Dagur


Dagur - 28.03.1980, Qupperneq 3

Dagur - 28.03.1980, Qupperneq 3
Vandasamara að bæta umhverfið en spilla því L ALLIR HLUTIR og öll fyrirbæri efnisheimsins hafa sitt umhverfi, þ.e. það efni eða þau fyrirbæri sem umlykja það eða standa því næst í tíma og rúmi. Margs konar efna- skipti og önnur víxlverkun á sér stað milli hlutanna og umhverfis- ins. Þetta á ekki hvað sízt við um lífverur, hvar í flokki sem þær standa og hperju nafni sem nefnast. Hið jarðneska líf þeirra, sem við þekkjum, byggist allt á margvísleg- um efnaskiptum við umhverfið. Þaðan fá langflestar þeirra sitt „lífsloft" (súrefni), vatn og næringu en láta í staðinn frá sér margskonar úrgang og verða sjálfar að svipuð- MAÐUR OG UHHVERFI eftir Helga Hallgrímsson ,um úrgangi þegar þær deyja. Þessi úrgangur notast öðrum lífverum til fæðu og svo koll af kolli. Þegar umrædd efni eru fyrir hendi í nægilegu magni, ásamt hæfilegum hita og rakastigi, er umhverfið kallað lífvœnlegt, eða lífsskilyrði fyrir hendi. II. Á stórum hlutum jarðkúlunnar eru lífsskilyrðin bágborin, t.d. á eyðimörkum (vegna vatnsskorts) og jöklum (vegna kulda o.fl.). Á tunglinu vitum við nú að eru engin lífsskilyrði og svo mun yfirleitt vera um hnettina í sólkerfi voru. Lítum við okkur nær, sjáum við að mikill hluti íslands er einnig til lítilla nytja fyrir lífverur. Sand- og grjótauðnimar á Miðhálendinu eru ekkert annað en eyðimerkur, meira að segja sömu ættar og Sahara, þ.e. vegna vatnsskorts fyrst og fremst, og um jöklana þarf ekki að tala. Á láglendinu eru einnig til eyðimerk- ur, sem til hafa orðið af vatnagangi eða sandfoki, eða hvoru tveggja, t.d. Mýrdalssandur. Sé litið til hafsins verður eitthvað svipað uppi á teningnum, þar eru geysi víðlend hafsvæði um miðbik jarðarinnar nærri lífvana, einkum vegna nær- ingarskorts. Hafið umhverfis ís- land er hins vegar með þeim líf- auðugustu sem þekkjast. III. Það lætur því að líkum, hversu mikilvægt það sé, að viðhalda eig- inleikum hins tiltölulega takmark- aða lífvænlega umhverfis á jörð- inni. Leiða má rök að 8ví, að mannsskepnan hafi frá upphafi vega sinna verið mikill umhverfis- spillir. Hún hefur víðast hvar skilið eftir sig „sviðna jörð“ svipað og engisprettuplágurnar, og því orðið að vera á sífelldum flutningi um heiminn. Þó eru þess dæmi, að mannflokkar hafi lagað sig að um- hverfi sínu, og lifað í „sátt“ við það. Eru eskimóar á Grænlandi nær- tækt dæmi. í frjósömustu lendum jarðarinnar hefur manninum einn- ig tekist að viðhalda sér í heilbrigðu umhverfi í langan tíma, t.d. í Mið-Evrópu og Kína, með skyn- samlegri nýtingu og ræktun. Um þverbak keyrir þó með iðn- byltingunni og tæknivæðingu okk- ar tíma. Þá fyrst fær maðurinn þau tæki í hendur, að hann getur breytt umhverfi sínu á stuttum tíma. Því miður hafa þessar breytingar lang- oftast verið til hins verra, vegna vanþekkingar og skammsýni. Það er mun vandasamara að bæta um- hverfið en spilla því og það krefst mun meiri þekkingar. Þessi sorgar- saga er flestum svo kunn að óþarft mun vera að tíunda hana hér. FYRIRHUGAÐ er, að pistill þessi verði hinn fyrsti af fleiri slíkum um tónlist og tónlistarmál. Þegar í upphafi skal væntanlegun lesend- um flutt sú játning, að sá, sem hér heldur á penna ræður ekki yfir neinni fræðilegri þekkingu á tón- list. Er þá ekki nema von, að ein- hver háttvirtra lesenda hristi höf- uðið og furði sig á þeirri flónsku að takast á hendur ritmennsku sem þessa. Þeim hópi skulda ég þá skýringu, að ég lét tilleiðast, þegar aðstandendur þessa blaðs hringdu í mig og báðu mig að leggja til efni af þessu tagi. Sú skýring felst einkum í tveimur atriðum, sem ég vil nú reyna að setja fram í nokkrum orðum. Fyrst vil ég nefna staðreynd, sem snýr fyrst og fremst að sjálfum mér. Tónlist hefur mestan hluta ævi minnar verið mér hjartfólgið áhugamál. Virðist mér þar ekki verða breyting á þótt árin líði og ýmis þau efni, sem fyrr á árum vöktu með mér mikinn áhuga, hafi þokað um set. Hin staðreyndin snýr að sam- bandi þeirra manna, sem fjalla venjulega um tónlist á opinberum vettvangi, og hins umtalsverða hluta gesta og hlustenda á tónleik- um, sem ekki hafa til brunns að bera formlega þekkingu á tónlist. Þessi hópur er svo vissulega marg- falt stærri meðal þeirra, sem njóta tónlistar í fjölmiðlum. Hinir fyrr- nefndu fáu fjalla að sjálfsögðu um tónlist út frá sjónarhóli meira eða minna vel grundvallaðrar fræði- legrar þekkingar sinnar á listgrein- inni. Atriði þau, sem þeir fjalla um og viðhorf þau, sem þeir setja fram, eru því eðlilega oft á tíðum önnur en þau, sem hlustendahópnum fyrrnefnda finnst mestu varða. Ég tel sjálfan mig eðlilega í þeim hópi og sú tilhugsun, að ég gæti komið einhverjum sjónarmiðum þessa „þögla meirihluta" á framfæri í hinum væntanlegu pistlum kitlaði hégómagimdina ofurlítið og ýtti undir mig að láta slag standa og fara fram á ritvöllinn. Þessi inngangur virðist orðinn meira en nógu languí og rétt að gefa aðeins vísbendingu um efnis- val þessara þátta I framtíðinni. 1 upphafi og að óreyndu virðist mér, að tvö svið hljóti einkum að verða fyrir valinu, tónlistarlíf bæjarins og tónlistarflutningur fjölmiðla, sér í lagi hljóðvarpsins. Undanfarandi búsetuár mín hér í bæ hefi ég eftir föngum reynt að fylgjast með tónlistarviðburðum. Auðvitað hafa sumir farið framhjá mér og á yfirstandandi vetri hefur svo viljað til um óvenjumarga. Virðist reyndar hafa orðið hlé á þeim um háveturínn eftír dapur- lega reynslu tónlistarfélagsins af aðsókn að tónleikum aðfenginna flytjenda s.l. haust. Nokkrum dögum fyrr en þetta er ritað hugðist ég leggja mitt lóð á vogarskálar og keypti áskriftarkort að tónleikum vormánaðanna. Endurgjaldið lét heldur ekki á sér standa. Tveimur kvöldum síðar kom Hamrahlíðarkórinn, sá og sigraði fjölmennan áheyrendahóp í kirkjunni. Kórinn sá er þegar krýndur heiðri og frægð, svo að áheyrendur hafa vissulega búist við nokkru umfram sléttan og felldan söng blandaðs kórs. Slikt lét heldur ekki á sér standa og mætti þar um semja alllangt mál, en lengd þessa pistils leyfir ekki slíkt að sinni. Að- eins skal sagt, að allt lagðist þar á eitt, frábær stjórnandi, nægjanlega stór kór með vel öguðum flytjend- um og jafnvægi milli kven- og karlaradda. Þau atriði skapa kórn- um blæ eins hljómfagurs og yfir- máta vel stillts hljóðfæris. Þar við bættist svo örugg túlkun, fjölbreytt lagaval og útsetningar, sem létu fegurð samhljómsins birtast eyrum áheyrenda á hinn margvíslegasta hátt. Trúi ég ekki öðru, en kortkaup- endur hafi flestir haldið glaðir til síns heima um kvöldið, þóttst nokkuð hafa fengið fyrir snúð sinn og hlakkað til komandi vikna. Hamrahlíðarkórinn kom, sá og sigraði ISLENSKIHESTTJRTNN á sigurgöngu ÍSLAND PFERDE iSLANDS HESTEN ICELAND HORSE $ Samband fsl. samvinnufélaga Búvörudeild Sími 28200 -Pósthólf 180 Við íslendingar viljum eignast vini sem víðast og halda sessi okkar í samfélagi þjóðanna. Bera höfuð- ið hátt. Nú á dögum ber íslenski hesturinn hróður okkar til sífellt fleiri landa. Enginn aflar okkur fleiri vina. Fyrir um það bil aldarfjórðungi hóf Búvörudeild Sambandsins kynningu á ís- lenska hestinum á megin- landi Evrópu og áfram er unnið að því verkefni, beggja vegna Atlantshafsins. Ætlað er að um 50 þúsund útlendingar umgangist nú íslenska hestinn. Sigurganga hestsins okkar erlendis á sinn þátt í því að varpa Ijóma á aðrar íslenskar útflutningsafurðir og skapa þeim betri markaðsstöðu á erlendum vett- vangi. íslenskur ferða- iðnaður hefur meðal annars notið þess ríkulega á undan- förnum árum. 3

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.