Dagur - 24.08.1977, Page 3
Listafólk frá Lett -
landi í heimsókn
Félagið MÍR, Menningartengsl
íslands og Ráðstjórnarríkjanna
efnir til sovéskra kynningar-
daga í næsta mánuði og af því
tilefni kemur til íslands hópur
dansara úr einum kunnasta
þjóðdansaflokki Lettlands, „Lie-
sma“. Fleiri lettneskir listamenn
og menningarfrömuður eru
einnig væntanlegir hingað til
lands til þátttöku í kynningar-
dögunum, enda eru þeir að
þessu sinni sérstaklega helgaðir
Sovét-Lettlandi.
Þjóðdansaflokkurinn. „Lies-
ma“ er talinn einn af þremur
fremstu dansflokkum í Lettlandi
og hefur hlotið viðurkenningu
víða um heim. Dansararnir sem
hingað koma eru 16 talsins, 8
stúlkur og jafnmargir piltar,
söngvarar eru 2 og 4 hljóðfæra-
leikarar. Stjórnandi flokksins er
Imants Magone og kemur hann
með hópnum. Sýningar „Lies-
ma“- flokksins eru ráðagerðar í
Neskaupstað 8. september, á
Egilsstöðum 9. sept., Akureyri
11. sept. og í Þjóðleikhúsinu 12.
september. Auk þess koma lista-
mennimir fram á kynningar-
kvöldi í Lindarbæ 7. sept.
í tilefni sovéskra kynningar-
daga MÍR 1977 einnig settar upp
sýningar í Neskaupstað og
Reykjavík á veggspjöldum og
svartlist (bókaskreytingum)
eftir lettneska listamenn og list-
munum úr rafi. Einnig verður
haldin sýning á Ijósmyndum og
bókum frá Sovét-Lettlandi og
teikningum lettneskra barna.
í för með listafólkinu frá Lett-
landi eru m. a. Ilmars Puteklis,
aðst.menningarmálaráðh. lettn-
eskra sovétlýðveldisins, Valdis
Blums þjóðleikhússtjóri í Ríga
og Élena A. Lukaséva lögfræð-
ingur frá Moskvu, sem flytur
fyrirlestur um hina nýju stjórn-
arskrá Sovétríkjanna í MÍR-
salnum, Laugavegi 178, sunnu-
dagskvöldið 11. september.
Gunars Kirke, kunnur lettn-
eskur myndlistarmaður, hefur
teiknað auglýsingaspjöld í til-
efni sovéskra kynningardaga
MÍR 1977 -
Kaffisala að Hólavatni
Sumarstarf KFUM og K á
Akureyri hófst 3. júní í sumar
og hafa 4 flokkar drengja og
stúlkna dvalið þar í sumar. í
þrettán sumur hefur verið
sumarstarf við Hólavatn í Eyja-
firði. Aðsókn hefur yfirleitt
verið nokkuð góð.
Börnin stytta sér stundir við
bátsferðir, sund og veiðar,
íþróttir, gönguferðir og leiki
úti og inni. Einnig taka þátt í
biblíunámskeiðum, kvöldvök-
um og söng. Hver dagur hefst
og honum lýkur með Guðsorði
og bæn.
Sumarstarfi KFUM og K
lýkur með kaffisölu að Hóla-
vatni sunnudaginn 28. ágúst
n. k. kl. 14.30 til 18.
Norskur piltur bjargar
dreng frá drukknun
í Andapollinum
Fjórtán ára gamall norskur pilt-
r, Henning Wernöe, tókst með
snarræði að bjarga fimm ára
dreng frá drukknun í andapoll-
inum, fyrir neðan sundlaugina
á Akureyri, fyrir nokkrum dög-
um. Litli drengurinn hafði farið
að andapollinum einn síns liðs til
þess að skoða fuglana — og féll
hann í vatnið. Norski pilturinn
sá hvað verða vildi og náði
drengnum á land. Var hann þá
orðinn meðvitundarlaus og
hafði sopið mikið vatn.
Faðir norska drengsins var
ekki langt undan, og gerði
hann aðvart. Lögregla og sjúkra-
bíll komu brátt á vettvang og
var litli drengurinn fluttur á
sjúkrahús, þar sem hann hresst-
ist brátt.
Norski pilturinn var hér á
ferðalagi ásamt fjölskyldu sinni
og dvöldu þau hjá vinafólki
sínu á Akureyri.
Hestamenn
HættiÖ strax!
Uppgröfturinn á túninu sunn-
an sundlaugarinnar hefur víst
ekki farið fram hjá neinum,
sem átt hefur leið um suður-
brekkuna undanfarna daga.
Sagt er að þar eigi að rísa sýn-
inga- og íþróttahöll. Það er
næsta furðulegt af svokölluð-
um ráðamönnum að velja
svona húsi slíkan stað. Húsi,
sem ætla má — ef einhver vill
nota — að mikil umsvif og um-
ferð verði í kringum.
A sama tima og bæjarfélagið
stynur undan umferðarvanda
— einkanlega þar sem fólki er
att saman eftir forsögn „kerf-
isins“ — á að auka á þau vand-
ræði með því að troða þessu
húsi niður, þar sem ekkert
rúm er fyrir það. Ætla mætti
að ráðamenn viti ekki að á
þessu svæði er barnaskóli með
örfá og varla nothæf bílastæði,
gagnfræðaskóli með örfá léleg
bílastæði, íþróttahús með ekk-
ert bílastæði, sundlaug með
ekkert bílastæði, hússtjórnar-
skóli með ekkert bílastæði, iðn-
skóli með fáein sæmileg bíla-
stæði og menntaskóli með
nokkur illa lögð bílastæði.
Talað er um það, að við
þetta hús eigi að vera 200 bíla-
stæði, en þyrfti að vera 5—600
bílastæði ef nota á húsið.
Mönnum ætlar seint að tak-
ast að læra af reynslunni og
vilja einatt brenna sig á því
sama. Sjálfstæðishúsinu var
t. d. klesst niður á alltof þröng-
um stað, öllum sem að stóðu
til skammar, — og fleira mætti
nefna. Þótt deila megi um það,
hvort réttlætanlegt er að
byggja íþrótta- og sýnnigahús-
ið á þeim stað sem nú eru hafn-
ar framkvæmdir á, sýnast rök-
in gegn því vera yfirgnæfandi
á móti rökum með því. Rétt-
ast væri því að hætta bygg-
ingarframkvæmdum á þessum
stað, enda margir aðrir betri
staðir til, svo sem lóð sú, sem
álverksmiðjan forðum átti að
rísa á.
Þótt hugarfar ykkar ráða-
manna beri ekki vott um mikla
framsýni, munum við, sem
greiðum kostnaðinn, fremur
líða skammsýni ykkar en út-
lendan eiturúrgang. Ef þið
munið það, að það er ekki ykk-
ar eigið fé, sem þið eruð að
ráðstafa, heldur fé almenn-
ings, — og þið eruð skyldugir
til þess að fara vel með það.
P. Jóh.
AUGLYSH) IDEGI
Lögtaksúrskurður
Hér með úrskurðast lögtak fyrir gjaldföllnum og
ógreiddum þinggjöldum ársins 1977 álögðum á
Akureyri, Dalvík og í Eyjafjarðarsýslu, en þau
eru: tekjuskattur, eignarskattur, kirkjugjald,
slysatryggingagjald v/heimilisstarfa, iðnaðar-
gjald, slysatryggingagjald atvinnurekenda skv.
36. gr. laga nr. 67/1971, lífeyristryggingargjald
skv. 9. gr. laga nr. 11/1975, atvinnuleysistrygg-
ingargjald, almennur og sérstakur launaskattur,
kirkjugarðsgjald, iðnlánasjóðsgjald og sjúkra-
trygginggjald. Ennfremur fyrir skipaskoðunar-
gjaldi, lestargjaldi og vitagjaldi, bifreiðaskatti,
skoðunargjaldi bifreiða og slysatryggingagjaldi
ökumanna 1977, vélaeftirlitsgjaldi, áföllnum og
ógreiddum skammtanaskatti og miðagjaldi, sölu-
skatti af skemmtunum, vörugjaldi af innl. framl.
sbr. 1. 65/1975, gjöldum af innlendum tollvöru-
tegundum, matvælaeftirlitsgjaldi og gjaldi til
styrktarsjóðs fatlaðra, skipulagsgjaldi af nýbygg-
ingum .söluskatti, sem í eindaga er fallinn, svo
og fyrir viðbótar- og aukaálagningum söluskatts
vegna fyrri tímabila.
Verða lögtök látin fara fram án frekari fyrirvara,
á kostnað gjaldenda en ábyrgð ríkissjóðs, að 8
dögum liðnum frá birtingu úrskurðar þessa, ef
full skil hafa ekki verið gerð.
BÆJARFÓGETINN Á AKUREYRI, DALVÍK
OG í EYJAFJARÐARSÝSLU,
18. ágúst 1977.
Nýtt fréttablað fyrir hestamenn hefur hafið göngu sína. Fyrsta blað kom út
í júlí 1977 og mun síðan koma út mánaðarlega. Tilgangurinn er að flytja
nýjar fréttir af því sem er að gerast í hestamennsku, fræðsluefni og auglýs-
ingar. Þeir sem hafa áhuga á að skoða nýútkomið blað og/eða gerast
áskrifendur snúi sér til:
■I
JÓN MATTHÍASSON, Þórustöðum, sími 19945,
STEFÁN FRIÐGEIRSSON, Dalvík, sími 61324,
MAREN ÁRNASON, Hraukbæ, sími 21916,
PÁLL SÆMUNDSSON, Akureyri, sími 11050,
JÓNAS OG KRISTÍN, Litla-Dal, sími um Saurbæ,
BRYNJÓLFUR SVEINSSON HF., Skipagötu 1.
► Auglýsingar
S
.
DAGUR•3