti
og kemur bæði til hærra
verð og aukið magn. En
heildarútflutningur þess-
ara vara nam á síðasta ári
3225 milljónum króna.
Hér er um að ræða iðn-
aðarvörur frá Verksmiðj-
um SÍS á Akureyri að lang
stærstum hluta. Og enn
eru gerðir stórir sölusamn-
ingar fyrir þessar vörur
erlendis, einkum í Sovét-
ríkjunum, og kom fram-
kvæmdastjóri Iðnaðardeild
ar SÍS, Hjörtur Eiríksson,
úr einni slíkri samninga-
ferð fyrir nokkrum dögum.
í ýmsum deildum verk-
smiðja Sambandsins er
unnið með hraðvirkum
vélum allan sólarhringinn
og hrekkur það þó hvergi
nærri til að fullnægja eftir
spurn hinna ágætu iðn-
vara. □
Loðnulöndun á Raufarhöfn
Hóli viS Raufarhöfn 14. febrúar.
Veðráttan er ljómandi góð og
nokkur jafnfallinn snjór á
jörðu. Ekki beita bændur fé
sínu á þá hnjóta, sem upp úr
standa. Rauðinúpur kom inn í
gær með 100 tonn. En minni
bátar afla ekkert ennþá.
Atvinna er ágæt á Raufar-
höfn, bæði við fiskverkunina og
svo er loðnubræðslan í fullum
gangi og alltaf verið að landa.
Sveitarstjóraskipti hafa orðið
hér. Heimir Ingimarsson hefur
látið af því starfi, en við tekið
Sveinn Eiðsson, austfirðingur.
Samkvæmt upplýsingum
Árna Sörensens verksmiðju-
stjóra, er nú búið að taka á
móti 26 þúsund tonnum af
loðnu frá áramótum og bíður
eitt skip með á sjöúnda hundr-
að tonn fram til miðnættis en
verður þá losað. Um 700 tonn
eru brædd á sólarhring. Um
þetta leyti í fyrra var búið að
landa hér 14.200 tonnum og
meira fengum við ekki til verk-
smiðjunnar, sagði Ámi verk-
smiðjustjóri að lokum. Þ. S.
Rækjuveiðar
í Öxarfirði
Kópaskeri 14. febrúar. Það er
búið að opna flóann hjá okkur
og þrír rækjubátarnir, Þingey,
Trausti og Kópur, eru famir á
rækjuveiðar. Þær veiðar hafa
legið niðri síðan um miðjan
desember og var lokunin vegna
þorsk- og ýsuseiða, ennfremur
síldar- og lúðuseiða. En nú er
irækjuaflinn ágætur og 16
manns vinna í rækjuverksmiðj-
unni. Þingey hafði áður hafið
veiðar með línu og farin að
fiska sæmilega, eða 3—4 tonn
yfir nóttina.
Með þessari rækjuveiði hefur
lifnað yfir atvinnulífinu, en á
meðan unnu konur við slátur-
gerðina. En Kópaskersslátur er
vinsælt víða um land og eftir-
sótt vara.
Sláturgerðin verður ekki eins
mikil á meðan á rækjuvinnsl-
unni stendur.
Snjór er orðinn allmikill og
er orðið mjög þungfært til Leir-
hafnar, og konur, sem þaðan
koma til vinnu bjuggust jafnvel
við því að þurfa að gista hjá
okkur.
Sjómenn em byrjaðir að
undirbúa grásleppuveiðarnar
og ætln sér áreiðanlega að
skrafa við hana í vor.
Piltur, sem hjá okkur vinnur,
skrapp heim til sín norður á
Sléttu og drap þrjár tófur á
leiðinni. Ó. F.
Blómasala á
sunnudaginn
Eins og undanfarin ár mun
Lionsklúbbur Akureyrrar bjóða
bæjarbúum blóm á konudag-
inn, sem er n. k. sunnudagur.
Blómasalan hefur verið fast-
ur liður í starfsemi klúbbsins í
fjölda mörg ár, og Lionsfélagar
jafnan hvarvetna fengið góðar
móttökur hjá bæjarbúum þegar
þeir koma með blómvendina.
Þessa velvild þakka Lions-
menn og vonast til að fá jafn
góðar móttökur sem ávallt
áður.
Eins og jafnan fyrr verður
öllum ágóða varið til líknar-
mála og að þessu sinni til styrkt
ar Vistheimilinu Sólborg.
(Fréttatilkynning)
DAGUR
kemur næst út miðvikudaginn
23. febrúar.
Fyrstu blöðin úr offsetprentvél Dags skoðuð.
(Ljósm.: Fr. V.)
Fyrsta offsetprentaða
blað Dags
fjetta er fyrsta tölublað Dags, sem prentað er í hinni nýju
offsetprentvél blaðsins, sem er af News King gerð frá
fyrirtækinu King Press, Inc. í Missouri í Bandaríkjunum.
Sem áður fer prentun fram í
Prentverki Odds Björnssonar
og prentverkið kaupir aðrar vél
ar í fullkomna offsetprent-
smiðju og annast rekstur henn-
ar. Þessi nýja offsetprentsmiðja
mun gjörbreyta prentiðninni á
Norðurlandi.
Nokkrar útlitsbreytingar eru
gerðar á Degi, hannaðar af
Kristjáni Kristjánssyni af mik-
illi smekkvísi, en þær koma til
framkvæmda smám saman ef
Ungfrú
Akureyri
Síðastliðinn sunnudag var á
fjölmennri Sunnuhátíð kjörin
ungfrú Akureyri 1977. Titilinn
hlaut ungfrú Guðrún Hjörleifs-
dóttir, nemandi í 4. bekk G. A.
Guðrún mun í vor taka þátt í
samkeppni um titilinn ungfrú
ísland. Óskar blaðið henni allra
heilía. □
að líkum lætur og eru þær ekki
miðaðar við nýtt andlit, heldur
ofurlitla „andlitslyftingu11, í
fyrirsagnaletri og umbroti.
Stækkun blaðsins eða aukinn
fjöldi tölublaða er á dagskrá og
hafa lengi verið. Upplagið er nú
hálft sjötta þúsund og vex hægt
en stöðugt, án þess að sérstakar
ráðstafanir hafi verið til þess
gerðar að fjölga kaupendum.
Ljóst er, að blaðið getur ekki
annað því fjölþætta hlutverki,
sem því er ætlað og nauðsyn-
legt má teljast af útbreiddu
blaði, nema það sé stækkað eða
tölublöðum fjölgað. En fjárhag-
urinn verður að ráða þeirri
þróun.
Sem ætíð áður, eru fréttir og
ábendingar vel þegnar, svo og
greinar um almenn mál, sem
lesendur hafa áhuga á að koma
á framfæri, en í því efni er æski
legt, að máli sé í hóf stillt.
Blaðið ræddi um helgina við
herra Gene Morgan, sérfræðing
frá framleiðanda offsetsprent-
vélarinnar, sem hér hefur
dvalið undanfarna daga við að
setja niður þessa nýju prentvél
og prófa hana. Hann telur offset
vél þessa mjög vandaða, hrað-
virka og fjölvirka. Hún hentar
vel til prentunar blaða og bóka
og jafnvel til ýmis konar smá-
prentunar. Um hraðvirkni tók
hann sem dæmi, að það væri
ekki nema dagsverk að prenta
venjulega bók, 2—300 blaðsíður
í 2—3000 eintaka upplagi.
Hörður Svanbergsson annast
nú offsetprentvélina, en Frí-
mann Frímannsson annast um-
brot í prentsmiðju, eins og ver-
ið hefur. □
Gene Morgan.