Dagur - 12.05.1978, Qupperneq 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGUR
LX. Árg.
Akureyri, föstudaginn 12. maí 1978
28. tölublað
Skreið loks
seld
Loks er búið að semja um sölu
á skreið til Nígeríu, 5 þúsund
tonn og er verðmætið um 5
milljarðar króna. Hefur sala
þessi gengið mjög erfiðlega
vegna ýmiskonar vandkvæða
hjá kaupendum.
Alls eru í landinu 7 þúsund
tonn af skreið og á því enn
eftir að selja 2 þúsund tonn.
Rauðinúpur
Eftir jaml og fuður var loks
síðasta miðvikudag ákyeðið, að
viðgerö á Kautarnatnariogar-
anum Rauðanúpi fari fram
hér á landi. Hamar, Héðinn og
Stálsmiðjan tóku verk þetta að
sér. En áður hafði verið
ákveðið að senda skipið til
Englands til viðgerðar, en
járniðnaðarmenn stöðvuðu
nauðsynlega bráðabirgðavið-
gerð í slipp í Reykjavík. Stál-
viðgerð á að ljúka 15. júlí.
Vinna við skipið er þegar haf-
in, enda viðgerðarbanni aflétt.
Sfðustu hlekkirnir
brostnir
Loks ætti það að vera öllum
landsmönnum ljóst, sem áður
vafðist fyrir sumum, hvernig
þeir menn störfuðu í félagi,
sem heimtuðu að dómsmála-
ráðherra segði af sér vegna
afglapa. Vísir og Dagblaðið
með Vilmund Gylfason og
fleiri góða siðferðipredikara
sér til halds og trausts, gengu
lengst blaða í herferðinni gegn
dómsmálaráðherranum, Ólafi
Jóhannessyni. Síðustu hlekk-
irnir í rógsherferðinni hafa nú
brostið, með komu „huldu-
meyjanna" og játninga lög-
reglumanna.
Með hreinan
skjöld
Um þetta segir í Vísi 2. maí,
m.a. „Núverandi dómsmála-
ráðherra hefur marga brýnu
mátt heyja út af sakamálum,
enda hefur verið sótt að hon-
um nokkuð óvægilega og flest
tínt til sem haldgott hefur þótt
í þeim efnum.
En dómsmálaráðherra hef-
ur risið upp úr öldurótinu
hvað eftir annað með hreinan
skjöld, og fer nú að verða svo
að hinir beittu pennar rann-
sóknarblaðamennskunnar
munu fremur velja að ganga
stóran hring í kringum Ólaf
Jóhannesson en leita til að-
lögu við hann eða embætti
hans.“
Kvöldsöludeilan:
F.V.S.A. ræðir
við kvöldsala
Fyrir skömmu var frá því skýrt í
Degi, að Félag Verslunar- og skrif-
stofufólks á Akureyri, ætti í úti-
stöðum við handhafa kvöldsölu-
leyfa á Akureyri. Nú hefur stjóm
félagsins ákveðið að boða til fundar
með forráðamönnum eins fyrir-
tækjanna og að sögn Hafliða Guð-
mundssonar, formanns félagsins,
verður fundurinn í kvöld. Mun fél-
agið krefjast þess að fyrirtækið
greiði starfsfólki sínu eftir launa-
taxta félagsins, en útbúi ekki sjálft
neinar launaskrár.
Skotið á bíla frá B.A.
Breska ríkisútvarpið (BBC) hef-
ur ákveðið að gera kvikmynd
eftir sögu Desmond Bagley — Út
í óvissuna. Myndin verður m.a.
tekin á Norðurlandi og hefur
BBC samið við Bílaleigu Akur-
eyrar um bíla sem notaðir verða í
myndlnni. Nauðsynlegt reyndist
líka að fá bifvélavirkja leigðan,
en mikil skothríð er í mynd
þessari og einhver þarf að geta
sett nýjar rúður f einn bílanna.
Kvikmyndatökumennirnir eru
væntanlegir hingað til lands í lok
mánaðarins og mun myndatak-
an standa í rúman mánuð.
„BBC hefur pantað 10 til 15 bíla
og er leigutími þeirra mislangur.
Kvikmyndatökumennirnir vilja
m.a. fá nýjan Opel og 2 eða 3
framrúður verða að fylgja. Einnig
verðum við að útvega lengdan
Land-Rover með talstöð og kæli-
skáp, en í sögunni segir frá manni
sem fær sér bjór úr skápnum á
Sprengisandi“, sagði Vilhelm
Ágústsson einn af eigendum Bíla-
leigu Akureyrar.
Ákveðið hefur verið að ráða
nokkra íslenska leikara til að fara
með hlutverk í myndinni. Út í
óvissuna verður framhaldsmynda-
flokkur hjá BBC. Um þetta leyti
ætti kvikmyndatakan að vera að
hefjast í Skotlandi, en aðalsögu-
sviðið er hér á landi. Haft hefur
verið eftir framleiðenda kvik-
myndarinnar, Robert Mackintoch,
að ekki yrði lokið við þættina fyrr
en í vetrarbyrjun og að myndin yrði
sýnd fljótlega eftir að gerð hennar
væri lokið. BBC er þekkt fyrir
vandaða framleiðslu og væntan-
lega mun íslenska sjónvarpið leggja
kapp á að fá mynd þessa til sýn-
ingar.
Iþróttaskemmunni
breytt í tónlistarhöll
Unnið er af fullum krafti að und-
irbúningi fyrir Tónlistardaga á
Akureyri, sem hefjast í dag,
föstudag. íþróttaskemmunni er
breytt í tónleikasal og þar verða
lögð teppi, veggir klæddir og
pallur gerður fyrir hljómsveit,
auk þess sem komið verður fyrir
skermum til þess að bæta
hljómburð hússins. Æft er af
kappi hjá Passíukórnum og
Lúðrasveitinni og einnig eru
hafnar æfingar hjá stóra kórnum
sem tekur þátt í flutningi eins
verkanna á blásatatónleikunum,
Föstudagur: Sinfóníutónleikar,
þar sem Sinfóníuhljómsveit íslands
leikur undir stjórn Páls P. Pálsson-
ar, en einleikari á lágfiðlu verður
Unnur Sveinbjarnardóttir. Á efnis-
skrá verða verk eftir Richard
Wagner, Béla Bartok og Ottorino
Respighi.
Laugardagur: Blásaratónleikar,
þar sem Lúðrasveit. Akureyrar
leikur ásamt blásurum úr Sinfón-
íuhljómsveitinni og u.þ.b. 160
manna kór undir stjórn Roars
Kvam. Einleikarar verða Sigurður
I. Snorrason og Ole Christian
Hansen. Á efnisskrá verða verk
eftir Mendelsohn, Reed og Van
Lijnschooten og Berlioz. Þessir
tónleikar eru að því leyti sérstæðir
að öll verkin á efnisskránni verða
hér flutt í fyrsta sinn á íslandi. Auk
þess kemur fram í lokaverkinu,
Sorgar- og sigursinfóníu Berlioz,
kór þar sem félagar úr öllum kór-
um á Akureyri sameina krafta sína.
Sunnudagur: Passíukórinn á
Akureyri syngur ásamt kammer-
sveit félaga úr Sinfóníuhljómsveit-
inni. Einsöngvarar_veTða Ólöf K.
Harðardóttir, Ruth Magnússon,
Jón Þorsteinsson og Halldór Vil-
helmsson en stjórnandi verður Re-
ar Kvam. Á efnisskránni verða verk
eftir Bach og Mozart.
Hafin er sala aðgöngumiða.
Seldir eru miðar á einstaka hljóm-
leika og einnig áskriftarmiðar með
nokkrum afslætti en þeir gilda á
þrenna tónleika. Verð meða á
hverja tónleika er 1500 krónur fyrir
fullorðna, 1000 krónur fyrir börn.
Áskriftarmiðar kosta 3500 fyrir
fullorðna og 2000 fyrir börn og
skólafólk.
DAGURÁ
DALVÍK
- Sjá opnu
Ný stjórn
Vinnuveitenda
sambandsins
gæti aukið
samningslíkur
segir Jón Ingimars
Á miðvikudag var allsherjar-
verkfall hjá Iðju, félagl verk-
smlðjufólks. Gera má ráð fyr-
ir að um 840 manns hafi verlð
í verkfalllnu, sem var tll að
leggja áherslu á þá krofu, að
kaupllðlr samnlnganna verði
settir f glldl og að grelddar
verðl óskertar vfsltölubætur á
laun.
Stærstu fyrirtækin sem urðu
að loka á miðvikudaginn voru,
Gefjun, Hekla, - sútunarverk-
smiðjan, Kjötiðnaðarstöð KEA
og Ofnasmiðjan. Að sögn Jóns
Ingimarssonar, formanns Iðju,
greiða sjö fyrirtæki'„rétt kaup“
og varð því engin röskun á
starfsemi þeirra. Hjá þessum
fyrirtækjum vinna aðeins á milli
25 og 30 manns. Verkfallsverðir
fóru á vinnustaði á miðvikudag,
______(Framhald af bls. 6),
Sauðburður
gengur vel
„Sauðburður er kominn vel á
veg víðast hvar og ég hef ekki
frétt af neinum óhöppum og
ætti sauðburði að verða lokið
um mánaðarmótin", sagði
Ævar Hjartarson ráðanautur
hjá Búnaðarsambandi Eyja-
fjarðar. „Það mun ekki vera
mikið um krankleika í fé bænda
og ef tíð heldur áfram eins og
hefur verið slðustu daga, ætti
sauðburður að geta gengið vel.“
Jörð virðist hafa komið
sæmilega undan snjó, en ennþá
er tæplega hægt að meta það til
fulls. T.d. eru víða mikill snjór
út .neð firðinum. Ævar taldi
litla hættu á kali. Mikil hey eru
til í héraðinu og sagði Ævar að
sumir bændur ættu allt að árs-
birgðir.