Dagur - 13.09.1978, Qupperneq 8
DAGTJR
BiLAVIR - RAFGEYM&KAPLAR
LEIDSLUSKÓR - KAPMSKÓR
Kjöt- og gærumatsmenn
NOKKRIR HAFA HÆTT
STÖRFUM VEGNA
NÝRRAR REGLUGERÐAR
í síðustu viku var haldið á Sval-
barðseyri námskeið fyrir kjöt- og
gærumatsmenn í sláturhúsum. Alls
sóttu námskeiðið um 100 menn af
svæðinu frá Gilsfirði að vestan og
allt austur á Höfn i Homafirði.
Aðalviðfangsefni námskeiðsins var
að kynna nýjar reglur i sambandi
við kjötmat. Ekki vom allir jafn-
hrifnir af nýju reglugerðinni, sem
tók gildi um sl. áramót, og þess em
dæmi að kjötmatsmenn hafi hætt
störfum vegna hennar.
Andrés Jóhannesson, kjötmats-
formaður, sagði í samtali við Dag
að aðalbreytingin væri í því fólgin
að nú kæmu tveir nýir flokkar til
sögunnar í dilkakjötsmatinu. í
fyrsta lagi er það stjörnuflokkur
eða hæsti gæðaflokkur. Kjötið í
þessum flokki er vöðvafyllt, fitulít-
ið og beinasmátt. Kjöt í hinum nýja
flokknum hefði lent í fyrsta flokki
samkvæmt gamla matinu. Feitt
kjöt verður sérstaklega merkt og
heitir sá flokkur D20.
Samkvæmt hinni nýju reglugerð
á að þyngdarmerkja alla gæða-
flokka. Þetta er gert einkum vegna
krafna erlendra kaupenda. Einnig
er hugmyndin að raða kjötinu
þannig í frystigeymslur að það
verði hægara að ganga að hverjum
flokki fyrir sig.
„Það eru fleiri breytingar boð-
aðar í þessari reglugerð,“ sagði
Andrés. „Til dæmis í sambandi við
(Framhald á bls. 6).
Fjölsótt héraðs-
mót framsóknar-
manna í
Skagafirði
Héraðsmót framsóknarmanna í
Skagafirði hefur verið árviss at-
burður um 35 ára skeið og er það
haldið á sumrin. Hinn 2. september
sl. var héraðsmótið haldið í Mið-
garði og sóttu það 650 manns. Þar
fluttu ræður, Páll Pétursson, al-
þingismaður á Höllustöðum og
Haukur Ingibergsson, skólastjóri
Samvinnuskólans að Bifröst og var
mjög góður rómur gerður að þess-
um ræðum báðum. Elín Sigurvins-
dóttir söng við undirleik Agnesar
Löve við mikla hrifningu og Ómar
Ragnarsson skemmti. Að síðustu
var stiginn dans en hljómsveit
Geirmundar lék.
Hestamannafélögin Léttfeti og
Stígandi efndu til hópreiðar laug-
ardaginn 26. ágúst og mættust
hóparnir í félagsheimilinu í Hegra-
nesi, en þar veitti kvenfélagið í
Rípurhreppi rausnarlega. Um 70
manns með á þriðja hundrað hesta
tók þátt í hópreiðinni. Frá félags-
heimilinu hélt hópurinn fram
Hegranesið og yfir Suðurkvísl
Héraðsvatna og fram Borgareyju.
Framarlega á Borgareyju skildu
leiðar og Léttfetamenn héldu til
baka og upp hjá Glaumbæ. Veður
var eins gott og hugsast gat, iogn en
sólarlítið. Reiðfærið á eyjunum var
eins gott og verið getur, enda var
margur gæðingurinn teygður þar.
G.Ó.
Þátttakendur í námskeiðinu virða fyrlr sér kjötskrokkana í sláturhúsl Kaup-
félags Svalbarðseyrar.
TEIKNISTOFA TEKUR
TIL STARFA
Á AKUREYRI
Það er kunnara en frá þurfi að
segja að Norðlendingar hafa
þurft um árabil að sækja ýmis-
konar þjónustu til Reykjavíkur.
En smám saman eru ný fyrirtæki
sett á fót hér fyrir norðan og um
leið minnkar mikilvægi höfuð-
borgarinnar. Nú hefur verið
stofnsett alhliða teiknistofa á
Akureyri sem heitir Teiknistof-
an Lár og er starfsmaður hennar
hinn kunni myndlistarmaður
Ragnar Lár, en framkvæmda-
stjóri er Kristín Pálsdóttir.
Þjónustu hins nýja fyrirtækis
er margvísleg. Sem dæmi má
nefna að stofan tekur að sér
hönnun auglýsinga fyrir fyrir-
tæki, umbúðahönnun, gerð fé-
lagsfána, myndskreytingar jafnt
fyrir einstaklinga sem fyrirtæki
og hönnun eyðublaða.
„Það er hægt að gera t.d.
auglýsingar bæjarblaðanna
mun áhrifameiri með litlum til-
kostnaði," sagði Ragnar Lár.
„Ef verkefnið liggur fyrir gefur
Teiknistofan fast tilboð og við
munum sjá um allt sem að
verkinu lýtur svo sem teikning-
ar, ljósmyndir og úrvinnslu.“
Þess má geta að Ragnar mun
kenna módelteikningar við
Myndlistarskólann í vetur.
ACTP
0 Göngur
Framundan eru göngur og
réttir. Víðast verða gangna-
hestamir að leggja fram sfna
krafta i göngum og er þá vel
ef þeir hafa verið eitthvað
liðkaðir áður, því sumar-
staðnir hestar þola ekki mikla
reið og illa, svo sem oft er
krafist í fjárleitum. Því miður
eru dæmi þess á hverju
hausti, að góðir hestar eru
eyðilagðir í göngum, vegna
þess hve illa þeir eru undir
erfiðið búnir. Skilningur mun
þó vaxandi á þessu og vænt-
anlega er áminningin óþörf
þótt hún skaði ekkí.
$ Útflutningur
á ullarbandi
stöðvaður
Viðskiptaráðuneytið greip
fyrir skömmu til þeirra ráða,
að stöðva útflutning á ull og
ullarbandi, sem ætla má að
færi annars til Austurianda
nær og Suður-Asíu til fram-
leiðslu á eftirlíkingu ís-
lenskra ullarvara. Ekki gildir
þetta þó um handprjónaband
í neytendaumbúðum. Munu
margir fagna þvf að vlð-
skiptaráðuneytið tók þessa
ákvörðun og telja að hún
hefði fyrr mátt fram koma.
# Sumarleyfum
lokið
Að loknum nokkrum sumar-
leyfisvikum kemur blaðið nú
út tvlsvar í vlku, á miðviku-
dögum og föstudögum. Aug-
iýsendur eru enn mlnntir á,
að skila auglýsingum sínum f
tæka tíð og greinarhöfundar
þurfa að skila vélrituðum og
greinilegum handritum. Sér-
stök athygli er hér vakin á
smáauglýsingunum, sem nú
eru seldar vægu verði.
Blaðið hefur nú, með auk-
inni útgáfu, möguleika til að
flytja lesendum sínum mun
melra og fjölbreyttara efni en
áður. Fréttir og greinar um
hina ýmsu viðburði og
áhugamál, er því kærkomið
efni.
Q Óheilindln
valda
vonbrigðum
Síðan hin nýja ríkisstjórn var
mynduð, hafa ýmsir úr
stuðningsflokkum hennar
opinberað óheilindl sfn f
hennar garð. Sem kunnugt
er, tókust samningar um
þessa svonefndu „vinstri
stjórn“ í þriðju tllraun. f tveim
hinum fyrri virtist tortryggnin
og hfn þröngu flokkssjónar-
mið sá þröskuldur, sem ekki
varð komist yfir og varð þetta
alþjóð Ijóst af oplnberum
umræðum f allt sumar og
fréttum af stjórnarmyndunar-
viðræðum frá degi til dags.
En nú, þegar „vlnstri
stjórn1* er loks mynduð
gegnir það furðu að hinir
ýmsu flokksmenn Alþýðu-
flokks og Alþýðubandalags
þykjast vera sáróánægðir og
taka undir hrakspár um
stjórnina, í stað þess að
styðja sína eigin stjóm af
heilum hug til allra góðra
verka. Þessi óheilindi valda
vonbrigðum og mjög að von-
um.
Togari Hríseyinga er bilaður
Snæfell EA, togari Hrís-
eyinga, er bilaður og ekki
útlit fyrir að togarinn
komist á veiðar fyrr en
eftir einar átta vikur.
Skiptingin er biluð,
sveifarás sömuleiðis og
aftasta höfuðlegan er úr-
brædd. Til þess að geta
gert við vélarbilanimar
verður að taka aðalvél
skipsins á land.
ÁGÆTUR AFLIÁ ÞÓRSHÖFN
Gunnarsstöðum á Þistilfirði 6.
september. Hér hefur ekki komið
frostnótt ennþá, en þurrklaust var í
þrjár vikur og ofurlítið af heyi er
enn úti, sem sumpart eru útsköfur
og ennfremur heyskapur á eyði-
jörðum. Einhverjir náðu þó heyi í
gær og nagaði einn sig í handar-
bökin fyrir það að hafa treyst
þurrkspá Veðurstofunnar, sem aft-
ur varð til þess að hann átti eftir að
hirða dreifar þegar aftur tók að
rigna. Hann sagðist varla geta látið
nokkum mann sjá sig eftir að hafa
trúað á veðurspána í biindni.
Hey eru tæplega meiri en í með-
allagi en vel verkuð. Hausthugur er
kominn í menn. í dag fer fram
sláturniðurröðun og á morgun
verður jafnað niður i göngur.
Fyrstu réttir verða sennilega 16.
september.
Haustblær er lítill í náttúrunni,
grasið er grænt og aðeins efsti
broddurinn á fjöðrinni í mýrinni er
byrjaður að fá á sig brúnan lit, enda
kom allur gróður seint i vor og
endist því betur. Við eigum von á
sæmilega vænu fé.
Á Þórshöfn er mikil atvinna og
afli heimabáta er svo mikill, að
togarinn Fontur hefur verið látinn
fara þrjár söluferðir á erlendan
markað.
Langnesingar voru að endur-
byggja sína aðalrétt um daginn á
Hallgilsstöðum. í hana er rekið
safnið af Tunguselsheiði, sem er 18
manna smölun. Ó.H.
Hðfnln á Þórshðfn.
Mynd: á.þ.