Dagur - 01.02.1979, Blaðsíða 5
Karlakór Akureyrar
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAG“S
Skrifstofur Tryggvabraut 12, Akureyri
Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207
Sími auglýsinga og afgreiðslu: 24167
Ritstjóri (ábm.) ERLINGUR DAVÍÐSSON
Blaöamaöur: ÁSKELL ÞÓRISSON
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf.
Margt til
betri vegar
Við höfum nú lifað kaldasta
janúarmánuð aldarinnar, þegar
undan er skilinn sami mánuður
1918. Vetrarkuldinn var íslend-
ingum löngum erfiður vegna lé-
legra húsa og lítillar upphitunar.
Nú hefur jarðhjitinn leyst upphit-
unarvanda íbúðarhúsa að tveim
þriðju hlutum, miðað við landið
allt og má segja, að á þessu sviði
hafi nánast gerst kraftaverk í nýt-
ingu innlends orkugjafa.
Hér á Akureyri, þar sem hita-
veita er komin í verulegan hluta
kaupstaðarins, má fagna merkum
tímamótum, ekki síst vegna þess,
að bærinn var fram til síðustu ára
talinn kaldur staður, sem yrði að
sætta sig við aðra orku en jarðhita
til að hita upp hús og hýbýli, svo
sem rafmagn eða olíu. En nú
undirstrika febrúarfrostin ágæti
hitaveitunnar meira en nokkuð
annað.
Um leið og minnt er á hina inn-
lendu orku, sem nýtt er í vaxandi
mæli á síðustu árum og sparar
miklar fjárfúlgur í erlendum gjald-
eyri, höfum við orðið svo háð raf-
orkunni, að flest er við það miðað
að hún sé fyrir hendi og ætíð næg.
Hún færir okkur jafnvel heita
vatnið og skammtar olíuna inn í
miðstöðvarkatlana, þar sem hún
er er ekki sjálfur hitagjafinn.
En minnisverðum áfanga hefur
einnig verið náð í raforkumálum
þótt minna hafi verið um það rætt.
Við njótum nú ríkilega þeirrar
stórframkvæmdar í samtengingu
orkuvera, sem nú nær frá Suð-
vesturlandi tii Austurlands. Með
Byggðalínunni að sunnan fáum
við nú jafn mikla raforku inn á
orkuveitusvæði Laxár og Laxár-
virkjun framleiðir, eða um 18
megavött og ný austurlína flytur
raforkuna til Austurlands, svo þar
fá dísilvélarnar góða hvíld. Full-
yrða má, að án Byggðalínunnar
hefði hér orðið alvarlegt ástand í
orkumálum, sem sjá má af fram-
anskráðu. Síðan kemur svo við-
bótarorka frá Kröflu, ekki mjög
mikil næstu mánuðina, en eykst
við framhaldsboranir við virkjun-
arstað og mætti þá svo fara, að
Kröfluvirkjun yrði ekki lengur not-
uð sem almennt skammaryrði og
viðmiðun misheppnaðra fram-
kvæmda. Og enn verður það að
teljast betri votturinn, að þennan
kaldasta, nýliðinn vetrarmánuð
var meira og betur unnið að rann-
sókn og stefnumótun efnahags-
og atvinnumála en áður hefur ver-
ið gert og nú þegar er áfangasigur
unninn í baráttunni við verðbólg-
una. Þeim sigri þarf að fylgja eftir
með sameiginlegu átaki.
1
Æft
af
kappi
fyrir vortónleika
sem fyrirhugaðir
eru í apríl
Segja má að síðasta starfsári
Karlakórs Akureyrar lyki með
þátttöku hans i söngmóti Sam-
bands íslenskra karlakóra, sem
haldið var í Reykjavík dagana 9.
og 10. júní síðastliðinn. Starf-
semin hófst að nýju að loknu
sumarfríi, 12. okt. síðastliðinn
og hinn 5. nóv. hélt kórinn tvo
samsöngva fyrir Þingeyinga að
Skúlagarði í Kelduhverfi og
Breiðumýri í Reykjadal, við frá-
bærar undirtektir áheyrenda.
Síðan hefur kórinn æft af kappi
fyrir væntanlega vortónleika 1979,
sem fyrirhugaðir eru í aprilmánuði.
Fleira er gert í kórnum en að
syngja, t. d. eru árvissir einn til tveir
dansleikir fyrir kórmenn, konur
þeirra og gesti og einnig eru haldn-
ar ein til tvær „kvöldvökur" á vetri
hverjum þar sem kórmenn og
makar þeirra sitja yfir fallegu
kaffiborði, kvöldstund, við fræð-
andi og skemmtandi efni í tali,
tónum og myndum.
Þá er fyrirhuguð árshátíð 10.
febrúar næstkomandi, að Hótel
K. E. A. En þar gefst einnig styrkt-
arfélögum og öðrum velunnurum
kórsins kostur á þátttöku, á meðan
húsrúm leyfir, til að blanda geði og
deila gleði með kórmönnum og
gestui.'i beirra.
Núverandi söngstjóri Karlakórs
Akureyrar er Guðmundur Jó-
hannsson.
Hans Petersen
sjötugur 12. des. 1978
(Starfsmaður Búnaðarsambands Eyjafjarðar.)
Heill sér sjötugum, höfðingja svína og manna.
Hamingjan varði þá braut sem þú enn ert að fara.
Háleitur gengur þú hring þinna daglegu anna.
Horfir til lofts, þegar aðrir á tær sínar stara.
Ennþá er hugur þinn hlæjandi, ungur og léttur.
Hoppar sem þröstur um greinar á laufguðum runni.
Þótt aldrei þú værir í háskóla heimsborga settur.
Haldgóð og fjölbreytt er þekking í minnisins brunni.
í suðri og norðri og einnig í austri og vestri.
Allir sem Petersen þekkja, þeir vefja hann hrósi.
Og verða ekki þreyttir á þesskonar hólsyrðalestri.
Og þó er hann slunginn og meinlegur smáhrekkjabósi.
Og þó að hann veiði úr Sjúrnalnum sögurnar margar.
Og sæki til Dananna fyndnina, þekkta af öllum.
Þá yrkir hann sjálfur þær bestu, sem verða til bjargar.
Og brúninni lyfta á draugfúlum ólundarköllum.
Og enn geta hásalir skolfið af tvíræðum skrýtlum.
Og skartbúnar meyjarnar flykkjast að Petersens borði.
Sem flugur að ljósi. Þær laumast frá skeggjuðum bítlum.
Með loga í augum, þær bíða eftir sérhverju orði.
Og svo eru konurnar allar, sem öfunda Rósu.
Þær eigra um Þingvallastræti með skjálfta í taugum.
Sem engin fær stjórnað. Þær dreymir í dimmu og ljósu.
Danann sem kom yfir sundið með hlátur í augum.
Hamingju þinni er ekki svo auðvelt að lýsa.
Með orðum sem fákænum mönnum er gefið að hreyfa.
Og enn fær þú sjötugur maðurá morgnum að rísa.
Við manndóm og hreysti sem guðirnir útvöldum leyfa.
Ogenn er þér gefið að glettast við þann sem þér mætir.
Og greiða frá klæðið sem oft er um skrýtluna vafið.
Við öskum að lengi þú lifir og umhverfið bætir.
Uns lognaldan hjaðnar og kvöldsólin minnist við hafið.
Jón Bjarnason frá Garðsvík.
Arngrímur
Gunnhallsson
skrifar um
SKÁK
Einvígi Margeirs
og Gylfa
Eins og kunnugt er í fréttum
urðu þeir Gylfi Þórhallsson og
Margeir Steingrímsson efstir
og jafnir í Haustmóti S. A. Þá
var ákveðið að láta kappana
tefia tveggja skáka einvígi um
sigur í mótinu. Því er nú ný-
lokið, með sigri Gylfa, sem
vann báðar skákirnar.
Nú skulum við fara yfir fyrri
skákina, sem er æsispennandi.
Hvítt: Margeir Steingrímsson
Svart: Gylfi Þórhallsson
Kóngindversk vöm
1. d4 - Rf6
2. c4 - g6
3. Rc3 - Bg7
4. e4-d6
5. f4 - (fjögra peða árásin,
hvassasta afbrigðið í Kóngind-
verskri vörn)
5. - 0-0
6. Rf3 - c6
7. Be2 - Bg4
8. Be3 - Da5
9. Dd2 - Rbd7
10. 0-0 - (10. e5 kom einnig vel
til greina)
10. ---e5!
11. fxe5 - dxe5
12. d5 - b5 ?! (þessi leikur er mjög
tvíeggjaður, öruggara væri 12.
Rc5 ef 13. Rxe5 - Bxe2 14. Dxe2 -
Rfxe4 15. Rxe4 - Rxe4 16. Rf3 -
cxd5 17. cxd5 - Dxd5 og svartur er
með betra eða 13. Bd3 -cxd5 14.
cxd5 - Bxf3 15. Hxf3 - Rxd3 16.
Dxd3 - Db4 og staðan er í jafn-
vægi)
13. dxc6 - b4
14. Rd5!----(verra er 14. cxd7? -
bxc3 15. bxc3 - Rxe4 16. Dd3 -
Dxc3! 17. Dxe4 - Bf5 18. Dd5 -
Dxe3 + 19. Hf2 - Had8 og svartur
stendur til vinnings eða 18. Bd2 -
Dxal 19. Hxal - Bxe4 20. Ba5 -
Bf6 21. c5 - Bc6 22. Hdl - e4 23.
Rel - Bd8 24. Bc3 - a5! 25. Rc2 -
Be7 og síðan Hd8 svartur stendur
betur)
14. --Rxe4
15. Dxb4-Dxb4
16. Rxb4 - Rdc5
17. Rd5 - a5 (hvítur er með betra
tafl og c peðið er ógnandi)
18. Habl (?)----(18. Hadl er
ennþá öflugri leikur)
18. —-f5
19. h3 - Bh5
20. Hfel - f4
21. Bxc5 - Rxc5
22. c7! - e4
STÖÐUMYND
23. g4?? - — (hvítur gerir sér gre-
in fyrir hvað peðið á c7 er sterkt.
Svartur hótar að vísu að ýta f
peðinu fram, en hvítur á hér
skemmtilega leið 23. Rd2! - f3 24.
gxf3 - exf3 25. Bxf3 - Bxf3 26.
Rxf3 og svartur kemst ekki hjá því
að tapa skiftamun og þar með
skákinni, en með 23. g4? breytir
hann unninni stöðu í rjúkandi
rúst)
23. — - fxg3
24. Rd2 - Bd4
25. Khl----(eða 25. Kg2 - Hf2 +
26. Kxg3 - Bxe2 27. c8 = D+ -
Hxc8 28. Re7+ - Kg7 29. Rxc8 -
e3 30. Rb3 - Re4+ 31. Kh4 - g5 +
og mát)
25. —-Hf2!
26. Rfl - Bxe2
27. Hxe2----(þvingað)
27. --g2 +!
28. Kgl - Hxe2 +
29. Rle3 - Re6
30. Hdl - Rg5!
31. Kh2 - Be5 +
Gefið
Arngr. Gunnhallsson.
4.DAGUR
Otrúlega margir
unglingar
taka ívörina ...
— segir Haraldur Hansen, framkvæmda-
stjóri Dynheima, sem brá sér yfir pollinn
til að kynna sér æskulýðsmál í Svíþjóð
Fyrir skömmu fór Haraldur Hansen,
framkvæmdastjóri Dynheima, til Svíþjóð-
ar, nánar tiltekið til Vásterás sem er
vinabær Akureyrar, og kynnti sér æsku-
lýðs- og félagsmál. Vásterás er á stærð við
stór-Reykjavíkursvæðið, en vandamálin
sem við er glímt eru í mörgu áþekk þeim
sem þekkjast hér norður á hjara veraldar.
Haraldur dvaldi í fimm vikur í Vásterás og
tók þátt í störfum hjá Park- og fritid — I
deild er annast tómstundastarfsemi fyrir
alla aldursflokka.
Haraldur
Hansen.
Park- og f ritids-
forvaltningen
Á skrifstofu Park- og fritid vinnur
fjöldi manns, en u.þ.b. 15 til 20
manns við æskulýðsmál eðá frí-
stundastarfsemi. Bænum er skipt
í átta hverfi og er einn fulltrúi í
hverju hverfi. I Vástaras eru 25
æskulýðsheimili og forstöðumað-
ur á hverju heimilanna. Alls erU
u.þ.b. 40 full störf við æskulýðs-
heimilin eða um 60 til 70 manns.
Auk þess eru ráðnir kennarar til
að veita námskeiðunurh forstöðu.
Kostnaður við þetta starf þ.e.
tómstundastarfið er úirr'22 til 23
milljónir sænskra króna á ári, en
það samsvarar 1760 til 1840
milljónum íslenskra króna.
Á æskulýðsheimilunum vinna
einnig stuttan tíma aðilar frá fé-
lagsmálaskólum til þess að kynna
sér starfsemina. Þá starfa í mörg-
um æskulýðshúsanna 2 til 3 ung-
lingar (16 til 18 ára) sem eru at-
vinnulausir og fá þeir ekki laun
fyrir vinnu sína.
Lengst af starfaði Haraldur við
Vallby æskulýðsheimilið, sem er í
útjaðri borgarinnar, en þar býr 12
til 13 þúsund manns. Um 13%
íbúa hverfisins eru innflytjendur,
svo sem Finnar, og Tyrkir. Æði
margir eiga erfitt með að laga sig
að sænskum þjóðfélagsháttum og
sagði Haraldur að vandamálin
sem skytu upp kollinum væru
mörg hver erfið úrlausnar.
Þrjú æskulýðsheimili eru í
hverfinu og sem dæmi um hve
miklu fjármagni er varið til
æskulúðsmaía má geta þess að
launa kostnaður fastráðins starfs-
fólks í hverfinu er um 80 milljónir
króna á ári. Vallby heimilið er
opið fjóra daga vikunnar (virka
daga) frá kl. 16 til 21.30. Frá
klukkan 16 til 20 er ekkert ald-
urstakmark. Þá koma aðallega
unglingar og börn sem flest eru á
aldrinum 7 til 11 ára. Aðgangur er
ókeypis. Frá klukkan 20 og fram
að lokun er 13 ára aldurstakmark,
Haraldur sagði að aðsóknin eftir
klukkan 20 væri ákaflega dræm
og oft kæmi það fyrir að starfs-
fólkið væri fjölmennara en gestir,
en mæður með ungbörn koma á
hin ýmsu námskeð s.s. í keramik.
Um hádegisbil virka daga er hlé
eða matartími í skólanum sem er
rétt við Vallby heimilið og er það
þá opið, en lokað um helgar.
Eins og fyrr sagði eru æsku-
lýðsheimilin í Vasteras 25 talsins.
Flest eru þau rekin á svipuðum
grundvelli og Vallby-heimilið.
Reykingar eru leyfðar í þeim
heimilum sem ekki eru rekin í
tengslum við skóla. „Unglingar á
þessum slóðum reykja mikið, en
það kom mér spánskt fyrir sjónir
hve ótrúlega margir unglingar
taka í vörina,“ sagði Haraldur.
Tvö æskulýðsheimili í Vásterás
eru með ýmiskonar skepnur til
sýnis - sem dæmi má nefna kind-
ur, geitur og kanínur. Þau hafa
opið á sunnudögúm. Eitt heimil-
anna er opið á laugardagskvöld-
um og er þá diskótek fram að
miðnætti. Diskótek eru í
Vallby-heimilinu einu sinni í
mánuði og hefjast kl. 16 og lýkur
á tíunda tímanum.
Ná ekki til ung-
linganna
En hvað geta unglingarnir gert í
Vallby-heimilinu? Haraldur
sagði að við myndum kalla starf-
semina „opið hús“ því boðið væri
upp á borðtennis, sjónvarp, tón-
list (í sérstökum herbergjum) og
ýmiskonar spil. Einnig liggja
frammi blöð og ýmiskonar tíma-
rit. Krakkamir föndra mikið,
haldnar eru leiksýningar (af ut-
anaðkomandi aðilum) og sýndar
eru kvikmyndir svo eitthvað sé
nefnt. „Þeir Svíar sem ég hafði
kynni af vilja helst engin aldurs-
takmörk hafa og stefna að því að
gera heimilin að tómstunda- og
afþreyingastað fyrir alla fjöld-
skylduna. Því miður virðist mér
árangurinn ekki vera í samræmi
við fjárframlög hins opinbera.
Stefnan er góð, en Svíarnir virð-
ast ekki ná til unglinga á aldrin-
um 13 til 18 ára sem ætla mætti að
hefðu mesta þörf á hollri tóm-
stundastarfsemi. Það kom fram
hér á undan að flestir gestanna
eru á aldrinum 7 til 11 ára,“ sagði
Haraldur.
„Hér á Akureyri aftur á móti
vinnum við aðallega fyrir ung-
linga á aldrinum 13 til 18 ára.
Fram að þessu hafa diskótek
borið einna hæst, en við verðum
að auka til muna tómstunda-
starfsemi í einhvers konar opnum
húsum fyrir þennan aldursflokk.
Mér virðist sem Svíarnir vanræki
táningaaldurinn, en það megum
við alls ekki gera. Það verður að
koma til móts við þarfir ungling-
anna á þessum aldri og þótt blási
ekki alltaf byrlega megum við
aldrei gefast upp.
Að lokum vildi ég koma á
framfæri þakklæti til bæjaryfir-
valda, æskulýðsráðs, formanns
þess og æskulýðsfulltrúa, fyrir að
hafa stuðlað að því að ég gat farið
í þessa ferð,“ sagði Haraldur
Hansen að lokum.
Táningamir virðast hafa lftinn áhuga á Vásterás-heimilinu'og öðmm áþckkum,
en hér gefur á að Ifta tvær sænskar smámeyjar. Mynd: H. H.
........................ •
Takið
þáttí
Get-
raunum
og eflið Akur-
eyrarfélögin
Hver vann firmakeppnina?
Um sfðustu helgi var haldin firmakeppni f innanhússknattspyrnu og
tóku þátt f keppninni 19 lið frá jafnmörgum fyrirtækum. Eitthvað
mun óljóst um úrslit keppninnar, en kærumál eru á lofti vegna
leikmanna sem ekki vinna hjá þeim aðilum sem þeir kepptu fyrir.
Knattspyrnuráð Akureyrar, sem sá um mótið, mun athuga þessi
kærumál og veita verðlaun um næstu helgi, og verður þvf nánar getið
um keppnina f næsta blaði.
Sala getraunaseðla hefur stór-
aukist hérlendis undanfarið.
Vinningar hafa þar að leiðandi
hækkað, og vinningsvon aukist.
Segja má að getraunirnar geti
gefið mönnum þó nokkuð í sinn
hlut ef heppnin er með þeim.
Ekki þurfa menn að vera sér-
fræðingar í ensku knattspyrn-
unni til að geta tekið þátt í get-
raununum, því það er staðreynd
að flestir sem hreppa hæstu
vinningana hafa ekki hundsvit á
knattspymu. Hægt er að tipppa
á mismundandi hátt, t. d. eins
og sést á meðfylgjandi get-
raunaseðli, en á hann er merkt-
ur eftir ákveðnu munstri, án
þess að líta á hvaða lið leika
saman. Þá skal þess getið að fé-
lögin Þór og KA fá ákveðna
söluprósentu af getraunaseðl-
unum þannig að þeir sem kaupa
getraunamiða styrkja um leið
sitt félag. Meðfylgjandi get-
raunaseðill kostar 200 krónur
og gefur fjórfaldan möguleika á
vinningi.
Undanfarið hefur verið
nokkuð um frestanir á leikjum
vegna slæms veðurs í Englandi,
en nú fer sól að hækka á lofti og
að vora á meginlandinu þannig
að minna ætti að verða um
frestanir. KA selur getrauna-
seðla í Shell stöðinni við Mýr-
arveg, Sport og Hljóðfæraversl-
uninni og í Sporthúsinu. Þór
selur hins vegar í Versluninni
Esju, Brekku og í Raforku í
Hafnarstræti og í BP stöðinni
við Tryggvabraut.
Stórhríðarmótið um helgina
Um næstu helgi verður haldið Stórhríðarmótið svokallaða, en því
skíðamóti var frestað um siðustu helgi. Algengt er að þessu móti sé
frestað einu sinni eða tvisvar vegna stórhríðar, þannig að það ber
nafn með rentu. Þá er áformað að nýr snjótroðari taki til starfa i
fjallinu um næstu helgi, en hann hefur nú verið keyptur til bæjarins.
Þórsarar
rassskelltir
í Rvík
Geir Guðsteinsson
Geir Guð-
steinsson k]ör
inn formaður
Knattspyrnu
ráðs Ak
Þar sem Guðmundur Sigur-
björnsson hefur tekið við starfi
formanns knattspyrnudeildar
Þórs, hefur hann ekki leyfi til að
sitja sem formaður Knatt-
spyrnuráðs Akureyrar, og við því
starfi tekur því Geir Guðsteins-
son sem áður var varaformaður.
í stað Geirs i ráðinu kemur
fyrsti varamaður Haukur Jó-
hannsson skíðakappi.
Körfuknattleikslið Þórs i úr-
valsdeild fór enga frægðarför
tii Reykjavíkur um síðustu
helgi. Á föstudagskvöldið léku
þeir við ÍR og máttu þola
slæmt tap. Það sama var uppi á
teningunum daginn eftir, en þá
léku þeir við Njarðvíkinga.
Heimamönnum tókst mjög vel
upp í þeim leik settu m. a.
stigamet í deildinni, skoruðu
125 stig gegn 80 hjá Þór. Ein-
hver forföll voru í liði Þórs í
þessum leik en nokkrir fasta-
Ólafsfjörður:
Lýsa upp
skíðastökk
brautina á
Kleifar-
horni
„Við erum að undirbúa upp-
setningu ljósabúnaðar við
skíðastökkbrautina á Kleifar-
horni og ef vel gengur um næstu
helgi má gera ráð fyrir að verk-
inu verði lokið f næstu viku“,
sagði Björn Þór Ólafsson,
íþróttakennari á Ólafsfirði.
„Þetta verður þessari iþrótta-
grein eflaust til framdráttar, því
dagurinn er stuttur og tími til
æfinga einnig“.
Búið er að setja upp staura við
brautina og næsta skref er að
flytja Ijósamótor á staðinn. Það
var Skúli Pálsson sem gaf mót-
orinn, en efnið í skúrinn kom úr
ýmsum áttum.
menn liðsins voru í erfiðum
prófum hér í menntaskólanum,
og gátu því ekki farið í þessa
keppnisferð.
Að venju var Mark Cristiansen
aðaldriffjöður Þórs í þessum leik,
en einnig voru atkvæðamiklir
þeir Jón Indriðason og Eiríkur
Sigurðsson. Þórsaraar hafa nú
aðeins hlotið 4 stig í 13 leikjum,
eða aðeins tveimur færri en ÍS í
jafnmörgum leikjum. Þessi lið
hafa dregist nokkuð afturúr í
deildinni og er því líjdegt að það
verði hlutskipti annars hvors
þeirra að falla niður í fyrstu deild,
að keppnistímabilinu loknu.
Stúdentar hafa nú misst sinn am-
eríkana, en heyrst hefur að von sé
á öðrum, (guði sé lof að nóg er til
af Könum) þannig að hann gæti
leikið með í þeim leikjum sem
eftir eru í mótinu. Vonandi tekst
þó Mark og co. að næla sér í stig í
næstu leikjum, en ef Þór tekst að
halda sér í deildinni, er það
Akureyrskum körfuknattleik til
góða.
UMSJON:
ÓLAFUR ÁSGEIRSSON
Aðalfundur
knattspyrnu-
deildar Þórs
Um síðustu helgi var haldinn
aðalfundur knattspyrnu-
deildar Þórs. Fráfarandi for-
maður Þóroddur Hjaltalín
las skýrslu stjórnar og þar
kom fram að starf dcildar-
innar var gróskumikið á s.l.
ári. t stjórn fyrir næsta ár
voru kjörnir Guðmundur
Sigurbjörnsson formaður,
Sigmar Bjarnason varaform-
aður, Hallgrímur Skaptason
gjaldkeri, Ómar Kristvins-
son ritari og Sigurður Her-
mannsson meðstjórnandi.
Varamenn f stjórn voru
kjömir Daníel Snorrason og
Þorsteinn Pétursson. Að
sögn Guðmundar Sigur-
bjömssonar kemur þjálfari
Þórs, Hlöðver Rafnsson tii
Akureyrar um næstu helgi og
á fimmtudagskvöldið verður
fundur með leikmönnum, og
siðan æfingar um helgina.
DAGUR.5