Dagur - 01.02.1979, Síða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGUR
LXII. árg.
Akureyri, fimmtudagur 1. febrúar 1979
6. tölublað
Sjósett í dag
var
Á laugardaginn
áformað að sjósetja nýj-
an togara hjá Slippstöð-
inni á Akureyri, sem
smíðaður hefur verið
fyrir Magnús Gamalí-
elsson útgerðarmann í
Ólafsfirði. Ekki viðraði
til sjósetningar vegna
norðan-hvassviðris, sem
staðið hefur nær sleitu-
laust síðan. Sjósetning á
að fara fram síðdegis í
dag, fimmtudag, og bíða
fregnir af því næsta
blaðs.
9|
IS||
|jgj
I
Aðalfundur
Þingeyingafé-
lagsins
Um síðustu helgi átti að
halda aðalfund Þingey-
ingafélagsins á Akur-
eyri, en vegna ónógrar
þátttöku varð að fresta
fundi. Nú á að gera aðra
tilraun n.k. sunnudag
kl. 14 á Hótel K.E.A.
Stjórn félagsins væntir
þess að félagsmenn taki
við sér og mæti allir sem
einn á fundinn. Nýir fé-
lagsmenn eru velkomn-
ir. Sjá auglýsingu í blað-
inu í dag.
«i
■
Veit einhver
um hjólið?
Aðfaranótt föstudagsins
19. janúar var stolið léttu
vélhjóli frá Aðalstræti
40. Númerið á hjólinu er
A-21. Hjólið er af gerð-
inni Honda ss 50 árgerð
1975 gult að lit. Hafi
einhverjir orðið varið
við hjólið eru þeir beðnir
um að láta lögregluna
vita.
Pílagrímsferð
Séra Frank M. Hall-
dórsson, sem kunnugur
er í Biblíulöndum, und-
irbýr nú einskonar píla-
grímsferð eða hópferð til
Jerúsalem, Galíleu og
fleiri þekktra staða í
ísrael um hvítasunnu.
Hér á Akureyri annast
séra Pétur Sigurgeirsson
og frú Sólveig Ásgeirs-
dóttir kona hans bókanir
og veita upplýsingar um
þessa ferð.
Erfiðleikar skipaiðnaðarins:
Hafa beðið í
15 mánuði eftir
nviu verkefni!
Það hefur ekki dulist neinum að innlendur skipaiðnaður á við mikla
erfiðleika að etja og ekki síst þær stöðvar sem eingöngu helga sig
nýsmíði smærri dekkbáta. Að sögn Hallgríms Skaptasonar, fram-
kvæmdastjóra Skipasmíðastöðvarinnar Varar h/f á Akureyri, hefur
aðeins ein stöð af tíu, sem til eru í landinu og smíðar litla dekkbáta,
verkefni um þessar mundir. Starfsmenn hinna stöðvanna hafa orðið
að taka að sér verkefni allsendis óskyldum skipasmíðum. Þess má
geta að nú eru liðnir fimmtán mánuðir síðan Vör h/f afhenti síðasta
bátinn, en það var Flosi IS sem fór til Bolungarvíkur.
Aðveiíustöðin á Kópaskeri. Ljósm.: G. ö. B.
Af norðlenskum
raforkumálum
Ákvörðunar er að vænta á næst-
unni um lánamál skipasmíðaiðn-
Ólafsfjör^r:
Skíðamenn til
Finnlands
og Svíþjóðar
„Að vísu höfum við nægan snjó,
en ég vona að þessar utanfarir
verði til þess að hvetja aðra til
að stunda skíðaíþróttina,“ sagði
Bjöm Þór Ólafsson, íþrótta-
kennari á Ólafsfirði, um fyrir-
hugaðar utanferðir skíðamanna
þaðan. Fjórir landsliðsmenn
fara til Sviðþjóðar þann 6.
febrúar og skömmu síðar fara
fimm unglingar á aldrinum 13 til
16 ára til vinabæjar Ólafsfjarðar
í Finnlandi og dvelja þar í tíu
daga við æfingar og keppni.
Haukur Sigurðsson, sem var val-
inn í A-landsliðið, fer til Svíþjóðar
á vegum Skíðasambands íslands,
en B-landsliðsmennirnir Jón Kon-
ráðsson, Guðmundur Garðarsson
og Gottlieb Konráðsson fara á
vegum Skíðadeildar Leifturs. Þeir
dvelja í Svíþjóð í 20 daga við æf-
ingar og keppni undir leiðsögn hins
góðkunna þjálfara, Kurt Ekros.
Björn Þór verður fararstjóri ung-
linganna sem fara til Finnlands,
nánar tiltekið til Lovisa, vinabæjar
Ólafsfjarðar. Unglingarnir fara á
eigin vegum, en uppihald greiðir
vinabærinn og Skíðadeild Leifturs
mun greiða helming fargjaldsins.
Það eru þeir Hannes Garðarsson,
Ágúst Grétarsson, Þorvaldur Jóns-
son, Finnur Víðir Gunnarsson og
Sigurður Sigurgeirsson sem fara til
Lovisa þann 16. febrúar.
Framkvæmdir við Heilsugæslu-
stöðina á Dalvík hafa dregist mjög
á langinn, en heimamenn byrjuðu
lítillega á byggingunni haustið
1975. Árið eftir var húsið gert fok-
aðarins, sem Seðlabankinn hefur
haft til umfjöllunar að undanförnu.
Er málið nú til afgreiðslu hjá ríkis-
stjórninni og verður afgreitt sam-
hliða lánsfjáráætluninni. Hér er
ekki rúm til að rekja efni tillagn-
anna að öðru leyti en því, að gert er
ráð fyrir að skipasmíðastöðvum
verði heimilað að taka jafn hátt lán
erlendis og Fiskveiðisjóður lánar
nú, eða 75% af kostnaðarverði
skipa.
Hallgrímur sagði að þær tillögur
sem komið hefðu fram væru ein-
göngu miðaðar við stóru skipa-
smíðastöðvarnar „enda eru litlu
stöðvarnar ekki eins mikilvægar í
atvinnulegu tilliti", sagði Hall-
grímur, „Á sama tíma og tekju-
möguleikar stöðvanna minnka
seilist ríkisvaldið í þessar óarðbæru
fjárfestingar sem stöðvarnar hafa
lagt í og skattleggur þær“.
Frá þeim tíma að Flosi IS var
afhentur hefur Vör h/f eingöngu
sinnt viðgerðarverkefnum og húsa-
smíði, en tæki stöðvarinnar eru á
engan hátt miðuð við þau verkefni.
„Ég á ekki von á að við fáum
samning um nýjan bát á meðan
ekki verða gerðar róttækar ráðstaf-
anir til styrktar iðnaðinum", sagði
Hallgrímur að lokum.
helt og gengið frá því að utan sum-
arið 1977 og ioft hússins var ein-
angrað. Seint á siðasta ári voru
veggir þess einangraðir. Allt frá því
að húsið varð fokhelt áttu heima-
Einu sinni bjuggu sælir Norð-
lendingar við ódýrt rafmagn frá
Laxárvirkjun. Aukin raforku-
þörf leiddi til umræðna um
framhald virkjunar við Laxá eða
að fá „hund að sunnan.“ Þess
þess yrði boðinn út, en það er ekki
fyrr en nú sem það gerist.
Það liggur ekki ljóst fyrir hver
kostnaðurinn við lokafrágang
verður þegar upp er staðið, en
samkvæmt lauslegum útreikning-
um nemur hann rúmum 200 millj.
króna. Skúli sagði það liklegt að
húsið yrði boðið út í einu lagi og í
endurskoðaðri útboðslýsingu er
tekið mið af heilsugæslustöðinni á
Höfn í Hornafirði, sem er sams-
konar og á Dalvík.
var freistað að mæta orkuþörf-
inni með nýrri og hagkvæmri
áfangavirkjun á Laxá, en af því
spruttu deilur en ekki raforka.
Þá var ráðist í Kröfluvirkjun til
að leysa bráðan vanda, en óróleiki í
jörðu á þeim byggingarstað hefur
til þessa komið í veg fyrir verulega
orkuframleiðslu, sem nú er þó haf-
in.
En jafnfram framkvæmdum við
Kröflu var unnið að lagningu
Byggðalínunnar, sem á að tengja
saman öll orkuver landsins. Þessi
lína, sem fyrrum var án virðingar
nefnd „hundurinn að sunnan“ varð
staðreynd og hún er nú bjargvættur
manna á Norðurlandi og Austur-
landi í orkulegu tilliti.
Á mánudaginn í þessari viku
fengum við á orkuveitusvæði Lax-
ár, 18 megavött eða jafn mikið og
Laxárvirkjun framleiðir og 12
megavött fóru til Austurlands og
má segja, að nýja raflínan frá
Kröflu og austur í Skriðdal komi að
góðu gagni, sagði IngólfurÁrnason
rafveitustjóri.
Á Brennimel syðra koma 50
megavött inn á Norðurlínuna, en
frá Vatnshömrum fær Vesturland
sína raforku og í Húnavatnssýslu er
önnur dreifistöð við Laxárvatn og
liggja þaðan dreifilínur um Húna-
þing.
Án efa væri hér hörmungar-
ástand í raforkumálum, ef Byggða-
línan væri ekki til. Og kærkomin er
framleiðsla Kröfluvirkjunar, því
nú þegar eru uppi áhyggjur sunn-
anmanna um raforkuþurrð, ef eitt-
hvað ber út af í vatnsrennsli eða
öðrum þáttum, sem truflað geta
framleiðslu raforkunnar.
Röntgentæknar FSA
hafa sagt upp störfum
Um ármótin sendu röntgentæknar
við Fjórðungssjúkrahúsið á Ak-
ureyri sjúkrahússtjórninni upp-
sagnarbréf, þar sem beiðni þeirra
um hækkun um þrjá launaflokka
hafði ekki verið svarað. Beiðnina
sendu röntgentæknarnir til
Kjaranefndar Akureyrar í nóvem-
ber. Nefndin telur sig hins vegar
ekki umkomna að fjalla um beiðni
röntgentæknanna þar sem ríkið ei
85% rekstraraðili að sjúkrahúsinti
og því sé rétt að bíða þess að
samið verði við röntgentækna I
Reykjavik, en þar hefur svipuð
deila risið upp.
Að sögn Jónínu Þorsteinsdótt-
ur röntgentæknis, starfa fjórii
röntgentæknar við FSA og tekui
(Framhald á bls. 3).
Lokafrágangur við heilsugæslu-
stöðina boðinn út Gæti verið tilbúin á næsta ári
„Hugmyndin er að bjóða heilsugæslustöðina á Dalvík út innan
tíðar, en hvenær það verður nákvæmlega get ég ekki sagt, því eftir er
að ganga frá gögnum vegna útboðsins“, sagði Skúli Guðmundsson,
forstöðumaður framkvæmdadeildar Innkaupastofnunar ríkisins.
„Það er hins vegar Ijóst að framkvæmdum við heilsugæslustöðina
lýkur ekki á þessu ári og hvort komi fjárveitingar á næsta ári, sem
nægja til að Ijúka við húsið, get ég ekki svarað“.
menn von á því að lokafrágangur