Dagur - 23.08.1978, Síða 8
DAGTJR
Akureyri, miðvikudagur 23. ágúst 1978
MADE IN AUSTRIA
Þokuljós - Aííurljós
Bakkljós - Sfefnuljós
GÆÐA VARA \9.
LÁG VERÐ
SVA í undirbúningi
Innan skamms mun strætisvagna-
nefnd Akureyrar taka ákvörðun
um hvemig staðið verður að
breytingum á áætlun Strætisvagna
Akureyrar, en Gunnar Jóhannes-
son, verkfræðingur hjá Akureyr-
arbæ hefur gert athugun á því
hvernig þeim verður best hagað.
Hann hefur m.a. lagt til að fjölgað
verði ferðum SVA út í Glerárþorp.
Athugun hefur verið gerð á því hvt
margir notfæra sér þjónustu SVA
og kom í ljós að meðalfarþega-
fjöldi í ferð er á bilinu 15 til 20.
Flestir koma í vagninn í miðbæn-
um og 50 til 60% farþeganna eru
undir 13 ára aldri.
„Ég hef lagt til að teknar verði
upp ferðir í Hlíðahverfi," sagði
Gunnar Jóhannesson. „Einnig
hef ég í tillögum mínum lagt til að
farnar verði tvær ferðir í innbæ-
inn á hverri klukkustund. Mögu-
legt er að ferðum á brekkuna
verði fjölgað eða áætlun breytt
frá því sem nú er.“
í dag er einn strætisvagn í
notkun, en flest bendir til að þeir
verði að vera tveir í næstu fram-
tíð. Miðað við þær áætlanir sem
Gunnar hefur gert vantar örlítið
upp á að tveir vagnar séu full-
nýttir og verður strætisvagna-
nefnd að taka afstöðu til hvernig
sá tími yrði notaður.
í athugunum sem gerðar hafa
verið erlendis hefur komið í ljós
„Fólk hefur farið nokkuð mikið út-
cftir og ég held að óhætt sé að full-
yrða að flestir hafi fengið eitthvað
af silungi“, sagði Pétur Axelsson,
útibússtjóri á Grenivik, um veiðina í
Gilsá í Hvalvatnsfirði. „Veiðin hef-
ur að vísu ekki verið mikil. en ég tel
að hún sé skárri en undanfarin ár“.
Pétur taldi að hina auknu veiði
bæri einkum að þakka því að í vor
var ótíð og af þeim sökum erfitt
fyrir menn að komast að ánni frá
sjó og stunda ólöglegar veiðar.
Einnig ber þess að geta að fyrir
fimm árum var hafist handa við
ræktun Gilsár og nokkrum þús-
undum seiða hefur verið sleppt í
að biðstöðvar strætisvagna mega
ekki vera lengra en u.þ.b. 300
metra frá væntanlegum farþeg-
um. Eftir því sem fjarlægðin eykst
minnka líkurnar á að fólk notfæri
sér strætisvagnana.
hana. Fyrir enn lengra síðan var
sleppt laxaseiðum í Gilsá og sagðist
Pétur vita til þess, að fimm laxar
hefðu fengist úr ánni. Það eru ein
fimmtán ár síðan Pétur fór að
fylgjast með veiðiskap út í Fjörðum
og getur þetta því tæplega talist há
tala.
Gilsá í Hvalvatnsfirði
Þokkaleg veiði í sumar
Malbikunarframkvæmdir á Dalvík:
Búið að leggja varanlegt
slitlag á 40% gatna
Á miðvikudaginn I síðustu viku var hafist handa við
útlagningu malbiks á Dalvík og erætlunin að leggja á
unt cinn km. Alls eru notuð um 1300 tonn af malbiki
til verksins og er malbikið keypt frá Akureyri, en
starfsmenn Akureyrarbæjar sjá um útlagninguna.
Þegar vcrkinu lýkur verður búið að leggja varanlegt
slitlag á u.þ.b. 40% gatnakerfisins á Dalvík.
Valdimar Bragason, bæjarstjóri á Dalvík, sagði að
malbik yrði lagt á Bjarkarbraut og á hluta eftirfar-
andi gatna: Goðabrautar, Hólavegs, Karls-Rauða—
torgs og Karlsbrautar og Kirkjuvegs. Fjárhagsáætl-
un bæjarins gerði ráð fyrir að verkið myndi kosta
25,3 millj.kr. og er þá meðtalin undirbúningsvinna,
en Valdimar sagði að líklega yrði heildarkostnaður
um 28 millj. kr.
Breytingar á áætlun
o
rr "7F rp r" D íl
(t) li ll\ * > \hm — Jju.
0 Dragnóta-
veiðar á djúp-
sjávarmiðum
Á síðustu árum hafa norskir
fiskimenn tekuð upp, eftir
skoskum starfsbræðrum sín-
um, djúpsjávardragnótaveið-
ar, sem hinir síðartöldu hafa
stundað í Norðursjónum, á
öllu dýpl, allt niður á 200
faðma. Hafa Norðmenn náð
góðum tökum á þessum
veiðfskap, og stunda þær all-
margir bátar af stærðinni um
og innan við 100 fet. Til að
auðvelda þessar veiðar hafa
verið hönnuð sérstök kefli,
sem tógin vefjast upp á, þeg-
ar vóðln er dregin að skipi'nu.
Þessum keflum er stundum
komið fyrir á sitt hvoru báta-
dekkshorninu, frammi við
brú. Oft fæst góður afli af
þorski og ýsu, en djúpsjávar-
dragnótaveiðarnar byggjast á
því að þekkja botninn eins vel
og buxnavasann sinn, því að
botninn þarf að vera sléttur,
og er góð kortlagnlng ein að-
alundirstaða þess, að þessar
veiðar skili tilæfluðum
áfrangri.
# Ný gerð
af slitlagi
á vegum
Þegar blaðamaður var á ferð í
Húnaþingi 8. ágúst, var
Vegagerðin nálægt Blöndu-
ósi að setja slitlag sem jafn-
framt er rykbindandi á nokkra
kílómetra vegarkafla. Vegur-
inn er vel undirbyggður, síð-
an heflaður og valtaður.
Tjörulagi er þá sprautað á
veginn en síðan sett nokk-
urra sentimetra lag ofan á, af
harpaðri möl. Tjaran á að
binda mölina og hæg umferð
að pressa hana mátulega.
Þessi tilraun er gerð á flelri
stöðum á landinu nú í sumar,
en hefur ekki áður verið
reynd hérlendis, svo of
snemmt er að spá um árang-
urinn. Til umræðu hefur
komið, ef þetta þykir gefast
eins og vonir standa til, að
prófa þessa gerð slitlags í
nágrenni Akureyrar næsta
sumar.
% Hvernig vill
fólk búa?
Æði mörgum finnst hið
margumtalaða Breiðholts-
hverfi í Reykjavík vera
ómanneskjulegt og hafa
haldið því fram að í slíkum
hverfum byggju menn af illri
nauðsyn. Breiðhyltingar hafa
haldið fram hinu gagnstæða
og eflaust má finna margt
gott við hverfi þeirra. En áður
en yfirvöld á Akureyri leggja
út í svipað ævintýri (ef þau
hafa yfirleitt hugsað sér það)
er rétt að haia í huga reynslu
borgaryfirvalda í Edfnborg.
Fyrir u.þ.b. tíu árum hugð-
ust þau leysa hluta húsnæð-
isvandans með byggingu há-
hýsa og voru reist 4 til 5 slík.
Eftir nokkur ár tóku íbúarnir
að yfirgefa þessi hús og í dag
standa þau með hlerum fyrir
flesta glugga og um 25% nýt-
ingu - ömurlegir minnis-
varðar ómannlegrar bygg-
ingarstefnu. Og borgaryfir-
völd sneru við blaðinu og í
dag eru ekki reist hærri hús
en 3ja og 4ra hæða fjölbýlis-
hús.
SJÓSTANGVEIÐI-
MÓT UM NÆSTU HELGI
Sjóstangaveiðimót Akureyrar
verður haldið laugardaginn 26.
ágúst n.k.
Mótið verður sett á föstudags-
kvöld og róið á laugardaginn.
Farið verður á sjóinn frá Dalvík
eins og undanfarin ár og veitt í 8
tíma.
Um kvöldið verða mótsslit og
verðlaunaafhending.
Þetta mót er opið öllum sem
áhuga hafa á sjóstangaveiði.
Nú þegar hafa þátttökutilkynn-
ingar borist frá Vestmannaeyjum,
Reykjavík og Akureyri.
Góð handfæraveiði hefur verið á
utanverðum Eyjafirði undanfarið.
DAGUR
kemur næst út
30. ágúst.