Dagur - 28.03.1980, Side 7

Dagur - 28.03.1980, Side 7
Vörubfll er eitthvað sem allir skilja LEIKLIST eftir Viðar Eggertsson „ÓSKÖP er farið að hugsa vel um fólkið" segir Lovísa yngri, með nokkurri undrun og ánægju, í Her- bergi 213 sem Leikfélagið sýnir nú um þessar mundir. Ástæðan fyrir þessum orðum Lovísu er, að Albert arkitekt er að sýna henni nýja að- alskipulagið að bænum og þar kemur í ljós að ekki er bara gert ráð fyrir bílum og bílastæðum heldur einnig fólki og mannlífi. Einhvern- veginn hefur þessi setning sest að í huga mér og hljómað þar í tíma og ótíma. Skoðum þetta aðeins nánar. Er ekki eitthvað bogið við þetta manniíf okkar þegar ákvarðanir fulltrúa okkar eru á þá leið að við setjumst undrandi niður og segj- um: „Ósköp er farið að hugsa vel um fólkið"? Ekki fyrir löngu síðan vorum við sett í svipaða aðstöðu þegar það spurðist út að nýjasti menntamála- ráðherrann okkar væri hlynntur menningunni (!). Það þótti sem sagt tíðindum sæta að mennta- málaráðherra væri hlynntur me n- ingu — þetta hafði víst enginn fyr- irrennari hans látið út úr sér áður. Ég sem hef alltaf haldið að samfé- lag okkar væri til þess stofnað að okkur liði vel. Ekki bara til þess að skipuleggja vinnuþrælkun á meðal þegnanna til að afla brauðs, heldur fremur til þess að auka þroska og manngildi, og gera okkur lífið bærilegra. Enda eld ég að það sé engin fáviska að halda því fram að þjóð án menningar líði undir lok. Það er heldur engin fáviska að halda því fram að menning sé okk- ur jafn nauðsynleg og brauð — þ.e.a.s. ef við viljum halda okkur lengra komin í þróunarsögunni en aðrar dýrategundir. Þetta sannar líka sú staðreynd að meðal al- mennra þegna landsins ríkir mikill áhugi á hvers konar listum. Það er varla til svo lítið sveitafélag að þar sé ekki leikfélag eða kór,. einhver sem setur saman vísur, spilar á píanó, málar myndir o.s.frv. Allir, já hver og einn, hvaða störfum sem hann gegnir hefur þörf fyrir að njóta og skapa menningarverð- mæti. Það gerir okkur að þjóð m.a. Okkur nægir ekki að vernda þau menningarverðmæti sem fyrir hendi eru. Við verðum sífellt að þróa menningu okkar — skapa nýja list. Og list er ekki bara af- þreying né skemmtanaiðnaður. Hún er skoðun á mögulegum og ómögulegum litbrigðum mannlífs- ins. Alvarleg og framsækin list kostar peninga og það verðum við að skilja og gera það upp við okkur hvort við viljum hafa ábyrga menningarstefnu eða ekki. Pólitíkusarnir okkar tala ógjarn- an um menningarpólitík. Það er einna helst að þeir fjölyrði um gildi menningar í hátíða- og skálaræð- um þar sem þeir láta uppi þá vitn- eskju sína að öflug innlend menn- ing sé hornsteinn íslensks þjóðfé- lags. En samt þegar skugga bregður á þjóðarbúskapinn, þá á ávallt að skera niður framlög til menningar og því lætt inn hjá þjóðinni að í rauninni sé þetta menningarbrölt ekkert annað en lúxus og það að fólk fái að hafa afkomu sína af sltku sé barasta óvenjulegt um- burðarlyndi. Homsteinninn er þá bara lúxus. Skoðum hlutina aðeins nánar. Hve stór hluti er þessi lúxus af ríkisútgjöldum? Það kom í ljós við skoðun fjárlagafrumvarps síð- asta árs að framlög til skapandi listastarfsemi námu hvorki meira né minna en 0,46%. En nú höfum við menntamálaráðherra sem er hlynntur menningunni, svo von- andi megum við sjá fram á bjartari daga. — Vissuð þið að framlag til lista- og menningarmála voru rúm 4% af ríkisútgjöldum árið 1904? Þess má getaað framlög ríkis til wleikfélags Reykjavíkur og Leikfé- lags Akureyrar eru svipuð og við- komandi greiða í söluskatt, svo styrkurinn er ekkert annað en bók- haldslegt gabb, fyrir nú utan hvað það kostar í vinnustundum og pappír að framkvæma þá hringa- vitleysu. Einnig má hafa í huga þá athugun sem Ríkisútvarpið fékk Hagstofuna til að gera á viðskipt- um ríkis við skapandi listastarf. Það kom í ljós að ríkið kom út með (í grófum útreikningi) ca. 300 milljóna króna hagnað. Nú er tími fjárlaga, og forstöðu- menn listastofnana, sem og ann- arra, ganga á fund kjörinna fulltrúa okkar í bæjarráðum og fjárveit- inganefnd til að fara 8ess á leit við þá að þeir renni styrkari stoðum undir menninguna. Á fund þeirra fara forstöðumenn L.A. sem vita að atvinnuleikhús er ekki leikhús með örfáum fastráðnum starfsmönnum, heldur líka gjaldgeng leiklist. Til þess þarf fé og við verðum að gera upp við okkur hvort við viljum slíkt atvinnuleikhús eður ei. Að vonum er nokkur urgur í wleikfélagsfólki vegna fjárhagsstöðunnar og þetta ástand varð einum starfsmanni leikhússins tilefni til að semja eft- irfarandi bréf í fúlustu alvöru. Bréfið hefur reyndar ekki farið boðleið, en birting þess hér ætti að geta gefið viðkomandi aðilum svigrúm til að hugsa sitt ráð svo þeir verði viðbúnir að taka snögga og einarða afstöðu til erindisins ef það kemur til afgreiðslu: Til bœjarráðs A kureyrar. Erindi Leikfélags A kureyrar. Háttvirta bæjarráð. Hér með leitum við eftir styrk úr bæjarsjóði til kaupa á vörubíl. Við erum orðin þreytt á að eiga undir ykkur að sœkja með laun fyrir svo og svo marga leikara til þess að hœgt sé að halda gangandi leikhúsi, sem getur ekki gengið nema fyrir helm- ingi hærri fjárhœð en það hefur úr að spila. Við erum farin að skilja að leiklist er ekki það sem hefur að segja fyrir vöxt og viðgang bœjarfé- lagsins. Við erum orðin þreytt á að brúa bilið á milli styrkveitinga rikis og bæjar og gjaldgengrar leiklistar. Og síðar í sama bréfi segir: Við viljum sœkja um styrk til kaupa á vörubíl, vegna þess að vörubíll er eitthvað sem allir skilja. Vörubíll getur tekið virkan þátt í atvinnuuppbyggingunni og stuðlað þannig að auuinni hagsæld bœjar- búa. Vörubíll gœti á einum degi flutt allt drasl leikfélagsins burt úr Sam- komuhúsinu, upp á hauga, svo það yrði ekki lengur til trafala þeim sem kynnu að vilja nytja húsið til samfé- lagslegra nota, svo sem Kaupfélags- og mjólkursamlagsfunda. Leikfé- lagið gæti, ef það ætti vörubíl, tekið virkan þátt í að aka uppfyllingu í Akureyrarpoll, svo bæjarbúarþyrftu ekki lengur að þola þann hinn rotna og fúla. Að lokum viljum við koma að einu okkar hjartans áhugamáli, sem vegna menntunar okkar og þjálfun- ar gæti komið bœjarfélaginu til góða. Ef við hefðum til umráða vörubil mundi það vera okkur leikur einn að koma fyrir á palli hans litlu leiksviði, og vegna okkar ekki ástœðulausu föðurlandsástar mund- um við með glöðu geði œfa stundar- langt prógram, sem hœgt yrði að flytja á Ráðhústorgi 17. júní ár hvert, og svo væri ekki annað en setja bílinn í gang og aka út á íþróttavöll til að hœgt vœri að flytja prógrammið einnig þar. Með hjartans þökk fyrir ríkan skilning á liðnum árum, í von um að menningin og listin blómstri og eflist og að fólk flykkist í Leikhúsið, á tónleika og mynd- listasýningar og enginn þurfi að segja með undrun: „Ósköp er farið að hugsa vel um fólkið“, slæ ég botninn í þetta spjall. Stærsta og fullkomnasta hótel landsins, býðuryður þjónustu sína. 217 vel búin og þægileg herbergi, öll meðbaði, síma og sjónvarpstengingu. —!— Her erfullkomin funda- og ráðstefnu aðstaða. Fyrir fámennafundi sem fjölþjóða ráðstefnur I Veitingabuð færðu allskonar rétti á hóflegu verði. Glæsilegar veitingar. í Blómasal bjóðast veisluréttirog Ijúfar veitingar. Reynið kræs- ingar kalda borðsins í hádeginu. í hótelinu er rekin fjölþætt þjónustustarfsemi. Sundlaug og gufuböð, rakarastofa, hárgreiðslu- og snyrtistofur. Einnig verslun, ferðaþjónusta og bílaleiga er við hóteldyrnar. Heili heimur útaf fyrir sig. Er hægt 3ð hugsa sér það þægilegra? Verið velkomin HÓTEL LOFTLEIÐIR Reykjavíkurflugvelli Sími: 22322 7

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.