Dagur - 24.08.1977, Qupperneq 1
DAGUR
LX. ARG. AKUREYRI, MIÐVIKUDAGUR 24. AGÚST 1977 36- TÖLUBLAÐ
Fjórðungsþing
Norðlendinga
í Varmahlíð
Fjórðungsþing Norðlend-
inga 1977 verður haldið í
félagsheimilinu Miðgarði í
Varmahlíð í Skagafirði dag-
ana 4., 5. og 6. september
n. k. Þingið verður sett að
Hólum í Hjaltadal sunnu-
daginn 4 .september, eftir
guðsþjónustu þar, en þing-
störf fara fram í Varma-
hlíð.
Á fjórðungsþinginu verð-
ur m. a. fjallað um niður-
stöður ráðstefnu um iðn-
þróun, sem Fjórðungssam-
bandið hélt á Húsavík 24.
og 25. júní.
Athugun
á framtíðar-
uppbyggingu
Athugun á framtíðarupp-
byggingu Slippstöðvarinn- j
ar hf. hefst senn og er það
danskt fyrirtæki, sem ann-
ast þá athugun fyrir Slipp-
stöðina. Þetta danska fyrir- j
tæki, Svesje Central, hefur
gert margar slíkar athugan-
ir fyrir skipasíðastöðvar, að j
sögn Stefáns Reykjalíns for-
manns stjórnar Slippstöðv-
arinnar. Að athugun þess-
ari lokinni mun Slippstöðin
hefja framtíðaruppbygg-
ingu á starfsemi sinni.
í opnu viðtali við Stefán
í blaðinu í dag má lesa um
þetta og ýmislegt fleira, m.
a. um vandamál málmiðn-
aðarins og og starfsemi
Slippstöðvarinnar.
Borun á holu
níu lýkur um
mánaðarmót
Þessa dagana standa yfir
ýmiss konar prófanir á ann-
arri aðalvél Kröfluvirkjun-
ar og hafa þær til þessa
gefið góða raun. Að sögn
Einars Tjörva verkfræðings
Kröflunefndar hefur hola
ellefu staðið sig vel að und-
anfömu, en hún hefur átt
það til að „detta niður“
fyrirvaralaust. Hola níu
ætti að sögn hans að vera
fullboruð um mánaðarmótr
en í október er ætlunin að
láta hana blása og tengja
hana síðan við aðveituna í
nóvember.
Af öðrum holum er það
að frétta, að tveir menn
fóru til Aberdeen til þess
að leita ráða varðandi við-
gerð á holu sjö, en verið er
að lagfæra við holu tíu,
svo Jötunn geti borað þar.
Ekki er vitað hvort Jötunn
muni bora holu tíu eða sjö,
þegar Iokið er við holu níu,
en önnur hvor þeirra hola
verður boruð næst, a3 sögn
Einars.
Fallegustu garðarnir
Fallegustu einbýlishúsagarð-
amir á Akureyri þetta árið
eru við Áshlíð 8, Hamragerði
2 og Ásveg 24, að dómi sér-
stakrar dómnefndar Fegrun-
arfélags Akureyrar. Dóm-
nefndin valdi einnig fallegasta
fjölbýlishúsagarðinn og kom
það í hlut raðhússins að Dals-
gerði 1 að hljóta þá viður-
kenningu. Eigendur garðanna
fengu í viðurkenningarskyni
„Stóru blómabókina" frá
Fjölva og voru bækurnar af
hentar í hófi, sem Fegrunarfé-
lagið hélt síðdegis á mánudag
að hótel KEA.
Dómnefndin, sem skipuð er
þremur konum, var ekki öf-
undsverð af hlutverki sínu,
því garðrækt er mikil og al-
menn í bænum og erfitt að
gera upp á milli fallegustu
garðanna.
Eftir hádegi á mánudag
bauð Fegrunarfélagið bæjar-
stjóra, bæjarfulltrúum og full-
trúum fjölmiðla í skoðunar-
ferð um Akureyri og var Jón
Kristjánsson fararstjólri. Jón
er 86 ára gamall og ódrepandi
áhugamaður um fegrun bæjar-
ins. í ferðinni benti hann á
marga staði, þar sem nauðsyn-
legt væri að gera átak í fegr-
unarmálum og sérstaklega gat
hann um innkeyrsluna í bæinn
bæði að sunnanverðu og
norðanverðu, sem hann taldi
til lítillar prýði.
Myndina hér til hliðar tók
Gsal af garðimun við Hamra-
gerði 2.
Borað aftur að Laugalandi
með Dofra í næsta mánuði
Kynningarbæklingur um hitaveituna borinn í hús á næstunni
Hafist verður handa við borun
nýrrar borholu að Laugalandi
fyrir Hitaveitu Akureyrar i
næsta mánuði, að sögn Ingólfs
Árnasonar formanns hitaveitu-
nefndar. Höggborun mun hefj-
ast þar á næstunni, en gufubor-
Hjalteyri:
Stjórn KEA
tekur afstöðu
á fimmtudag
— Mér þykir sennilegt að kann-
að verði hvort tök séu á því að
styðja við bakið á Arnarnes-
hrepp vegna sölu á eignum
Landsbankans á Hjalteyri, sagði
Valur Arnþórsson kaupfélags-
stjóri í samtali við Dag, en Arn-
arneshreppur hefur nú farið
fram á viðræður við forráða-
menn KEA — og verða þær nú
í vikunni. Að sögn Vals mun
stjórn KEA koma saman til
fundar á fimmtudag og verður
þar tekin afstaða til málsins.
Valur kvað líklegt að frekari
viðræður færu fram milli KEA
og Arnarneshrepps eftir stjórn-
arfund KEA. — það liggur í
augum uppi, að við teljum það
ákaflega heppilegt að sveitarfé-
lagið ráði yfir sínum lendum
og lóðum, sagði Valur.
Tilboð í eignir bankans á
Hjalteyri þurfa að berast fyrir
1. september, og sagði Valur, að
mjög lítill tími væri því til
stefnu. — Það verður reynt að
taka til óspilltra málanna í fram-
haldi af stjórnarfundinum, ef
stjórnin treystir sér þá til þess
fyrir félagsins hönd að hafa ein-
hver afskipti af þessu, sagði Val-
ur Arnþórsson að lokum.
inn Dofri mun svo hefja borun
í september. — Það er ekki rétt,
sagði Ingólfur, sem komið hef-
ur fram í sumum fjölmiðlum, að
við höfum flúið frá Laugalandi
yfir að Grísará, vegna þess að
hola 8 hafi mistekist. Það rétta
er, að borun að Grísará er sam-
kvæmt borunaráætlun og sam-
kvæmt henni átti að bora rann-
sóknarholu þar með vinnslu-
möguleika.
Ingólfur sagði, að borun að
Grísará hefði gengið vel og
fundist hefðu 5—8 sekúndulítrar
af heitu vatni, þegar komið var
niður á 5—600 metra dýpi. —
Það er ekki búist við neinu
heitu vatni að ráði fyrr en kom-
ið er niður fyrir 1000 metra,
sagði Ingólfur. — Byrjunin lof-
ar góðu og erfiðasti kaflinn að
baki, ef miðað er við Laugaland,
en þar festist borinn lengi á um
400 metra dýpi.
Vatnið, sem fæst að Grísará,
mun verða tengt við aðaldælu-
stöð hitaveitunnar að Lauga-
landi, en þar er öllu vatni safn-
að saman. Verið er að byggja
dælustöðina og verður hún fok-
held í næsta mánuði. Þá er ver-
ið að vinna að framkvæmdum
við hitaveitubrúna yfir Eyja-
fjarðará og á því verki að ljúka
í næsta mánuði.
— Framkvæmdir vegna hita-
veitunnar í bænum ganga sam-
kvæmt áætlun, sagði Ingólfur,
og tengja á 500 hús við hita-
veituna í fyrsta áfanga af fjór-
um. Það eru hús frá Suður-
byggð að sunnan að Hamars-
stíg milli Þórunnarstrætis og
Mýrarvegar. Ef veður verður
skaplegt ætti framkvæmdum að
ljúka við þennan 1. áfanga um
mánaðarmótin nóvember/des-
ember — og þá ætti að vera
hægt að byrja að tengja. Hve-
nær því verki lýkur er eðlilega
ekki nákvæmlega vitað, enda
fer það bæði eftir íbúunum
sjálfum og fjölda þeirra, sem
við verkið vinna.
Langþráður upplýsingabækl-
ingur um hitaveituna er nú í
prentun að sögn Ingólfs Áma-
sonar og verður honum dreift í
öll hús á Akureyri að lokinni
prentun, eða einhvem næstu
daga.
Hevskaparlok vífta
Heyskap er víða að Ijúka á
Norður- og Norðausturlandi
og hafa töðugjöld sums staðar
þegar verið haldin. Dagur
hafði tal af fjórum bændum
og spurði þá frétta af heyskap-
armálum. Fara svör þeirra hér
á eftir.
Óli Halldórsson bóndi á
Gunnarsstöðum í Þistilfirði
sagði, að bændur þar um slóð-
ir væru flestir í þann veginn
er með meira móti að magni
að ljúka heyskap. Heyfengur
til, .sagði Óli, og óhætt að segja
sæmilegur að gæðum, þó hey
sé ekki eins framúrskarandi
gott og í fyrra. Það hefur verið
frábær tíð að undanförnu, en
framan af sumri rigndi oft og
svo til á hverjum sólarhring,
þótt úrkoma væri aldrei mikil.
Þar af leiðandi var heyskapur
tafsamur.
Óli sagði, að töðugjöld hefðu
verið víða um síðustu helgi og
hann kvaðst sjálfur hafa lokið
heyskap síðasta föstudag.
Guðmundur Jónasson bóndi
Ási í Vatnsdal sagði, að frá-
bær heyskapartíð hefði verið í
Húnavatnssýslum um hálfs
mán'aðar skeið og heyskapur
væri því langt kominn. — Það
eru svo til allir hættir að slá,
sagði hann, en margir eiga
eftir að hirða eitthvað. Ástand-
ið í heyskaparmálmu er því
mjög gott og heyskaparlok á
næstu grösum hjá flestum.
Jósef Tryggvason bóndi á
Þrastarhóli í Arnarneshreppi,
Eyjafirði, sagði að heyskapur
hefði gengið mjög vel að und-
anförnu í þeirri góðu tíð sem
verið hefði. — Á tímabili leit
þetta ekki vel út, sagði hann,
en nu er svo komið að bændur
hér um slóðir eru rétt í þann
veginn að hirða það síðasta.
Margir eiga þó eftir að koma
talsvert miklu heim, en horfur
eru á því, að heyskap verði að
fullu lokið um mánaðarmótin.
Heyfengur er mjög góður og
sums staðar hefur hann að
magni til aldrei verið meiri, en
nokkuð var um það að gras
væri úr sér sprottið.
Teitur Björnsson bóndi Brún
í Reykjadal sagði, að heyskap-
ur væri vel á veg kominn og
töðugjöld á næsta leiti. — Það
er almennt orðinn mjög góð-
ur heyskapur hér, sagði hann,
og heyfengur er óvenju mikill.
Þessi síðasti kafli hefur verið
með eindæmum góður, en
skúrasamt var framan af
sumri.
TRULOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
, SIGTRYGGUR & PÉTUR
1 AKUREYRI