Dagur - 28.09.1977, Síða 5
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar: Ritstjóm 11166, Augl. og afgreiðsla 11167
Ritstj. og ábyrgðarm.: ERLINGUR DAVÍÐSSON
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Bjömssonar hf.
Pólitísk
slagorð
Slagorðasmiðir þykja enn þyngdar
sinnar virði í gulli eins og á tímum
Hitlers. Með slagorðum einum sam-
an, ekki síst í krafti endurtekning-
anna, má sveigja almenningsálitið á
ýmsa vegu og sverta andstæðingana.
án þess að brjóta málin til mergjar.
Gott dæmi um þetta eru óhróðurs-
skrif um landbúnaðinn, en hver
kannast ekki við slagorðin um ógur-
lega offramleiðslu eða að við íslend-
ingar séum að greiða niður matvæli
í munna útlendinga? Starfsemi sam-
vinnufélaga er kölluð auðhringar, og
ferst öðrum betur en arftökum ein-
okunar á fslandi þar um að tala. Við
könnumst einnig við fjaðrir stjóm-
málaflokka, sem þeir skreyta sjálfa
sig með, svo sem einstaklingsfrelsi,
frjálst framtak og sjálfstæði.
Eitt af slagorðum þeim, sem heyr-
ast síðustu vikumar, og ungir sjálf-
stæðismenn fundu upp: „Báknið
burt“, hafa þeir nú sett í kosninga-
fána ;sinn. Hér er eflaust átt við
þungamiðju þjóðlífsins, stjómvald,
ríkisstofnanir, skattheimtuna og
hvemig skattpeningunum er varið,
fjárfestinguna í landinu, verðbólguna
og sjálfsagt fleira. Orðið „bákn“ er
notað í niðrandi merkingu um þjóð-
félag okkar og á að hræða eins og
Grýla. Það fer vel á því að ungir
sjálfstæðismenn ráðist gegn þeim
óskapnaði, sem þeir sjá í þjóðlífinu
og tengdur er stjómsýslu, fjármál-
um og framkvæmdum hins opinbera.
Stærsti stjómmálaflokkur landsins
hlýtur öðmm flokkum fremur að
teljast bæði móðir hans og faðir, og
era því hæg heimatökin.
En þess er að vænta, að ungir sjálf-
stæðismenn geri grein fyrir því í ein-
stökum atriðum hverju þeir vilja
breyta, að hafa þeir raunar lýst því
yfir, að þeir vilji aðra og betri með-
ferð þeirra skattpeninga, sem teknir
era af borgurunum til sameiginlegra
þarfa.
Ef ungir sjálfstæðismenn vilja
beita sér fyrir niðurskurði f jármagns
til heilbrigðismála, menntamála,
trygginga, samgöngumála og höfuð
atvinnuveganna, eða þeirrar opin-
bera og margvíslegu þjónustu, sem
almenningur nýtur, þarf það .að
koma ljóst fram, og ennfremur um
hverra hendur það fjármagn á að
fara, sem við niðurskurðinn sparað-
ist. Eigi hin pólitísku slagorð ungra
sjálfstæðismanna að tákn skerðingu
á ahnennri þjónustu, munu þau
mæta harðsnúinni andstöðu almenn-
ings, — og slagorðin talin misheppn-
uð Grýlusaga.
Aðlfundur NAUST var
haldinn í Kverkfjöllum
Aðalfundur Náttúruverndarsam
taka Austurlands — NAUST —
var haldinn í Sigurðarskála við
Kverkfjöll dagana 20.—21. ágúst
og sóttu hann 80 manns, þ. e.
um 60 félagsmenn og 20 sam-
fylgdarmenn þeirra. Á fundin-
um gengu 22 nýir liðsmenn í
samtökin, að meirihluta ungt
fólk. Þátttakendur voru úr
mörgum byggðarlögum fjórð-
ungsins og sammæltust þeir á
Egilsstöðum að morgni laugar-
dags til ferðar á fundinn.
Skoðunarferð. Frá Egilsstöð-
um var ekið á 5 litlum rútum og
nokkrum jeppum um Jökuldal
og Möðrudal inn í Kverkfjöll og
áð í Arnardal og Hvannalind-
um. Kunnugir lýstu leiðum í
bílunum, en á áningarstöðum og
inn við Kverkfjöll fræddi Gutt-
ormur Sigbjarnarson, jarðfræð-
ingur, sem sérstaklega var boð-
ið til fundarins, um jarðsögu og
landmótun. Veður var hið ákjós
anlegasta báða dagana, bjart og
hlýtt og nutu allir ferðar og
fræðslu hið besta. Á sunnudags
morgni var farið að íshellinum
fræga við Kverkjökul og fleira
skoðað í grennd Sigurðarskála,
sem er einn vandaðasti ferða-
mannaskáli í óbyggðum hér-
lendis. Þar var setinn bekkur-
inn og um þriðjungur hópsins
svaf í tjöldum.
Aðalfundarstörf fóru fram að
kvöldi laugardags og fyrrihluta
sunnudags. Fundarstjórar voru
Geir Hólm frá Eskifirði og
Magnús Magnússon frá Egils-
stöðum og ritarar Gerður G.
Óskarsdóttir og Jón Einarsson
frá Neskaupstað. Framkvæmda-
stjóri Landvern'dar, Haukur Haf
stað, kom á fundinn og flutti
kveðjur og gjöf frá Landvernd.
í skýrslu stjórnar kom fram,
að helsta nýmæli hjá samtök-
unum á árinu var aðild að kynn
ingarviku Sambands íslenskra
náttúruverndarfélaga (SÍN) í
Norræna húsinu um sumarmál
og gerð sýningar um verkefni
samtakanna og náttúruverndar-
mál á Austurlandi, en sýning
þessi hefur í sumar verið uppi
í sumarhótelinu á Hallormsstað
og verður m. a. boðin skólum
hér eystra til afnota á komandi
vetri.
Þess utan var unnið áfram að
margháttuðum náttúruvemdar-
málum í samvinnu við Náttúru-
verndarráð, sveitarstjórnir, land
eigendur og ýmsar opinberar
stofnanir. Gefið var út frétta-
bréf, eins og árið áður og sent
félagsmönnum og ýmsum fleiri
aðilum.
Friðlýsingarmál eru mörg á
dagskrá hjá NAUST, en á síð-
asta starfsári komst í höfn með
tilstyrk Náttúruverndarráðs
friðlýsing á stóru svæði á Lóns-
öræfum^ sem er rómað fyrir
náttúrufegurð og fjölbreytni.
Einnig lögðu samtökin lið stofn-
un friðlands við Salthöfða hjá
Fagurhólsmýri og unnið var að
undirbúningi að stóru votlendis
friðlandi í Hjaltastaðaþinghá á
Út-Héraði. — Á fundinum var
ályktað sérstaklega um stofnun
friðlands í Kverkfjöllum og
Krepputungu og stjórn NAUST
falið að vinna að framgangi þess
máls við Náttúruverndarráð og
aðra hlutaðeigendi.
Vatnsvirkjanir og vatnsmiðl-
anir. Framkvæmdir og undir-
búningur vegna vatnsaflsvirkj-
ana hefur um árabil verið á
dagskrá hjá NAUST og þannig
áttu samtökin frumkvæði að
stofnun Lagarfljótsnefndar. — í
fyrrahaust gaf iðnaðarráðu-
neytið út rekstrarleyfi til Rarík
vegna vatnsmiðlunar í Lagar-
fljóti, þar sem tekið var tillit til
meginviðhorfa Lagarfljótsnefnd-
ar. Nú liggja fyrir óskir frá Raf-
magnsveitunum um aukna miðl-
un á næsta vetri á meðan sam-
tenging er ekki komin við aðra
landshluta og er það mál nú í
athugun milli aðila.
Upplýst var á fundinum, að
nýlega hafi verið samið um
náttúruverndarkönnun á svæði
svonefndrar Austurlandsvirkj-
unar, og felur sú könnun í sér
allítarlega úttekt á landi og líf-
líki á þeim svæðum, sem mann-
virki og þá einkum miðlunar-
lón myndu raska. Hefur Nátt-
úrugripasafnið í Neskaupstað
umsjón með þessu verki og
hafa staðið yfir gróðurrann-
sóknir á Eyjabakkasvæðinu síð-
ustu vikur í framhaldi af frum-
athugunum sumarið 1975. Verð-
ur þannig unnið að úttekt á
svæðinu frá Hraunum vestur
fyrir Jökulsá á Brú næstu þrjú
árin, en virkjunarrannsóknir
eru hafnar að nýju vegna
„Austurlandsvirkjunar" eftir
nokkurt hlé. — 1 ferðinni í
Kverkfjöll fengu þátttakendur
nokkurt yfirlit um virkjunar-
hugmyndir varðandi Jökulsá á
Brú og Jökulsá á Fjöllum, m. a.
hugsanlegt lón allt að 120 fer-
kílómetrar að flatarmáli, sem
kaffæra myndi Möðrudal, og
hefur sú miðlun verið kennd
við Lambafjöll og er þáttur í
svonefndri Hólsfjallavirkjun.
Vemdun óbyggða og hálend-
issvæða var arinars megin um-
ræðuefni þessa aðalfundar
NAUST og sendi fundurinn frá
sér ávarp um það efni, þar sem
m. a. er hvatt til að Alþingi
setji rammalöggjöf um vernd-
un og skipulagsskyldu óbyggðra
svæða, ekki síst á hálendinu og
lögð áhersla á að mó'rkuð verði
stefna fram í tímann um nauð-
synlegt vegakerfi, akvegi og
slóðir í óbyggðum í stað nú-
verandi handahófs í þeim efn-
um og stórum svæðum verði
haldið veglausum.
Stjómarkjör.
Hjörleifur Gutt-
ormsson, Neskaupstað, var end-
urkjörinn formaður samtak-
anna og með honum eru í stjóm
Páll Sigbjörnsson, Skriðu-
klaustri, varaformaður; Júlíus
Ingvarsson, Eskifirði, gjaldkeri;
EgiII Guðlaugsson, Fáskrúðs-
firði, ritari og Ari Guðjónsson,
Djúpavogi, meðstjómandi. — í
varastjórn eru Benedikt Þor-
steinsson, Höfn í Hornafirði;
Bjarni Sveinsson, Hvannstóði,
Borgarfirði og Snjófríður Hjálm-
arsdóttir, Djúpavogi. Úr stjórn
viku, samkvæmt félagslögum,
eftir tveggja ára setu, Hálfdan
Haraldsson, Norðfirði og Gísli
Arason, Höfn í Hornafirði, og
voru þeim þökkuð góð störf.
1 NAUST er nú á þriðja
hundrað einstaklinga - og um 40
fyrirtæki, stofnanir og félög eru
styrktaraðilar.
(Fr éttatilkynning).
• Svar.
í Degi 21. september er fyrir
hönd bæjarbúa beðist skýringa
á agnúum við að komast til
augnlæknis. Má benda á að það
fyrirbæri er síður en svo dæmi-
gert fyrir Akureyri.
Því fyrirkomulagi á afgreiðslu
númera, sem þar er lýst, hafði
verið breytt þegar greinin birt-
ist.
Afhending númera var upp-
haflega ætluð til hagræðis fólki,
sem kom á biðstofuna, þannig
að það þyrfti ekki að sitja þar
og bíða afgreiðslu, heldur gæti
notað tíma sinn til annars þarf-
ara. Við breyttar aðstæður hef-
ur þetta fyrirkomulag riðlast,
og leysir á engan hátt þann
vanda, sem nú er við að stríða,
hvernig svo sem til er hnikað
afhendingartíma númeranna.
Síðsumars og á haustdögum
er mikið aðkomufólk í bænum,
sem meðal annars þarf til augn.
læknis. Má vera skiljanlegt, að
undirrótin til þess, að allir fá
ekki skjóta afgreiðslu er sú, að
miklu fleiri koma á biðstofuna
þessara erinda en einn maður
getur með góðu móti annað.
Svo einfalt er það.
Á öðrum árstímum er þetta
vandamál minna eða ekki fyrir
hendi.
Vikið var að því, að Akureyri
væri höfð auglæknislaus svo
vikum skipti og þótti furðulegt.
Að því leyti sem þetta varðar
mig vil ég upplýsa eftirfarandi
sé það öllum ekki kunnugt. —
Ásamt öðrum augnlæknum á
landinu hef ég á vegum Land-
læknisembættisins tekið að mér
að sjá byggðinni utan Reykja-
víkur og Akureyrar fyrir augn-
læknisþjónustu. Ég hef farið til
Vopnafjarðar, í Þingeyjarsýslur
og á Siglufjörð. Samtals hafa
þessar ferðir tekið mig 7 vikur
á ári hverju síðan ég byrjaði á
þeim starfa. Ég efast um, að
fólk á þessum stöðum vilji vera
án þessarar þjónustu og raunar
finnst mér það ekkert verr að
henni komið en aðrir. Ekki trúi
ég, að það sé mönnum ástæða til
furðu, að augnlæknir taki sum-
arfrí. Aðrar fjarvistir hefur
ekki verið um að ræða af minni
hálfu. Varla þarf að taka fram
að staðgengil er ekki að fá, jafn-
vel þótt Akureyringar sjálfir
reyndu eitthvað í þá átt.
Loftur Magnússon.
Halldór Jónsson
Gili, Glerárhverfi
f
Hann var fæddur að Ölduhrygg
í Svarfaðardal 11. ágúst árið
1900. Hann ólst upp við fátækt
mikla og hraknir.ga þar í daln-
um, en var jafnan hjá góðu
fólki, lengst dvaldist hann á
Völlum hjá séra Stefáni Krist-
inssyni. Hann naut lítillar
skólagöngu í bernsku, en frá
Völlum hleypti hann heimdrag-
anum og hélt í Hérðasskólann
að Laugum, þá orðinn 28 ára
gamall. Var hann elstur allra
nemenda skólans og hlaut við-
urnefnið „afi“. Þarna stundaði
hann nám í þrjá vetur við góð-
an orðstír, síðast í verknáms-
deild, en flest lék í höndum
hans, er hann lagði stund á.
Árið 1936 gekk hann að eiga
ágætiskonu, Petrínu Soffíu
Stefánsdóttur. Lifðu þau sam-
an í farsælu hjónabandi, uns
dauðinn skildi þau að, þann 13.
þ. m. Þau eignuðust einn son,
Stefán, mesta efnismann. Hann
er kennari að menntun, en legg-
ur nú stund á batiklist.
Halldór var svo lánsamur að
þurfa ekki að heyja langt hel-
stríð. Ffann hélt andlegri reisn
til hinstu stundar sem eftirfar-
andi vísa ber gleggst vitni um,
en hana orti hann til konu sinn-
ar síðasta kvöldið sem hann
lifði:
Petra er greind og greiðvikin
og gimsteinn sínu landi.
Gerir jafnan góðverkin
með grófu leistabandi.
Þegar ég fyrir tæpum þrjátíu
árum fluttist í „Þorpið“, hófust
kynni okkar Halldórs; í fyrstu
í Kirkjukór Lögmannshlíðar, en
þar var hann virkur félagi um
árabil, síðar við spilaborðið,
þar sem við áttum saman marg-
ar ánægjulegar stundir saman,
ekki tók hann þá skemmtun þó
alvarlega og gerðist aldrei
keppnismaður í spilum, þótt
blómlegt bridgefélag væri lengi
starfandi norðan Glerár. Ég
man glöggt hve dátt hann hló,
er öðrum tók að hitna í hamsi
og berja í borðið til frekari
áherslu.
Þar sem starfsþrek Halldórs
til erfiðisvinnu þvarr langt um
aldur fram, fór ekki hjá því,
að hann eignaðist margar tóm-
stundir, en hann kunni vel að
notfæra sér þær.
Innanbæjarstörfin léku til
dæmis í höndum hans, en þau
taldi hann sjálfsagt að inna af
höndum að nokkru eða öllu
leyti, þó sótti nokkur efi að
honum á „kvennaárinu“, eins
og eftirfarandi vísur bera með
sér:
Viltu drottinn himnahár
helst úr þessu skera.
Nú er komið „kvennaár“,
hvað á ég nú að gera?
Drottinn sendi svar um leið,
sem ég meðtók feginn:
„Þér er, vinur, gatan greið,
gakktu mjóa veginn“.
Já, ekki má gleyma ljóðadís-
inni, hún mun hafa stytt hon-
um fleiri stundir en flest ann-
að, og fylgdi honum ; trygg til
hinstu stundar og fylgdi hon-
um hvert fótmál. Fengi hann
fyrri hluta vísu, var hann fljót-
ur að botna, samanber eftir-
farandi:
„Sumum verður allt til auðs,
öðrum flest að tjóni“.
Dóra er varnað daglegs brauðs,
en drottinn bjargar Jóni.
Enginn skyldi þá taka þennan
seinni helming mjög hátíðlega,
því þótt Halldór byggi alla tíma
við kröpp kjör, heyrði ég hann
aldrei kvarta eða ásaka neinn
í þeim efnum.
Sú tómstundaiðja, sem mun
hafa veitt honum einna mesta
lífsfyllingu, næst ljóðagerðinni,
var búskapur. Hann hafði yfir
nokkrum túnskika að ráða eins
og margir í „Þorpinu“ áður
fyrr. Þarna áttum við enn sam-
eiginlegt áhugamál, og sjálfur
var ég svo lánsamur að hafa
góða aðstöðu fyrir fáeinar kind-
ur. Já, sveitamaðurinn var enn
ríkur í okkur báðum. Þetta
þýddi að sjálfsögðu, að okkur
var gert að fara í göngur og
vorum við drjúgir af, þótt
hundleysið væri bagalegt. Síð-
ustu ár mín við þetta hokur,
notaði ég gamla dómaraflautu
og þótti mikil bót að, og hreyk-
inn varð ég, er sjálfur gangna-
foringinn tók þetta upp eftir
mér.
Mér eru enn í fersku minni
vornæturnar, sem við unnum
saman við rúning uppi í rétt,
ekki síst, ef við áttum ofurlitla
brjóstbirtu á pela. En.því miður,
fyrir okkur, uppgötvuðu Akur-
eyringar, að hér mundi víða
vera gott undir hús, ekki síður
en bú, og lögðu „Þorpið“ undir
sig. Sem svolitlar sárabætur
fyrir okkur hér ytra, lögðu þeir
„Þorps“-nafnið niður, en gerðu
okkur að Glerárhverfisbúum og
Akureyringum að auki. Síðan
tóku þeir af okkur túnin og
reistu hús og hallir. Þetta voru
erfiðir tímar fyrir okkur smá-
bænduma í „Þorpinu“, sem
þraukuðu þó eins lengi og kost-
ur var á. Eitt sinn, haustið, sem
Halldór varð að fella fjárstofn
sinn, segi ég við hann: Ekki trúi
ég, að þú bregðir búi án þess
að minnast þess í bundnu máli.
Hann hljóðnaði við og varð
hugsi. Ég sá ég myndi hafa
snortið viðkvæma strengi og
gekk burtu, vildi gefa honum
næði. Morguninn eftir fékk ég
svarið. Það er svona:
Haustsins stormur strýkur
svörð.
Stráin gul og kalin,
er mín kæra kindahjörð
kveður Glerárdalinn.
Kindahjörð nú kveð ég þig.
Hvað ég yrði feginn,
ef þið jarmið upp á mig
allar hinumegin.
Ég er stoltur af að hafa átt
þátt í því, að þessar viðfelldnu
vísur urðu til, og ég vona svo
sannarlega, að höfundinum
verði að ósk sinni. Fleiri sam-
eiginleg áhugamál áttum við,
en að framan greinir. Mjög oft
fórum við saman á völlinn að
horfa á knattspyrnukeppni.
fast og hrópuðum hátt, þegar
falleg mörk voru gerð, jafnvel
þótt þau væru skoruð af sunn-
anmönnum.
Það, sem gerði kynni okkar
enn nánari en ella var, að vorið
1965 varð ég svo lánsamur að
eignast íbúð við götuna Löngu-
hlíð, andspænis Gili, þar sem
Halldór bjó, gátum við nú kall-
ast á eins og tröllin í fjöllunum
forðum. Ég varð þess fljótlega
áskynja, að hér var ég kominn
í góðan félagsskap, góðir grann-
ar voru í hverju húsi, sem vildu
hvers annars vanda leysa. Þessi
götuspotti, þ. e. eldri kafli
Lönguhlíðar, var kallaður Gang-
urinn, Hér var samkennd fólks-
ins sérlega sterk. Það gladdist
saman og syrgði saman. Þetta
átti vel við jafn félagslyndan
mann og Halldór. Til stóraf-
mæla og ferminga var öllum
Gangbúum venjulega boðið. —
Siimir kölluðu þetta klíkuskap,
en þó aðeins þeir, sem utan
Gangsins bjuggu, svo að enginn
tók þá alvarlega.
Þætti nauðsynlegt að flytja
afmælisbarni eða brottkvödd-
um félaga vísu eða kvæði, var
ævinlega leitað til Halldórs,
skáldsins í Ganginum.
Einnar nætur ársins nutu
íbúar Gangsins ávallt saman,
nýársnæturinnar. Á gamlárs-
kvöld kom engum til hugar að
læsa dyrum_ kræsingar stóðu á
borðum handa hverjum sem
hafa vildi, þ. e. a. s. væri hann
úr Ganginum. Síðan var unað
við söng, drykkju og dans, uns
dagur rann, vísur voru vel
þegnar og fleira. Þetta átti nú
við Halldór, sem jafnan var
hrókur alls fagnaðar, fram til
allra síðustu ára, er þrekið tók
að þverra.
Að síðustu vil ég votta eigin-
konu Halldórs heitins, syni,
tengdadóttur og sonarbörnum
innilega samúð. Við nábúar
hans finnum vel og hörmum,
að það skarð, sem nú er höggið
í hópinn okkar góða, verður
aldrei fyllt.
Að endingu vil ég leyfa mér
að leggja skáldinu sjálfu í munn
hina gullfallegu vísu Karls Frið-
rikssonar f. v. vegaverkstjóra:
Þegar kveldar held ég heim,
horfinn veldi kífsins.
Þakkir geld ég guði þeim,
sam gaf mér elda lífsins.
Akureyri 18. sept. 1977.
Þorbjörn Kristinsson.
r
Vinabæjarmót í Alasundi
Þann 2. ágúst sl. fóru 26 ungl-
ingar, ásamt fararstjórum, á
árlegt vinabæjamót sem að
þessu sinni var haldið í Ála-
sUndi í Noregi. Keppt skyldi
í knattspyrnu og frjálsum.
Frá Keflavík var flogið til
Oslo og þar dvalið í nokkra
daga og skoðað það helsta sem
ferðamenn glepur, svo sem
Bygdö, Vigelandsparken og
Holmenkoll stökkbrautina. —
Þar lék knattspyrnuliðið
einnig æfingaleik og sigruðu
íslensku piltarnir, skoruðu
fjögur mörk gegn engu. Síðan
var haldið til Álasunds, og þar
hittust ungmenni frá öðrum
vinabæjum, svo sem Randers
og Vesterás, en engir kepp-
endur voru frá Lathi í Finn-
landi að þessu sinni. Gist var
í nýju, stóru íþróttahúsi. —
Fyrsta daginn rigndi mikið og
var ekki einu sinni hægt að
stunda æfingar þann dag
vegna rigningarinnar. Súnnu-
daginn 7. ágúst hófst svo
keppnin og var mótið sett við
hátíðlega athöfn. Fyrsta dag-
inn var keppt í blaki og voru
tvö lið frá hverjum vinabæj-
anna. A lið Akureyrar varð
nr. tvö í þessari keppni. Dag-
Reynir sigrar
Nýlokið er Héraðsmóti UMSE
í knattspyrnu karla og bar
Umf. Reynir þar sigur úr být-
um, en þeir unnu alla leiki
sína. Umf. Árroðinn varð í
öðru sæti og Umf. Dagbrún í
þriðja.
Umf. Reynir vann einnig
Hraðmót UMSE, er haldið var
fyrr í sumar.
Umf. Svarfdæla vann aftur
á móti Héraðsmót drengja i
knattspyrnu og unnu þeir
einnig alla sína leiki. Umf.
Reynir varð í öðru sæti og
sameinað lið frá Umf. Skriðu-
hrepps og Umf. Möðruvalla-
sókn varð í þriðja sæti ásamt
Umf, Framtíðinni.
inn eftir hófst knattspyrnu-
keppnin og fyrst léku Akur-
eyringar við lið frá Randers
og sigruðu Danirnir með
þremur mörkum gegn engu.
Síðar um daginn léku þeir við
Vesterás og unnu-Svíar þann
leik með fimm gegn engu. Síð-
asti leikurinn var síðan næsta
dag og þá gegn gestgjöfunum
frá Álasundi og unnu Akur-
eyringar þá kærkominn sig-
ur, tvö gegn einu.
Úrslit í frjálsum íþróttum
urðu þau, að Brynja Agnars-
dóttir var þriðja i 100 m
hlsupi á 14,6 sek., og Ásta Ás-
mundsdóttir fjórða í 800 m
hlaupi á 2.37,1. Sveit Akureyr-
ar varð síðan önnur í 4x100
Erlendur
þjálfari til
Þórsara
Körfuknattleiksdeild Þórs hef-
ur nú farið að ráðum annarra
fyrstudeildar félaga og ráðið
til sín amerískan þjálfara og
leikmann. Að sögn Guðmund-
ar Hagalíns, formanns deildar-
innar, heitir maður þessi Mark
Christiansen, 25 ára gamall
íþróttaþjálfari að mennt. Hann
er þaulreyndur leikmaður og
er 198 sm á hæð. Guðmundur
sagði að búið væri að ganga
frá samningi við Mark og
senda honum farmiðann, og nú
væri beðið í spenningi eftir að
hann birtist. Hann mun eiga
að þjálfa alla flokka félagsins,
og jafnframt að leika með
meistaraflokki, en þeir leika
nú í fyrstu deild. Guðmundur
sagðist vona, að áhorfendur
kynnu að meta þetta og fjöl-
menntu í Skemmuna á leiki
Þórs, því ekki veitti af að
styðja fjárhagslega við bak
deildarinnar. Þórsarar hafa
nú áhuga á að hefja körfu-
knattleikinn á hærra plan, eða
eins og var í gamla daga,
þegar Einar Bollason lék með
liðinu og velgengni þess var
sem mest.
m hlaupi á 55,7 sek. Lára
Magnúsdóttir vann langstökk,
stökk 4,68 m. í hástökki varð
Þórunn Sigurðardóttir þriðja
stökk 1,46 m. Lára Magnús-
dóttir fjórða í kúluvarpi með
6,93 m. Páll Ómarsson varð
fjórði í 100 m hlaupi drengja
á 13,4 sek. og Sigfús Helgason
einnig fjprði í 1000 m hlaupi á
3.21.8. Sveit Akureyrar varð
þriðja í 4x100 m boðhlaupi á
54.8, og Einar Arason þriðji í
langstökki, stökk 4,53 m. Böð-
var Birgisson varð annar í há-
stökki, stökk 1,61 m, og Páll
Ómarsson þriðji í kúlu, kastaði
12,02 m.
Vesterás sigraði í stiga-
keppninni bæði í stúlkna og
drengjaflokki, og Akureyri
varð þriðja í báðum flokkum,
hlaut 14 stig í stúlknaflokki
og 10 stig í drengjaflokki. —
Akureyringamir voru allir í
æfingagöllum í fánalitunum
með merki Akureyrar á bak-
inu og vöktu allsstaðar óskipta
athygli. Fararstjóri var Þröst-
ur Guðjónsson íþróttakennari.
KA stofnar
judódeild
Sl. sunnudag var haldinn
stofnfundur Júdódeildar KA
og var hann haldinn í KA her-
berginu við Laugargötu. Stofn
endur voru nokkrir áhuga-
menn um íþróttina sem hafa
æft Júdó undanfarin ár. Fram-
haldsstofnfundur verður síðan
haldinn n. k. laugardag kl. 11
á sama stað, og er þá í ráði að
stofna unglingadeild og
kvennadeild ef næg þátttaka
fæst. Fyrsti formaður var kjör-
inn Jón Hjálmarsson og aðrir
í stjóm Úlfar Hjálmarsson,
Jónas Jónsson, Ásgeir Aust-
fjörð og Ólafur Haraldsson. —
Æfingar verða í vetur í
íþróttahúsniu í Glerárhverfi.
4 : DAGUR
DAGUR•5