Dagur - 24.08.1977, Page 7
Pétur Pétursson Höllustöðum
Þegar ég var stráklingur í
sveitinni heima man ég fyrst
eftir Pétri. Hann kom að mæla
jarðabætur. Hann hafði metra-
stiku meðferðis, sem hann
reiddi á hestbaki, vel ríðandi
kom hann innan veginn, snar-
aðist af baki, meðalmaður á
hæð, þrekinn um herðar, bjart-
ur í andliti, myndarlegur hvar
sem á hann var litið. Handtakið
þétt, kveðjan skýr og hressileg.
Hann var alltaf fullur áhuga á
starfinu. Starfaði að öllu af mik
illi atorku, stikaði stórum yfir
flagið um leið og hann mældi,
skrifaði niður í flýti en þó með
einbeitni.
Síðan liðu mörg ár, ég fór í
fjarlægan landshluta og sá
aldrei Pétur á Höllustöðum.
Hann bjó sínu búi, ræktaði jörð
ina, hirti sínar skepnur og starf-
aði að félagsmálum sveitar sinn
ar og sýslu.
Seinna lágu leiðir okkar sam-
an á Blönduósi. Þá var hann
endurskoðandi í kaupfélaginu
og dvaldi þar langdvölum við
það og fleiri störf en bjó jafn-
framt búi sínu að Höllustöðum.
Þá spiluðum við oft brids eða
vist við góða félaga. Pétur var
gætinn í spilum og hafði gaman
af góðum félagsskap.
Hann las mikið einkum ævi-
sögur og endurminningar, einn-
ig dagblöðin og fylgdist ákaf-
lega vel með flestum dægur-
málum. Hann var framfaramað-
ur. Þegar sjónvarpið kom út
um land hafði hann yndi af
frétta- og fræðsluefni þess og
fylgdist með því
Ég minnist hans sem fundar-
stjóra á aðalfundi kaupfélags-
ins, skörulegur, vel máli farinn
og stjórnsamur en hafði glöggt
auga fyrir því kímilega í um-
hverfinu.
Það var alltaf hreyfing í
kringum hann, það geislaði af
honum lífsorkan, hvort sem
hann sveiflaði bílnum eftir
Svínvetningabrautinni eða dró
lagðprúðar kindur í Kúlurétt.
Ý
Ég kom til hans stuttu áður
en hann dó og las fyrir hann
blaðagrein. Hann tók afstöðu
til málanna eins og jafnan áður,
með sinni vanalegu hreinskilni,
þó hann væri heltekinn bana-
meini sínu.
Jarðarfarardagurinn var logn
kyrr norðlenskur dagur. Vorið
var loksins komið, fuglarnir
sungu yfir Svínavatni, hljómur-
inn barst inn um kirkjudyrnar.
Mjúkar línur landsins blöstu
við af hlaðinu á Höllustöðum,
þegar líkfylgdin stansaði þar og
hlýddi á Karlakór Bólstaðar-
hlíðarhrepps syngja Húnabyggð
og Blessuð sértu sveitin mín,
en Pétur var um mörg ár góður
liðsmaður í kórnum.
Það var líka sterkur gróður-
ilmurinn úr Guðlaugsstaðatún-
inu, þegar við gengum þar frá
bænum og niður að heimagraf-
reitnum, þar sem moldin beið.
Fjölmenni kvaddi hann
hinstu kveðju, húnvetnskt
feændafólk kvaddi dugmikinn
bónda, sem lét ekki aðra vinna
verkin fyrir sig, ljúfmenni í um
gengni, sem vildi leysa vanda
hvers og eins eftir því sem
mögulegt var, gestrisinn heim-
ilisföður, sem gott var heim að
sækja.
Pétur var fæddur að Steiná
í Bólstaðarhlíðarhreppi þann
30. nóvember 1905. Foreldrar
hans voru Pétur Pétursson og
Ingibjörg Sigurðardóttir. Bú-
fræðingur frá Hólum 1924.
Stundaði verklegt nám í Nor-
egi 1925—’27, en var síðan
bóndi frá 1933, lengst af á
Höllustöðum í Svínavatns-
hreppi. Hann starfaði í ýmsum
trúnaðarstöðum fyrir sveit sína
og sýslu. Hann lést 7. maí 1977.
Eftirlifandi kona Péturs er
Hulda Pálsdóttir frá Guðlaugs-
stöðum. Þau eiga 4 uppkomin
börn, öll nýtir þegnar í þjóð-
félaginu. Ég og kona mín vott-
um þeim öllum dýpstu samúð
okkar. Kristinn Pálsson,
Blönduósi.
Samningar milli Iðnaðar-
deildar SÍS og Flugleiða
Þessi mynd var tekin er samningur Iðnaðardeildar SÍS og Flug-
leiða um vöruflutninga var undirritaður. Sigurður Matthíasson t. v.
undirritaði fyrir hönd Flugleiða en Hjörtur Eiríksson fyrir Iðnaðar-
deild SÍS.
FRÁ GRUNNSKÓLUNUM
Kennarafundir verSa í skólunum (nema G. A.)
fimmtudaginn 1. sept. nk. kl. 10 f. h.
Börn í 4.—6. bekkjum mæti í skólana þriðjudag-
inn 6. sept. kl. 10 f. h., en börn í 1,—3. bekkjum
kl. 1 e. h .sama dag.
Forskólakennslan hefst mánudaginn 12. sept.,
en áður munu viðkomandi kennarar hafa sam-
band við heimili þeirra barna, sem innrituð hafa
verið. Forskólagjaldið er 3.200,00 kr. og greið-
ist í tvennu lagi (október og febrúar).
Innritun þeirra barna, sem flust hafa í bæinn, eða
milli skólasvæða og er ætlað að skipta um skóla,
fer fram í skólunum, föstudaginn 2. sept. kl. 10
—12 f. h. Skólasvæði eru óbreytt miðað við sl.
skólaár. Reiknað er með, að unglingadeildir (7.
—9. bekkir) taki til starfa um 20. sept. n. k.
Nánar auglýst síðar.
SKÓLASTJÓRARNIR.
Nýlega voru undirritaðir á Ak-
ureyri samningar milli Flugleiða
annars vegar og Iðnaðardeildar
sambands íslenskra samvinnu-
félaga hins vegar um flutning á
fullunnum iðnaðarvörum til út-
landa. Hér er um að ræða 80
lestir af iðnaðarvörum sem
flytjast eiga til Bandaríkjanna
og um 50 lestir til Evrópulanda.
Vörur þær sem hér um ræðir
eru ullarvörur, fatnaður, fata-
efni og skinnavörur. Vörurnar
eru framleiddar í verksmiðjum
SÍS á Akureyri. Flutningunum
verður þannig hagað að Akur-
eyri útskipunarhöfn með um-
skipun í Reykjavík. Varan er
flutt með innanlandsflugi suður
og skipað um borð í millilanda-
flugvélarnar í Keflavík. Svip-
aður samningur var einnig í
gildi á síðastliðnu ári og voru
þá fluttar um 50 lestir á þennan
hátt. Fyrir hönd Iðnaðardeildar
SÍS undirrituðu samninginn
Hjörtur Eiríksson og Bergþór
Konráðsson en fyrir hönd Flug-
leiða þeir Sigurður Matthíasson
og Thulin Johansen. Auk þeirra
tóku Kolbeinn Sigurbjörnsson
á skrifstofu Flugleiða á Akur-
yri og Jón Arnþórsson sölustjóri
útflutnings- og iðnaðardeildar
SÍS þátt í samningunum.
Aðalfundur
Stéttarsambands
bænda að Eiðum
Dagana 29. og 30. ógúst verður
aðalfundur Stéttarsambands
bænda haldinn að Eiðum í Suð-
ur-Múlasýslu. Þegar hafa ver-
ið kosnir 46 fulltrúar til þess
að mæta á fundinum. Gert er
ráð fyrir því, að mörg mál
verði tekin fyrir á fundinum
að þessu sinni, þar sem fjöl-
margar ályktanir hafa borist
stjórn Stéttarsambandsins frá
hinum almennu bændafund-
um sem haldnir voru á sl.
vetri. Einnig hafa ályktanir
borist sambandinu frá aðal-
fundum kaupfélaga, kjör-
mannafundum og búnaðarfé-
lagsfundum.
n □
Móttaka
á handprjónuðum lopapeysum hefst fimmtudaginn 25. ágúst
Hugmyndabankinn SÍMI 21900
□ HBS U