Dagur - 05.06.1980, Page 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGTJR
LXIII. árgangur. Akureyri, fimmtudagur 5. júní 1980
40. tölublað.
PLASTEINANGRUN:
Framleiða
fiskikassa
Plasteinangrun h.f., hefur
undirritað samning um fram-
leiðsluréttindi á fiskkössum.
Hér er um að ræða fiskkassa
frá norska fyrirtækinu Per. S.
Strömberg a/s. Framleiðsla
mun hefjast í lok þessa árs.
Fiskkassarnir verða einkum
seldir innanlands, en einnig er
ætlunin að flytja nokkurn
hluta þeirra út.
Starfsmenn norska samstarfs-
aðilans voru brautryðjendur í
framleiðslu fiskkassa. Þeir hafa
nú stofnað nýtt fyrirtæki, og
hannað nýjan og betri fiskkassa.
Þessi nýi kassi er seidur undir
nafninu Pers box. Hann hefur
þegar sannað ágæti sitt, og hlotið
góðar viðtökur hjá sjómönnum.
Plasteinangrun hefur í nokkur
ár framleitt trollkúlur og neta-
hringi með góðum árangri.
Plasteinangrun h.f., er nú nær
allsráðandi á þessum markaði
innanlands, jafnframt er nær
helmingur framleiðslunnar
fluttur út.
Notkun fiskkassa hefur unt
árabil verið allsráðandi á togur-
um, enda eykur notkun þeirra
nýtingu og geymsluþol fisks, og
auðveldar ntjög alla meðferð.
Ætla má að fluttir hafi verið inn
fiskkassar fyrir allt að einn
milljarð á ári, endan farin ár.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri:
Gunnar Þórðarson, framkv.stjóri
Plasteinangrunar h.f. Hjörtur Eiríks-
son, stjórnarformaður Plastcin-
angrunar h.f. Per Strömberg, for-
stjóri frá Noregi.
Gul eða
græn?
Samtök sykursjúkra á Akureyri,
sem undanfarið hafa staðið fyrir
einstæðri athugun á þvagsykri
meðál 25-65 ára Akureyringa,
hafa framlengt móttöku svar-
blaða um niðurstöður hvers ein-
staklings til mánudagsins 9. júní
n.k., því að fleiri þurfa að skila
svo að rétt mynd fáist.
Það er afar áríðandi og mikil-
vægt fyrir heildarniðurstöðu
þessarar athugunar, að sem allra
flestir skili blaði því, sem merkja
skal inn á lit þann, sem
þvagprufustrimillinn sýndi, hvort
sem hann var gulur eöa grœnn.
Þeir, sem kynnu í athugunarleysi
að hafa kastað eða eyðilagt þetta
blað, t.d. vegna þess að strimillinn
sýndi gulan lit, eru vinsamlegast
beðnir að tilkynna litarniður-
stöðu á miða, sem leggja má í
móttökukassana í apótekunum,
eða með því að hringja í Lækna-
miðstöðina, síma 25511, og til-
kynna litinn.
Samtök sykursjúkra skora á
alla 25-65 ára Akureyringa, sem
bréf hafa fengið, að svara þessari
einstæðu athugun og stuðla með
því, að sönn mynd af ástandi
þessa máls komi i ljós, rann-
sóknaraðilum öllum til gagns.
Gegn áfengi
Formaður félagsmálanefndar
Ólafsfjarðar, Björn Þór Ólafsson,
kynnti nefndinni fyrir skömmu
skilti sem komið hefur verið fyrir
á vinnustöðum í Ólafsfirði þar
sem frant koma tilmæli frá at-
vinnurekendum til starfsfólks um
að útvega ekki unglingum áfengi.
Áfengisvarnarráð hefur með út-
gáfu skiltanna að gera
Þó að ýmsir kenni olíukrepp-
unni margt það sem miður hefur
farið í íslensku efnahagslífi, er
hún ekki alvond, eins og greini-
lega kom fram í skýrslu Erlend-
ar Einarssonar á aðalfundi
Samvinnutrygginga, sem hald-
inn var á Akureyri á þriðjudag.
Olíukreppan er sem sagt talin
hafa haft góð áhrif á afkomu
bifreiðardeildar Samvinnu-
trygginga. Þar varð hagnaður að
upphæð 35,3 milljónir króna á
síðasta ári, á móti tapi upp á
151,3 milljónir 1978. Hækkun
iðgjalda milli ára skýrir ekki
þennan mismun, en hins vegar er
talið að á síðastá ári hafi orðið
10 prósent bensínsparnaður,
miðað við árið á undan, vegna
minni og hægari aksturs, sem
dregur úr bensínnotkun og jafn-
fram tjónatíðni.
Að öðru leyti má segja, að rekst-
ur Samvinnutrygginga hafi gengið
vel á síðasta ári og hagur fyrirtæk-
isins verið góður. Samtals varð
hagnaður af rekstri trygginga-
greinanna 152,8 milljónir á móti
66,8 milljónum árið áður. Hagnað-
ur varð af öllum greinum, nema
endurtryggingum.
í skýrslu fyrirtækisins kemur
fram, að samtals hafa 8.274 öku-
menn fengið frítt iðgjald vegna 10,
20 og 30 ára tjónlauss aksturs, þar
af 90 sem hafa ekið tjónlaust í 30 ár.
Auk þess hafa 16.835 ökumenn
fengið viðurkenningu fyrir 5 ára
tjónlausan akstur.
Jafnframt aðalfundi Samvinnu-
trygginga g.t. var haldinn aðal-
fundur Líftryggingafélagsins And-
vöku og Endurtryggingafélags
Samvinnutrygginga. Hjá Andvöku
varð metár í fyrra á sölu líftrygg-
inga og frjálsra slysatrygginga. Líf-
tryggingastofn jókst um 82,9% og
varð 32,1 milljaður. Hagnaður árs-
ins varð 37,2 milljónir og unnt var
að leggja 33 milljónir í bónussjóð
tryggingataka, sem ætti að auka
bónusgreiðslur til þeirra á næsta
ári. Hagnaður Endurtryggingafé-
lagsins nam 4 milljónum, þegar
búið var að leggja ríflega í iðgjalda-
og bótasjóði.
ÚTGERÐARFÉLAG AKUREYRINGA:
Rekstur gengur vel
Aðalfundur Útgerðarfélags Ak-
ureyringa var haldinn á mánu-
dagskv91d. Rekstur félagsins ár-
ið 1979 gekk vel þegar á heildina
er litið, þrátt fyrir ýmsa erfið-
leika vegna takmarkana á
þorskveiðum. Þorskafli togar-
anna varð 12.600 lestir, eða 58,3
prósent af heildaraflanum, sem
varð 21.670 lestir. Árið 1978
varð þorskaflinn 12.470 lestir
eða 65,3 prósent af 19.100 lesta
heildarafla.
Aflahæsta skipið varð Kaldbak-
ur með 5.670 lestir og næstur varð
Þessi mynd er tekin á aðalfundi Samvinnutrygginga, þegar Erlendur Einarsson,
formaður stjórnar flutti skýrslu sína. Mynd: h.s.
Harðbakur með 5.150 lestir. Lang-
mestum hluta aflans, eða 20.780
lestum, var landað á Akureyri, 800
lestum utan Akureyrar og siglt var
með einn 86 lesta farm til Eng-
lands.
Samkvæmt nýju reikningsupp-
gjöri vegna nýrra skattalaga var
mikið bókfært tap á rekstri togar-
anna, nema á rekstri Sólbaks.
Nokkurt tap var á sama hátt á
rekstri frystihússins, en skreiðar-
verkunin skilaði hagnaði og salt-
fiskverkunin kom nær slétt út eftir
árið.
Á rekstrarreikningi eru 630
milljónir króna afgangs fyrir af-
skriftir, sem nema nærri 600
milljónum króna. Hagnaður af
heildarrekstri Ú.A. fyrir skatta og
arðgreiðslur, nam 30,7 milljónum
króna, en nettóhagnaður nam tæp-
lega 2 milljónum króna.
Aðalfundurinn samþykkti að
greiða 10% arð til hluthafa, samtals
6,6 milljónir. Þá var samþykkt á
fundinum samkvæmt tillögum
stjórnarinnar, að nafnverð hluta-
bréfanna yrði 10-faldað, þannig að
það verður nú 660 milljónir króna.
Á aðalfundinum voru ennfremur
gerðar verulegar breytingar á sam-
þykktum félagsins, sem flestar voru
vegna nýrra laga um hlutafélög. Á
árinu stóð félagið í verulegum fjár-
festingum vegna viðbyggingar og
endurbóta á frystihúsinu og mikill-
ar endurnýjunar og viðgerða á
Sléttbak.
Stjórn Útgerðarfélags Akureyr-
inga var endurkjörin, en hana
skipa: Jakob Frímannsson, Jón
Helgason, Sigurður Óli Brynjólfs-
son, Soffía Guðmundsdóttir og
Sverrir Leósson. Endurskoðendur
félagsins voru endurkjörnir Arn-
grímur Bjarnason og Kristján Ein-
arsson og ennfremur löggiltur end-
urskoðandi.
Dæla upp
öryggis
svæði
„Það er á áætlun að malbika
viðbótina 1982 og í sumar er
ætlunin að dæla upp öryggis-
svæði inn með nýju uppfylling-
unni, en henni er nú lokið,“
sagði Rúnar Sigmundsson, flug-
vallarstjóri um Akureyrarflug-
völl. „Einnig er hugmyndin að
bera ofan í lenginguna fínmalað
efni svo hægt sé að nota nýja
hlutann ef þörf krefur.“
Að sögn Rúnars lengist flug-
brautin um hálfan kílómetra þegar
nýi kaflinn kemst í notkun, sem
verður á árinu 1982 eins og fyrr
sagði. Hitt er svo aftur annað mál
hvort umrædd áætlun stenst.
BIFREIÐADEILD SAMVINNUTRYGGINGA:
Olíukreppan
dregur úr
bifreiðatjónum