Dagur - 16.02.1977, Page 4
Skrifstofur Hafnarstraeti 90, Akureyri
Símar: Ritstjóm 11166, Augl. og afgreiðsla 11167
Ritstj. og ábyrgðarm.: ERLINGUR DAVÍÐSSON
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Bjömssonar hf.
Þáttaskil
í prentun
Með þessu tölublaði eru þau þáttaskil
hjá blaðinu, að þetta er fyrsta tölu-
blaðið, sem prentað er í nýrri News
King offsetprentvél, sem blaðið keypti
frá Bandaríkjunum og nú hefur verið
sett upp í nýju prentsmiðjuhúsi Prent-
verks Odds Björnssonarr við Tryggva-
braut á Akureyri. Sjálf kaupir prent-
smiðjan önnur þau tæki, sem tilheyra
nýtísku offsetprentsmiðju og eru sum
komin en önnur væntanleg.
Þótt hér sé um að ræða mjög full-
komna offsetprentvél, verður fyrst um
sinn engin stökkbreyting á Degi, en
útlitsbreytingar verða gerðar smátt og
smátt, og væntanlega verður blaðaút-
gáfan aukin, ef fjárhagur blaðsins
leyfir. Er full þörf á stækkun eða
fjölgun útkomudaga, svo að blaðið
geti betur þjónað því margþætta hlut-
verki, sem því er ætlað og þörf er á.
Átta síðu vikublað getur að mjög tak-
mörkuðu leyti komið til móts við f jöl-
margar óskir lesenda.
Sem áður er Dagur norðlenskt
fréttablað, vettvangur norðlendinga
til skoðanaskipta og norðlenskt mál-
gagn til sóknar og vamar í málefnum
fjórðungsins. Dagur styður Framsókn-
arflokkinn og samvinnustefnuna,
bindindishreyfinguna og margvísleg
framfaramál, tekur þátt í umræðum
um almenn framkvæmda- og menn-
ingarmál og auðveldar fólki fjölmörg
mannleg samskipti í daglegu lífi.
Hann hefur jafnan reynt að vera frjáls
lyndur, minnir á fjölmörg mál í stutt-
um greinum, til umhugsunar, en hef-
ur takmarkað rúm fyrir orðmargar
rökræður eða svokallaða þrætubókar-
list.
Dagur fagnar senn 60 ára afmæli
sínu. Útkoma hans hefur verið reglu-
leg á liðnum árum og útgáfan ekki
verið háð sveiflum peninga eða geð-
þótta einstakra manna. Verður þó
ekki með sanni sagt, að fjárhagsleg
afkoma hafi alla tíð verið góð. Hins
vegar hefur þetta vikublað ætíð notið
vinsælda og trausts, meðal annars fyrir
reglulega útkomu, sem fólk getur
treysts, og sjaldan eða ekki hafa rit-
stjórar þess lagt sig niður við blaða-
mennsku á lægsta þrepi, enda naut
það ágætra manna, svo sem Ingimars
Eydal, Jónasar Þorbergssonar, Hauks
Snorrasonar og Jóhanns Frímann á
fjórða áratug.
Stöðug fjölgun kaupenda styður þá
von, að blaðið geti í vaxandi mæli
rækt hlutverk sitt við lesendur sína og
nokkur f járfesting verði því ekki lengi
fjötur um fót. □
Fréttabréf úr
Ólafsfirði
Détur Már Jónsson bæjarstjóri í Ólafsfirði hefur sent blað-
inu eftirfarandi fréttabréf til birtingar. Þakkar Dagur
bréfið og fer það hér á eftir.
Mikið fannfergi er nú hér,
það mesta í 10—15 ár, segja
athugulir menn. Aldrei varð þó
öngþveiti hér vegna snjóa og
tóku menn þessu með mestu ró
og fengu sér gönguferð í stað
þess að fara um í bílum sínum.
Færð er nú orðin ágæt, verið
að ljúka við að ryðja vegi og
götur.
Engin snjóflóðahætta er talin
hér í bænum, þrátt fyrir þetta
mikla fannfergi. Hefur aldrei í
manna minnum fallið snjóflóð
á hús hér í bænum, en víða
annars staðar í firðinum er þó
snjóflóðahætta.
Atvinna hefur verið í daufara
lagi hér að undanförnu, sakir
lítils afla skuttogaranna. Minni
bátar hafa hins vegar aflað
sæmilega. Mikil óánægja ríkir
hér vegna reglugerðar um grá-
sleppuveiði, en nú fer að líða
að því, að menn búi sig undir
grásleppuveiðarnar.
Sífellt verður ljósara, að nauð
synlegt er að renna fleiri stoð-
um undir atvinnulíf staðar eins
og Ólafsfjarðar, og koma þarf
upp iðnaði á þessum stöðum.
Vélsmiðjan Nonni h.f. keypti á
sl. sumri vélar fyrirtækisins
Stáliðn h.f. á Akureyri, sem
framleiddi stálhúsgögn og er nú
framleiðslan hér í Ólafsfirði að
fara í gang og veitir það nokkr-
um mönnum atvinnu.
Allmiklar framkvæmdir voru
hér á síðasta ári. Um síðastliðin
áramót voru 19 íbúðir í bygg-
ingu, samtals 8211 rúmmetrar.
Atvinnuhúsnæði samtals 13850
rúmmetrar var í byggingu. Full
gerðar voru einnig 12 íbúðir
á liðnu ári, samtals 4589 rúm-
metrar.
Á vegum sveitarfélagsins var
unnið við 'innréttingar verk-
námsálmu gagnfræðaskólans,
og er vonast til að hún verði
tekin í notkun í þessum mán-
uði. Einnig var unnið við sökkla
og plötu heilsugæslustöðvar og
dvalarheimilis, og var þeim
áfanga lokið á síðasta hausti.
Verður byggingin boðin út með
vorinu. En þessa daga er verið
að Ijúka hönnunarvinnu. Fer
því að líða að því, að þessi
gamli draumur ólafsfirðinga
rætist.
Þá var gert töluvert átak í
varanlegri gatnagerð og steypt-
ir um 6000 fermetrar af götum.
Var hluti Aðallgötu steyptur,
og einnig var gengið frá götu
við hraðfrystihús staðarins. Nú
er komið bundið slitlag á um
það bil sjötta hluta allra gatna
Átak þarf í kjaramálum
Laugardaginn 5. þ. m. efndu
verkalýðsfélögin á Akureyri til
sameiginlegs fundar í Borgar-
bíói til að ræða ástand og horf-
ur í kjaramálunum. Frrummæl-
endur voru Ásmundur Stefáns-
son hagfrræðingur ASÍ og
Nýr salur
Nokkuð hefur snjóað þennan
síðasta mánuð, þótt minna sé
það en inn til landsins. Nokkuð
hefur þurft að greiða fyrir flutn
ingum, svo mjólkurbílamir
kæmust leiðar sinnar, og er þá
hefill til taks. En nú eru vegir
greiðfærir.
Nýlega kom ær úr afrétt
saman við fé frá Mýri, sem sett
hefur verið út. Eigandi hennar
er Pétur Krristjánsson á Litlu-
völlum. Nú, þegar veður stillast
og snjór er kominn undir sleða,
verður farið í afréttina, en skeð
gæti, að fé væri þar.
Síðasta laugardag var efnt til
þorrablóts að venju. Það fór
fram í samkomusal, sem byggð-
ur við bamaskólahúsið, og var
frá upphafi þeirrar byggingar
ætlast til þess. Þetta er mjög
vistlegur salur, ásamt tilheyr-
andi snyrtingum. Að þessari
framkvæmd stendur sveitar-
sjóður og önnur félagasamtök í
sveitinni. Oddviti hreppsnefnd-
ar Bárðdælahrepps er Egill
Gústafsson og opnaði hann
þessa þjónustumiðstöð í upp-
hafi þorrablótsins. Þ. J.
Snorri Jónsson varaforseti Al-
þýðusambandsins. Einnig tóku
allmargir heimamenn til máls,
og var það einróma álit manna,
að nú yrði að gera verulegt átak
í kjaramálunum og gera jafn-
framt kröfu til þess, að ráðstaf-
anir til að draga úr verðbólg-
unni verði meira en kák eitt.
Fundurinn samþykkti einum
rómi að senda frá sér yfirlýs-
ingu þá, sem hér fyllgir með.
Þá mætti til fundarins Stefán
Gunnarsson, bankastjóri Al-
þýðubankans, og ræddi málefni
bankarís og það hlutverk, sem
honum væri ætlað fyrir launa-
stéttirnar í landinu.
Fékk málflutningur Stefáns
mjög góðar undirtektir og mik-
ill áhugi kom fram fyrir því, að
útibú frá Alþýðubankanum
yrði sett upp á Akureyri. Var
í því sambandi samþykkt til-
laga, sem einnig fylgir hér með.
Fundur verkalýðsfélaganna á
Akureyri, haldinn í Borgarbíói
laugardaginn 5. febrúar 1977,
lýsir yfir eftirfarandi:
1. Stöðva verður undanbragða-
laust þá þróun mála, að kaup
máttur launa fari síminnk-
andi á sama tíma og þjóðar-
tekjur vaxa.
2. Við samningagerð á komandi
vori ber að stefna að því, að
eftir samningana verði kaup-
máttur launa ekki lakari en
hann var bestur á árinu 1974.
3. Höfuðáherslu verður að
leggja á að auka kaupmátt
launanna og varðveislu hans.
Þess verður því að krefjast
af stjórnvöldum, að þær ráð-
stafanir sm duga verði gerð-
ar til að skera niður verð-
bólguna. Fundurinn mótmæl
ir harðlega þeim óhóflegu
hækkunum, sem orðið hafa
á ýmsum greinum opinberr-
ar þjónustu á sama tíma og
stjórnvöld krefjast þess af
almenningi að una við
óbreytt laun.
4. Hafa verður sem víðtækast
samstarf milli verkalýðsfélag
anna um samningagerð, með
það fyrir augum ekki síst, að
metin verði sameiginlega af
félögunum þau atriði, er til
athugunar koma og taka þarf
afstöðu til ekki síður en
beinnar krónutölu launa.
Fundur verkalýðsfélaganna á
Akureyri 5. febrúar 1977 telur
mikla nauðsyn bera til að banki
verkalýðshreyfingarinnar, Al-
þýðubankinn, verði efldur, þar
sem öflug bankastofnun á henn-
ar vegum myndi styrkja að-
stöðu launastéttanna til muna.
Fundurinn beinir því til
stjórna verkalýðsfélaganna að
kanna hvort félögin í bænum
geti náð samstöðu um að beita
sér fyrir stofnun útibús frá Al-
þýðubankanum hér í bæ, svo
fljótt sem þess væri kostur,
m. a. með því að beina auknum
viðskiptum til bankans áður en
til stofnunar útibús getur
komið.
(Fréttatilkynning)
NIÐJAR SVEINBJÖRNS
ÓLAFSSONAR
SMIÐS Á AKUREYRI
Vegna ritgerðar um Glaumbæ
á Langholti, sem undirritaður
vinnurr nú að, langar hann til
að biðja þá lesendur Dags, sem
kynnu að vera afkomendur
Sveinbjörns Ólafssonar smiðs,
að láta mig vita. Sveinbjörn var
sonur Ólafs bónda á Bólstað við
Steingrímsfj örð, Jónssonar og
konu hans, Guðrúnar Jónsdótt-
ur á Eyðihúsum í Miklaholts-
hreppi, Jónssonar prófasts á
Stað í Steingrímsfirði. Hálf-
bróðir Guðrúnar var séra
Hannes Jónsson prestur, síðast
í Glaumbæ, d. 1873. Dóttur-
dóttir séra Hannesar er Mar-
grét hét Pétursdóttir (fædd
1861), hvarf vestur um haf ung
að árum. Ókannað er enn,
hvort hún á afkomendur vestra,
en að því slepptu er ekki kunn-
ugt nema um þrjá niðja séra
Hannesar, Halldór Ólafsson,
starfsmann Norrænu eldfjalla-
stöðvarinnar og tvö böm hans.
Halldór, sem veitt hefur góðar
upplýsingar um ætt sína, er
sonur Ólafs stúdents, sonar séra
Þorsteins Halldórsonar í Mjóa-
firði og konu hans, frú Láru
Sveinbjömsdóttur, smiðs, Ólafs
sonar. Telur Halldór, að Svein-
bjöm sé fæddur 26. maí 1832,
dáinn á Espihóli í Eyjafirði á
nýársdag 1885. Ekki veit hann
með vissu um systkini frú Láru,
ömmu sinnar og niðja þeirra.
í þeirri von, að þá sé að finna
hér nyrðra, er þessa getið.
Ágúst Sigurðson,
Mælifelli.
í bænum. Haldið verður áfram
við gatnagerð á þessu ári og á
þá m. a. að ljúka við að steypa
Aðalgötu, en svo heitir gatan,
sem liggur í gegn um bæinn.
í höfninni var á síðasta ári
gert við skemmdir, sem komið
höfðu fram í nýju stálþili og
var síðan steyptur kantur ofan
á það, og svo fyllt að þilinu. Á
næsta sumri er ráðgert að þar
verði steypt þekja. Einnig á að
bæta grjótgarða, en þeir eru í
mjög slæmu ásigkomulagi og
gengur sjór yfir þá, jafnvel í
smábrimi. Þá verður hafinn
undirbúningur að því, að skapa
stærri skiþum aðstöðu hér í
höfninni. En stór skip hafa
ávallt orðið að flýja út úr höfn-
inni, ef eitthvað veður hefur
gert. Er vonast til, að sú aðstaða
verði komin, að hluta til, árið
1978.
Af hitaveitunni hér er það
helst fréttnæmt, að vatn það er
fannst 1975, hefur enst skemur
en gert var ráð fyrir, vegna
mikilla byggingarframkvæmda
á undanfömum árum, og er nú
fyrirhugað, að hefja hér boranir
aftur næsta sumar, til að afla
hitaveitunni nægilegs vatns.
Kalt vatn hefur einnig verið
hér of lítið og hefur sífellt borið
meira á vatnsskorti, jafnvel svo,
að sl. haust var óttast, að veru-
legur vatnsskortur yrði í vetur,
vegna þurrkanna sl. sumar og
í haust. En þetta fór betur en á
horfðist, þar sem fyrri hluti
vetrar var mildur og úrkomu-
samur. Nú er hafinn undirbún-
ingur að nýrri aðveitu til bæjar
ins og er þess vænst, að sú
lausn dugi í a. m. k. tíu ár. Þá
má á það minna, að sl. ár var
lokið við gerð knattspymuvall-
ar, sem mun vera með betri
malarvöllum á landinu. Ætlun-
in er, að gengið verði frá um-
hverfi vallarins nú í sumar.
Nokkuð var unnið að vega-
gerð >hér á sl. ári og var lagður
vegur út úr bænum við austan-
vert Ólafsfjarðarvatn, en þar er
ætlunin að framtíðarvegurinn
liggi að Lágheiði.
Úr bæjarlífinu er það annars
að segja, að Leikfélag Ólafs-
fjarðar æfir nú af kappi sjón-
leikinn Sjóleiðina til Bagdad,
eftir Jökul Jakobsson, undir
stjóm Kristins G. Jóhannsson-
ar skólastjóra. Mun nú farið að
styttast í frumsýninguna. Þá
eru félagasamtök í bænum
byrjuð að halda árshátíðir sín-
ar, og er þar ávallt glatt á hjalla
og heimamenn hafa sjálfir allan
veg og vanda af skemmtiatrið-
unum, og svo öllu öðm framlagi
til árshátíðanna. Em þær góð
upplyfting í skammdeginu.
Þá er verið að ganga frá
aðild Ólafsfjarðarkaupstaðar að
norrænum vinabæjartengslum
og verða formleg tengsl við
bæina Karlskrona, Hilleröd,
Horten og Lovisa. □
Loðnuveiðin
Heildarloðnuaflinn á mánudags
kvöldið var orðinn 226 þúsund
lestir. Á laugardagskvöld höfðu
73 skip fengið einhvem afla og
í vikulokin var aflinn nálega
200 þúsund lestir á móti 137
þúsund lestum á sama tíma í
fyrra. Aflahæstu skipin í viku-
lokin vom Sigurður RE með
8530 lestir en næst komu Guð-
mundur RE og Börkur N K.
Loðnu hefur verið landað á 19
stöðum á landinu. □
4•DAGUR
Um síðustu helgi var pólska
handknattleiksliðið Slask í
heimsókn hér á Akureyri
ásamt íslenska lndsliðinu, og
voru lið þessi aufúsugestir hér
í bæ. Segja má að handbolti á
heimsmælikvarða hafi verið
leikinn í skemmunni þessa
daga, og em þar heimsfrægir
handknattleiksmenn á ferð. 1
liði Slask eru a. m. k. fjórir
leikmenn sem venjulega leika
með pólska landsliðinu, og
ber þar fyrst að nefna Klem-
pel, stóran og sterkan leik-
mann, sem skorar að jafnaði
10 mörk í leik með sínum
frægu vinstri handar skotum.
Slask styrkti lið sitt með
pólska landsliðsmarkmannin-
um en hann er ekki leikmaður
þessa félags og vann sér það
m. a. til ágætis í síðustu heims
meistarakeppni að verja 21
vítaskot af 22 sem á liðið var
dæmt.
Czymczak, en svo heitir
Bæjarstjórinn afhendir Jóni Karlssyni fyrirliða landsliðsins gjöf
bæjarsjóðs. (Ljósm.: Fr. Vestm.)
Slask kom, sá og sigraði
markmaðurinn, er stór og
stæðilegur og kunni greini-
lega ýmislegt fyrir sér í mark-
vörslunni, enda af flestum tal-
inn besti markmaður heims.
Fyrri leikur Slask var gegn
KA, á föstudagskvöldið.
Ekki var búist við að KA
hefði mikið í hina pólsku
meistara að gera, en reyndin
var sú að báðir aðilar gerðu
mikið af mörkum, og náði KA
oft að sýna nokkuð góðan leik.
Gauti stóð í markinu í fyrri
hálfleik og varði ágætlega og
m. a. tvö skot frá Klempel.
Ólafur Haraldsson var í mark
inu í seinni hálfleik og stóð
sig einnig með prýði. í hálf-
leik var staðan 10 gegn 15 fyr-
ir Slask. í seinni hálfleik settu
pólverjar upp hraðann og kom
þá styrkmunur liðanna vel í
ljós. Sérstaklega reyndu þeir
að draga vöm KA fram á völl
inn og gáfu síðan boltann á
línumennina sem þá stóðu
fyrir opnu marki. KA menn
lögðu áherslu á að reyna að
stöðva langskyttumar og opn-
aðist þá um leið fyrir línu-
mennina. Úrslit leiksins urðu
síðan 32 gegn 23 fyrir Slask
og má KA vel við una þeim
úrslitum, en að gera 23 mörk
hjá Slask er mjög góður árang
ur, jafnvel þótt segja megi að
pólverjarnir hafi ekki sýnt
KA mönnum brýndar klæm-
ar. Flest mörk KA gerði Sig-
urður 8 (3 úr víti), Hörður 5,
Ármann og Jóhann 3 hvor,
og Hermann og Páll Kristjáns
son 2 hvor. Klempel var mark
hæstur Slask með 13 mörk
eða jafn mörg og á móti FH í
haust, en alls gerðu 8 leik-
menn þeirra mörk.
Þorramótið á ísafirði
Þorramótið sem er punktamót
á skíðum var haldið á fsafirði
um helgina. Allir bestu skíða-
menn landsins vom þar meðal
keppenda og var því keppni
mikil. Á laugardag var keppt
í svigi og í karlaflokki sigraði
Sigurður Jónsson frá fsafirði,
annar var Hafþór Júlíusson
og þriðji Gunnar B. Ólafsson
og einnig frá ísafirði, og fjórði
Ámi Óðinsson, Akureyri, en
aðrir akureyrskir keppendur
luku ekki keppni.
í kvennaflokki var þrefald-
ur akureyrskur sigur, en sá
sigur féll einnig sömu fjöl-
skyldu í skaut. Fyrst var Mar-
flokki og Margrét Baldvins-
dóttir í kvennaflokki.
Sigurður Jónsson er nú
staddur hér á landi í stuttu
fríi en hann er við æfingar og
keppnir á meginlandinu, og
hefur verið það í marga mán-
uði og er greinilega bestur
okkar skíðamanna, en gaman
verður að fylgjast með þeim
köppum á íslandsmótinu
hvort einhverjum tekst að
hnekkja veldi hans.
Hver man
þetta merki?
Maður einn í bænum kom að
máli við Dag og bað fyrir eftir-
farandi: getur einhver gefið
upplýsingar um, hvenær þetta
merki var gefið út á Akureyri,
hvaða ár og í hvaða tilefni.
Upplýsingar þakksamlega
mótteknar á skrifstofu Dags. □
grét Baldvinsdóttir, önnur
Sigurlaug Vilhelmsdóttir og
þriðja stóra systir hennar
Margrét Vilhelmsdóttir.
í skíðagöngu 20 ára og eldri
sigraði Halldór Matthíasson
en hann keppir nú ekki leng-
ur fyrir Akureyringa, heldur
er fluttur til höfuðborgarinnar
og keppir fyrir þá.
Á sunnudag var keppt í stór
svigi og í karlaflokki sigraði
Sigurður Jónsson, ísafirði,
annar Hafþór Júlíusson, ísa-
firði, þriðji Haukur Jóhanns-
son, Akureyri, og til gamans
má geta þess að næstu menn
voru Tómas Leifsson, Árni
Óðinsson og Björn Víkings-
son, allir frá Akureyri.
í kvennaflokki sigraði Stein
unn Sæmundsdóttir, önnur
Margrét Baldvinsdóttir og
þriðja Kristín Úlfsdóttir, ísa-
firði. 1 alpatvíkeppni sigraði
Sigurður Jónsson í karla-
Landsliðið tapar
Á laugardag léku síðan lands-
liðið og Slask og eftir að for-
sala á aðgöngumiðum hafði
staðið yfir í einn klukkutíma
var orðið uppselt, og þurftu
því margir frá að hverfa. Sýn-
ir það nauðsyn þess að hér í
bæ rísi stórt íþróttahús með
áhorfendasvæðum fyrir a.m.k.
1500 manns. Áður en leikur-
inn hófst fllutti bæjarstjórinn
á Akureyri Helgi Bergs stutt
ávarp og afhenti fyrirliða
landsliðsins Jóni Karlssyni
peningagjöf frá Akureyrarbæ
til styrktar landsliðinu og ósk-
aði bæjarstjóri þeim velfam-
aðar í komandi leikjum. Þá
talaði einnig Haraldur M.
Sigurðsson íþróttakennari og
afhenti landsliðinu einnig pen
ingaupphæð sem hann hafði
safnað daginn áður meðal
íþróttaáhugamanna hér í bæ
og gat þess jafnframt í lokin
að meira kæmi seinna. Sig-
urður Jónsson þakkaði fyrir
H.S.I.
Slask notaði nú í þessum
leik markmanninn fræga, og
þegar leikurinn hófst voru
allir þeirra bestu menn á vell-
inum. Fyrsta mark leiksins
skoraði Ágúst Svavarsson fyr-
ir landsliðið, en Klempel jafn
aði fyrir Slask, og komust þeir
síðan í 3—1, en þá skoruðu
Ólafur Einarsson og Þorbjöm
fyrir landsliðið og náðu að
jafna. Skömmu síðar var
dæmt víti á Slask og skoraði
Jón Karlsson ömgglega úr
því. Slask jók nú heldur for-
skotið og f hálfleik var staðan
orðin 10 gegn 16 fyrir Slask,
og hafði þá Klempel gert
helming af mörkum þeirra.
f seinni hálfleik jók Slask enn
þá forskotið og þegar leikur-
inn var flautaður af var stað-
an 15 gegn 25. í seinni hálf-
leik notaði íslenski landsliðs-
Unglingameistaramót íslands:
Akureyringar
sigursælir í lyftingum
Þá var einnig um helgina
haldið íslandsmót unglinga í
tvíþraut og var keppt í Bald-
urshaga undir stúku Laugar-
dalsvallarins.
Þrettán manna hópur frá
lyftingaráði Akureyrar tók
þátt i mótinu og stóðu sig
KA vinnur
Völsung
Á undan leik landsliðsins og
Slask léku KA og Völsungar
í 3. fl. í handbolta. KA menn
sigruðu örugglega með 14
mörkum gegn 7 eftir að stað-
an hafði verið 8 gegn 6 í hálf-
leik. Lið KA var mjög frískt
í þessum leik en flestir leik-
menn liðsins leika nú á fyrra
ári í þessum flokk, og komust
langt í íslandsmótinu í fjórða
flokk í fyrra.
mjög vel. f fjaðurvigt varð
' íslandsmeistari Viðar Öm Eð-
vardsson frá Akureyri. Hann
snaraði 55 kg og jafnhattaði
70 kg eða samanlagt 125 kg,
sem allt eru Akureyrarmet.
í fluguvigt varð Haraldur
Ólafsson annar, en setti samt
íslandsmet í jafnhendingu,
78 kg.
f léttþungavigt varð íslands
meistari Hjörtur Gíslason.
Hann snaraði 117,5 kg og jafn-
hattaði 145 kg eða samanlagt
262,5 kg, og eru þetta Akur-
eyrarmet einnig. Jakob Bjama
son varð íslandsmeistari í
100 kg flokknum, snaraði 82,5
kg og jafnhattaði 100 kg eða
samtals 182,5 kg, en ekki áður
hefur verið keppt í þessum
flokki þannig að þetta eru allt
fslands- og Akureyrarmet.
Akureyringar voru stigahæst-
ir á mótinu með 29 stig, KR
var í öðm sæti með 21 stig og
síðan komu Ármann og Vest-
mannaeyingar.
þjálfarinn alla svokallaða
varamenn landsliðsins og var
greinilegt að hann var að
þreifa fyrir sér með leikað-
ferðir og annað. Hraðupp- .
hlaup hjá íslendingum voru
ekki nógu góð, þeir gerðu að-
eins eitt mark úr þeim, en
Slask 6. Flest mörk íslenska
liðsins skoraði Jón Karlsson 4
(3 úr víti), Ólafur 3, Þórarinn,
Geir og Þorbjörn 2 hver og
Björgvin og Ágúst 1 hvor. Að
vanda var Klempel markhæst
ur Slask með 10 mörk, og
einnig skomðu sex aðrir leik-
menn færri mörk. Dómarar í
báðum leikjunum vom þeir
Kristján Örn Ingibertsson og
Kjartan Steinback og dæmdu
þeir sæmilega. Þessi hand-
knattleiksheimsókn var Akur-
eyringum mjög kærkomin og
hafi þeir er að henni stóðu
kærar þakkir.
Þór
nálgast 1. deildina
Á laugardag léku Þór og
Grindvíkingar í annarri deild
í körfuknattleik og varr leik-
urinn háður hér á Akureyri.
Áður en leikurinn hófst voru
Þórsarar efstir í deildinni,
höfðu engum leik tapað, en
Grindvíkingar vom númer
tvö eftir að hafa tapað fyrri
leiknum við Þór. Þórsarar
náðu strax afgerandi fomstu
í leiknum og unnu með 68
stigum gegn 63. Eiga þeir nú
aðeins eftir að leika þrjá leiki
í deildinni og þar af tvo hér
heima og hafa engu stigi tap-
að, en næsta lið hefur tapað
tveimur leikjum og þamæsta
þremur, þannig að möguleikar
Þórs að leika í fyrstu deild á
næsta ári em mjög miklir.
Um næstu helgi leika Þór og
Valur í bikarkeppni KKÍ og
fer leikurinn fram hér á Akur
eyri, og verður þar gaman að
sjá hvemig Þór vegnar gegn
fyrstu deildar liði.
íslandsmót
Um helgina var haldið íslands
mót í innanhússknattspymu í
Reykjavík. Aðeins eitt lið frá
Akureyri tók þátt í mótinu,
annarar deildar lið KA. Þeir
stóðu sig síðan nokkuð vel,
unnu þrjá fyrstu leikina með
nokkrum mun, og vom þá
komnir í 8 liða úrslit, en léku
þá gegn Akumesingum sem
sigmðu með 5 mörkum gegn
4.
KA er nú að hefja æfingar
í knattspymu úti, undir stjóm
Matthíasar Ásgeirssonar en
hann verður þjálfari liðsins
fyrst um sinn þar til Jóhannes
Atlason kemur.
Næstu leikir
Um næstu helgi verða háðir
tveir leikir í íslandsmótinu í
handknattleik annarri deild.
Lið Stjörnunnar úr Garðabæ
kemur og leikur við Þór á
laugardag og KA á sunnudag.
Ó. A.
DAGUR•5