Dagur - 20.03.1980, Page 3
íslandsmeistarar Þórs:
Langbestir í
sínum aldurs-
flokki
ÞÓRSARAR gerðu góða
ferð suður um helgina. Á
laugardag léku þeir tvo leiki,
unnu HK 8-6 en töpuðu fyrir
Val 8-10. í leiknum við HK
spiluðu Þórsarar mjög vel og
var sigurinn aldrei í hættu.
Mörk: Halldór 6 og Friðrik
og Heiðar 1 hvor.
í leiknum við Val fataðist
strákunum flugið í seinni hálf-
leik, því staðan í leikhiéi var 4-3.
Mörk: Oddur 3, Friðrik 2,
Einar, Halldór og Heiðar 1
hver.
Þá rann sunnudagurinn upp.
Strákamir léku fjóra leiki og
með því að sigra í þeim öllum
sönnuðu þeir að Þórsarar voru
bestir allra á íslandi í sínum
aidursflokki. Sannarlega þeirra
dagur.
Fyrsti leikurinn var gegn
Haukum. Það var leikur kattar-
ins að músinni, slíkir vom yfir-
burðir Þórsara. Markatalan 9-5.
Mörk: Oddur 3, Halldór og
Heiðar 2 hvor og Friðrik og
Einar I hvor.
Næst var leikið við Fylki,
strákamir léku sama leikinn og
gegn Haukum og sigruðu 8-4.
Mörk: Heiðar 4, Oddur 2, Frið-
rik og Einar I hvor.
KRingar voru engin hindrun
fyrir Þórsara og sigraði Þór ör-
ugglega 13-10.
Mörk: Halldór 6, Oddur og
Heiðar 2 hvor, Friðrik og
Gunnar I hvor.
Síðasti leikurinn var gegn
Víkingi. I þeim leik urðu Þórs-
arar að taka á honum stóra sín-
um til að knýja fram sigurinn
10-7. Eiður markmaður var
góður í þessum leik og lagði
öðrum fremur grunninn að
sigrinum varði hann meðal
annars tvö vítaköst.
Mörk: Heiðar 3, Halldór,
Gunnar og Oddur 2 hver og
Einar 1.
Þjálfarar 4. flokks eru Árni
Stefánsson og Guðmundur
Skarphéðinsson.
Þá er aðeins eftir að óska
Þórsurum til hamingju með Is-
landsmeistaratitilinn; til ham-
ingju Þórsarar!
Góður andi og
góðir þjálfarar
UNDIRRITAÐUR lagði
nokkrar spurningar fyrir Hall-
dór Áskelsson fyrirliða hinna
nýbökuðu Islandsmeistara.
Hver var erfiðasti leikurinn?
„HK leikurinn og leikurinn
við Víking.“
Kom það þér á óvart að þið
voruð bestir?
„Nei ekkert mikið, við erum
búnir að æfa það mikið og vel
og erum með gott lið.“
Hveju viltu þakka þennan
ágæta árangur?
„Góður andi, við höfum æft
vel og góðir þjálfarar.“
Ég þakka Halldóri fyrir við-
talið og óska Islandsmeisturun-
um alls hins besta. „
ö.
AUGLÝSIÐ í DEGI
24167
DAGUR
Vz útborgun
afgangurinn á 2 mán.
Sporthú^id.
HAFNARSTRÆTI 94
SÍMI 24350
allar leióir
okkar
VORUVAL I 7 SÖLUDEILDUM
HAFNARSTRÆTI & HRÍSALUNDI
ÞU GETUR TREYST ÞVI, ÞEGAR
□ COMBI-RAÐHÚSGÖGN ERÚ SÆNSK GÆÐAVARA Á
ÓTRÚLEGA GÓÐU VERÐI
□ ÓENDANLEGIR MÖGULEIKAR MEÐ STÓRUM OG SMÁ-
UM EININGUM % AUÐVELT I UPPSETNINGU
□ COMBI-RAÐHÚSGÖGNIN ERU FALLEG OG ÞRÆL-
STERK, ÞOLA T.D. SIGARETTU-GLÓÐ ÁN ÞESS AÐ
BRENNA
□ HENTA Á SKRIFSTOFUNNI SEM HEIMILINU
HRISALUNDI
88 j j j m
ss
DAGUR.3