Dagur - 28.09.1977, Síða 8
DAGUR
Akureyri, miðvikudagur 28. september 1977
Þessi móhraukamynd úr Svarfaðardal, sem tekin var fyrir allmörgum árum, minnir á gamla Kmmn,
er þetta eldsneyti var grafið úr jörð. (Ljósm. E. D.)
Fallegir hópar í stóðréttum
Ómarkaður stóðhestur kom til réttar
Sauðárkróki 26. september. Já
ég var í stóðréttum í gær. 'Rétt
að var í Staðarrétt við Reynis
stað, Skarðarétt í Gönguskörð-
um og Selárrétt á Skaga. Logn
var og blítt veður og þannig
hefur það verið að undanförnu,
sérstaklega gott gangna. og
réttarveður. Flest voru hrossin
í Skarðsrétt, um 600, en um 300
í hinum, fallegir hópar.
Það bar til, að í Staðarrétt
kom þriggja vetra ómarkaður
stóðhestur og var hann boðinn
upp og seldur á 55 þúsund
krónur. En algerlega er óheim-
ilt að láta stóðhesta ganga
lausa, enda þótti þetta nokkuð
fréttnæmt. Stóðhesturinn var
rauðstjömóttur og sæmilega
álitleg skepna, þriggja vetra,
eftir því sem best var séð.
Slátrun gengur vel og er lóg-
að hjá kaupfélaginu 2300 á dag
og stundum meira. Dilkar reyn-
ast heldur vænni en í fyrra. —
Fyrir helgina var búið að lóga
14 þúsund fjár. Kaupgjaldsmál-
in, sem voru á dagskrá fyrir
sláturtíðina ,leystust farsællega
og tafðist slátrun ekki um eina
klukkustund þeirra vegna.
Skapti er að landa 70 tonnum
í dag en Drangey er í veiði-
banni. Nýi togarinn tafðist lítil-
lega, og er því ekki kominn
ennþó. G. Ó.
Bækurnar frá Skjaldborg
Skjaldborgarútgáfan h.f. á Ak-
ureyri er nú að prenta nokkrar
bækur sem koma á markaðinn
síðar á þessu ári. Bjöm Eiríks-
son prentsmiðjustjóri tjáði blað
inu fyrir helgina, að fyrsta bók-
in væri þegar fullprentuð og til-
búin til dreifingar, en það er
sjöunda Ijóðabók Braga Sigur-
jónssonar og heitir Sumarauki.
En ekki sagði Björn hvenær
bókin yrði send í bókabúðir.
Þá er sjötta bindi bókaflokks
ins Aldnir hafa orðið, í prentun
og í þessari bók segja frá þau
Guðlaug Narfadóttir, Snæbjörg
Aðalmundardóttir, Stefán Jas-
onarson, Guðni Þórðarson, Þor-
leifur Ágústsson, Þorkell
Björnsson og Hólmsteinn Helga
son.
Þá er í prentun gamansaga
fyrir börn og unglinga eftir
Indriða Ulfsson og heitir hún
Loksins fékk pabi að ráða. Varð
eldasögur, annað bindi, eftir
Tryggva heitinn Þorsteinsson
kemur út hjá forlaginu og ritar
Samvinnuskólinn Bifröst
Vetrarstarf Samvinnuskólans
er nýhafið. Skólasetning að
Bifröst var þriðjudaginn 20.
september en í framhaldsdeild-
um 18. september.
Togararnir
Kaldbakur landaði síðast 14.
september 155 tonnum. Afla-
verðmæti 13,5 millj. króna.
Svalbakur landaði 20. sept-
ember 170 tonnum. Aflaverð-
mæti 12,9 millj. kr.
Harðbakur landaði 23. sept.
160 tonnum. Aflaverðmæti 14,6
milljónir króna.
Sléttbakur landaði 12. sept.
170 tonnum. Aflaverðmæti var
15,2 millj. kr. Togarinn var að
landa á ný á mánudgainn, 140—
150 tonnum.
Sólbakur landaði 19. sept. 116
tonnum. Aflaverðmæti 10,2
Nemendur í vetur eru 121
talsins í 6 bekkjardeildum, þar
af 81 á Bifröst og 40 í framhalds
deildum. Er þetta fjölmennasti
hópur sem stundað hefur nám
við skólann vetrarlangt.
Síðastliðinn vetur bjuggu
tveir nemendur ásamt fjölskyld
um sínum í orlofshúsum sam-
vinnustarfsmanna að Bifröst.
Þessi tilraun með „hjónagarða“
tókst vel þannig að í vetur búa
nemendur skólans í fimm orlofs
húsum samvinnustarfsmanna.
í skólasetningarræðum gerði
skólastjóri grein fyrir hugmynd
um sem uppi vær um að skól-
inn gengist fyrir námskeiðum
fyrir fullorðið fólk og kvaðst
hann vonast til að námskeiða-
hald gæti hafist við skólann á
þessu skólaári.
Skólastjóri Samvinnuskólans
er Haukur Ingibergsson.
séra Bolli Gústavsson formála.
Bókin er ætluð bæði yngra fólki
og eldra. Þá er að koma út bók-
in Galdra- og brandarabók
Baldurs og Konna, með teikn-
ingum og ljósmyndum.
Þá er enn að geta bókar eftir
séra Jón Bjarman fangelsis-
prest og heitir hún í óljósri
mynd. Kallar höfundur bókina
skáldverk. Og enn kemur ein
Kátubókin og heitir hún Káta
bjargar hvolpunum, en Magnús
Kristinsson þýddi.
Að endingu sagði Björn, að
útgáfan væri e. t. v. „að spá í“
eina bók í viðbót, sem þó væri
ekki að fullu ráðið.
Prentsmiðja Björns Jónsson-
ar og Skjaldborgarútgáfan eru
í höndum sömu eigenda og hef-
ur prentsmiðjan aukið og bætt
vélakost sinn til mikilla muna.
10
ri
• Verð á leik>
föngum
Neytcndasamtökin sendu
blaðinu opinbera fyrirspum
til Kaupmannasamtaka ís-
lands og Félags leikfanga-
sala. Þar er spurt, hvort rétt
séu þau orð verðlagsstjóra,
að innkaup á leikföngum séu
hagstæð í samanburði við
það, sem gerist í London, en
álagning heildsala og smá-
sala sé hins vegar — „eða
sem sagt vel á annað hundr-
að prósent, sem er a. m. k.
hclmingi hærra en kollegar-
þeirra út í London taka.“
Neytendasamtökin óska
opinberra svara út af þess-
um viðskiptaháttum, en
skýrt skal tekið fram, að
frjáls álagning er á leikföng-
um og heyrir verðlagið því
ékki undir skrifstofu verð-
lagsstjóra.
• Misheppnuð
menningarvika
Lítið hefur opinberlega ver-
ið rætt um Norrænu menn-
ingarvikuna, sem í sumar
var haldin í norðlenskum
kaupstöðum. Vantaði þó
ekki viljann, því að hug-
myndin var góð. En vikan sú
ama færði okkur ekki and-
blæ menningar frá hinum
Norðurlöndunum, eins og
menn væntu. Norræna menn
ingarvikan hefði átt að heita
eitthvað allt annaað, svo hún
kafnaði síður undir nafni.
Menn héldu í vonartaugina
löngu eftir að hún var brost-
in og síðan urðu menn þög-
ulir. Næsta Norræna menn-
ingarvika virðist hafa hlotið
sinn dauðadóm af þessari,
þótt þar eigi ekki allir óskylt
mál. Hún yrði, ef upp væri
vakin, að vera undirbúin
með list og menningu í huga.
Hún þarf að eiga meira
erindi til fólksins, en þessi
ótti. Þessi orð em skráð sam
kvæmt umsögn margs fólks.
• Ónotaðir
möguleikar
Oft bera menn sér það í
munn, bæði á förnum vegi
og hér á skrifstofum blaðs-
ins, að sjónvarp og útvarp
gæti betur þjónað sínum til-
mm
gangi með þvi að nota meira
efni af landsbyggðinni, eins
og landið utan höfuðborgar-
innar er oft nefnt. Á það er
bent, að t. d. á Akureyri
einni væri af miklu að taka
í þessu efni og er það þá
nefnt, að þar séu athyglis-
verðir framkvæmdamenn,
skáld, rithöfundar og lista-
menn, kórar, hljómsveitir og
leikhús, auk hinna ýmsu sér-
stæðu gáfu- og atorkumanna
á fjölmörgum sviðum.
• Tímitil
kominn
Menn segja sem svo, að til
mikils væri að vinna, að fá
gott efni fró hinum ýmsu
stöðum, í stað einhvers af
því „lélega“, sem yfir fólk
dynji. Og menn benda á
fleiri staði en Akureyri, sem
miklu gætu miðlað, meðal
annars af svipuðu efni og
áður var nefnt og mun það
rétt vera. En umræðumar
snúast þá jafnframt um það,
að nokkrum erfiðleikum er
bundið að taka upp hið
ágæta efni, sérstaklega leik-
húsverk og tónlist, en hið
talaða orð er hins vegar
unnt að taka upp og hefur
alllengi verið gert með góð-
lun ánangri við lélega að-
stöðu, sem vonandi stendur
nú til bóta. Vart má það nú
dragast mikið lengur, að á
Norðurlandi verði komið
upp aðstöðu fyrir sjónvarp
og útvarp og á þann veg, að
auðvelt sé að nota hið fjöl-
þætta efni, sem til er og til
fellur hverju sinni.
• Staðbundið
sjónvarp
Hér má því svo við bæta, að
á stöðum eins og Akureyri,
þyrfti að athuga alla mögu-
leika á því að setja á lagg-
irnar staðbundið útvarp fyr-
ir staðinn og nágrennið. Og
þá hafa margir áhuga á að
nota þessa tækni í skólunum,
með skólasjónvarpi og er
það vissulega athyglisvert
mál. Öll þessi mál þurfa um-
ræðu og athugun, en nú
þegar þarf að knýja á um
úrbætur fyrir Ríkisútvarpið,
bæði útvarp og sjónvarp, svo
unnt sé að nýta betur noið
Ienskt efni en hingað til.
Gagnfræðaskólinn settur
Gagnfræðaskólinn á Akureyri
var settur í Akureyrarkirkju
þriðjudaginn 20. september. —
Sverrir Pálsson skólastjóri flutti
skólasetningarræðuna, en séra
Birgir Snæbjörnsson flutti bæn.
í ræðu skólastjóra kom fram,
að í vetur mun skólinn starfa i
5 bekkjum. Þar af eru þrír
bekkir á grunnskólastigi í sam-
tals 19 bekkjardeildum með um
480 nemendum, og fyrsta og
annað ár framhaldsdeilda (áður
5. og 6. bekkur) í 6 bekkjar-
deildum, þ. e. heilbrigðissviði,
uppeldissviði og viðskiptasviði
og eru nemendur þar rúmlega
100 talsins á fyrsta ári og tæp-
lega 50 á öðru ári.
í skólanum eru 380, en piltar
aðeins 250. Mikil breyting hefur
orðið á kennaraliði, bæði föst-
um og lausráðnum, en alls
munu yfir 50 kennarar starfa
við skólann í vetur.
Ármann Helgason, sem starf-
að hefur við skólann síðan 1938_
eða í 39 ár, lætur nú af störfum
sem fastur kennari, en mun þó
starfa áfram sem stundakenn-
ari. Ármann hefur starfað leng-
ur við skólann en nokkur ann-
ar, og var yfirkennari um all-
langt skeið, en lét af yfirkenn-
arastarfinu fyrir nokkrum ár-
um að eigin ósk. Yfirkennari
við skólann nú er Ingólfur Ár-
mannsson.