Dagur - 02.12.1977, Page 6
til byggingarsjóðs Sjólfsbjargar
á Akureyri frá 1. jan. til 30. okt.
1977:
Hlutavelta kr. 1.500. Hólmfríð-
ur Halldórsdóttir 2.100. Gunnar
Lorenz 10.000. Ágóði af köku-
basar 28. maí 1977 46.711. —
Sjúkrasjóður Sjómannafélags
Eyjafjarðar kr. 250.000. Sjúkra-
sjóður Einingar 1.000.000. Hluta-
velta haldin af Guðrún Róberts-
; dóttur, Regínu Sigvaldadóttur,
Heiðdísu og Hjördísu Sigur-
steinsdætrum 6.991. Hlutavelta
haldin af Guðrún Hlín, Gylfa
: Gylfasyni, Magna Haukssyni og
Stefáni Brynjarssyni 13.855. —
Hulda Laxdal 3.200. Trésmiðafé-
lag Akureyrar 200.000. Hluta-
::;g] velta haldin af Þóreyju Ingvad.,
Pollý Brynjólfsdóttur og Brynju
Hergeirsdóttur 4.040. Frímann
Pálmason, áheit 20.000. Ingólfur
; S i Árnason, minningargjöf 55.000.
Páll Gunnlaugsson 15.000. —
Bjarni Thorarinsson kr. 300.
Samtals gerir þetta 1.628.697.
Áður komið: Þorbjörg Hall-
dórsdóttir kr. 5.000. Berghildur
og Jónas frá Brekknakoti, áheit
til tækjakaupa kr. 50.000. Jó-
hanna Björg Jónsdóttir gaf há-
fjallasól.
Sjálfsbjörg þakkar af alhug
öllum gefendum veittan stuðn-
ing og þann hug sem gjöfunum
fylgir.
Sjálfsbjörg, Akureyri.
Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak-
ureyri berast gjafir. Ágóði
af hlutaveltu barna á Spít-
alavegi 11 og Ránargötu 21
kr. 8.694. Áheitt frá G. G.
kr. 1.000. Til minningar um
látna ástvini frá N. N. kr.
100.000. Gjöf frá ónefndri
konu kr. 5.000. Gjöf til
barnadeildar frá N. N. kr.
5.000. Til minningar um
látna ástvini frá ónefndri
konu kr. 100.000. Gjöf frá
Láru Þorsteinsdóttur kr.
100.000. Til barnadeildar,
ágóði af hlutveltu barna í
Skarðshlíð 22 kr. 3.000. Til
minningar um Sumarrósu
Sigurbjörnsdóttur frá Þ. S.
kr. 1.000. Minningargjöf
um Brynhildi Sigurðar-
dóttur, Hríseyjargötu 1, frá
manni hennar kr. 25.000.
Frá N. N. kr. 500. Til
minningar um hjónin Dýr-
leifu Oddsdóttur og Vil-
helm Vigfússon frá börn-
um þeirra kr. 45.000. Ágóði
af hlutaveltu barna: Jör-
undar Harðarsonar, Hug-
rúnar Harðardóttur og
Dagbjartar Ingólfsdóttur
kr. 3.500. --- Með bestu
þökkum til gefenda. —
Torfi Guðlaugsson.
Skrifstofa Áfengisvarnar-
nefndar Akureyrar er op-
in þriðjudaga og fimmtu-
daga kl. 5—6 e. h. á Hótel
Varðborg, sími 22600.
Siónarhæð. Heimsókn David
Iliffe trúboði frá Bretlandi
kemur til Akureyrar og
heldur samkomur sem hér
segir: Mánudag 5. des. og
þriðjudag 6. des. kl. 8.30
e. h. á Sjónarhæð. Miðviku
daginn 7. des. kl. 8 30 e. h.
í Dynheimum. Fimmtudag
8. des., föstudag 9. des. og
laugardag 10. des. á Sjón-
arhæð kl. 8.30. Sunnudag
11. des. kl. 5 í Dynheimum.
Ungu fólki er sérstaklega
boðið á allar þessar sam-
komur en allir eru hjart-
anlega velkemnir.
I.O.G.T. Útbreiðsla og upp-
lýsingar. Skrifstofan er op
in á þriðjud. og fimmtud.
kl. 5—6 e. h. á Hótel Varð-
borg, sími 22600.
Híálpræðisherinn
Sunnud. 4. des. kl.
13.30 sunnudaga-
skóli. Kl. 17 að-
ventusamkoma. Æskulýð-
urinn syngur. Mánudag kl.
16 heimilissambandið.
Þriðjudag 6. des. kl. 20.30
jólafundur hjálparflokks-
ins. Allir velkomnir.
GJAÍIR OOAIiriT
Safnað í hlutaveltu til ágóða
fyrir Sólborg kr. 2.273. —
Þeir sem hlutaveltuna
héldu voru Snorri, Garðar,
Svanur, Guðmundur og
Jóhann.
Hjónaband. Nýlega voru gef
in saman í hjónaband Sig-
rún Baldursdóttir og Jens
Christian Skytte. Heimili
þeirra er í Fjordveien 69A
1322 Hörvik, Noregi.
Smáauglýsingar
Sími 11167
'.m'
DAGUR
DAGUR
ÍÖfiðÐflGSlNS1
fs/MI i
Neðangreind áheit hafa bor-
ist Strndarkirkju á af-
greiðslu Dags: Frá N. N.
kr. 1.000, frá mæðgum kr.
3.000, frá G. M. kr. 500, frá
H. S. kr. 500, frá A. A. kr.
I. 000, frá N. N. kr. 500, frá
G. K. kr. 1.000, frá V. K.
kr. 1.500, frá H. H. kr.
1.000, frá F. J. og Þ. J. kr.
7.600, frá Þóri Áskelssyni
kr. 100, frá N. N. kr. 100,
frá I. G. B. kr. 1.000, frá
V. G. kr. 500, frá N. N. kr.
1.000, frá konu kr. 500, frá
Þóri Áskelssyni kr. 10.000,
frá ónefndum kr. 2.000, frá
H. H. A. kr. 5.000, frá K. A,-
H. H. kr. 1.500, frá Jónínu
Guðmundsdóttur kr. 1.500,
frá ónefndum kr. 500, frá
S. J. kr. 1.000, frá ÞE og
RS kr. 1.000, frá E. K. kr.
I. 000, frá M. S. kr. 2.000,
frá Jónínu Guðmundsd. kr.
1.500, frá S. S. kr. 500, frá
G. S. kr. 1.000, frá A. J. kr.
I. 000, frá sveitakonu kr.
500, frá N.N.X, kr. 2.000,
frá Kristínu kr. 1.000, frá
J. kr. 1.000, frá K. K. kr.
1.000, frá ónefndum kr.
1.000, frá konu kr. 1.000,
frá N. N. Dalvík kr. 3.000,
frá Í.Ó. kr. 5.000, frá F. P.
kr. 7.000, frá H. T. kr. 7.000,
frá N. N. kr. 1.000, frá N.
N. kr. 1.000, frá H. F. kr.
500, Jónína Guðmundsd.
kr. 1.500, S. S. kr. 700, frá
N. N. kr. 5.000, J. J. kr.
1.000, SS kr. 1.000, S. G.
kr. 1.000, P. L. kr. 1.000,
N .N. kr. 1.000, frá E. M. S.
kr. 2.000, frá N. N. kr. 1.500,
Þ. K. H. kr. 500, frá S. S.
kr. 500, frá H. H. kr. 1.000,
N. N. kr. 1.000, Sæmundur
Friðfinsson kr. 5.000, frá
S. V. kr. 600, Jónína Guð-
mundsdóttir kr. 500, S. S.
kr. 500, frá ónefndum kr.
20.000, Kr. B. kr. 1.000,
Baldvina Valdimarsdóttir
kr. 2.000. Samt kr. 144.100.
Gjafir þessar hafa allar
verið sendar Strandar-
kirkju.
Neyðarþjónusta í kaupstöð-
um á Norðurlandi. —
Sauðárkrókur: Lögregla,
sími 5282, slökkvilið 5550.
Siglufjörður: Lögregla og
sjúkrabíll 71170, slökkvilið
71102 og 71496. ÓlafsÞörð-
ur: Lögregla og sjúkrabíll
62222, slökkvilið 62115.
Dalvík: Lögregla 61222,
sjúkrabíll 61123 á vinnu-
stað, heima 61442. Akur-
eyri: Lögregla 23222 og
22323, slökkvilið og sjúkra-
bíll 22222. Húsavík: LÖg-
regla 41303 og 41630,
sjúkrabíll 41385, slökkvilið
41441.
Áttu þeir erindi til jarðar?
Sagnir hafa lengi gengið af fljúg
andi furðuhlutum og í mörgum
löndum. Lengi var hent gaman
að þeim sögum, en vísindamenn
og ýmsir þeir aðilar aðrir, sem
ekki vilja auglýsa nafn sitt til
aðhláturs, hafa um sinn fengist
við rannsóknir á þessum fyrir-
bærum, þótt árangur sé lítill.
Fljúgandi furðuhlutir, hafa ver-
ið eltir á hraðfleygustu þotum,
en án árangurs. En eftirfarandi
frásögn er til þess fallin, að
gefa ímyndunaraflinu lausan
tauminn, eða til hugleiðinga
um erindi einhverra utan úr
geimnum til jarðarinnar, ef nær
tækari skýring liggur ekki á
lausu.
í bandaríska blaðinu National
Enouirer frá 11. október í haust,
er frá þvi sagt, að mjög bjartir
hlutir hafi séðst á lofti í norð-
austurhorni Coloradoríkis.
Þessa hluti hafa bæði lögreglu-
menn og bændur séð mörgum
sinnum, og allt síðan í ágúst
1975.
Á sama tíma hafa fundist lim-
lest húsdýr, 77 að tölu. Talið
er, að samband sé á milli hinna
„björtu hluta“ og limlestingu á
húsdýrunum_ þar sem þetta
gerist jafnan á sama tíma. Alls
hafa 74 kýr verið limlestar, eitt
naut, einn uxi og einn hestur.
Er þetta haft eftir aðstoðarlög-
reglustjóra á þessum stað og
bændum.
Hlutar voru teknir úr skepn-
unum, svo sem augu, eyru, tung
ur og kynfæri. Ekkert bendir
til þess, að rándýr hafi hér að
verki verið, heldur einhverjir
aðrir, sem til verka kunnu. Eng
in bílför né fótaför hafa séðst
nálægt hinum dauðu dýrum.
Stærsti hluturinn sem á lofti
hefur séðst, lítur út eins og stór
stjarna, sem er kyrr hátt frá
jörðu og hefur hann séðst upp í
hálfan annan klukkutíma í einu
En siðan hefur fyrirbærið horf-
ið á miklum hraða. Minni hluti
hafa menn séð koma frá hinum
stóra, og hverfa þangað aftur.
Reynt hefur verið að elta
stóra hlutinn á flugvélum og
eins hafa menn verið settir á
vakt, en allt er það ennþá ár-
angurslaust, vegna þess hve
fjarlægðir hafa verið miklar.
Myndir hafa verið teknar af
fyrirbærunum og eru litbrigðin
æði fjölbreytt. Lögreglumaður,
sem þarna hefur starfað í 11 ár,
hefur jafnan fengið tilkynningu
um limlestingu dýra, þegar ljós
fyrirbærin sáust, eða hinir
óþekktu hlutir.
Dýrin sem lífið létu, voru á
tiltölulega litlu svæði, og þar
sáust ljósfyrirbærin skýrast.
Ekki var unnt að sjá, að blætt
hafi úr dýrunum. Allstórir hlut-
ar af skinni hafa verið fjarlægð-
ir, án þess að merki sjáist um,
að hnífur hafi verið notaður.
Skepnurnar liggja oft alveg á
bakinu, sem er mjög óeðlileg
stelling. í tveim tilfellum að-
eins hafa merki séðst á jörðunni
eins og far eftir kúlulaga hluti.
Bóndi einn segir svo frá, að
hann hafi séð nokkur ummerki
á jörðinni, eins og eftir þrífót,
nálægt kú, sem drepin var. Lög
reglumaður sá svipað merki á
öðrum stað, þar sem skepna var
limlest.
Einn bóndi hefur misst ellefu
gripi með þessum hætti á tveim
síðustu árum. Dýralæknar geta
ekki skýrt þessar limlestingar.
Einn þeirra hefur verið þarna í
mörg ár og hann hefur gert lík-
skurð á einni kúnni, og kom þá
í ljós, að legið hafði verið tekið
burtu, aftanfrá.
Þetta allt hefur valdið mikl-
um heilabrotum og verður svo
þar til gátan er ráðin.
AB bækur
Út er komin hjá Almenna bóka-
félaginu skáldsagan Fífa eftir
Gísla J. Ástþórsson, hin sjötta
í röðinni skáldsagnabóka hans.
Gísli er eins og kunnugt er
nokkuð einn á báti og .sérstæður
meðal íslenskra skáldsagnahöf-
unda fyrir hinn persónulega
skopstíl sinn, sem á yfirborðinu
er léttur og sakleysislegur, en
undir niðri oft mögnuð ádeila.
Á kápu bókarinnar segir um
þessa nýju skáldsögu:
„Skáldsagan Fífa er háðsk nú-
tímasaga, ádeilusaga og ástar-
saga. Hún segir frá Fífu ráð-
herradóttur sem neitar að ger-
ast þátttakandi í framakappv-
hlaupi föður síns, ekur um borg-
ina á skellinöðru á óleyfilegum
hraða, gengur í lið með upp-
reisnaræsku, vinnur ýmis konar
erfiðisvinnu, — allt andstætt því
sem faðirinn hefði kosið. Svo
veður Fífa ástfangin og geng-
ur þá að málum ástarinnar með
sama lífsþróttinum og öllu öðru,
sem henni þóknast að taka sér
fyrir hendur.
Samhliða þessu er sagan eins
konar þverskurður af þjóðlífi
höfuðborgarinnar, og er bað allt
sýnt í skoplegu ljósi, eins og
höfundar er von og vísa.“
Bókin er 202 bls. að stærð og
unnin í Prentverki Akraness.
(Fréttatilkynning frá AB).
Juðmundur Hagalín hefur sent
rá sér í útgáfu Almenna bóka-
élagsins nýja skáldsögu undir
því sérkennilega heiti Haniingj-
an er ekki alltáf ótukt. Þótt
höfundur sé nú kominn fast að
áttræðu verða ekki séð ellimörk
á ritum hans — sami fjörugi
st'llinn og frásagnargleðin. Síð-
asta skáldsaga Hagalíns, Segið
nú amen, séra Pétur, kom út
1975 og seldist upp á tveimur
vikum.
Um þessa nýiu skáldsögu seg-
ir á bókarkápu:
„í þessari nýju skáldsögu
bætir Hagalín enn við hinn sér-
stæða persónuskara, sem hann
hefur skapað á nær 60 ára rit-
ferli. Hér er það lítill og ljótur
maður — Markús-MóaMóri. —
Það er einmitt ljótleikinn sem
skiptir sköpum — gerir Markús
að miklum manni og hamingju-
manni. Það sem útlitið rífur
niður verður að hann bæta upp
á öðrum sviðum. Slíkt kostar
baráttu og úr henni kemur
Markús sigurvegari — andlegt
þrekmenni — fær um að tak-
ast á við vanda sem aðrir
treysta sér ekki við.
Sagan lýsir þeirri baráttu sem
Markús heyr við sjálfan sig og
umhverfið. Sögusviðið er við
sjávarsíðuna, Markús iar sjó-
maður og endar sem uppalandi
óknyttabarna."
Bókin er 238 bls. að stærð og
er unnin í Prentsmiðjunni Odda
og Sveinabókbandinu. Kápuna
hefur Grafík og hönnun gert.
(Fréttatilkynning frá AB).
6 • DAGUR