Dagur - 14.09.1977, Page 6
mm
Akureyrarkirkja. Messað á
sunnudaginn kl. 10.30 f. h.
Prestsvígsla. Vígður verð-
ur Pálmi Matthíasson
cand. theol, settur sóknar-
prestur í Melstaðarpresta-
kalli, Húnavatnsprófasts-
dæmi. Séra Pétur Sigur-
geirsson framkvæmir vígsl-
una. Vígsluvottar: Séra
Birgir Snæbjörnsson, séra
Pétur Þórarinsson, sem
þjóna fyrir altari, séra
Bolli Gústavsson, sem lýs-
ir vígslu, séra Pétur Þ.
Ingjaldsson prófastur og
séra Gísli Kolbeins, sem
þjóna við altarisgönguna.
Sálmar nr. 267, 24, 21, 234,
236, 241, 527.
Arnab iitror
■
w
BORGARBIO
A »* ■
idÉHMIHtWHIMtD
TOAV FKAnCíO/A
BORGARBÍÓ
SÍMI 23500.
Ólafsfirðingar, Akureyri og
nágrenni. Sjáið auglýsingu
frá Ólafsfirðingafélagniu
annars staðar í blaðinu.
Átján ára skiptinemi kirkj-
unnar, bandarísk stúlka,
þarf á að halda 2ja mán-
aða dvöl á heimili á Akur-
eyri. Gofct tækifæri, þar
sem um er að ræða heimili
með unglinga í enskunámi.
Sóknarprestar gefa upp-
lýsingar.
Hjálpræðisherinn. 'Fimmtu-
daginn 15. sept. kl. 20.30
verður kvöldvaka í sal
Hjálpræðishersins. Fjöl-
breytt dagskrá og happ-
drætti. Sunnudaginn 18.
sept. kl. 16.30: Almenn
samkoma. Allir hjartan-
lega velkomnir á þessar
samkomur. — Krakkar,
krakkar, takið nú eftir. Á
sunnudaginn byrjum við
sunnudagaskólann kl. 1.30.
Mætið nú öll.
Sjónarhæð. Almenn sam-
koma n. k. sunnudag kl. 17.
Ræðurmaður: Sæmundur
G. Jóhannesson. Biblíu-
lestur í samræðuformi á
fimmtudag kl. 20.30. Verið
velkomin.
Brúðkaup. Laugardaginn 3.
september voru gefin sam-
an í hjónaband í Akureyr-
arkirkju brúðhjónin ung-
frú Eygló Jóhannesdóttir,
Arnarnesi, og Jósavin
Heiðmann Arason land-
búnaðarverkamaður, —
Auðnum. Heimili þeirra
verður Ytri-Brennihóll,
Glæsibæ j arhreppi.
Laugardaginn 3. sept.
vou gefin saman í hjóna-
band í Akureyrarkirkju
brúðhjónin Ásdís Annika
Gunnlaugsdóttir, Hamars-
stíg 12, og Orri Torfason
röntgentæknir, Einilundi
6 d. Heimili þeirra er að
Hvassaleiti 14, Reykjavík.
Brúðhjón. Hinn 10. septem-
ber voru gefin saman í
hjónaband í Akureyrar-
kirkju ungfrú Steinunn
Jónasdóttir nemi í fram-
haldsdeild Samvinnuskól-
ans og Ómar Grétar Ingv-
arsson vélskólanemi. Heim-
ili þeirra verður að Stein-
holtsvegi 8, Eskifirði.
Aðalfundur Bridgefélags Ak-
ureyrar verður
i haldinn í Gefjun-
> arsalnum þriðju-
daginn 20. septem-
ber kl. 8. Venjuleg
aðlfundarstörf. — Félagar
fjölmennið. — Stjómin.
Borgarbíó sýnir myndina
Drekkingarhylurinn, með
Paul Newman og Joanne
Woodward í aðalhlutverk-
um. Mynd þessi fjallar um
leynilögreglumanninn Lew
Harper, sem tekur að sér
að rannsaka sendingar á
nafnlausum bréfum, og
dregst þá inn í hraða og
æsispennandi atburðarás.
Myndin hefur hlotið mjög
góða aðsókn þar sem hún
hefur verið sýnd. Miðaverð
er kr. 400. Á sunnudag kl.
3 verður sýnt teiknimynda-
safn.
Nýja bíó sýnir myndina Spæ-
arinn, sem er hefðbundin
sakamálamynd. — Næsta
mynd sem sýnd verður er
1001 nótt (Arabískar næt-
ur) eftir Pasolini. Þegar
sýningum á þeirri mynd
lýkur, taka við sýningar á
myndinni Heimur á heljar-
þröm. Á barnasýningu á
sunnudag kl. 3 verður
sýnd myndin Fjórir grín-
karlar, er sýnd hefur verið
tvo undanfarna sunnudaga
við mikla aðsókn.
I.O.O.F. — 2 1599168V2
Lionsklúbburinn Hængur. -
#Fundur fimmtudag-
inn 15. sept. kl. 7.15
í félagsheimilinu.
Fundur í aukakílóafélaginu í
Lóni miðvikudaginn 14.
september kl. 20.30.
L'onsklúbburinn Huginn. —
Fundur á Hótel
KEA n. k. fimmtu-
dag, 15. sept. kl.
12.15.
Áheit á Munkaþverárkirkju.
Edda kr. 5.000. Gunna kr.
5.000. Ónefndur kr. 3.000.
N. N. kr. 500. — Bestu
þakkir. Sóknarnefndin.
Styrktarfélagi vangefinna á
Norðurlandi hafa borist
þessar gjafir: Frá NN kr.
5.000. Frá ÁÁ kr. 5.000
(áheit), frá BB kr. 1.500
(áheit), frá AP-ÖK kr.
6.200, frá Á.S. kr. 20.000.
Frá Þóru Steingrímsdótt-
ur og Páli Einarssyni kr.
100.000. Innilegar þakkir.
Gjafir og áheit. Til Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar frá
E. S. kr. 20.000, frá M. E.
(um hendur S. J.) kr.
20.000, frá afa kr. 1000. Til
Strandarkirkju frá E. S.
kr. 3000, frá Þ. V. kr. 5.000,
frá G. G. kr. 500, frá Þ. Þ.
kr. 2000, frá A. M. J. kr.
2000. Til Akureyrarkirkju
frá Önnu Stínu kr. 2000,
frá R. S. kr. 1000, til
Stærri-Árskógskirkju frá
Önnu Stínu kr. 2000. Til
Æskulýðsfélags Akureyr-
arkirkju frá Sigurði Leós-
syni kr. 10.000. Til Rauða
krossins frá Þóru Lenu og
Kolbrúnu kr. 2700. Bestu
þakkir. Pétur Sigurgeirs-
son.
Stjórnin.
Kvenfélagið Baldursbrá held-
ur hlutaveltu að Laxagötu
5, laugardaginn 17. sept.
kl. 3 e. h. — Margt góðra
muna. Ágóði rennur til
líknarmála. Komið og
styrkið gott málefni. —
Nefndin.
:
n
■
sionvarp
ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1977
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Á vogarskálum. Annar þáttur. í
þessum þætti verða einkum gefin ráð
um mataræði og líkamshreyfingu. Um-
sjónarmenn Sigrún Stefánsdóttir og dr.
Jón Óttar Ragnarsson.
20.55 Ellery Queen. Bandarískur saka-
málamyndaflokkur. Lokaþáttur. Viðburða-
ríkt gamlárkvöld. Þýðandi Ingi Karl Jó-
hannesson.
21.45 Lengl býf að fyrstu gerð. Kanadísk
fraððslumynd um nýfædd börn. Ungbörn
virðast algerlega ósjálfbjarga, en rann-
sóknir hafa leitt í Ijós, að þau eru ekki
eins bjargarlaus og álitið hefur verið.
Þýðandi og þulur Dóra Hafsteinsdóttir.
22.10 Sjónhending. Erlendar myndir og
málefni. Umsjónarmaður Sonja Diego.
22.30 Dagskrárlok.
MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1977
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dogskrá.
20.30 Nýjasta tækni og vísindi. Um-
hverfisvernd í Ameríku. Heilaaðgerðir.
Mengunarvarnir í papplrsiðnaði. Rafgas
(plasma). — Umsjónarmaður Örnólfur
Thorlaclus.
20.55 Skóladagar (L). Leikinn, sænskur
sjónvarpsmyndaflokkur í sex þáttum um
nemendur í níunda bekk grunnskólans,
foreldra þeirra og kennara. 2. þáttur.
Þýðandi Óskar Ingimarsson. (Nordvision
— Sænska sjónvarpið).
21.55 Gftartónlist (L). Julian Bream og
John Williams leika einkum gömul lög.
22.20 Dagskrárlok.
FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1977
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Leitin að „svarta riddaranum".
Þessi mynd er uhi hinn stóra og tignar-
lega flsk, oddnefinn eða svarta riddar-
ann, sem sportveiðimenn sækjast mjög
eftir. Myndin var tekin í vísindaleiðangri
við Ástralfu, þar sem fylgst var með
göngu og klaki oddnefsins. Þýðandi og
þulur El'ert Sigurbjörnsson.
21.15 Ráða stjórnvöld of miklu? Um-
ræðuþáttur um afskipti rfkislns af at-
vinnurekstri í landinu og hugsanlegar
breytingar á starfsgrundvelli fyrirtækja.
Umræðum stýrir Ólafur Ragnarsson it-
stjóri.
22.05 Hér var haminja mín (I Was Happy
Here). Bresk bfómynd frá árlnu 1966,
byggð á smásögu eftir Ednu O’Brien.
Leikstjóri Desmond Davis. Aðalhlutverk
Sarah Miles og Cyrll Cusack. Unn. frsk
stúlka snýr aftur heim eftir fimm ára
dvöl f Lundúnum og rlfjar upp ævi slna
undanfarin ár. Þýðandi Eiður Guðnason.
23.30 Dagskrárlok.
LAUGARDAGUR 17. SEPTEMPER 1977
17.00 fþróttir. — Umsjónarmaður Bjarni
Fellxson.
19.00 Enska knattspyman.
HLÉ
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Dave Allen lætur móðan mása (L).
Breskur gamanþáttur með frska háð-
fuglinum Dave Allen. Þýðandi Jón Thor
Haraldsson.
21.15 Byr undir vængi. Bresk fræðslu-
mynd um upphaf flugsins. Þótt Wright-
bræður yrðu fyrstir til að smíða nothæfa
flugvél, voru þeir engan veginn hinir
einu, sem reyndu að fljúga f upphafi
þessarar aldar. Þýðandi og þulur Helgi
E. Helgason.
21.35 Leikhúsbraskaramir (The Produ-
cers). Bandarísk gamanmynd frá árinu
1968. Leikstjóri Mel Brooks. Aðalhlut-
verk Zero Mostel, Gene Wilder og Dick
Shawn.' Max Bielystock fæst við að setja
á svið leikrit. Fyrrum var hann kallaður
konungur Broadway, en nú er tekið að
haJa undan fæti fyrir honum. Endur-
skoðandi hans finnur leið til að græða
á mjög lélegum leikritum. í sameiningu
hafa þeir upp á lélegasta leikriti, sem
skrifað hefur verið, og ráða aumasta
leikstjóra og verstu leikara, sem sögur
fara af. Þýðandi Veturliði Guðnason.
23.30 Dagskrárlok.
SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1977
18.00 Símon og krítarmyndirnar. Breskur
myndaflokkur. Þýðandi Ingi Karl Jó-
hannesson. Sögumaður Þórhailur Sig-
urðsson.
18.10 Svalt er á selaslóð. Sumar hjá
heimskauta-Eskimóum. Myndir þessar
voru áður á dagskrá f febrúarmánuði $l.
og vöktu mikla athygli þá. í þessari
fyrri mynd er fylgst með Eskimóunum að
sumarlagi, en sumrinu er varið til undir-
búnings löngum og köldum vetri. Síðari
myndin verður sýnd sunnudaginn 25.
september.
HLÉ
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Skótadagar (L). Sænskur mynda-
flokkur. 3. þáttur. Þýðandi Óskar Ingi-
marsson. (Nordvision — Sænska sjón-
varpið).
21.30 Frá Listahátíð 1976. — William
Walker syngur aríu úr óperunni La
Traviata og lög eftir Richard Cumming.
Við hljóðfærið Joan Dornemann. Stjórn
upptöku Tage Ammendrup.
21.50 Þrír þjóðarleiðtogar. — Breskur
heimildamyndaflokkur. 2. þáttur Franklin
D. Roosevelt. Þýðandi og þulur Gylfi
Pálsson.
22.45 Að kvöldi dags. Séra Jón Dalbú
Hróbjartsson, sóknarprestur í Laugants-
prestakalli, f.'ytur hugvekju.
22.55 Dagskrárlok.
MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1977
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 fþrótttir. Umsjón Bjarni Felixson.
21.00 Þýskt leikrit.
22.00 Sakalíneyja á Kyrrahafi. Rússnesk
heimildarmynd.
22.30 Dagskrárlok.
EIK M—L HELDUR
KYNNINGARFUND
fimmtudaginn 15. september kl. 20 í Einingar-
húsinu Þingvallastræti 14. Samtökin verða kynnt
og verkalýðsblaðið. Einnig verður öflug menn-
ingardagskrá.
EININGARSAMTÖK KOMMÚNISTA M—L AK.
Hjartans þakkir sendi ég börnum minum, tengda- = L
börnum og barnabörnum, systkinum minum, JULÍA OLAFSDOTTIR,
frœndfólki og vinum nær og fjær, sem glöddu mig frá Steindyrum á Látraströnd,
á 70 ára afmæli minu 10. ágúst sl., með heimsókn- til heimilis að Löngumýi 9, lést 4. september. Útförin fer fram
um, veglegum gjöfum, skeytum og blómum. frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 15. september kl. 13.30.
Guð blessi ykkur öll. Vandamenn.
LAUFEY JÓNSDÓTTIR, Faðir minn
Karlsrauðatorgi 2, Dalvík.
GUÐMUNDUR HALLDORSSON,
málarameistari,
sem lést 7. þessa mánaðar verður jarðsettur frá Akureyrar-
kirkju miðvikudaginn 14. þ. m.
Innilegar þakkir fyrir heimsóknir, gjafir og heilla- Blóm afbeðin en þeim sem vildu minnast hans e bent á llknar-
skeyti á áttræðisafmæli minu. stofnanir.
Kærar kveðjur. Fyrir hönd vandamanna,
KRISTBJÖRG KRISTJÁNSDÓTTIR. Vilborg Guðmundsdóttir.
6•DAGUR