Dagur - 01.02.1979, Page 8
DAGUR
Akureyri, fimmtudagur 1. febrúar 1979
ÞJÓNUSTA
FYRIR
PRESSUM
TENGIN Á
FULLKOMIN TÆKI
OLÍUSLÖNGUR og BARKA VÖNDUÐ VINNA
HÁÞRÝSTISLÖNGUR
Ólafsfjörður:
Fagnað áfanga í bygg-
ingu dvalarheimilis og
heilsugæslustöðvar
Heildarflatarmál hússins er um 2100 ferm. og stendur það skammt vestan viö
kaupstaðinn.
Fyrir nokkru bauð byggingar-
nefnd heilsugæslustöðvar og
dvalarheimilis í Ólafsfirði og
bæjarstjórn, bæjarbúum að
skoða byggingu elliheimilisins.
Þegar skoðunarferðinni lauk
höfðu kvenfélögin í Ólafsfirði
til sölu kaffi og pönnukökur í
samkomusal hússins og rann
hagnaður kaffisölunnar til
styrktar byggingu elliheimilis-
ins. Gert er ráð fyrir að bygg-
ingin verði tilbúin undir tré-
verk í sumar. Á síðasta ári var
búið að verja 175 milljónum
króna til byggingar elliheimil-
isins og heilsugæslustöðvar-
innar. Þá bárust gjafir til
framkvæmdanna alls kr.
4.240.000 á árinu.
Mörg ár eru liðin síðan fyrst var
farið að ræða byggingu dvalar-
heimilis í Ólafsfirði. Veruleg
hreyfing mun þó fyrst hafa kom-
ist á málið árið 1961, en þá kaus
Bæjarstjóm Ólafsfjarðar sér-
stakanefnd til þess að undirbúa
málið. Árið 1966 var svo komið
að teikningar af húsinu höfðu
verið gerðar. Það sama ár var
byggingunni valinn staður. Skv.
teikningunum var gert ráð fyrir
sjúkrahúsi og dvalarheimili í
byggingunni. Árið 1967 var hafist
handa um jarðvinnu og vinnu við
sökkla. Það ár og árið 1968 voru
steyptir sökklar að byggingunni.
Árið 1973 voru samþykkt ný
lög um heilbrigðisþjónustu. Var í
samræmi við þau ákveðið að
breyta fyrri teikningum og bæta
við rými fyrir heilsugæslustöð.
Voru síðan gerðar nýjar tillögu-
teikningar og húsið stækkað
nokkuð.
Árið 1974 var svo hafist handa
við framkvæmdir í grunni á ný og
árin 1975 og 1976 var unnið við
sökkla, uppsteypu kjallara og
gólfplötu fyrstu hæðar. Haustið
1976 var lokið að mestu allri
eindurskoðun teikninga. Sam-
kvæmt hinum nýju teikningum
verður heilsugæslustöð á 1. hæð
ásamt þjónustuálmu. Á efri hæð
verður sjúkrahús og dvalarheim-
ili. I kjallara verða sameiginlegar
geymslur fyrir allt húsið. Heild-
arflatarmál hússins er um 2100
fermetrar og rúmmál um 7800
(Framhald á bls. 6).
Ármann
Hér sitja yfir kaffi og kökum (f.v.): Lovisa Friðriksdóttir,
Freyja Þorsteinsdóttir, Eva Williamsdóttir, Sigríður Þor-
steinsdóttir og William Þorsteinsson. Myndir:
Þórðarson.
0 Óhagkvæm
þróun
Fyrir sex árum vöruðu bænd-
ur við offramleiðslu en á þá
var ekki hlustað, Nú er of-
framleiðsla búvara talið
efnahagsböl og hafa fjöl-
mennir fundir verið haldnir
um land allt til að reyna að
finna aðferð til að snúa þró-
uninni við, þar til jafnvægi
næst á ný. I samræmi við
þetta er málið nú í höndum
hefur skuldarinn verið að
græða en eigandi sparifjár að
tapa og hafa þessi svik við
heflbrigt efnahagslíf og
óbeini þjófnaður lengi átt sér
tryggt virðingarsæti við há-
borð valdhafa og efnahags-
sérfræðinga. Nú loks virðist
sú stefnubreyting framund-
an, að verðtryggja inn-og út-
lán og virðast þó sumir hálf
óttaslegnir yfir því að ganga
svona beint framan að verð-
bólgudraugnum.
Alþingis.
§ Reynslu-
vísindin
Hugsuður einn, sem kom á
skrifstofur Dags og tók þátt í
umræðum um svokallaða
umfram-framleiðslu lét svo
ummælt, að stundum væri
hollt að hafast ekki að. Kalár,
óþurrkar, búfjársjúkdómar
eða stjórnun peningamála
geta þurrkað vandamálið út,
sagði hann, ennfremur lækn-
arog fjölmiðlafólk, sem kynni
að vitkast og predika þjóð-
inni að mjólk, rjómi, smjör og
kjöt, ekkí síst feftt kjöt, sé
mata best og hollast öllu
fólki, svo sem reynsluvfsindi
þjóðarinnar staðfesta.
$ Mörg efna-
hagsundur
Þau eru æði mörg, efnahags-
undrin á Islandi. Lengi hefur
það tíðkast, þótt ótrúlegt sé,
að lán hafa aðeins verið
greidd að hluta (með minnk-
andi krónum). Þess vegna
0 Svartolían
hefur reynst
vel
Allir japönsku skuttogararnir
brenna nú svartolíu og enn
sem komið er hefur ekki
komið fram óeðlilegt slit á
vélum þeirra — og engin
ástæða til að ætla að svo
verði. Meira viðhald fylgir
þeim vélum sem brenna
svartolfu t. d. þarf oftar að
skoða olíukerfin. Skuttogar-
inn Rauðinúpur var fyrsti ís-
lenski togarinn sem brenndi
svartolfu, en þessi tækninýj-
ung er talin geta sparað
landsmönnum ótaldar mill-
jónir króna.
0 Fjárhags-
áætlun 1979
Almennur fundur verður
haldinn í Hafnarstrætl 90, um
fjárhagsáætlun Akureyrar-
bæjar 1979 fimmtudaginn 1.
febrúar og hefst kl. 20.30.
Frummælandi verður Sigurð-
ur Öli Brynjólfsson.
Dálítið fjör í menn-
ingunni Svefnlaus brúðgumi
á Þórshöfn
Gunnarsstöðum 29. janúar. Nú
er sæmilegasta vetrarveður
10-12 stiga frost, andar af suðri.
Menn blótuðu þorra á laugar-
dagskvöldið að hefðbundnum
hætti með heimafengnum
skemmtiatriðum og skemmtu
sér hið besta. Menn gera ofur-
lítið gys hver að öðrum á þeim
skemmtunum, bæði í bundnu
máli og óbundnu, allt í meinleysi
þó og skemmtiformi.
Leikfélag á Þórshöfn er að æfa
sjónleikinn, Svefnlausa brúðgum-
ann og Leikfélag Þistilfjarðar æf ir
Skjaldahamra Jónasar Árnasonar,
svo það er dálítið fjör í menning-
unni.
Bátar róa en gæftir eru stopulai;
Margrét móðursystir skrifaði
mér núna frá Kanada. Þar var þá
10-12 stiga frost eins og hér og fólk
væri að kvarta um kulda, sagði
hún, en það væri nú bara kveifar-
skapur. Ó. H.
Feðgarmr fengu
góðar viðtökur
Sauðárkróki 29. janúar. Þótt
veður sé rysjótt í dag, má heita
snjólaust, vegir því greiðfærir og
góð hestajörð um alla sýsluna.
Hegranesið landar 115 tonnum i
dag, Drangey landaði 110 tonn-
ym fyrir helgina og fyrir
skömmu landaði Skafti allt að
100 tonnum. Er þvi næg vinna í
frystihúsunum og þessi góði afli
lofar góðu.
Hingað komu fyrir nokkru
feðgarnir Kristján Jóhannsson og
Jóhann Konráðsson, tenórsöngv-
arar. Þeir héldu söngskemmtun í
Miðgarði fyrir troðfullu húsi og við
frábærlega góðar viðtökur. Jóhann
Konráðsson söng hér árlega um
langt skeið og vann sér miklar vin-
sældir fyrir sinn góða söng, og var
koma hans okkur mjög kær af þeim
ástæðum. G. Ó.