Dagur - 14.09.1977, Qupperneq 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGTJR
LX. ARG. AKUREYRI, MIÐVIKUDAGUR 14. SEPT. 1977 39. TÖLUBLAD
Orkumál
Fjórðungsþing Norðelnd-
inga, haldið í Varmahlíð 4.
til 6. september sl. sam-
þykkti eftirfarandi um
orkumálin:
Fjórðungsþingið fagnar
þeim framförum í orkumál-
um, sem orðið hafa eða eru
í sjónmáli. Sérstaklega er
ástæða til að fagna fram-
kvæmdum að jarðvarma-
veitum og tengingu raf-
orkukerfisnis við Lands-
virkjunarkerfið. Jafnframt
leggur þingið áherslu á að
styrkja þarf raforkudreifi-
kerfið innan fjórðungsins
og jafna raforkuverðið. —
Fjórðungsþnigið vekur at-
hygli á þýðingu orkuöfl-
unar fyrir iðnþróun á Norð
urlandi og leggur áherslu á
að stefna í orkuöflun og
dreifing tryggi sem hag-
kvæmasta orku til stöðugr-
ar iðnþróunar.
Norður
landsvirkjun
Fjórðungsþingið samþykkti
ennfremur: Fjórðungs- ;
þingið samþykkir að fela
fjórðungsráði að kjósa
nefnd, sem annist viðræður ;
við iðnaðarráðuneytið um
Norðurlandsvirkjun. Jafn-
framt kanni hún aðra j
möguleika á skipulagi orku-
mála. Nefndin hafi for-
göngu um að kynna málið I
á héraðsfundum á vegum
sambandsnis á næsta
hausti.
Sintoníu
hljómsveitin
Sinfoníuhljómsveit íslands
er nú á hringferð um land-
ið og kom hún hingað til j
Akureyrar á laugardaginn
og hélt tvenna hljómleika
í íþróttaskemmunni. Stjórn |
andi, Páll P. Pálsson, ein- j
leikari Guðný Guðmunds-
dóttir konsertmeistari og
einsöngvarar Kristinn j
Hallsson og Sieglinde Kah-
man. Hljómsveitin lék létta
tónlist fyrir börn klukkan j
þrjú og munu um eitt þús-
und ánægð böm hafa notið
þeirra. Eru slíkir barnatón-
leikar algerð og þakkar-
verð nýjung. Almennir
tónleikar voru svo síðarj
sama dag og voru þeir
einnig vel sóttir. Kaupfélag
Eyfirðinga bauð tónlistar- j
fólkniu til hádegisverðar1
og bæjarstjóm til kvöld-
verðar.
Heysala
til Færeyja
Sambandið hefur þegar selt
ofurlítið af heyi til Færeyja,
sem flutt er með Smyrli.
Þangað voru í fyrra seld
50 tonn. Verðið er nú 33
krónur fyrir kílóið. Hey-
sala er nokkur innanlands
og eru það m. a. félög hesta-
manna, sem hey kaupa og
flytja jafnvel milli lands-
hluta.
Hinir smærri útgerðarstaðir á Norðurlandi hafa sannað tilverurétt sinn. Sjá í opnu viðtal við
Stefán Valgeirsson alþingismann. (Ljósm. E. D.)
Æfingar hafnar hjá LA
Brynja Benediktsdóttir leikhússtjóri
Hjónin Brynja Benediktsdóttir
og Erlingur Gíslason, fastráðn-
ir starfskraftar Þjóðleikhússins,
hafa fengið orlof þar til dvalar
á Akureyri næsta leikhúsár og
til starfa hjá Leikfélagi Akur-
eyrar.
Brynja er leikhússtjcki, en
Erlingur verður ásamt henni
leikstjóri fyrsta verkefnisins,
sem æfingar hófust á í byrjun
þessa mánaðar, en mun einnig
í vetur vinna við Þjóðleikhúsið.
Fyrsta verkefnið er eftir Odd
Björnsson og heitir Söngleikur
Sunnudaginn 4. september var
hátíð haldin í Grímsey. Þá bauð
Óli Bjamason, útgerðarmaður,
til veislu í tilefni af 75 ára af-
mæli sínu og gullbrúðkaupi
þeirra hjóna, hans og Elínu
Sigurbjörnsdóttur konu hans.
Við það tækifæri gaf séra Pétur
Sigurgeirsson vígslubiskup og
sóknarprestur í Grímsey saman
brúðhjónin Þórleif Ólason og
Ingibjörgu Margreti Gunnars-
dóttur og skírði um leið barn
þeirra. Veislan fór fram í fé-
lagsheimilinu og svignuðu borð
undir krásum í matarveislu
klukkan sex síðdegis, eftir
hjónavígsluna í kirkjunni. Síð-
an var dansað til klukkan þrjú
um nóttina. Sjómenn voru í
landi, og voru allir yfir 14 ára
aldri boðnir.
En daginn eftir var yngra
fólkinu boðið til matarveislu,
og þá var einnig dansað á eftir.
Man ég varla eftir skemmti-
legra samkvæmi en í veislunni
hjá Óla Bjamasyni.
f september hafa ógæftir ver-
ið, en nú er þó róið. Engir veru-
legir toppar hafa verið í afla-
brögðunum í ár, en aflinn er þó
orðinn eins mikill og um sama
um Loft. Efniviðurinn er úr
sögunni um Galdra-Loft, í nú-
tímastíl. Verk þetta er mjög
viðamikið, sagði leikhússtjóri.
Það var áður sýnt í Þjóðleik-
húsinu, undir nafninu Horna-
kórall 1967. Síðan hefur höf-
undur að nokkm endursamið
verkið.
Tónlistina samdi Leifur Þór-
arinsson og er hann hingað kom
inn og æfir þetta leikhúsverk að
sínum hluta, með tónlistarmönn-
unum, sem eru Ámi Ketill Frið-
riksson, Örn Magnússon, Gunn-
leyti í fyrra, en þá aflaðist vel.
í gær var féð rekið til réttar,
og er það alltaf skemmtilegt í
góðu veðri eins og þá var. Búið
er að steypa undirstöður undir
fiskhús það, sem KEA var að
byggja. Ætlunin er, að hús
þetta verði komið í gagnið fyrir
næstu aðalvertíð.
(Samkv. viðtali við Steinunni
Sigurbj örnsdóttur, fréttaritara
ar Ringsteð og Sævar Bene-
diktsson.
í þessu leikhúsverki em mikl-
ir söngvar og gerði Kristján
Árnason textana. Yfir tíu leik-
arar em í Söngleik um Loft, en.
þess utan hljóðfæraleikarar og
söngvarar. En fastráðnir leikar.
ar hjá Leikfélagi Akureyrar
eru fimm talsins, auk ljósa-
meistara og konu, sem annast
búninga. Leikhússtjóri taldi þá
mjög hæfa og auk þess væri
hér á Akureyri hópur gamalla
og góðra leikara, sem leikhús-
inu yrði eflaust mikill styrkur
að, svo sem jafnan hefði verið.
Frumsýningin verður væntan-
lega í þriðju viku októbermán-
aðar.
Næsta verkefnið er svo barna-
; leikritið Snædrottningin, sem
byggt er á einu af ævintýmm
H. C. Andersens, og samtímis
æfingum á því leikriti, verða
hafnar æfingar á næsta eða
næ.stu verkefnum, sem enn er
ekki ráðið hver verða. Blaðið
þakkir þessar upplýsingar og
óskar nýjum starfskröfutm vel-
farnaðiar í starfi
Málverka
sýning
Málverkasýning, sem jafnframt
er sölusýning, verður haldin á
vegum Myndlistarskólans á Ak-
ureyri og hefst kl. 16 á föstu-
daginn og lýkur 25. september.
Á sölusýningunni verða 33
myndir eftir jafn marga höf-
unda og gefa þeir allir verk sín.
Ágóðanum verður varið til
bókakaupa fyrir Myndlistarskól-
ann.
Sýningin er opin virka daga
klukkan 18—22 og um helgar,
klukkan 13—22. Skólastjóri
Myndlistarskólans er Helgi Vil-
berg og er hann listamönnum
mjög þakklátur fyrir málverka-
gjafimar. Þeir sem gefa myndir
á þessa sölusýningu eru:
Aðalsteinn Vestmann, Alfreð
Flóki, Björg Þorsteinsdóttir,
Bolli Gústavsson, Bragi Ásgeirs-
son, Egill Eðvarsson, Einar Þor.
láksson, Eiríkur Smith, Gísli
Guðmann, Guðmundur Ár-
mann, Helgi Vilberg, Hringur
son, Jens Kristleifsson, Jóhann-
es Geir, Jón Reykdal, Jónas
Guðmundsson, Kjartan Guð-
jónsson, Kristinn G. Jóhanns-
son, Óli G. Jóhannsson, Pétur
Friðrik, Ragna Róbertsdóttir,
Sigurður Sigurðsson, Sveinn
Björnsson, Valtýr Pétursson,
Veturliði Gunnarsson, Þorbjörg
Þórðardóttir, Þorvaldur Skúla-
son, Þórður Hall, Örlygur Krist-
fínnsson, Örlygur iSigurðsson,
Órn Ingi Örn Þorsteinsson.
Engin
tæring
Bæjarstjórn hefur borist skýrsla
frá Rannsóknarstofnun ríkisins
um prófanir á heita vatninu á
Laugalandi. — Niðurstöður eru
þær, að vatnið innihaldi örlítið
af súrefni, sem gæti valdið tær-
ingu á stáli. Rannsóknarstofn-
unin telur þó ekki ástæðu til að
óttast málmtæringu, einkum ef
um væri að ræða íblöndun á
natríum sílfíti. Mega þetta tel-
ast góðar fregnir, einkum þar
sem áður voru komnar á kreik
ýmsar sögusagnir um aðra og
verri eiginleika þessa vatns.
Eldgos við Leirhnjúk
Síðasta fimmtud.kvöld hófst gos nokkra
kílómetra norðan við Leirhnjúk. Opn-
aðist nær kílómeters löng sprunga og
rann þunnt hraun úr sprungunni, hellu-
hraun. Gosið rénaði mjög fljótt. Hraun-
ið er talið þekja 0,7 ferkílómetra lands,
og hraunmassinn um 2 millj. rúmmetrar.
Jafnhliða þessu gosi varð mikið gufugos í
Bjarnarflagi úr borholu einni þar, enda jókst
gufuþrýstingur mjög á því svæði. Nýbráðið
gjall var við borholu þessa þegar um hægð-
ist. Hefur þar því komið upp bráðið grjót
ásamt gufunni.
f þessum umbrotum tók jörð að gliðna, á
sama hátt og í apríl í vor, í Bjarnarflagi og
við Kísiliðjuna. Á mannvirkjum Kísiliðjunnar
urðu verulegar skemmdir, bæði á húsum og
þróm, en reksturinn heldur áfram, eins og
ekkert hafi í skorist, svo og við Kröfluvirkjun.
Við landgliðnun slitna hverskonar leiðslur,
sem slitað geta, og er af því ómældur skaði.
Þá varð vegurinn um Námaskarð ófær og
var lokað þar til viðgerð hafði farið fram.
Jarðskjálftar voru verulegir. Allt var rólegt
í Kröfluvirkjun, nema hvað almannavarnir
þar, og í Mývatnssveit, gerðu sínar öryggis-
ráðstafanir með hliðsjón af þessum náttúru-
hamförum.
Stórhátíð