Dagur - 29.01.1980, Qupperneq 6
Akureyrarkirkja. Messað verður
n.k. sunnudag kl. 2 e.h.
Sálmar: 216-299- 120- 121
- 527. Kvenfélag Akureyrar-
kirkju annast kaffiveitingar í
kapellunni að lokinni
messu. B.S.
I.O.G.T. Bingó föstudaginn 1.
febr. kl. 8.30 e.h. að Hótel
Varðborg. Margt góðra
vinninga. Fjölmennið.
Nefndin.
Spilavist. N.L.F.A. heldur
spilavist í Alþýðuhúsinu
fimmtudaginn 31. janúar kl.
20.30. Allir velkomnir. Góð
verðlaun. Nefndin.
Hestamannafélagið Léttir. —
Aðalfundur íþróttadeildar
verður 1 Hótel Varðborg 31.
janúar kl. 8.30 e.h. Gengið
inn að vestan.
Kvenfélagið Hlíf heldur aðal-
fund sinn í Amaróhúsinu
fimmtudaginn 31. janúar kl.
20.30. Mætið vel og takið
með ykkur nýja félaga.
Afmælisfagnaður félagsins
verður í Smiðjunni sunnu-
daginn 3. febrúar kl. 20.30.
Þátttaka tilkynnist á aðal-
fundi og í síma 23050 og
23717, fyrir 1. febrúar.
Hlífarkonur fjölmennið og
takið með ykkur gesti.
Stjórnin.
I.O.O.F. 2 — 161218V4 — v.h.m.
— 9. —III.
Hjálpræðisherinn. Sunnudag-
inn 3. febrúar kl. 13.30 er
sunnudagaskóli og kl. 17
samkoma. Jón Viðar guð-
laugsson talar. Mánudaginn
4. febrúar kl. 16 heimilis-
samband.
Fíiadelfía Lundargötu 12. Al-
menn samkoma á fimmtu-
dag 31. janúar kl. 20.30. Al-
menn samkoma á n.k.
sunnudag 3. febrúar kl. 20.
Söngur, vitnisburðir. Allir
hjartanlega velkomnir.
Sunnudagaskóli hvern
sunnudag kl. 10.30. Öll börn
velkomin. Fíladelfía.
Kristniboðshúsið Zíon. Sunnu-
daginn 3. febr. er sunnu-
dagaskóli kl. 11. öll böm
velkomin. Samkoma kl.
20.30. Allir velkomnir.
Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
PÉTURS ÞORVALDSSONAR,
Stórholti 4, Akureyri.
Sérstakar þakkir viljum við færa félögum úr Geysi fyrir frábæran
söng.
Kristjana Steinþórsdóttir
og aðrir aðstandendur.
Þökkum af alhug öllum þeim er auðsýndu okkur samúð og hlý-
hug við andlát og jarðarför sonar, bróður og mágs,
INGIMUNDAR ÁRNASONAR.
Auður Kristinsdóttir,
Árni Ingimundarson,
Guðrún Arnadóttir,
Ólafur H. Ólafsson,
Kristín S. Árnadóttir og
Friðrik V. Guðjónsson.
Vilhjálmur Hjálmarsson, f.v. alþm. skrifar:
Það er búið að kjósa
Dagur fór þess á leii við Vilhjálm
Hjálmarsson á Brekku, fyrrverandi ráð-
herra og alþingismann, að hann segði álil
silt á þvi sem er að gerasl i sijórnmálun-
um. Fer grein Villtjálms hér á eflir.
Gestur Pálsson átti beittan penna
og skrifaði sögu og blaðagreinar:
Skipshöfn stóð í flæðarmáli og
studdist fram á skip sitt, áraskip. —
Eigum við að setja? sagði formað-
urinn og aðrir bátverjar tóku undir:
— Já, eigum við að setja? Þeir
ræddu málið um hríð og voru fyrr
en varði komnir út í allt aðra sálma,
þar til einhver spurði á ný: — Eig-
um við að setja? Þá hófst næsta
umferð og síðan koll af kolli. Að
lokum hljóðnaði hópurinn og
mennirnir tíndust í burtu einn af
öðrum og skildu skipið eftir þar
sem það stóð — í flæðarmálinu.
Oft hefur mér komið þessi saga í
hug, þegar „þóf gengur langt úr
hófi“ við myndun ríkisstjórnar. Við
skulum ekki álasa þingmönnum,
sem eru, hvað sem hver segir,
þverskurður af samfélaginu, sömu
kostum búnir og háðir sömu tak-
mörkunum. En menn hugsa sitt af
hverju og stundum upphátt. Ég
hugsa svona: Það er skylda kjör-
inna þingmanna að mynda ríkis-
stjórn, sjálfsögð skylda, engu síður
þegar þungt er fyrir fæti.
Utanþingsstjórnir eru öryggis-
loki, sem þó er óvirkur, nema Al-
þingi sjái fyrir löggjöf.
Alþingismenn eru kosnir til að
hafa jákvæð áhrif á gang þjóðmála.
Samningum sagt
upp fyrir mis-
skilning
í NÓVEMBER sagði Far-
manna- og Fiskimannasam-
band íslands upp samningum
fyrir hönd Aðildarfélaga sinna
og þeirra á meðal Skipstjórafé-
lags Norðlendinga. 1 síðustu
viku dró FFSI uppsögn S.N. til
baka þar sem hún var send LÍÚ
á sínum tíma án þess að haft
væri samband við S.N. Félagar í
S.N. hafa ekki í hyggju að segja
upp samningum og var það
fyrir mistök hjá FFSI að nafn
Skipstjórafélags Norðlendinga
flaut með þegar LIU fékk til-
kynninguna.
Möguleikar til þess aukast með að-
ild að ríkisstjórn.
í lýræðisþjóðfélögum byggjast
lyktir mála á samkomulagi um
lausnina, innan landsmálaflokka
og flokka í milli.
Þetta er sameiginlegt einkenni
Vilhjálmur Hjálmarsson.
lýðræðis og almennrar siðvæðing-
ar. Óskoruð drottnun hins sterkasta
gildir aftur á móti á vígvöllum og
meðal villidýra.
Samsteypustjórn er fyllilega
eðlilegt úrræði. Meirihluti eins
flokks verður ekki tryggður í
lýðræðisþjóðfélög um.
Hér-verður-ekki-stjórnað-án-
kerfisbreytingar-kenningin er
kjaftæði. Vitanlega verður að
vanda gerð grundvallarlaga sem
má. Eitt saman leysir það þó ekki
vanda stjórnunar. Þar þarf menn
til.
Hollt er að festa sér í minni
meginatriði. Rósemi og varúð eru
góðir förunautar. Hik og ótti afleit.
íslenskir stjórnmálamenn hafa
um sinn gert einkunnarorð skips-
hafnarinnar hjá Gesti Pálssyni að
sínum: Eigum við?
Þetta gengur ekki öllu lengur.
Landið er fjárlagalaust og reyndar
stjórnlaust.
Það er búið að kjósa. Níutíu
hundraðshlutar lcjósenda greiddu
Blómlegt starf
AKUREYRSKIR skákmenn
tefldu nýlega tvær umferðir í 1.
deildarkeppninni í skák. Teflt
var við Taflfélag Reykjavíkur og
Skákfélag Hafnarfjarðar. Lauk
þeirri viðureign á þann veg að
T.R. fékk 5 v. gegn 3 v. Akur-
eyringa, en síðan unnu Akur-
eyringar Hafnfirðinga með 7 v.
T. R
1. borð Margeir Pétursson 0 v.
2. — Jón L. Árnason 'h v.
3- — Haukur Angantýsson I v.
4. — Ásgeir Þ. Árnason 1 v.
5. — Björn Þorsteinsson 1 v.
6. — Stefán Briem 0 v.
7. — Jóhann Hjartarson 'h v.
8. — Jóhannes Gísli Jónsson 1 v.
gegn 1 v. Akureyringar eru nú
efstir í deildarkeppninni með
32.5 v. að loknum 6 umferðum,
en þess ber að gæta að T.R.
hefur leikið einni umferð minna,
en þeir eru í öðru sæti.
Einstök úrslit i keppni T.R. og
Skákfélags Akureyrar urðu
þessi:
S. A.
Helgi Ólafsson 1 v.
Gylfi Þórhallsson 'h v.
Áskell Kárason 0 v.
Halldór Jónsson 0 v.
Jón Björgvinsson 0 v.
Kári Elísson 1. v.
Þór Valtýsson 'h v.
Margeir Steingrímsson 0 v.
Skákþing Akureyrar hefst
mánudaginn 4. febrúar. Teflt verð-
ur í Lundarskóla og teflt verður
mánudaga, miðvikudaga og föstu-
daga. Þátttökutilkynningar þurfa
að berast fyrir sunnudag 3. febrúar
og ber að skila þeim til Atla Bene-
diktssonar í síma 21612 eða Sig-
urjóns Sigurbjörnssonar í síma
25245.
Nú stendur yfir á vegum Skák-
félags Akureyrar námskeið í skák
fyrir félaga í S.A. Leiðbeinandi á
námskeiðinu er Helgi Ólafsson al-
þjóðlegur skákmeistari. Námskeið-
ið er haldið í Lundarskóla og
stendur yfir þessa viku. Helgi leið-
beinir unglingum frá 17—19 ára en
fullorðnum frá 20—22. Vænta
menn góðs af starfi Helga.
Húsnæðisvandræði hafa mjög
háð starfsemi skákfélagsins undan-
farin ár og gerir enn. Nú hafa for-
ráðamenn Lundarskóla ljáð S.A.
húsnæði fyrir Akureyrarmótið og
skáknámskeið. Ber þeim góðar
þakkir fyrir það.
Skákfélagið væntir þess að senn
styttist í að bæjarfélagið skapi fé-
lagasamtökum nauðsynlega hús-
næðisaðstöðu, sem er forsenda þess
að eðlilegt félagsstarf dafni í bæn-
um.
(Fréttatilkynning)
atkvæði. Það er krafa þessa fólks að
Alþingi myndi ríkisstjórn og að
þingið og stjórnin hefjist þeg ar
handa. Svo sem lög gera ráð fyrir!
Eins og fyrri daginn veit enginn á
þessari stundu hvað upp kemur í
næstu kosningum. En það er ekki
málið.
— Karlakór
Akureyrar
50 ára ...
(Framhald af bls. 8).
kórfélaga lagt drjúgan skerf til
fjáröflunar og í fyrra nam styrkur
frá bænum 450 þúsund krónum.
Starfsemi kórsins hefur ekki ein-
göngu verið bundin við Akureyri,
heldur hefur hann á liðnum árum
sungið um nær allt land og árið
1967 fór hann í söngför til Norður-
landa. Hljómplata kom út á vegum
kórsins árið 1975.
Fyrsti formaður Karlakórs Ak-
ureyrar var Áskell Snorrason, en
hann var aðalhvatamaður að
stofnun hans, ásamt Þóri Jónssyni.
Jónas Jónsson frá Brekknakoti á
lengstan feril sem formaður, á
annan áratug. Sá sem lengst hefur
setið í stjórn kórsins er Steingrímur
Eggertsson, samtals í 24 ár.
Söngstjórar hafa verið frá upp-
hafi: Áskell Snorrason, Sveinn
Bjarman, Áskell Jónsson, Jakob
Tryggvason, Jón Þórarinsson,
Guðmundur Jóhannsson, Jón
Hlöðver Áskelsson, Jón Hjörleifur
Jónsson, Guðmundur Þorsteinsson
og 1977 tók Guðmundur Jóhanns-
son aftur við söngstjórn kórsins.
Þess má geta, að Karlakór Akur-
eyrar var fyrr á árum oft nefndur
„Rauði kórinn“ sökum þess, að
kórfélagar þóttu þá hafa nokkuð
einlitar stjórnmálaskoðanir.
Tveir nýir
framkvæmda-
stjórar
JÓN SIGURÐARSON, verk-
smstj. Plasteinangrunar hf. á
Akureyri, hefur verið ráðinn að-
stoðarverksmiðjustjóri við
Skinnaverksmiðjuna Iðunni.
Mun hann starfa þar með
Ragnari Ólasyni verksmiðju-
stjóra. Eftirmaður Jóns við
Plasteinangrun hf. hefur verið
ráðinn Gunnar Þórðarson.
Jón Sigurðarson er 27 ára gam-
all. Hann lauk námi í efnaverk-
fræði frá Verkfræðiháskólanum í
Danmörku 1977, og hefur síðan
starfað hjá Plasteinangrun hf„ þar
af sem verksmiðjustjóri frá því í
júní 1977. Hann tekur við nýja
starfinu hinn 1. maí. Jón er kvænt-
ur Sigríði Pétursdóttur, og eiga þau
tvö börn.
Gunnar Þórðarson er 27 ára
gamall, og lauk hann prófi í efna-
verkfræði frá Imperial College í
London 1977. Síðan hefur hann
starfað hjá Iðnaðardeild Sam-
bandsins á Akureyri við ýmis sér-
verkefni, m.a. á sviði áætlanagerð-
ar. Hann tekur til starfa hjá Plast-
einangrun hf. hinn 1. mars.
Kelduhverfi:
HART
IBAK
UNGMENNAFÉLAGIÐ
Leifur heppni í Kelduhverfi
hóf fyrir skömmu æfingar á
leikritinu Hart i bak Jökul
Jakobsson. Leikstjóri er
leikarinn Saga Jónsdóttir.
Áætlað er að frumsýna leik-
ritið um mánaðamótin febrúar
— mars. Ungmennafélagarnir
æfa nú af Jcappi og eflaust
verður sýningin ágæt.
Brottfluttir Önguls-
staðahreppsbúar
ÞORRABLÓT verður í Freyvangi laugardaginn 9.
febrúar kl. 20.30 stundvíslega. Miðapantanir hjá
Ævari í síma 23019 eftir kl. 7 á kvöldin til og með
mánudegi 4. febrúar.
Takmarka verður boðsgesti vió tvo á hvert þátt-
tökuheimili innan hreppsins. Brottfluttum hrepps-
búum er óheimilt að taka með sér gesti. Aldurstak-
mark ’64 og eldra. Verið öll velkomin.
ÁRROÐINN.
6.DAGUR