Dagur - 05.06.1980, Qupperneq 4
Útgefandi: ÚTGAFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur: Tryggvabraut 12, Akureyri
Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207
Sími auglýsinga og afgreiðslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON
Blaðamaður: ÁSKELL 'ÞÓRISSON
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf.
Samvinnurekstur
og einkarekstur
•v
, Nær eitt hundrað ár eru nú liðin,
síðan samvinnuhreyfingin hóf
starfsemi sína hér á landi. Á
þessum tíma hafa orðið mikiar
breytingar á öllum sviðum ís-
lensks þjóðlífs, og íslendingar
hafist úr örbirgð í það að verða
auðug þjóð. Samvinnuhreyfingin
hefur verið einn af aðalburðarás-
unum í þessari þróun. Markmið
íslensku samvinnufélaganna eru
byggð á grundvallarreglum sam-
vinnumanna um allan heim. Þau
miða að framförum og jöfnuði og
þessi markmið hafa haldist lítt
breytt, þrátt fyrir öra þróun þjóð-
félagsins og stóraukin umsvif
hreyfingarinnar á flestum sviðum
íslensks þjóðiífs.
Eitt gleggsta dæmið um vel-
gengni og réttmæti samvinnu-
hreyfingarinnar er Kaupfélag
Eyfirðinga. Það er ekki ofmælt að
segja, að við Eyjafjörðinn hafi
samvinnustarfið náð mestum
þroska, til hagsbóta fyrir alla íbúa
héraðsins. Kaupfélag Eyfirðinga
spannar alla þætti atvinnulífsins,
þar sem hver grein þess styrkir og
styður aðra. Heildarútkoman er
jafnan góð, þótt eitthvað bjáti á í
einstökum greinum. Því má segja
að samvinnureksturinn við Eyja-
fjörð sé dæmigerður fyrir það,
hvernig ætti að reka íslenska
þjóðfélagið almennt.
Fyrir íbúa Eyjafjarðarsvæðisins
er það mikilvægt, að þeir geri sér
grein fyrir því, að styrkur svæðis-
ins og íbúa þess er nátengdur
styrkleika og afkomu Kaupféiags
Eyfirðinga. Framhjá þeirri stað-
reynd verður ekki litið, hvort sem
mönnum líkar betur eða verr.
Stórfyrirtæki af Reykjavíkur-
svæðinu, sem hafa einkagróða að
meginmarkmiði, sækja það nú
fastar en nokkru sinni að sækja
ágóða í hendur Eyfirðinga. Þessi
fyrirtæki róa einungis á þau mið,
sem gefa góðan afla, en myndu
aldrei láta sér koma til hugar, að
reka útibú í smærri byggðum við
Eyjafjörð, þar sem smásöluversl-
un er nú rekin með tapi. Spurn-
ingin sem vaknar í þessu sam-
bandi er svo sú, hvort fjármagnið
sem þessi fyrirtæki afla, sé lagt
inn í lánastofnanir á Eyjafjarðar-
svæðinu, og komi þannig at-
vinnulífi á svæðinu tii góða.
Margir efast um að svo sé, og telja
að ágóðinn renni beint í vasa eig-
endanna eða til atvinnuuppbygg-
ingarinnar annarsstaðar en við
Eyjafjörð.
Samkeppni í verslunarrekstri
getur verið neytendum til góðs, en
menn ættu að hafa í huga, að það
er hægt að kaupa samkeppnina of
dýru verði.
Fleiri og betri
dagvistunarheimili
Það er ánægjulegt að loks sé farið
að skrifa um dagvistarmál í akur-
eyrsku blaði. Ég hef áður fengið
birtar greinar um sama efni í Degi,
og gríp þess vegna tækifærið fegins
hendi til að fara nánar í saumana á
þessu málefní.
Ég er alveg sammála áður
nefndum konum um það að dag-
vistarheimili eru ekki einungis
geymslustaðir fyrir börnin á meðan
foreldrarnir eru úti að vinna.
Sonur minn, sem nú er 16 ára,
var svo óheppinn að alast upp í
hverfi, þar sem öll börn á svipuðu
reki bjuggu hinum megin við mikla
umferðargötu. Hann var einbirni
og varð fljótt einmana. Ég fékk
enga dagvistun fyrir hann. Ég var
heimavinnandi og hafði þess vegna
töluverðan tíma til að vera með
honum. Ég las mikið fyrir hann,
lék við hann, fór með honum í
gönguferðir og ræddi við hann.
Þetta leiddi til þess að hann varð
óskaplega fullorðinslegur miðað
við aidur, og átti í miklum erfið-
leikum fyrstu 3 árin í skóla. Þá varð
hann að læra að umgangast önnur
böm og fullorðna.
Á dagheimilum læra börn að
umgangast hvert annað, taka tillit
til annarra, hlusta þegar aðrir tala,
að fullorðnir tali við þau og ráði
yfir þeim. Þar er einnig mikið af
þroskaleikföngum, sem ekkert
venjulegt heimili hefur efni á eða
aðstöðu til að hafa. Þar er góð að-
staða úti með rólum og vegasalti,
sandkössum, rennibrautum og
hringekjum á afgritum svæðum,
svo að engin hætta stafar af bíla-
umferð. Meira að segja börnum í
öruggri gæslu í einkagörðum stafar
alltaf einhver hætta af umferð.
Fimm ára gömul dóttir mín er á
eldribamadeildinni á Pálmholti.
Þar hafa nú í vetur og vor verið
tekin fyrir ýmis efni, svo sem fjöl-
skyldan, höfuðskepnurnar fjórar
og nú síðast vorið. Hún hefur lært
heilmikið, sem ég held að foreldr-
um gleymist oft að segja börnum
sínum frá. Það styrkir sjálfstraust
hennar að öðlast þekkingu á þeim
heimi sem hún lifir í. Það sem ég vil
koma á framfæri með þessu er sú
staðreynd að dagvistarheimili hafa
mikilvægt uppeldislegt hlutverk,
sem ekki er á færi venjulegrar fjöl-
skyldu í nútímaþjóðfélagi að sinna.
í bændaþjóðfélaginu voru börn-
in með fjölskyldu sinni og foreldr-
um við vinnu frá unga aldri. Þau
kynntust á þann hátt framtíðar at-
vinnu sinni og kjörum á eðlilegan
hátt. Alveg eins og refurinn lærir að
verða refur af að vera með foreldr-
um sínum, eins og apinn lærir að
verða api af að vera með félögum
af eigin tegund.
Það væri dásamlegt ef bömin
okkar ættu einnig sinn eðlilega stað
í þjóðfélaginu. Að þau uppfylltu
þörf í samfélaginu, í stað þess að
vera geymd frá æsku þar til þau
komast á þann aldur að þörf er fyrir
þau á vinnumarkaðnum. En hver
okkar óskar í raun og veru eftir því
að hverfa aftur um 100 ár, jafnvel
þótt börnin hafi verið eðlilegur
þáttur samfélagsins þá? Ekki ég.
Vinna í samfélagi okkar er flókið
fyrirbæri. Það væri ekki mikið vit í
að fara með dóttur mína með mér í
skólann þar sem ég kenni né fyrir
slipparann, skrifstofustúlkuna, af-
greiðslumanninn o.s.frv. að fara
með börnin með sér. Þau myndu
ekki læra neitt að ráði. Þeim mundi
leiðast og þau gætu líka auðveld-
lega meitt sig. Fyrst þjóðfélagið er
nú einu sinni þannig verður að taka
tillit til þess. Það verður einnig að
taka tillit til barnanna okkar. Við
megum ekki bara fleygja þeim frá
okkur hingað og þangað. Við verð-
um að hlúa sem best að þeim þar
sem þeirra er gætt. Það er mín
sterkasta sannfæring að það sé best
gert með því að þau séu hluta úr
deginum á dagvistarheimili undir
leiðsögn velmenntaðs starfsfólks.
Það er nauðsynlegt fyrir margt
fullorðið fólk að börn þeirra séu á
dagvistarheimilum, og nauðsyn
fyrir öll börn að eiga kost á dvöl þar.
Við Soffíu vil ég segja að það
kemur mér spánskt fyrir sjónir að
þú skulir ekki nefna einu orði hóp-
inn sem þú veist að hefur barist
fyrir úrbótum í dagvistarmálum í
vetur og vor. Við höfum ekki bara
setið og skrafað, heldur tekið þátt í
kröfugöngu á Akureyri, gefið út
dreifirit sem borið var í hvert hús
að heita má, skrifað í blöðin, tekið
upp önnur baráttumál eins og fæð-
ingarorlof, að ógleymdri mis-
heppnaðri tilraun til að ná tali af
bæjarfulltrúum í vetur. Þetta allt
veist þú. Þess vegna hefur það vak-
ið furðu okkar að þú skulir ekki
hafa haft sambandá við þennan
hóp þegar þörf hefur verið. Það
hefur stundum komið fyrir að við
höfum komist að hinu og þessu af
hreinni tilviljun og í gegnum
krókaleiðir. Það hlýtur að vera afar
gleðilegt fyrir þig eftir öll þessi ár
sem þú hefur hvergi fundið fyrir
neinum stuðningi, að hópur eins og
þessi skuli standa þér að baki.
Manaðu þig upp kona — og hafðu
samvinnu við okkur!
Við Ragnheiði vil ég segja að
hvað sem öðru líður þá ræður for-
stöðukona Pálmholts engu um
hversu mörg dagheimili bæjar-
stjómin byggir. Það liggur nefni-
lega þannig í því að forstöðukonur
dagvistarstofnana bæjarins lögðu
þá ósk fyrir félagsmálaráð í
nóvemberlok að breyta reglunni
um að börn giftra foreldra gætu
aðeins dvalið tvö ár í senn á dag-
vistarheimili. Þetta gerðu þær fyrst
og fremst af uppeldislegum ástæð-
um. Þessu yrði sem sé breytt í 3 ár.
Þær bentu á að þessu væri unnt að
hrinda í framkvæmd án þess að
biðlistar lengdust. Dagheimilið í
Glerárþorpi yrði tilbúið vorið 1980,
bæði samkvæmt kosningaloforð-
um og loforðum við afgreiðslu
næstu fjárhagsáætlunar á undan.
Ráðið varð við þessari ósk án at-
Annetta Bauder Jensen svarar Ragn-
heiði Hansdóttur og Soffiu Cuðmunds-
dóttur.
hugasemda. Samt hlaut meðlimum
ráðsins að vera það mætavel kunn-
ugt á þessum tíma að þetta dag-
heimili yrði ekki tilbúið á ráðgerð-
um tíma, heldur mundi byggingu
þess seinka um a.m.k. eitt ár. Þetta
hafði forstöðukona Pálmholts eng-
in tök á að vita né hafa áhrif á.
Við söknum útskýringa félags-
málaráðs á því, hvers vegna tveggja
ára reglunni var breytt án þess að
fleiri dagvistarrými yrðu til ráð-
stöfunar. Sjálf er ég ánægð með
þessa, að því er virðist, markverðu
ákvörðun, því að þar með fékk
dóttir mín það viðbótarár á Pálm-
holti sem hún hefur þörf fyrir áður
en hún byrjar í skóla.
Ég vona að Ragnheiður og aðrir í
svipaðri aðstöðu, í meiri eða minni
bráðum vanda, hafi samband við
mig eða einhvern í hópnum og
gerist þátttakendur í starfi hans.
Sennilega verður nú eitthvað
minna starfað í sumar; en í byrjun
september setjum við allt í gang.
Við ætlum m.a. að safna því fylgi
við málstaðinn sem þarf til að
stjórnmálamennirnir gæti hags-
muna bæjarbúa og haldi kosninga-
loforðin sín. Þið eruð velkomin í
hópinn.
Með kærri kveðju,
A nnetta Bauder Jensen
Ránargötu 30, 600 Akureyri
Sími 24979
E.S. Samkvæmt flugufregnum
liggur allt tilbúið á borðum bæjar-
stjómar til að hefja byggingu dag-
heimilisins úti í Glerárþorpi. Að-
eins vanti orðið: „BYRJIÐ!“ frá
stjórnmálamönnum. Eru þessar
flugufregnir réttar? A.B.J.
985 milljónir til gatnagerðar
Bæjarverkfræðingur, hefur lagt
fram tiliögur um framkvæmdir
við gatnagerð á árinu 1980 og
hefur bæjarstjórn samþykkt
þær. Heildarupphæð fram-
kvæmdafjár er 985 milljónir
króna. Tillögurnar sundurliðast
þannig: Endurbygging gatna 100
milljónir, nýbygging gatna 239
milljónir, malbikun gatna 340,5
milljónir og malbikun gang-
stétta 61 milljón. Til þjóðvegar í
þéttbýli (þ.e. vegurinn frá
Höphnersbryggju að Torfunefs-
bryggju) fara 120 milljónir og í
ýmislegt annað eru áætlaðar 124
milljónir króna.
Alls er áætlað að malbika 5.650
m í safnbrautum og húsagötum,
1.150 m í tengibrautum og lengd
vegarins milli Torfunefsbryggju og
Höphnersbryggju er svipuð. Af
ýmsum smærri verkum má nefna
að löguð verður aðkoman að Stekk,
lagður kantsteinn við Tryggva-
braut, lagt slitlag á veg í Kjarna-
skógi og vegna hönnunar og
undirbyggingar brúar á Glerá
verður varið 5 milljónum króna.
Eftirtaldar safnbrautir og húsa-
götur verða malbikaðar í sumar:
Lengd í metrum
Grenilundur................. 280
Mýrarvegur................. 200
Kringlumýri ............... 315
Brekkugata................. 350
Helgamagrastræti.............. 70
Klapparstígur.............. 110
Sniðgata .................... 85
Árstígur .. 120
Eiðsvallagata .. 255
v/Eyrarveg .. 130
Fróðasund .. 40
Furuvellir .. 395
Gránufélagsgata .. 350
Grenivellir .. 140
Grundargata .. 80
Hríseyjargata .. 310
Lundargata .. 180
Ránargata .. 375
Ægisgata .. 360
Einholt .. 335
Langholt .. 470
Þverholt .. 205
Borgarhlíð .. 120
Fosshlíð .. 235
Smárahlíð .. 140
Samtals 5650 m
Tengibrautir:
Lengd í metrum
Hlíðarbraut.................. 750
Þórunnarstræti............... 330
Undirhlíð .................... 70
Samtals: 1150m
Eins og fyrr sagði verða malbik-
aðir 5,5 kílómetrar af safnbrautum
og húsagötum í ár. Að auki verða
malbikaðir 2 kílómetrar í tengi-
brautum og þjóðvegi í þéttbýli —
samtals um 7,5 kílómetrar. Þetta er
nokkur aukning frá fyrra ári og í
haust ætti að vera búið að malbika
nær alla Eyrina ofan Hríseyjargötu.
4.DAGUR
fþróttafélagið Þór Akureyri
var stofnað á Akureyri 6. júní
1915. Stofnendur voru
nokkrir ungir og áhugasamir
Akureyringar, sem vildu
rækta heilbrigða sál í hraust-
um líkama. Ekki er með öllu
Ijóst hvar stofnfundurinn fór
fram, því að í gjörðabók fé-
lagsins frá þeim tíma er ekk-
ert sagt um fundarstað. Þær
upplýsingar sem blaðið hefur
aflað sér eru þær að félagið
hafi verið stofnað í vaska-
húsinu í Strandgötu 5, kola-
portinu hjá Ragnari Ólafs-
syni, þar sem nú er afgreiðsla
Drangs. En rétt áður en
gengið var frá handritinu
fullyrti einn að félagið hefði
verið stofnað í vaskahúsinu i
Brekkugötu 2.
Vonandi verður þetta til að
þessi mál komast á hreint, og að
menn komi sér saman um hvar
félagið var stofnað.
í fyrstu stjórn voru kosnir:
Friðrik Einarsson formaður,
Jakob Thorarensen ritari, og
Jörgen Hjaltalín, gjaldkeri. 1
varastjóm voru kosnir: Jakob
Ásgrímsson og Einar Olgeirs-
son. í gjörðabók félagsins frá
þessum tíma segir að félagið
skuli heita Þór, íþróttafélag
Oddeyringa.
Þór hefur nú sleppt úr nafni
sínu því sem kennir það við
Oddeyringa, enda teygja angar
félagsins sig um allan bæinn, og
gerði raunar mjög snemma.
Annar fundur félagsins var
haldinn þann 13. júní og þá hóf
formaður félagsins mál sitt á því
að spyrja hvort nokkur hefði
brotið af sér, en sagt er að eng-
inn hafi svarað.
Á sama fundi voru einnig
nafnarnir Jakob Frímannsson
og Jakob Thorarensen kosnir til
að koma með umræðuefni á
næsta fund. Þá voru einnig
Friðrik Einarsson og Jörgen
Hjaltalín kosnir foringjar í fót-
bolta.
Á fyrsta starfsárinu voru
haldnir samtals 16 fundir og
sýnir það glöggt að starfsemi
félagsins hefur verið blómleg.
Tuttugu og átta mál voru
tekin fyrir á fundum félagsins
strax fyrsta árið, og voru þau
m.a. reykingar (tvisvar), hegðun
félagsmanna á fundum, hvað
viltu helst verða þegar þú verð-
ur stór, aðflutningsbannið,
glímur og málfarið, en um það
var ekki hægt að ræða sem
skildi sökum „kjaftæðis í
fundarmönnum," eins og segir í
gjörðabókinni.
Iþróttanefnd var starfandi til
að koma á hlaupum og stökk-
um, svo og til að skipuleggja
„lautartúra".
Á fyrsta starfsárinu var lög-
um félagsins breitt á þá leið að
aðalfundur skyldi haldinn á
haustin, og í framhaldi af þvi
var næsti aðalfundur haldinn
12. september 1915 og var þar
öll stjórnin endurkjörin. Á þeim
fundi var kosið lið hraustra
sveina til að læra leikfimi um
veturinn hjá Lárusi Rist.
Næstu ár voru mjög grósku-
mikil og smám saman komust á
skipulögð íþróttamót, og með-
limirnir fóru að leggja stund á
hinar ýmsu greinar íþrótta.
Árið 1924 segir til dæmis áð
félagið hafi aðeins leikið fjóra
knattspyrnuleiki og unnið þá
alla.
Þeir gerðu 24 mörk en fengu
aðeins á sig 4.
Árið 1931 segir að þá hafi fé-
laginu í fyrsta sinn tekist að
vinna sigur á KA í fyrsta flokki í
Full vissa er ekki um tildrög stofnunar íþróttafelagsins Þór.
Það eitt er vitað, að í maímánuði stofnuðu unglingar á Odd-
eyri til félagsskapar, sem nátengdur var áhugamálum þeirra
og treystur vináttuböndum. Þeir ákváðu stofndag 6. júní og
fólu einum eða fleirum samning lagafrumvarps þess. sem héi
fer á eftir.
65ÁRA
10. «r.
11. Lrr
LÖG ÞÓR, ÍÞRÓTTAFÉLAGS ODDEYRINGA.
— Félagið lieitir Þór, fþróttafélag Oddevringa.
- Innf'öngu í félagió fá ekki aórir en þeir, sem ern lt) til lö ára.
Undantekning ,verótir þó veitt, et' hún er s'amþykkt á félagsftindi.
— Mark félagsins er aó efla allar islenzkar iþróttir.
— Þeir, sent ganga í félagió, mega ekki neyta tóhaks eóa áfengis.
— Fyrsta hrot varóar 10 anra sekt, annaó hrot 15 aura, þriója
hrot 25 aura OH fjóróa hrot hnrtrekstri.
— Nægilegt er, ef tveir félagsmenn sjá annan reykja og "eta þeir
þá kært liann.
— Þeir, sent hilma vfir meó hrotlegum félagsmanni, em jafnsekir.
— Þeir, sem Itafa hrotió fjóruni sinnum og ern þvi htirtrækir eftir
5. gr., fá aftur inngöngu í féla.L'ió, ef þeir heióast þess, en ef
þeir hrjóta tvisvar eftir þaó, þá eru þeir algerlefja útilokaóir
frá félagimi.
— Félagsmeiin eru heónir aó lejjgja nióur hlót og vera stilltir á
ftindiim.
— Félagsmenn veróa aó sækjti fimdi vel.
— Félat'smenn geta ekki "engió úr félaginu nema á aóalfundi, sem
er í janúar, o" veróa þeir þá aó mæta sjálfir eóa senda skrif-
lega úrsöj'ii.
— Inngangsevrir i félagió er 25 aurar oj> árstilla" 50 aurar.
— Stjórn félagsins er skiptió þrem niönnum: Formanni, ritara og
"jaldkera. Formaötirinn skal kosinn af meirihluta félaj'smanna,
o" tilnefnir hann sióan menn meó sér í stjórnina.
— Þeir, seni j'anga i félagió, veróa aó halda þessi löj*. eóa þaó
jetnr valdió hnrtrekstri úr félaginu.
Á þessari mynd sjást fyrstu lög félagsins, en búast má við að þau hafi tekið
einhverjum breytingum á þeim 65 árum sem félagið hefur starfað!
Friðrik Einarsson var fyrsti Haraldur Helgason var for-
formaður Þórs. maður félagsins í 25 ár.
knattspymu, og segir þar einnig
að brúnir manna hafi mikið
lyfst við þetta.
Margir ágætismenn hafa
starfað sem formenn félagsins
þessi 65 ár, og enn fleiri hafa
setið í stjórnum og ráðum þess.
Lengst allra sem formaður hef-
ur verið Haraldur Helgason,
kaupfélagsstjóri í Kaupfélagi
Verkamanna. Hann var við
stjórnvölinn í 25 ár. Á síðasta
aðalfundi gaf Haraldur ekki
kost á sér lengur og í hans stað
var kosinn Sigurður Oddsson,
tæknifræðingur hjá Vegagerð-
inni. Aðrir í núverandi stjórn
eru: Arnar Einarsson, sem er
varaformaður, Þóra Hjaltadótt-
ir, Sigurður Pálmason og
Haul^ur Jónsson.
Á þessu afmælisári stendur
mikið til hjá félaginu.
I haust verður grasvöllur fé-
lagsins vígður, en malarvöllur-
inn á svæði félagsins í Glerár-
hverfi var vígður fyrir 4 árum.
Grasvöllurinn er við hlið
malarvallarins en mikið verk
hefur legið í gerð þessara valla,
og hefur það mikið hvílt á
herðum Hilmars Gíslasonar.
Þórsarar hyggjast halda afmæl-
ismót í öllum greinum íþrótta,
sem iðkaðar eru á vegum fé-
lagsins, og nú þegar er skíða-
mótið búið. Á afmælisdaginn 6.
júní leikur Þór sinn fyrsta leik í
Islandsmótinu í knattspyrnu á
þessu keppnistímabili. Verður
sá leikur að öllum líkindum á
grasvellinum, og mun lúðra-
sveit leika fyrir leikinn, og reynt
verður að hafa hátíðarstemn-
ingu.
Þórsarar hafa átt fyrstu
deildar lið í öllum boltaíþrótt-
um sem félagið hefur lagt stund
á. Karlaliðið hefur leikið í fót-
bolta, handbolta og körfubolta,
og einnig hafa þeir átt úrvals-
deildarlið í körfubolta.
Kvennaliðið hefur leikið í
fyrstu deild bæði í handbolta og
körfubolta.
Einn Þórsari hefur keppt á
Ólympíuleikjum og er það
Reynir Brynjólfsson, skíðamað-
ur, sem keppti á vetrar-
ólympíuleikunum í Grenoble í
Frakklandi 1968.
Núverandi stjórn Þórs, frá vinstri: Haukur Jónsson, Arnar Einarsson, Sigurður
Oddsson formaður og Þóra Hjaltadóttir. Á myndina vantar Sigurð Pálmason.
Myndir: ÓÁ.
SIGURÐUR ODDSSON:
Besta afmælis-
gjöfin til Þórs
var Evrópumet Arthurs Bogasonar
í spjalli við Sigurð Oddsson mjög stóru í starfi þess, en ef-
Hallfreð Sigtryggsson var einn af stofnfélögum Þórs og sést hann hér á myndinni
með heiðursskjal, en hann er einn af heiðursfélögum félagsins. Mynd Ó.A.
formann félagsins sagði hann
að besta afmælisgjöfin sem
félagið hefði fengið á þessum
tímamótum væri Evrópumet
Arthurs Bogasonar í kraft-
lyftingum, en það bæri af
öðrum íþróttaafrekum fé-
lagsmanna.
I þessari grein um afmælisár-
ið hefur aðeins verið stiklað á
laust verður saga félagsins ein-
hvern tíma skráð, þannig að
minningar og minnisblöð sam-
einist í veglegu riti, en bók hefur
verið gefin út af minna tilefni.
Dagur óskar íþróttafélaginu
Þór til hamingju á þessum
tímamótum og vonast til þess að
mörg afrek í íþróttum verði
unnin í framtíðinni undir
merkjum félagsins.
DAGUR.5