Dagur - 14.09.1977, Síða 8
DAGUR
Akureyri, miðvikudagur 14. sept. 1977
ÞJONUSTA
FYRIR
HÁÞRÝSTISLÖNGUR
OLfUSLÖNGUR og BARKA
PRESSUM
TENGIN Á
FULLKOMIN TÆKI
VÖNDUÐ VINNA
Það var líf og fjör í þjóðdönsum Lettlendinga.
(Norðurmynd)
Listafólk frá Lettlandi
Tónlistarfólk, dansarar og ein-
söngvarar frá Lettlandi
skemmtu Akureyringum á
sunnudaginn. Var þetta liður í
menningartengslum íslands og
Ráðstjórnarríkjanna. — Hafði
flokkur þessi áður haft sýning-
ar í Neskaupstað og á Egilsstöð-
um, en mun í gær hafa gefið
Reykvíkingum kost á sams-
konar skemmtun. Sýning Lett-
lendinganna í Samkomuhús-
inu á Akureyri var einkar
skemmtileg og bar margt til.
Stóðið réttað í dag
Göngur verða um næstu helgi
í Staðarafrétt og áður verður
gengið á Eyvindarstaðaheiði,
því göngunum er flýtt. Silfra-
staðarétt er á mánudaginn. En
hross verða rekin til í Stafnsrétt
á miðvikudaginn og þar er sauð-
fjárréttin á fimmtudaginn, sagði
fréttaritari Dags, Guttormur
Óskarsson á mánudaginn.
Sauðfjárslátrunin hefst 15.
september og verður 62 þúsund
kindum lógað hjá K. S.
Kartöflurækt er hér nokkur,
sagði fréttaritari og spretta er
sæmilega góð. Hér hafa verið
tvær frostnætur og í gær röð-
uðu menn sér í garðana og
kepptust við að taka upp. Þá
voru margir á fjórum fótum
og stunduðu uppskerustörfin af
mikilli atorku.
Þjóðdansarnir voru hinir
hressilegustu, vandasamir og
þrautþjálfaðir. Búningarnir
voru skrautlegir og undirleikur
hljómsveitarinnar góður. Þá
komu fram tveir einsöngvarar
og voru þeir framúrskarandi,
svo og einleikarar á fiðlu og
selló. Nöfn listafólksins eru ekki
prentuð í prógrammi því, sem
sýningargestir áttu kost á að
fá í hendur.
Með hópi lettnesku listamann-
anna kom Ásgeir Höskuldsson,
sem var fararstjóri, ásamt Ingi-
björgu Hafstað, sem auk þess
var túlkur.
Af einhverjum ástæðum var
aðsókn lítil og heyrðist það á
máli manna, að auglýsingar
hefðu að einhverjum ástæðum
fallið niður eða farið í handa-
skolum.
Sauðfjárslátrun hefst í dag
Þórarinn Halldórsson, slátur-
hússtjóri KEA á Akureyri,
sagði blaðinu, að sauðfjárslátr-
un hæfist á Akureyri í dag, mið-
vikudag. Lógað verður um 40
þúsund fjár. Á Dalvík hefst
slátrun 13. september og verð-
ur 15.500 fjár lógað þar. Á
Grenivík verður lógað allt að
7 þúsund fjár og hefst slátrun-
in 19. september. Alls verður
um 62 þúsund fjár lógað á slát-
urhúsum Kaupfélags Eyfirð-
inga.
Sláturhússtjóri sagði, að
næstu vikurnar, eða til loka
sauðfjárslátrunar, sem verður í
lok septembermánaðar, yrði
starfsfólk 120—130 manns og er
þar þá meðtalið fólk, sem vinn-
ur við móttöku á kartöflum, í
beinaverksmiðju og við fleiri
störf. Sæmilega vel hefur
gengið að fá flólk til starfa í slát-
urtíðinni.
Ný bók frá AB
Út er komin hjá Bókaklúbbi Al-
menna bókafélagsins bókin M-
Samtöl I eftir Matthías Jóhann-
essen. Er hér um að ræða úrtak
eða sýnishorn af samtölum
Matthíasar, sem hann átti við
fólk af margvíslegustu gerðum
á tímabilinu 1955—70 og birti í
Morgunblaðinu. Þessi samtöl
voru eins og kunnugt er mjög
víðlesin og mntöluð, en hafa
eirís og aðrar dagblaðagreinar
horfið almenningi um leið og
blöðin týndust, þar sem þau
voru skráð og eru því óaðgengi-
leg flestum nú. í bókinni eru
samtöl við þessa menn: Björn
Pálsson, flugmann. Eggert Stef-
ánsson söngvara. Elías HÚlm-
Guðríði Jónsdóttur Akranesi,
Gunnar Gunnarsson, skáld.
Helgu Larsen á Engi. Jón Magn-
usson, seglasaumara. Júlíus
Jónasson, áður bónda á Hóls-
fjölium. Louis Armstrong.
Framhald á blaðsíðu 7.
DAGTJR
kemur næst úr miðviku-
daginn 21. september. —
Sendið handrit auglýsinga
og greina í tæka tíð.
Stjóm
kjördæmis-
sambandsins.
Á kjördæmisþingi Framsókn
ar í Norðurlandskjördæmi
vestra, sem haldið var fyrir
skönunu og getið hefur ver-
ið um, voru eftirtaldir kosn-
ir í stjórnina: Guttormur
Óskarsson formaður, Har-
aldur Hermannsson, Ysta-
mói. Bjarni Þorsteinsson,
Siglufirði. Grímur Gíslason,
Blönduósi og Eiríkur
Tryggvason, Búrfelli. Fró
ungum mönnum: Jón Bjarna
son, Ási, Guðmundur Val
týsson, Sauðárkróki, Ketil-
ríður Benediktsdóttir, Efri-
mýri og Skarphéðinn Guð-
mundsson, Siglufirði.
• Minnisvarði
um Hermann
Jónasson.
Sýslunefndin í Strandasýslu
kaus nefnd til að kanna á
hvem hátt Strandamenn
gætu minnst Hermanns Jón-
assonar, fyrrverandi þing-
manns síns og stjómmála-
skörungs. Niðurstaðan varð
sú að reisa honum minnis-
varða á Ennishöfða, þar í
sýslu. Hefur Sigurjón Ólafs
son verið fenginn til að gera
minnismerkið.
• Melskurðarvél.
Ný melskurðarvél liefur ver-
ið reynd hjá Landgræðslunni
og lötar hún mjög vel. Vél
þessi er sögð hugarfóstur
landgræðslumanna og Ólafs
Egiissonar á Hnjóti og fyrst
smíðuð fyrir tveim árum, en
síðar endurbætt og reynist
nú afkasta 10—20 manna
verki við melskurð. Á hverju
hausti er fólki safnað saman
til melskurðar hér á landi,
þar sem hin harðgerða mel-
planta síðan nemur land og
breytir auðnum í græn og
gróskumikil beitilönd.
• Eru
vinnupallamir
í lagi?
Þótt ekki sé skemmtilegt að
fjalla lun slys og slysahætt
ur, erum við 'öðru hvoru
minnt á kaldar staðreyndir
raunveruleikans. Sérstaka
m
Lfl
mm
athygli vekja fregnir af
dauðaslysi, er vinnupallur
einn við hús í Kópavogi féll
niður með hörmlegustu af
leiðingum. Festingar pallsins
höfðu bilað og vinnupallur-
inn var á sjöttu hæð hússins.
Hver sem eftirmál þessa
slyss verða, ætti þetta að
vera ákveðin viðvörun til
þeirra, sem láta vinna utan á
húsum, skipum og við aðrar
aðstæður, í þessu efni eða
svipuðmn, bjóða jafnan hætt-
unni heim, sé ekki tryggilega
frá gengið. Blaðinu hefur
verið bent á, að þörf sé á að
minna á þetta mál hér á!
Akureyri.
• KEA bætir
móttöku fiskjar
í Hrísey
og Grímsey.
Stjórn Kaupfélags Eyfirð-
inga hefur ákveðið að
stækka fiskvinnsluhúsin í
Hrísey og Grímsey. Útgerð
hefur aukist mjög í Hrísey
með tilkomu skuttogarans
Snæfells. Þar rekur KEA
fullkomna fiskverkun, þ. e.
frystihús, saltfiskverkun og
beinaverksmiðju.
f Grímsey er fiskurinn
eingöngu saltaður og kaupir
KEA hann af sjómönnum.
Þar hefur útgerð aukist til
muna, og þótt félagið hafi
byggt við saltverkunarhúsið,
er þörf á töluverðri stækk-
un nú.
• Sementstankar.
Allt sement er selt laust, þ.e.
ósekkjað í Reykjavík, Sel-
fossi og Ytri-Njarðvík, og
hafa steypustöðvar á þess-
um svæðum búnað til að
taka þannig á móti sement-
inu, og áhugi er á því víðar,
að fá ósekkjað sement, svo
sem í Vcstmannaeyjum og á
fsafirði. Ekki hefur Akur
eyri verið talin í hópi þeirra
staða, sem undirbúa vilja
móttöku á ósekkjuðu sem-
enti, en margt mælir með
því, að svo verði gert, og þá
einkum verðlagið. En verð-
munur á ósckkjuðu og sekkj
uðu seinenti er verulegur.
Sementssalan fyrstu sjö
mánuði þessa árs var 71.447
tonn, allt frá Sementsverk-
smiðjunni á Akranesi.
Fjórðungsþingi Norðlendinga lokið
Fjórðungsþing Norðlendinga
var sett á Hólum í Hjaltadal
sunnudaginn 4. september, en
var síðan fram haldið í Mið-
garði í Varmahlíð og lauk
þriðjudaginn 6. september.
Fulltrúar hlýddu messu í
Hóladómkirkju, þar sem séra
Gunnar Gíslason predikaði. —
Haukur Jörundarson skrif-
stofustjóri flutti ávarp og Gísli
Magnússon í Eyhildarholti
kynnti staðinn, ásamt Jóni Frið-
bjömssyni kennara.
Þingið setti Bjami Þór Jóns-
son, formaður Fjórðungssam-
bandsins. Hann flutti síðar
skýrslu stjómarinnar. En fram-
kvæmdastjórinn, Áskell Einars-
son flutti yfirgripsmikla skýrslu
um starfsvettvang og ný við-
horf samtakanna. Fundarstjóri
var Jóhann Salberg Guðmunds-
son sýslumaður. ‘ Eftirtaldar
nefndir störfuðu á þniginu: Iðn-
þróunamefnd, samgöngumála-
nefnd, menningarmálanefnd,
iallsherjamefnd, þjónustudreif-
ingarnefnd og fjárhags- og
skipulagsnefnd, og gefur þessi
upptalning vel til kynna þau
margvíslegu viðfangsefni, sem
þingið fjallaði um.
Sérstök erindi á ráðstefnunni
fluttu: Guðmundur Einarsson,
framkv.stjóri Skipaútgerðar
ríkisins, um skipulag sám-
gangna og sérstaklega um sam-
göngur á sjó, Leó Jónsson,
starfsmaður hjá Iðnþróunar-
stofnun íslands um iðnþróun,
einnig Árni Jónasson erindreki
um atvinnuval í sveitum og
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
alþingismaður um landshluta-
virkjanir og skipulag orkumála.
Þetta þing fjórðungssam-
bandsins var vel sótt og þar
voru gerðar margar ályktanir,
sem hér er ekki rúm að rekja
Framhald á blaðsíðu 3.