Dagur - 08.10.1978, Page 4
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur Tryggvabraut 12. Akureyri
Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207
Simi auglýsinga og afgreiöslu 24167
Ritstjóri (ábm.): ERLINGUR DAVIÐSSON
Blaðamaóur ÁSKELL ÞÓRISSON
Augl og afgr JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun Prentverk Odds Björnssonar hf
GÓÐIR FUGLAR
OG VONDIR
Fuglavinir hafa áhyggjur af því að
ýmsum fuglategundum fækkar mjög
hin síðari ár, svo sem rjúpum og ýms-
um farfuglum og þykir skarð fyrir
skildi, en öðrum fuglum fjölgar að
sama skapi, svo sem máfum og
hröfnum. Hér er ekki ætlunin að
flokka fugla þá, sem í þessu landi lifa,
í góða fugla og vonda. En greinilegt
er, að svo kölluðum vargfugli hefur
fjölgað ótrúlega og víst er, að hann
etur egg og unga allra annarra fugla-
tegunda, sem hann nær til. Mjög er
því á lofti haldið, að ekki megi raska
jafnvæginu í náttúrunni og samkvæmt
því ætti e.t.v. að láta þetta afskipta-
laust. En þessu er þó á annan veg
farið, því að fjölgun vargfuglanna,
máfa og hrafna, er að verulegu leyti af
mannavöldum. Sorphaugar, fisk-
vinnslustöðvar og sláturhús eru
forðabúr og fæðuöflunarstaðir þess-
ara fugla og eiga öðru fremur þátt í
mjög vaxandi stofnum þeirra. Hér
hefur maðurinn raskað jafnvæginu og
mál til þess komið, að hann snúi
dæminu við, og leiðrétti mistökin.
VeiðibjöIIur, ásamt krumma og
mink, eru ræningjar í varplöndum um
land allt, og eru æðarvörpin þá ekki
undan skilin. Á meðan erlendir menn
vilja borga æöardún hærra verði en
nokkra aðra íslenska vöru, eða 80
þúsund krónur fyrir kilóið eða meira,
virðist einkennilegt að halda hlífi-
skildi yfir vargfugli og jafnvel ala
hann sem ákafast. Og á meðan eig-
endur laxveiðiáa og veiðimenn verja
árlega stórum peningafúlgum til að
auka laxgengd með seiðasieppingum í
ár sýnist undarlegt að ala vargfugla,
sem tína upp seiðin, svo að segja
jafnóðum.
Hrafnarnir, sem aldrei hafa orðið
nálægt því eins margir og nú, eru
orðnar aðsópsmiklar skepnur. Fólk
hefur horft á þá ráðast í hópum að
liggjandi kindum í haga, í von um að
þær verði afvelta þegar svo harkalega
er að farið. Og þegar árásin hepnast
hefst máltíðin, á meðan bráðin er í
fullu fjöri. Lömb drepa þeir í vaxandi
mæli og nokkur eru þess dæmi, að þeir
hafi ráðist á nýfædd folöld og drepið
þau. Þetta eru langt frá því að vera
heiðarlegir bæjarhrafnar, sem þeir
fyrrum voru.
Fimm eða sex trúnaðarmenn veiði-
stjóra mega nota þau lyf, sem talin
eru hentugust til að útrýma vargfugli.
Hvernig sem á því stendur eru þessi
lyf litið notuð og lifum við þó á mesta
lyfjanotkunartíma sem um getur. Til-
raunir með þessi vargfuglalyf hafa
tekist vel á Norðurlandi í sumar. Með
skotum og lyfjum má halda vargfugl-
inum niðri og auk þess eiga sveitarfé-
lög að sjá sóma sinn í því að láta
gjörnýta matvæli eða eyða þeim ella.
„Mikilsverðara erað
sigrast á sjálfum sér en
sigrastá heiminum“
Skólasetningarræða Tryggva Gíslasonar, skólameistara
við Menntaskólann á Akureyri, 1. október sl. var um
margt athyglisverð og hefur blaðið fengið góðfúslegt
leyfi til að birta hluta hennar, sem hér fer á eftir:
Kennarar, nemendur, gestir.
Ég vil bjóða ykkur velkomin til
þessarar skólasetningar. Nítug-
asta og níunda starfsár Mennta-
skólans á Akureyri er að hefjast.
Nú skal ekki horft um öxl heldur
fram á veginn, þótt tilefni gæfist
til að hverfa á vit hins liðna.
Á þingi í vetur verða samþykkt
ný lög um samræmdan mennta-
skóla, ef að líkum lætur.
Þau lög verða án efa í samræmi
við Frumvarp til laga um fram-
haldsskóla, sem lagt hefur verið
fyrir tvö undanfarin þing. Breyt-
ingar verða sennilega einungis á
þeim kafla laganna, sem varðar
fjármál og kostnaðarskiptingu við
skólahald. Meginþættir ákvæða
um gildissvið, markmið, náms-
skipan og stjóm framhaldsskól-
ans verða samþykktir lítt breyttir,
að því er telja má.
Breytingar á námsskipan
Menntaskólans á Akureyri verða
ekki miklar og naumast aðrar en
þær, er varða aukna samræmingu
og aukið samstarf skóla á fram-
haldsskólastigi. Menntaskólinn á
Akureyri verður einnig væntan-
lega rekinn áfram sem sjálfstæð
stofnun þar sem nemendur
stunda einkum bóklegt nám til
undirbúnings náms á háskóla-
stigi. Við hlið Menntaskólans á
Akureyri er sennilegt að rísi á
Akureyri framhaldsskólar sem
brautskrá nemendur, sem þá öðl-
ast rétt til náms á ákveðnum
sviðum í háskóla. Gagnfræða-
skólinn á Akureyri brautskráir að
öllu óbreyttu nemendur af versl-
unarbraut vorið 1980 sem hugs-
anlega öðlast rett til náms í
ákveðnum deildum háskóla.
Verkmenntaskóli á Akureyri, eða
iðnskóli, fær einnig rétt til að
undirbúa nemendur undir nám á
háskólastigi. Ein meginhugmynd
frumvarpsins er að gefa öllum
nemendum, sem ljúka námi i
grunnskóla, tækifæri til frekara
náms. Hin meginhugmyndin er
að skipuleggja framhaldsskólann
sem eina samræmda heild. Nám-
ið á að skipuleggja i námsáföng-
um og hver námsáfangi er metinn
til eininga. Höfundar frumvarps-
ins telja það eðlilegt að tekið
verði upp áfangakerfi þar sem
þess er kostur. Segja þeir að með
því verði markmiðum námsins
náð. Ég vil taka það fram að í
þessu felst hvorki, að hver fram-
haldsskóli verði gerður að fjöl-
brautaskóla né heldur að kröfur
um þekkingu og færni verða
minnkaðar.
Mikið er rætt um að efla verk-
menntun á Islandi, og ber til þess
brýna nauðsyn, því menntun, sem
bundin er atvinnulífi og starfs-
þjálfun, hefur í mörgu verið mjög
ábóta vant og í sumu verið til
vansa. Misskilningur er hins veg-
ar, að því er ég tel, ef menn ætla
að auka verkmenntun og afla
henni aukinnar virðingar með því
að auka kennslu í bókiegum
greinum einum saman. Með því
er verið að vanmeta gildi verk-
menntunar og gera hana sem lík-
asta bóklegri menntun. Fer þá
líkt um þessar endurbætur og
verknámsdeildirnar forðum daga
og framhaldsdeildir gagnfræða-
stigsins, sem urðu aðeins skugga-
mynd af námi í menntaskóla.
Verkmenntun hefur sjálfstætt
gildi, starfsþjálfun er nauðsynleg
og verkleg menntun á skilið fulla
virðingu sem verkmenning en
ekki sem bókmenning, enda þótt
ákveðnir þættir verklegrar
menntunar hljóti að tengjast
bóknámi.
Afleiðing af endurskipun verk-
menntunar má þá ekki verða sú
að verkmenntun verði gerð að
bóknámi og heldur ekki má rýra
kosti bóklegs náms í samræmdum
framhaldsskóla.
Tvímælalaust má telja að of
margir nemendur hafi farið til
náms í menntaskólum undanfar-
in ár. Sóknin í menntaskólana
hefur hins vegar stafað af því að
ekki hefur verið kostur á skipu-
legu og traustu námi á öðrum
sviðum. Með námi sínu í
menntaskóla hafa nemendur öðl-
ast dýrmæta þekkingu, ef þeir
hafa viljað, og þeir hafa opnað sér
leiðir til hvers konar framhalds-
náms og náms í háskóla. Mennt-
un sú, sem menntaskólar landsins
hafa boðið nemendum, er besta
menntun sem kostur hefur verið á
hér á landi á þessu stigi. Mennta-
skólinn á Akureyri verður áfram
að vera góður skóli nemendum
sínum. Bókleg menntun og lær-
dómsögun haldi áfram fullu gildi
sínu, ekki aðeins í náinni framtíð
heldur meðan talað mál verður í
heiðri haft.
Hlutverk Menntaskólans á
Akureyri verður því áfram mik-
ilsvert og auk þess kann að vera
að skólinn verði að rétta hjálpar-
hönd við eflingu verklegrar
menntunar. Hér er því nóg að
starfa.
Nýnemar í skólanum eru á
þessu hausti 210 auk 30 nýnema í
öldungadeild, og hafa nýnemar
aldrei orðið fleiri. í neðsta bekk,
þriðja bekk, eru skráðir 175 nem-
endur og er þetta fjölmennasti
þriðji bekkur í sögu skólans.
Ég vil bjóða nemendur vel-
komna og þá sérstaklega nýnema.
Þetta eru tímamót, ein af mörgum
í lífi ykkar, þar sem þið eruð að
velja og hafna. Nú hafið þið valið
að stunda bóklegt nám í mennta-
skóla til undirbúnings frekara
námi. Námið er margþætt, fjöl-
breytt og erfitt, en það er
skemmtilegt, það gerir miklar
kröfur og veitir mikla nautn, ef
áhugi er fyrjr hendi og ástundun
er höfð. En ef áhugi ykkar er lítill,
þá skuluð þið bæta hann með
ástundun, því með ástundun
kemur áhugi, á sama hátt og
áhugi dofnar ef ástundun þverr.
Ekki vil ég spá neinum hrak-
spám. Hins vegar vil ég biðja
nemendur að festa sér það í minni
að menn uppskera eins og þeir sá.
Hingað sækja margir. Ekki fara
allir hingað neina frægðarför og
ekki hafa allir erindi sem erfiði.
En þeir sem hingað koma til að
vinna fá umbun verka sinna. Allir
skulu fá jöfn tækifæri og réttlæti
skal ríkja.“
Næst ræddi skólameistari um
heimavistina, endurbætur, sem
þar hafa verið gerðar og um regl-
ur þær,sem þar gilda. 1 sambandi
við reykingar sagði hann m.a.:
„Þeirri skoðun vex nú mjög
fylgi að uppfræða fólk um skað-
semi tóbaks. 1 Svíþjóð er bannað
að reykja á opinberum skrifstof-
um, í biðstofum og í skólum,
nema þar sem eru sérstök reyk-
herbergi. Að þessu kemur einnig
hér á íslandi. Ég vil minna á að í
skólahúsum Menntaskólans á
Akureyri er bannað að reykja
annars staðar en í kjallara
Möðruvalla og á kennarastofu.
Bannað er að reykja í anddyrum
skólahúsanna, svo og við dyr
skólans, hvort heldur er á
Möðruvöllum eða við gamla
skólann .. “
„Eignir skólans, hús, tæki og
lóð eru metin á nær einn miljarð
króna. Til viðhalds á fjárlögum
1978 voru veittar átta og hálf
miljón króna eða 0.85% af mati.
Lítið þætti það á sumum stöðum.
Vandi er að halda í horfinu,
þegar þannig árar. En fólk flest
vill frekar kaupa glerkýr og pját-
ursdollur og fara til sólarlanda en
reisa þörf hús og reka myndar-
lega skóla. Og ef enn á að ganga á
sameiginlegan sjóð landsmanna
með því að lækka skatta verður
ógerlegt að stuðla að jöfnuði í
þjóðfélagi eða reka skólá á þann
hátt sem lengi hefur verið talið
sæmandi. Margir kunna að búa
við erfið kjör í þessu landi, en
flest fólk lifir í allsnægtum og
munaði og sumt í skjóli ranglætis,
sem lengi hefur viðgengist, en
hefur nú senn kennt þorra manna
að meta allt til peninga.
Það er illt að selja sálarró sína,
frið og hamingju fyrir strit og
peninga, sem er eftirsókn eftir
vindi og aumasti hégómi. En allir
skulu hafa nóg og enginn má líða
skort, en óhóf og munaður, sem
nú eru stunduð, færa mér heim
sanninn um það, að í velferðar-
ríkinu, sem svo er nefnt, er eyðsla
æðsta takmarkið. Þegar við bætist
óðaverðbólga er erfitt að sanna
gildi menntunar, lærdóm sög-
unnar og víðsýni fyrir ungu fólki.
Þó vil ég gera það enn ogaftur að
brýna fyrir nemendum Mennta-
skólans á Akureyri vinnusemi og
reglusemi. Þið þurfið, nemendur-
góðir, ekki að selja æsku ykkar og
frelsi fyrir vinnusemi. Þvert á
móti öðlist þið styrk til að njóta
æsku ykkar og frelsis ef þið aflið
ykkur menntunar, bæði þekking-
ar, ögunar og víðsýni. Með því
öðlist þið stjórn á Sjálfum ykkur
en verðið ekki þrælar sjálfra ykk-
ar og á valdi duttlunga umhverf-
isins. Mikilsverðara er að sigrast á
sjálfum sér en sigrast á heimin-
um.“
Skólasetningarræða
Tryggva Gíslasonar
skólameistara M.A.
4.DAGUR
Spakur, sem hlaut fyrstu helðursverðlaun á héraðssýnlngunnl. Sjá úrslitln
í síðasta blaðl.
Á þessari mynd eru, talið trá vinstrl: Broddl frá syðri-Haga og hjá honum
Ólafur G. Vagnsson, Spakur á Staðarbakka, sem Guðmundur Skúlason
heldur í og Börkur frá Ytri-Bægisá, sem Stefán Árnason heldur í.
Sauðfé fækkar
hér á landi
Dagur ræðir við Árna G. Pétursson
og Ólaf G. Vagnsson
Sauðkindin hélt öðrum fremur lífinu í íslensku þjóðinni frá fyrstu
tíð og enn er hún virt og jafnvel dáð í bænda stétt. Jafvel náttúru-
unnendum og fagurkerum þykir mikið skorta á fegurð fjalla og
heiða ef þar sjást ekki lagðprúðar hjarðir á beit.
Sauðfjárbændur hafa mjög lagt sig eftir því á síðari tímum, að
kynbæta fé sitt, jafnframt því að fóðra það til hámarksafurða og
fæst nú mikið meira kjöt eftir hverja vetrarfóðraða á en áður var.
Um tvær milljónir fjár voru á fjalli í sumar og hefur aldrei verið eins
margt og meira en milljón fjár verður lógað á þessu hausti.
Búnaðarfélag íslands lætur fram fara hrútasýningar um land allt
á fjögurra ára fresti og að þessu sinni eru sýningarnar haldnar á
svæðinu frá Eyjafirði til Húnaþings, ásamt Mýra- og Borgarfjarð-
arsýslu. Sýningunum lauk með héraðssýningu á Möðruvöllum í
Hörgárdal á sunnudaginn, þar sem yfir 40 bestu hrútarnir voru
sýndir og dómar um þá gerðir heyrumkunnir. v,
Lítið hugsað um ullargæð-
in?
Lítil framför hefur orðið í ullar-
framleiðslunni. Við höfum að vísu
lengi predikað bændum að auka
ullargæðin eftir föngum, en það er
fyrst nú, að svörun fæst í mismun-
andi ullarverði. Það er farið að
borga góðu ullina hærra verði en
þá lélegu og þetta mun leiða til
mikilla breytinga á skömmum
tíma.
Þeir bændur, sem kynbætt hafa
fé sitt með tilliti til ullargæða und-
anfarin ár, eru nú betur á vegi
staddir en hinir. En aðgætnadi er,
að það var mun lakari ull á Vest-
fjarðafénu, sem hingað var flutt í
fjárskiptunum, en á því fé sem fyrir
var. En eflaust hefur ullin batnað.
Kollótta féð að vestan er á undan-
haldi síðustu árin, þótt allmargir
bændur hafi þó reynt að hrein-
rækta kollóttar hjarðir og með all-
góðum árangri, en það fé hefur þótt
grófullað.
' (Framhald á bls. 7).
Blaðið ræddi litla stund við Arna
G. Pétursson, sauðfjárræktarráða-
naut og Ólaf G. Vagnsson, héraðs-
ráðunaut og spurði þá um nokkra
þætti sauðfjárbúskapar. Efntslega
voru svör þeirra eftirfarandi:
Hverjir dæma kynbóta-
hrútana á Norðurlands-
svæðinu?
Ámi G. Pétursson, frá Búnaðarfél-
agi íslands, Einar Gíslason, hér-
aðsráðunautur í Skagafirði og
Leifur Þór Jóhannesson, héraðs-
ráðunautur á Snæfellsnesi. Fram
fara bæði hrútasýningar og af-
kvæmasýningar á mörgum stöðum
á svæðinu.
Ég var hér á öllum hrútasýningum
1966 og á nokkrum 1970, sagði
Árni, og mér sýnast gæði hrúta
þeirra, sem völdust á héraðssýn-
inguna núna, mun meiri en 1966.
Ráðunautunum kom saman um, að
kröfurnar væru mun meiri ,nú en
fyrr og nú er vaiið enn skarpara
vegna nýs kjötmats.
Kæruleikurinn
FIRMAKEPPNIN
I KNATTSPYRNU
Nú dregur að lokum firma-
keppninnar í knattspyrnu.
Upphaflega tóku þátt í mót-
inu 12 lið frá hinum ýmsu
fyrirtækjum í bænum. Leikið
var með útsláttarfyrirkomu-
lagi, þannig að það lið sem
tapar tveimur leikjum fellur
úr keppni. Á þriðjudaginn
voru aðeins tvö lið eftir,
Sameiginlegt lið byggingar-
meistara frá Þin og Pan sem
engum leik hafði tapað, og A
lið KEA sem tapað hafði
einum leik. Lið þessi léku
síðan úrslitaleik.
Leikar fóru svo að KEA
bar sigur út býtum í þessum
leik, skoraði eitt mark gegn
engu. Það var markaskorar-
inn mikli úr Þór, Jón Lárus-
son, sem gerði markið. Síðari
úrslitaleikur þessára aðila
verður síðan i kvöld
fimmtudag, ef veður leyfir
en annars á laugardaginn kl.
15.00. Þess var getið um
daginn að Skipasmíðastöð
KEA hefði gefið verðlaun í
fimrakeppninni, sem eru
veglegt stýrishjól, en það
mun ekki vera rétt, heldur
var það Slippstöðin í tíð
Skapta Áskelssonar sem gaf
gripinn, en Skapti var einn af
hvatamönnum firmakeppn-
innar.
Þessi föngulegi hópur íþróttafólks, er vann mörg góð afrek og m.a. vann sér rétt
frjálsíþróttalið KA, sem á þessu sumri til þátttöku í annarri deiid frjálsra íþrótta.
• Handknattleikslið Þórs stend-
ur í ströngu þessa dagana. Fyrir-
hugaður er kæruleikurinn svo-
kallaði milli Þórs og Breiðabliks,
en lið þessi þurftu að leika tvo
leiki um sæti í annarri deild á
keppnistímabilinu. Þórsarar
unnu fyrri leikinn með einu
marki og var sá fyrir sunnan. Sá
síðari, eða leikurinn sem styrinn
stendur um var svo hér á Akur-
eyri í vor og unnu Þórsarar þann
leik auðveldlega.
• Áður en hann hófst kom upp
alþekkt vandræði sem hand-
boltamenn hafa oft rekið sig á
þ.e.a.s. aðeins annar dómarinn
mætti til leiks. Af þessum sökum
drógst nokkuð að leikurinn gæti
HVETJUM
ÞÓRSARA
TIL SIGURS
hafist, en dómari sem að vísu
hafði ekki tilskilinn réttindi til að
dæma slíkan leik hljóp í skarðið
og dæmdi leikinn, og auðvitað
samþykktu báðir aðilar þennan
mann til starfans.
0 Eftir að Breiðablíksmenn
höfðu tapað leiknum sáu þeir sér
leik á borði og kærðu leikinn en
til þess að það væri framkvæm-
anlegt urðu þeir að sjálfsögðu að
gefa dómnum rangar upplýsing-
ar. Þeir urðu að segjast ekkert
hafa vitað um hinn réttindalausa
dómara fyrr en að leik loknumi
• Nokkrum mánuðum síðar
frétta Þórsarar að leikur þessi hafi
verið kærður og kæran tekin fyrir
hjá dómstól HSÍ, og dómurinn
fallið á þann veg að leikurinn
skildi endurtakast á þeim for-
sendum að annar dómarinn hafi
ekki haft réttindi til að dæma
slíkan leik. Þegar þetta gerist eru
Þórsarar búnir að ráða sér þjálf-
ara fyrir lið sitt í annarri deild, en
ekki til liðs sem væri í fallhættu.
• Einhvers staðar segir, að ekki
þýði að deila við dómarann, og
þess vegna verði Þórsarar að
sætta sig við þau vitlausu málalok
að leika þennan leik aftur.
Ákveðið er að leikurinn fari fram
þann 14. október í íþrótta-
skemmunni.
• Þórsurum nægir jafntefli í
leiknum til að halda sér í deild-
inni en Breiðablik vinnur sér rétt
til setu í annarri deild ef þeir
vinna Þór með tveimur mörkum,
og þá verða Þórsarar að leika í
þriðju deild á þessum vetri.
Áhorfendur ættu því að fjöl-
menna í skemmuna og hvetja
Þórsara til stórsigurs í leiknum
því annað er ekki sæmandi eftir
það sem undan er gengið. Látum
því: Áfram Þór bergmála í
skemmunni þann fjórtánda.
Árshátíð Knatt-
spyrnud. KA
Laugardaginn 14. október
n.k. heldur Knattspyrnu-
deild KA árshátíð sína.
Hefst hún kl. 19.30 í Sjálf-
stæðishúsinu.
Þar verður sameiginlegt
borðhald og skemmtiatriði.
Allir velunnarar deildar-
innar eru velkomnir og að
sjálfsögðu mæta knatt-
spyrnumenn elstu flokk-
anna. Verð miða er kr.
4000.00 og er matur þá
innifalinn. Að borðhaldi
loknu verður stíginn dans
og þá verður einnig selt inn
þeim er ekki vilja matinn
aðeins dansinn. Matarmið-
ar verða seldir í Sporthús-
inu í næstu viku.
DAGUR.5