Dagur - 14.04.1978, Síða 6

Dagur - 14.04.1978, Síða 6
Sigurjón Bláfeld Minkarækt - til aðauka fjðlbreytni atvinnulífs í þessari grein er fjallað um hvemig minkarækt getur skapað fjöl- breytni í atvinnulífinu á Norður- landi. Þá er fyrst og fremst haft í huga að notuð se 'þekking, reynsla og aðstaða núverandi minka- bænda, til að auðvelda verðandi minkabændum byrjendastarfið, þannig að frá búunum sem fyrir em á Dalvík, Grenivík og Sauðár- króki, fengju nýju bændumir keypt tilbúið fóður handa dýrum sínum og þar kynntu þeir sér verklega og faglega hlið minkaræktarinnar. Að vori verða átta ár liðin síðan fyrsta minkabúið var stofnað, hér á landi, eftir að nýju lögin um minkarækt gengu í gildi 1969. Margvíslegir byrjendaörðugleikar hafa mætt þessari nýju búgrein, en nú hafa þeir minkabændur, sem eftir em, sýnt, að þeir em yfir- stíganlegir. Vandamálin hafa fyrst og fremst verið vegna slæms staðarvals á húsum og byggingum, rangri samsetningu fóðursins og sjúkum lífdýmm. Mesta vanda- málið hefur skapast af vírussjúk- dómi, sem hefur áhrif á frjósemi dýranna, en nú er þessari veiki haldið niðri með skipulagðri blóð- prófun á lífdýmm. Fjölbreyttara atvinnulíf og betra byggðajafnvægi. Ekki er ætlunin með þessari grein að fara að mæla með neinum verksmiðjubúskap, heldur að benda á leið til að efla þá minka- rækt, sem fyrir er á Norðurlandi og gefa væntanlegum skinnaframleið- endum betri innsýn inní búrekst- urinn. í nágrenni við minkabúin á Dal- vík, Grenivík og Sauðárkróki tel ég auðveldast fyrir ný bú að hefja rekstur. Þá yrðu áðumefnd bú höfð sem nokkurs konar stökkpallur fyrir þau nýju, þannig, að núver- andi minkabú, framleiddu og seldu væntanlegum minkaræktar- mönnum tilbúið fóður handa dýmm sínum og veittu þeim verk- lega og faglega tilsögn. Með þessu móti gætu minkabúin sparað nýju bændunum stofnkostnað í fóður- eldhúsum og styrkt um leið Reynsla núverandi og fyrrverandi minkabænda staðfestir að staðar- val minkahúsa hefur mikil áhrif á stofnkostnað og rekstur búanna. Velja þarf því byggingaar grunna r TAFLA 1 Mánuðir Fóðumotkur Verkefni % Janúar 3 Hreingeming og uppröðun febrúar 3 Prófun á vírusveiki, 20.-25. mars 3 Pöntunartími 4.-24. apríl 3 Meðgöngutími maí 4 Gottími og mjólkurskeið júní 9 Fráfærur, 10.-20. júlí 13 Vaxtartími hvolpa ágúst 14 Trimmtími, 10.-31. september 15 Feldskipti hefjast október 15 Prófun á vírusveiki, 15.-25. nóvember 13 Feldunartími, 15.-30. desember 5 Feldunartími, 1.-15. 100% Sú reynsla, sem minkabúin á Norðurlandi hafa, bendir ótvírætt til þess, að minkarækt sé arðbær atvinnugrein, sem getur skapað fjölbreyttni í búskaparháttum í dreifbýlinu. Þá má ætla, að minka- hald hér á landi, eins og á hinum Norðurlöndunum, eigi auðvelt með að tengjast hefðbundnum landbúnaði og öðmm atvinnu- grein um og halda þannig betra byggðajafnvægi í landinu. Minka- búskap má stunda á marga mis- munandi vegu, sem auka- eða aðalbúgrein úti í sveitum landsins, og einnig sem einstaklingsbú eða hlutafélög við sjávarsíðuna. Víða erlendis em minkabú eða bróður- fyrirtæki frysti- slátur- eða hænsnahúsa með góðum árangri, og í Finnlandi hefur verið komið á fót hálfgerðum verksmiðjuminka- búum til að bæta atvinnuástandið úti á landsbyggðinni. Þá hefur minkabúskapurinn auk þess að skapa atvinnu, þann mikla eigin- leika að breyta verðlitlum úrgangi frá sjávarútvegi og landbúnaði í verðmestu útflutningsvöru, sem fs- lendingar hafa. Hér fyrir neðan er sýnd sam- setning á minkafóðri, sem er 94% íslenskt hráefni. rekstrarafkomu beggja aðila. í töflu 1 er sýnd fóðumotkun og verkefni minkabúa eftir mánuðum. Uppbygging, stofn- kostnaður og rekstur. Uppbygging búa, sem byggðu af- komu sína á skinnaframleiðslu er fjórþætt: 1. Fóðurgerð og flutningur 2. Bygging húsa fyrir dýrin 3. Sameiginleg feldverkun skinna 4. Vinnuafl og bústærð Fóðurgerðin er mikilvægasti þátturinn við skinnaframleiðsluna. Gott og rétt samsett hráefni, unnið í fóðurstöð, tryggir afkomu búanna og á því að vera sjálfsögð. Minkabúin norðan lands em öll í nágrenni við fiskvinnslustöðvar og liggur því beinast við að fóðureld- hús þeirra verði fullnýtt áður en fleiri eldhús verða byggð. Frá eld- húsi minkabúanna þriggja má aka fóðrinu út til hinna búanna, en ekki ætti að hafa heildar vegalengdina lengri en 100-150 km. Þá má einnig koma flutningunum þannig fyrir að minkabændur sæktu sjálfir fóðrið eða skiptust á að sækja það til fóðurstöðvarinnar. Hér fyrir neðan er sýnt með uppkasti hvernig minkabúin gætu tengst fóður og skinnaverkunarstöðinni. með tilliti til bústærðar, flutninga og samgangna, vatn og rafmagn og fl. atriða sem hefur áhrif á kostnað og rekstur. Hér á eftir er sýndur áætlaður stofn- og rekstrarkostn- aður á hverjar 100 læður á búi, reiknað út frá stofnkostnaði þann 1. janúar 1978, sem hefur 1000 læður. Feldverkun. Til að tryggja góða verkun á skinn- um er nauðsynlegt að hafa feld- verkunarstöð, þar sem vanir menn felda dýrin. Minkabændur gætu ráðið hvort þeir láta flá og fullverka dýrin á stöðinni eða hvort þeir kæmu aðeins með skinnin flegin. Vinnuafl og bústærð. Þegar áætluð er vinna á minkabú- um er reiknað með að einn maður komist yfir að hirða 600 læður og hvolpa þeirra, fái hann fóðrið til- búið og komið að búinu, en 600-800 hafi hann einhverja hjálp frá fjölskyldu sinni. Minnstu hagkvæmustu búin sem hafa eigin fóðurstöð, eru 2400-3000 læðu bú, þar sem fjórir starfsmenn vinna. Miklir framleiðslumöguleikar eru fyrir islensku skinnafram- leiðslu af minkum og refum. Skap- ast þeir að mestu af góðu hráefni til fóðurgerðar fyrir dýrin, og sölu skinnana á erlendum uppboðum. Verðlitlum fiski og sláturúrgangi er á þann hátt breytt í verðmestu út- flutningsvöru þessa lands með til- komu loðdýranna. Þrátt fyrir góð skilyrði má ekki gleyma, að framtíð þessa atvinnuvegar verður aldrei tryggður án faglegrar og félags- legrar uppbyggingar. Fiskúrgangur 65% Sláturúrgangur (Nautgr., Sauðfj., Svína, hænsna og hvala) 20% Fita (3.50 sauða- og nautgr., 1.50 fiskiúrg.) 5.0% Grasmjöl Kolvetni og vítamín 6.0% Fylliefni (undanrenna, mysa og vatn) 3.0% Alls 100.0% a) Gmnnur 66.500 Dýraskálar 1.3-1.5m2/læðu 1.597.300 Búr, hreiðurk. vatn 946.500 Girðing 103.500 Hluti í fóðurvél 51.700 Áhöld og verkfæri 51.700 2.817.200 b) 100 líflæður á kr. 6 þús. 600.000 20 lífhögnar á kr 12 þús. 1.240.00 1.800.00 Rekstur. a) Tilbúið fóður 23.000 kg á kr. 30/- kr. 690.000 b) Skinnaverkun 350 stk. á kr. 250/- stk. 87.500 c) Rafm., sími, trygging og fl. 116.000 d) Seld skinn á kr. 5.700,- 1.995.000 e) Afskr. vaxta og vinnulaun 1.101.5000 1.995.000 1.995.000 UGLYSINGAR 11167 Aðalfundur Akureyrardeildar Akureyrard. Aðalfundur Akureyrardeildar KEA var haldinn að Hótel KEA 20. mars. Sigurður Jóhannesson, vara-deildarstjóri, setti fundinn og stjómaði honum Aðalmál fundarins var starfsskýrsla Kaupfélags Eyfirðinga fyrir árið 1977, og flutti Valur Amþórsson hana. Hefur sú skýrsla áður verið rakin hér í blaðinu. Umræður urðu miklar um hana og önnur mál. Samþykkt var tillaga frá Svav- ari Ottesen um að beina þeim til- mælum til stjómar KEA og framkvæmdastjóra, að aukin verði að mun almenn fræðsla um starfsemi kaupfélagsins og sam- vinnuhreyfingarinnar allrar, meðal annars með fræðsluritum og fundahöldum. Samþykkt var tillaga Jóns Kristinssonar, um þann ógnvekjandi vanda, sem nú blasir við á flestum sviðum þjóð- lífsins vegna þeirrar óðaverð- bólgu, sem nú geisar. Krefst fundurinn þess, að stjómvöld snúist gegn þessum háska, sem hlýtur að sliga þjóðina, verði ekki nú þegar gripið í taumana, segir í tillögunni. Og enn var samþykkt svohljóðandi tillaga: Aðalfundur Akureyrardeildar KEA, haldinn 20. mars 1978, skorar á bæjar- yfirvöld að veita Kaupfélagi Ey- firðinga, Akureyri, þá verslunar- lóð í Hlíðarhverfi, sem félagið hefur sótt um og úthlutað verður á næstunni. Bænda- klúbbsfundur um naut- griparækt Mánudaginn 30. janúar var hald- inn bændaklúbbsfundur að Laugarborg. Formaður Búnaðar- sambandsins Sveinn Jónsson setti fundinn og skipaði fundarstjóra Sigurð Pálsson bónda í Holtsseli. Framsögumaður á fundinum var Erlendur Jóhannsson nautgripa- ræktaráðunautur hjá Búnaðar- félagi íslands. Ræddi hann fyrst um af- kvæmdarannsóknir á nautum, framkvæmd þeirra og niðurstöður síðustu rannsókna. Fram kom að nokkrar breytingar hafa átt sér stað á afkvæmarannrannsóknunum. Hafa þær lagst niður á sérstökum rannsóknarstöðvum, en nautin eru nú dæmd í gegn um skýrsluhald nautgriparæktarfélaganna. í skýrslunum koma fram afurðir dætra nautanna, en síðan eru þær skoðaðar og dómur lagður á aðra eiginleika, s.s. byggingu, mjaltir, skapgerð og fl. Það hefur sýnt sig, að öiyggi þessara dreifðu af- kvæmarannsókna er mikið meira en meðan stöðvamar voru ein- göngu notaðar. Framsögumaður ræddi einnig um val nautkálfa fyrir sæðingar- stöðvamar og lýsti þeim kröfum sem gerðar eru varðandi foreldra kálfanna. Einnig talaði hann um ýmsa erfiðleika í kynbótastarfinu vegna búfjársjúkdóma og þar af leiðandi hindranir Sauðfjárveiki- vama á flutningi gripa inn á sæð- ingarstöðvamar. Að lokum sýndi Erlendur skuggamyndir af nokkrum nautum Nautastöðvarinnar og einnig af nautsmæðrum og öðrum afurða- miklum kúm. Að erindi framsögumanns loknu fóru fram umræður. Voru þær all- fjörugar og stóðu nokkuð fram yfir miðnætti. I Um 50 manns sóttu fundinn. 6.DAGUR

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.