Dagur - 12.02.1980, Blaðsíða 1

Dagur - 12.02.1980, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR- HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI DAGXJR LXIII. árgangur Akureyri, þriðjudagur 12. febrúar 1980 10. tölublað Fjárhagsáætlun Akureyrar 1980: Verðbólpan dregur ur fram kvæmdagetu Ný ríkisstjórn undir forsæti Gunnars Thoroddsens tók við völdum s.l. föstudag. Á myndinni eru nýju ráðherrarnir ásamt forseta fslands dr. Kristjáni Eldjárn. Ráðherrar stjórnarinnar eru t.f.v.: Pálmi Jónsson, landbúnaðarráðherra, Friðjón Þórðarson, dóms- og kirkjumálaráðhcrra, Tómas Árnason, viðskiptaráðherra, Steingrfmur Hermannsson, sjávarútvegs- og samgönguráðherra, Gunnar Thoroddsen, forsætisráð- licrra, Ólafur Jóhannesson, utanríkisráðherra, Ragnar Arn- alds, fjármálaráðherra, Svavar Gestsson, félags-, heilbrigðis- og tryggingaráðherra, Hjörieifur Guttormsson, iðnaðar- og orkumálaráðherra, og Ingvar Gíslason, menntamálaráðherra. Norðurlandskjördæmi eystra eignast ráðherra: Mörg mikilvæg mál þarfnast úrlausnar — segir Ingvar Gíslason, menntamálaráðherra AÐ UNDANFÖRNU hefur bæjarráð unnið að uppsetningu f járhagsáætlunar 1980 og kemur hún til fyrri umræðu í bæjar- stjórn í dag. Fjárhagsáætlunin er seinni á ferðinni en oftast áður og kemur margt til — einkum þó óvissa í ríkisfjármál- unum sem tengist á ýmsan máta rekstri sveitarfélaga. Við bráðabirgðauppgjör hefur áætlunin fyrir 1979 staðist í stórum dráttum þrátt fyrir mikla verð- bólgu, enda var gert ráð fyrir áframhaldandi óðaverðbólgu strax í upphafi ársins. Við gerð fjárhags- áætlunar fyrir árið 1980 hefur bæj- arráð gert ráð fyrir mikilli verð- bólgu á árinu og endurspeglast það í rekstraráætluninni sem hækkar yfir 50% miil': ára þrátt fyrir óbreyttan rekstur. Til samanburðar má nefna að á síðasta ári voru rekstrargjöld áætl- uð 3.336 milljónir, sem samkvæmt áætluninni í ár eru 5.327 milljónir króna, en það er yfir 59% hækkun. Tekjur á síðastliðnu ári voru áætl- aðar 3.846 milljónir króna, en eru í ár áætlaðar 5.898 milljónir króna. Það er rúmlega 53% hækkun. Féll fyrir borð ÞAÐ óhapp vildi til um borð í Haferninum frá Hrísey s.l. föstudag að ungur maður féll fyrir borð á siglingu, en náð- ist skjótt aftur. Báturinn var í mynni Eyjafjarðar þegar at- burðurinn átti sér stað. „Það að þeir náðu manninum kalla ég mikið happ,“ sagði Sigurður Finnbogason, frétta- ritari Dags í Hrísey. „Sjómað- urinn var nokkra stund i sjón- um. Hann hefur verið við rúmið síðan þeir komu í land, enda ekki nema von. Sjórinn er ákaf- lega kaldur þarna úti á þessum árstíma.“ Sá sem féll fyrir borð heitir Sigurður Jóhannsson, en skip- stjórinn um borð er faðir hans, Jóhann Sigurbjörnsson. Sigurð- ur er á þrítugsaldri. Hlýtur þessi mismunur á rekstrar- kostnaði og tekjum að koma niður á framlögum til ýmissa nýbygginga þrátt fyrir að gert er ráð fyrir mjög auknum lántökum. Að öðru leyti vísast til sundurliðunar á stærstu liðum sem birtist á auglýsingasíðu. Þess má geta að til endurbygg- inga og nýlagna gatna, þar með talið malbik, er ætlað að verja 962 milljónum króna á móti 611 milljónum á síðasta ári og hefur því framlagið haldið verðhlutfalli sínu. Af einstökum verkefnum má nefna: framlag til Byggðasjóðs verkamanna er áætlað að verja 100 milljónum, byggingastyrkur til dvalarheimilanna 36 milljónir, til F.S.A. 160 milljónir (gegn því að framlag ríkissjóðs verði rúmar 800 milljónir), til Glerárskóla 150 milljónir, til svæðisíþróttahúss 220 milljónir (ríkisframlag til tveggja síðastnefndu aðilanna eru óákveð- in), dagvistunarstofnun í Glerár- hverfi 120 milljónir, til byggingu leiguíbúða 50 milljónir og til sund- laugar í Glerárhverfi 22 milljónir. Meðal styrkja til félaga má nefna: Leikfélag Akureyrar 42,5 milljónir, l.B.A. 26 milljónir, vegna uppbyggingar íþróttamannvirkja KA 4,5 milljónir og Þórs 4,5 milljónir, Golfklúbbur Akureyrar 2.2 og Skautafélagið 1,5. Auk þess ætlar bærinn að verja 15 milljónum í vélavinnu vegna íþróttafélaganna. Sjálfsbjörg 12 milljónir (þar af byggingastyrkur 5 milljónir), Myndlistarskóli Akureyrar 14 milljónir og byggingastyrkur til Tónlistarskólans 10 milljónir. Nánar verður greint frá hugsan- (Framhald á bls. 6). HLJÓMPLÖTUSAFN stúdíós útvarpsins á Akureyri hefur aukist stóriega, síðan Dagur greindi frá því að Heiðdís Norðfjörð hefði gefið fyrstu plötuna, sem gæti hugsanlega orðið vísir að safni. Nú eru hljómplötur stúdíósins orðnar 45 að tölu, því s.l. laugardag af- henti Pálmi Stefánsson, eigandi Tónabúðarinnar á Akureyri, 44 hljómplötur I safnið, sem Tóna- útgáfan á Akureyri hefur gefið út á undanförnum árum. Pálmi sagði í viðtali við Dag, að þetta væru allar plötur útgáfunnar, — Mér líst ákaflega vel á starfið og hlakka til þess að gegna því, sagði Ingvar Gísla- son, alþingismaður í Norð- urlandskjördæmi eystra, sem nú er orðinn menntamálaráðherra í stjórn Gunnars Thoroddsens, í viðtali við Dag. nema 2-3 sem væru nú orðnar ófá- anlegar. Hann sagði að flestar plöturnar væru með flytjendum héðan að norðan og gætu þær von- andi orðið að einhverju liði við gerð dagskrárþátta frá Norður- landi. Hann sagði, að það hlyti að vera erfiðleikum bundið, að gera dag- skrárþætti með blönduðu efni, þegar annað hvort þyrfti að fá plötur sendar frá Reykjavík, eða skeyta þyrfti tónlistina inn í þættina fyrir sunnan. Sagðist hann vonast til, að fleiri útgáfufyrirtæki kæmu i kjölfarið, svo að virkilega yrði hægt að gera dagskrár í stúdíói útvarps- ins í gamla Reykhúsinu. — Ég hef alla tíð haft mikinn áhuga á mennta- og menningar- málum og starfað all mikið að þessum málum hér í þinginu, með- al annars verið formaður mennta- málanefndar neðri deildar. Þetta er geyilega víðtækt ráðuneyti, þar sem skólamálin eru stærstur hluti starfsins, en auk þess á fjöldi ann- arra mála undir ráðuneytið. — Nú er gert ráð fyrir aðhaldi í ríkisrekstrinum í samstarfs- samningi ríkisstjórnarinnar. Óttast þú ekki að þitt ráðuneyti verði fyrir barðinu á þessum aðhaldsaðgerð- um umfram aðra málaflokka, eins og svo oft hefur viljað brenna við? — Égóttastekkiaðþaðeigieftir að koma sérstaklega niður á mínu ráðuneyti, en éggeri mér hins vegar grein fyrir því, að ég þarf að taka þátt í þessum aðhaldsaðgerðum eins og aðrir ráðherrar. Mörg ákaflega mikilvæg mál þarfnast úrlausnar og ég nefni sem dæmi safnamálin, enda fær Þjóð- arbókhlaðan sérstakan forgang í samstarfssamningnum. Fleira mætti nefna, svo sem dreifikerfi útvarps og sjónvarps, sem þarfnast endurbóta. I þeim málum þarf að framkvæma áætlun, sem Vilhjálm- ur Hjálmarsson, fyrrverandi menntamálaráðherra, lagði drög að á sínum tíma. Ríkisútvarpinu hefur enn ekki tekist að eignast eigið húsnæði, þótt stofnunin sé nú orðin 50 ára gömul, og ég tel mjög brýnt að stofnunin eignist þak yfir höfuðið. Þá vil ég nefna ýmiss konar frjálst menningar- og félagsstarf, sem ég tel að þurfi að efla. Það er misskilningur þegar menn halda, að sóað sé miklu fé til þessarar starfsemi hér hjá okkur. Upphæð- irnar eru ekki háar þegar horft er á heildina. Ég er þeirrar skoðunar að meira fé eigi að leggja til frjálsrar menningar- og listastarfsemi og dettur í hug, t.d. hjá okkur á Akur- eyri, leiklistar- tónlistar- og mynd- listarstarfsemi, sagði Ingvar Gísla- son, menntamálaráðherra. Ingvar Gíslason er fæddur 28. mars 1926 í Nesi í Norðfirði. For- eldrar hans eru Gísli Kristjánsson, fyrrverandi útgerðarmaður þar og síðar á Akureyri og í Hafnarfirði, og kona hans Fanney Kristín Ing- varsdóttir. Ingvar er kvæntur Ólöfu Auði Erlingsdóttur og eiga þau 5 börn. Ingvar er stúdent frá M.A. 1947 og cand. juris frá Háskóla íslands 1956. Hann varð þingmaður Framsóknarflokksins í Norður- landskjördæmi eystra 1961. Útvarp Akureyri: Plötusafnið stækkar Tónabúðin gefur 44 hljómplötur Fjölgar Ú.A. starfsfólki? ANNAR framkvæmdastjóra Ú.A. upplýsti fyrir skömmu á fundi með atvinnumálanefnd að stefnt væri að því á þessu ári að auka frystigetu fyrirtækisins á þessu ári. Hann sagði að e.t.v. yrði mögulegt að fjölga starfsfólki um 50 manns ef áætlunin stæðist. Akureyrarbær yfirtekur rekstur SVA STRÆTISVAGNANEFND Ak- ureyrar hefur lagt til að Akureyr- arbær yfirtaki rekstur strætisvagn- anna um næstu áramót. Jafnframt verði gerður nánari samningur milli SVA og Akureyrarbæjar um kaup á þeim vögnum sem Jón Egilsson hefur tryggt sér hjá SVR, ennfremur afnot af verkstæðishúsi. Tré fyrir milljón BÆJARSTJÓRN Húsavíkur samþykkti í tilefni af ári trésins að veita eina milljón til kaupa á trjám til gróðursetningar í bæn- um á 30 ára afmæli bæjarins. Biðskylda við Löngu-, Víði- og Engimýri UMFERÐARNEFND hefur lagt til að biðskylda verði sett á Löngumýri, Víðimýri og Engi- mýri, þannig að umferð um þess- ar götur víki fyrir umferð um Hamarsstíg. Vilja lána Hitaveitu Akureyrar CITYBANK í London, sem fjár- magnað hefur erlend lán til Hita-1 veitu Akureyrar, hefur boðist til að lána H.A. 5,5 milljónir dollara j á þeSsu ári.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.