Dagur - 05.06.1980, Blaðsíða 6

Dagur - 05.06.1980, Blaðsíða 6
Sálarrannsóknarfélag Akureyr- ar. Aðalfundur félagsins verður haldinn að Hótel Varðborg fimmtudaginn 12. júní kl. 20.30. Fundarefni. 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Úlfur Ragnarsson læknir talar. Stjórnin. Staðarfellsprestakall. Ferm- ingarguðsþjónusta að Ljósa- vatni kl. 11 n.k. sunnudag. Fermd verða: Björgvin Arnaldsson Fosshóli, Guðný Ingibjörg Grímsdóttir Rauðá, Sigurður Skarphéð- insson Úlfsbæ, Sigurveig Arnardóttir Lækjamóti. Fermingarguðsþjónusta að Lundarbrekku n.k. sunnu- dag kl. 2 e.h. Fermd verður Guðrún Sigurgeirsdóttir Lundarbrekku. Við guðs- þjónustuna verða gefin saman í hjónaband Frið- rikka Sigurgeirsdóttir frá Lundarbrekku og Ólafur Ólafsson úr Reykjavik. Sóknarprestur. Hjálpræðisherinn. Krakkar, í sumar verða barnasamkom- ur á fimmtudögum kl. 17.30 (í Strandgötu 21,) f.o.m. 1 dag. Sunnudaginn 8. júní kl. 13.30 í síðasta sinn sunnu- dagaskóli. Kvikmyndir o.fl. á dagskrá. Kl. 20.30 almenn samkoma. Allir velkomnir. Fíladelfia Lundargötu 12, Fimmtudag 5, samkoma kl. 8.30. Allir velkomnir. Laug- ardag 7. safnaðarsamkoma kl. 8.30. Sunnudag 8. sam- koma kl. 8.30. Fórn tekin í kristniboð. Allir velkomnir. Þess láðist að geta í síðasta Helgar-Degi, að það var Magnús Ársælsson, sem tók myndirnar með greininni um Hjálparsveit skáta. Gjafir og áheit: Til Akureyrar- kirkju kr. 2000 frá ónefndri konu. Til Strandarkirkju kr. 50.000 frá E.E. Bestu þakkir. Birgir Snæbjörnsson. SESSBBBHHHBSHHHSSHHHIsHalBSSBESHSHHHHSSSHHSBB B B B B B B B B B B B B B B B B B B B B B B B B B B B B H B H B B B B B B B 29. JUNI PÉTUR J. THORSTEINSSON Aðalskrifstofa stuðningsmanna Péturs J. Thor- steinsson á Norðurlandi er að Hafnarstræti 101 (Amarohúsinu) Akureyri. SÍMAR: 25300 og 25301. Opið virka daga kl. 14-19 og 20-22 laugardaga kl. 14-19 og sunnudaga kl. 14-17. * Allar upplýsingar um forsetakosningarnar. * Skráning sjálfboðaliða. * Tekið á móti framlögum í kosningasjóð. * NÚ FLYKKIR FÓLK SÉR UM PÉTUR THORSTEINSSON. Stuðningsmenn Péturs á Norðurlandi. HHHHHBHHBBHBBHHHBBHHHHBHHHHHBHHBHHBBHBBHHH BBBBBBBBHBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBB B _ H H b * x * iPioóin B B B B B B B B B B B B B H B B B B B B B B B B B B B B B B B B B B B B B B B B H B B B B Forsetakjör 1980: \ Akureyringar — Eyfirðingar Kynningarfund heldur VIGDfS FINNBOGADÓTTIR í Samkomuhúsinu 7. júní kl. 2 e.h. (húsið opnað kl. 1.30). ívar Aðalsteinsson leikur létt lög á píanó. Ávarp: Einar Kristjánsson, rithöfundur. Ávarp: Elín Antonsdóttir, húsmóðir. Ræða: Vigdís Finnbogadóttir. Fundarstjóri: Séra Bolli Gústavsson, Laufási. Mætið vel og stundvíslega. Stuðningsmenn. B B B B B B B B B H B B B B H B B B B H B B B B B B B H B B H H B B HBHBHHBBBHHHHHHBBHHHHBHBHHHBBBBHHHHBBHHHBH 6.DAGUR Stangveiðifélagið Flugan Aðalfundur verður haldinn að Hótel KEA sunnu- daginn 8. júní kl. 13.30. Venjuleg aðalfundarstörf. Ath. áður ósótt veiðileyfi verða seld eftir 15. júní. Stjórnin. Ný sending af gólfteppum Verð frá kr. 4.975,- pr. ferm. Kókosteppi kr. 7.640,- pr. ferm. Einnig ríamottur, gólplast, baðteppi og baðmottusett. Framsóknarmenn á Norðurlandi Alþingismennirnir Stefán Valgeirsson og Guð- mundur Bjarnason munu mæta á eftirtalda fundi: Fimmtudaginn 5. júní, kl 20.30 aðalfundur Fram- sóknarfélags Svalbarðsstr. Föstudagur 6. júní, kl. 20.30 almennur fundur í þinghúsinu að Grund. Laugardagur 7. júní kl. 16.00 almennur fundur í Garöar, Húsavík. Sunnudagur 8. júní kl. 14.00, almennur fundur í félagsheimilinu á Raufarhöfn. Sunnudagur 8. júní kl. 20.30, aðalfundur Fram- sóknarfélags N.-Þing. vestan heiðar í hótelinu á Kópaskeri. Mánudagur 9. júní kl. 21.00 aðalfundur Framsókn- arfélags N.-Þing austan heiðar í féiagsheimilinu á Þórshöfn. Föstudagur 13. júní, kl. 21.00 aðalfundur Framsóknarfél. Aðaldæla í félágsheimilinu. Kjörbúðum K.E.A. Nýtínd svartfuglsegg voru að koma í búðirnar. KJQRBUÐIR Gagn- fræðaskóla Akureyrar slitið í 50. sinn Gagnfræðaskóla Akureyrar var slitið 31. maí, og lauk þá 50. starfsári skólans. Skóla- stjóri, Sverrir Pálsson, minntist tveggja fyrrverandi kennara skólans, sem látist höfðu á skólaárinu, Odds Kristjánssonar og Arnórs Sigurjónssonar, en gat því næst helstu þátta í starfi skólans. Innritaðir nemendur voru alls 693, 220 í 11 deildum fram- haldsskólans og 473 í 21 deild grunnskólans. Kennarar voru 63, 42 fastakennarar og 21 stundakennari auk forfalla- og stuðningskennara, sem störfuðu aðeins skamman tíma. 16 sjúkraliðar með fullum starfsréttindum brautskráðust 1. mars, og hlaut Ragnheiður Sigfúsdóttir hæstu einkunnina, 9,05. — Á verslunarprófi hinu meira að loknu þriggja ára námi á viðskiptasviði urðu efst og jöfn Elín J. Jónsdóttir og Hjört- ur Steinbergsson, 8,7. Hæstu einkunn á heilbrigðis- sviði 2. bekkjar hlaut Lisbeth Grönvaldt Björnsson, 9,2, á uppeldissviði Matthildur Guðbrandsdóttir, 8,4 og á við- skiptasviði (almennu verslunar- prófi), Harpa Halldórsdóttir, 8,5. Grunnskólaprófi luku 152 nemendur, og hlutu 115 þeirra eða 75,66% rétt til náms á framhaldsskólastigi. Meðaltal' stiga á samræmdum prófum var vel yfir landsmeðaltali. Nokkrir nemendur hlutu verðlaun fyrir námsárangur og forystu í félagsmálum, bæði frá skólanum, Kaupmannafélagi Akureyrar, Lionsklúbbi Akur- eyrar og sendiráði Sambands- lýðveldisins Þýskalands. Sigurður Óli Brynjólfsson, formaður skólanefndar Akur- eyrar, flutti skólanum þakkir og árnaðaróskir skólanefndar og bæjarstjórnar Akureyrar í til- efni þess, nú lauk 50. starfs- ári hans. — 40 ára gagnfræð- ingar heimsóttu skólann, og hafði Sigurður Guðlaugsson rafvirki orð fyrir þeim. Þeir færðu skólanum að gjöf gamalt skólamerki úr silfri, greypt í fægðan stein. Var merkið tákn* átrúnaðar Helga magra, hamar og kross, fléttað í fangamark skólans. — 20 ára gagnfræðing- ar gáfu minningarskjöld um látinn bekkjarbróður, Karl Valdemar Eiðsson. — Harpa Halldórsdóttir, formaður nem- endaráðs, afhenti 200.000 króna afmælisgjöf til skólans frá nem- endum. 50 ára afmælis skólans verður einkum minnst 1. nóvember í haust, þegar hálf öld verður liðin, frá því er hann var settur í fyrstá sinn. K.A.- menn fjölmennum í sjálfboðavinnu á K.A.- völlinn n.k. laugardag kl. 9 f.h.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.