Dagur - 01.02.1979, Blaðsíða 6
Möðruvallaklaustsurspresta-
kall. Guðsþjónusta að
Möðruvöllum n.k. sunnu-
dag 4. febrúar kl. 2 e.h. Séra
Sigfús Jón Ámason Sauðár-
króki prédikar. Sóknar-
prestur.
Akureyrarkirkja. Messað n.k.
sunnudag 4. febrúar kl. 2
e.h.
ORÐ DAGSINS
SÍMI - 2 18 40
ÁTIIUCilD
Munið Minningarspjöld kven-
félagsins Hlífar. Allur ágóð-
inn rennur til barnadeildar
F.S.A. Spjöldin fást í bóka-
búðinni Huld, hjá Laufeyju
Sigurðardóttur, Hlíðargötu
3 og í símaafgreiðslu sjúkra-
hússins.
Pennavinur. 19 ára þýsk stúlka
óskar eftir bréfaskiptum við
íslenska stúlku eða mann.
Helstu áhugamál eru nátt-
úruvísindi. Hún skrifar bæði
á ensku og þýsku. Heimilis-
fang hennar er: Beate
Scháfer, S6, 26, 68 Mann-
heim.
Kvenfélag Akureyrarkirkju
annast kaffiveitingar fyrir
kirkjugesti í kapellunni eftir
messu sunnudaginn 4. fe-
brúar. Stjómin.
SUNNU
HÁTÍD
FERÐAKTNNING
QRÍSAVEISLA
í Sjálfstæðishúsinu sunnudaginn 4.
febrúar kl. 20.
1) GRÍSAVEISLA: Ljúffengur spænskur veislu-
matur fyrir aðeins kr. 3.500.
2) FERÐAKYNNING: Guðni Þórðarson kynnir fjöl-
breytta ferðamöguleika Sunnu sem bjóðast á
þessu ári. Kynntur verður nýr bæklingur um
Kanaríeyjar.
3) KVIKMYNDASÝNING: Nýjar litkvikmyndir frá
eftirsóttum áfangastöðum Sunnu á Kanaríeyj-
um, Mallorca, Costa del Sol og Grikklandi, og
einnig af skemmtiferðaskipinu Funchal sem
Sunna leigir næsta sumar.
4) GLÆSILEGT FERÐABINGÓ: VINNINGAR:
Þrjár sólarlandaferðir með Sunnu eftir eigin vali.
5) TÍSKUSÝNING: Fegurðardrottning íslands
sýnir það nýjasta í kvenfatatískunni.
6) JÖRUNDUR GUÐMUNDSSON skemmtir.
7) DANSAÐ til kl. 01. Hljómsveit Finns Eydal,
Helena og Óli.
ÓKEYPIS HAPPDRÆTTI: Þeir matargestir sem
mæta fyrir kl. 21 fá ókeypis happdrættismiða, en
vinningur er ferð til Kanaríeyja þann 16. febrúar.
Aðgangseyrir rúllumiðagjald.
Sunna
Hafnarstræti 94
sími21835
BERGSTAÐASTRÆTI 37
SlMI 21011
Gistið
í hjarta
horgarinnar
Bjóðum mjög hagstætt
vetrarverð. Björt og rúmgóð
herbergi og viðurkenndan
veislumat. Sérstakt afsláttar-
verð fyrir hópa.
— Dvalarheimili
og heilsugæslu
stöð...
(Framhald af bls. 8).
rúmmetrar. f heilsugæslustöð
verður aðstaða fyrir lækni, tann-
lækni og hjúkrunarfólk. I suður-
enda l. hæðar verður eldhús,
matsalur ásamt tilheyrandi
geymslum. f norðurenda 2. hæðar
verður sjúkraskýli með plássi fyr-
ir 8 sjúklinga. Dvalarheimilið
sem er í suðurenda rúmar allt að
17 manns miðað við 1 einmanns-
herbergi og 8 tveggja manna her-
bergi eða íbúðir. Á efri hæðinni
er einnig samkomusalur.
Kostnaður um áramótin
1978/1979 var orðinn um kr. 175
millj. Þar af hefur bæjarsjóður
greitt um kr. 78 millj., aðallega á
árunum 1977 og 1978.
Gert er ráð fyrir að húsið verði
fullfrágengið að utan og tilbúið
undir tréverk að innan á tilsettum'
tíma í ágúst í sumar. Búast má við
að kostnaður við að ljúka þessum
áfanga verði í ár um 70 millj. en
þar af þarf bæjarsjóður að greiða
ca. kr. 33 millj. Framkvæmdir við
lóðina eru þó ekki innifaldar í
þessum tölum. Reikna má með að
það kosti um 25 - 30 millj. að
ljúka við lóðina.
Reikna má með að það kosti að
minnsta kosti kr. 150 millj. að
ljúka við bygginguna. Verði
nauðsynlegt fjármagn fyrir hendi
frá ríki og bæ ætti að vera unnt að
ljúka byggingu hússins seint á ár-
inu 1980 eða snemma á árinu
1981.
Fyrirhugað er að byggingunni
verði gefið sérstakt nafn og er
ráðgert að Ieita til almennings um
tillögur að nafni, en ekki er ennþá
ákveðið hvernig staðið verður að
því.
Ljóst er að bygging dvalar-
heimilisins er mikið átak og til
þess að ljúka byggingunni þarf
samstillt átak allra Ólafsfirðinga.
Að lokum skal þeim fjölmörgu
sem stuðlað hafa að því að gera
þessa byggingu mögulega þakkað
framlag þeirra.
Ástkær sonur okkar
TRYGGVI GUÐMUNDSSON,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 29. janúar sl.
Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 2. febrúar
kl. 13.30.
Júlíanna Tryggvadóttir, Guðmundur Ingvi Gestsson,
Eiðsvallagötu 13.
INGVAR BRYNJÓLFSSON,
menntaskólakennari,
andaðist 28. janúar.
Sigríður Hallgrímsdóttir.
Hjartkær eiginmaður minn,
INDRIÐI HALLGRÍMSSON,
bókasatnstræðingur,
Hjarðarhaga 36, Reykjavík,
sem andaðist í Landakotsspítala laugardaginn 27. janúar sl.
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 5.
febrúar kl. 10.30 f.h.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigrún Klara Hannesdóttir.
Móðir okkar
GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR,
Kringlumýri 6,
andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 28. janúar.
Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 5. febrúar
kl. 1.30.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á líknarstofnanir.
Finnur Sigurðsson,
Krlstín Sigurðardóttir,
Margrét Sigurðardóttir,
Jón Sigurðsson,
Guðrún Sigurðardóttir.
„MOKA, MOKA!“
Fjölmiðlar kynna okkur hér — í
orðum og myndum — glímu þeirra
„fyrir sunnan" við þar sjaldgæfa
veðravonzku, snjó og leka, svo að
jafnvel Ómar er farinn að moka
ofan af bágstöddum grönnum! En
allt stendur nú til bóta. Við vorum
farnir að kenna í brjósti um þá —
þekkjum svo vel aðstöðuna í kaf-
snjó og kófi, en erum líklega oftar
betur búnir til atlögunnar en þeir
nú.
Hjá okkur, Akureyrarbúum, er
ekki yfir miklu að kvarta, þótt kalt
væri í veðri nokkur dægur, hefur þó
í rauninni enginn vetur tekið hér
völd, vikum saman stillt og gott,
úrkoma lítil og nú um sinn þíðviðri
dag og nótt — og skammdegið leið
og er á hvörfum án átaka. Vonandi
erum við fagnandi og þakklátir
fyrir það, hvað sem þorrinn býður
svo upp á.
Þótt lítill væri snjórinn hér, mið-
að við árstíma, var skafin gata
okkar, Hrafnagilsstræti (efra) í gær.
Sumum fannst það nú bara óþarfi,
jafnvel til bölvunar. Samanþjöpp-
uð krapastellan varð illviðráðanleg
lélegum skóflum í kraftlitlum
höndum, ef opna skyldi fyrir bíl
eða bara tvo fætur! Og það reyndist
sumum ofraun.
Væri nú ekki mögulegt að láta
vélskóflu fylgja sköfunni og opna
leiðir að bílskúr og tröppum, taka
1—4 skóflur og kasta úr til hliðar?
Meira þyrfti nú ekki. Eftir það yrði
flestum auðvelt að hreinsa til, svo
að gott yrði.
Eins og nú var háttað snjólagi er
varla um stórvirki að ræða, — og
þó vitað, að mörgum var það of-
raun að gera í þetta sinn „hreint
fyrir sínum dyrum". Þegar snjór er
meiri verða þetta stundum fjall-
garðar yfir að fara, að og frá húsi,
— og svo virðist mér sem sumir
húseigendur skeyti því engu, þótt
gestir þeirra, póstur eða aðrir brjóti
háls eða skanka sína á þeim heljar-
fjallvegi, þegar fryst hefur. Og
sumir láta þá bíla sína standa
„utangarðs" og torvelda umferð og
síðari hreinsun götunnar, en bíla-
stæðið „innangarðs" snjólaust að
kalla. Sumum slíkum er varla við-
hjálpandi, þegar hirðuleysi veldur.
En ég veit þess mörg dæmi, nær
og fjær, að íbúum húsa er ekki fært
að opna sér eða bíl sínum færa leið
frá og að húsi sínu eftir götu-
hreinsun þessara stóru tækja. —
Hvernig má úr þessu bæta? Eru
ekki vélskóflur margar til í eigu
bæjarins, og margir menn á föstum
launum „til þjónustu reiðubúnir"?
Þeim yrði vissulega víða fagnað,
næst þegar hreinsað verður. En það
verður kannske ekki þennan vetur-
inn. Þorrinn er byrjaður, og blessuð
sólin farin að skína!
Á bóndadag, 1979.
Jónas Jónsson, „Brekknakoti“.
6.DAGUR