Dagur - 05.06.1980, Page 8
Hagkaup opnar á Akureyri
í morgun opnaði Hagkaup nýja á Akureyri síðan 1966. Nýja
verslun á Akureyri, en fyrirtækið verslunin er við Norðurgötu 62.
hefur verið með verslunarrekstur Það kom fram á blaðamanna-
F.v. Pálmi Jónsson, forstjóri, Magnús Ólafsson, aðalframkvæmdastjóri, Ragnar
Haraldsson, framkvæmdastjóri, Sigurður Pálmason, aðalframkvæmdastjóri,
Gestur Hjaltason, Stanlcy Carter, ráðunautur og Haraldur V. Haraldsson, arki-
tekt.
fundi i gær að framkvæmdir við
breytingar á húsnæðinu, sem áð-
ur var bifreiðaverkstæði, hófust
þann 5. október, en aðalvinnan
hefur átt sér stað síðustu þrjá
mánuðina. Stærð húsnæðisins er
rúmir 1000 fermetrar og bílastæði
eru fyrir 150 bíla. Fjöldi starfs-
fólks er 30. Útibússtjóri er Berg-
ljót Pálsdóttir og verslunarstjóri
er Ómar Kristvinsson.
í versluninni verður boðið
mikið úrval af matvöru og hrein-
lætisvöru — sömuleiðis er úrval
af öðrum vörum t.d. barna,
kvenna og herrafatnaði. Einnig
má nefna hljómplötur, leikföng
og búsáhöld. Allar vörur verslun-
arinnar verða á sama verði og í
Hagkaup í Reykjavík.
Arkitekt hússins var Haraldur
Haraldsson, verkfræðileg atriði
voru í höndum Verkfræðistofu
Sigurðar Thoroddsen, en aðal-
verktaki var Norðurverk h.f..
Aldraðir á Löngumýri
Svarfaðardalur:
Góðar
horfur
Ytra-Hvarfi, Svarfaðardal 2. júní.
Búskaparhorfur verða að teljast
góðar í Svarfaðardal. Að vísu er
allmikið um kalskemmdir, en
þær geta átt eftir að iagast í
suniar ef vel viðrar. Helst eru
þetta blettir sem voru seinast
slegnir í fyrra. Sauðburði er að
Ijúka. Ekki hafa komið upp
neinar teljandi pestar í fé.
Nú eru bændur farnir að bera á
og þeir sem fengu útsæði eru búnir
að setja niður. Kartöflurækt er ekki
mikil í Svarfaðardal — en hver
ræktar fyrir sig og sína.
I gær voru sjö börn fermd i
Svarfaðardalskirkju. Við guðs-
þjónustuna var skírt barn hjónanna
Guðrúnar Ingvadóttur og Ingólfs
Jónassonar. Barnið var stúlka og
hlaut hún nafnið Ingibjörg Ösp.
J.Ó.
Grímsey:
Bátarnir
útbúnir
Grímsey 2. júní
Nú er lítið hægt að tala um
aflabrögð hjá bátum Grímsey-
inga. Sjómennirnir eru að útbúa
bátana fyrir sumarvertíðina, en
einn eða tveir hafa samt verið á
netum. Einn bátanna er á Akur-
eyri, en þar er verið að skipta um
vél í honum.
Um þessar mundir eru menn að
fara að síga í bjargið. Fuglinn
verpti óvenju snemma í vor, en
hann ruglaðist eitthvað í ríminu
vegna góða veðursins. Grímseyj-
ingar stunda nú bjargsig eins og
hvert annað sport. Þeir síga eftir
eggjum handa vinum og kunningj-
um, en ekki til að hafa upp úr því
mikla peninga. Eftir að menn fóru
að nota traktora við bjargsig þarf
ekki nema 2 til 3 menn, en hér áður
fyrr þurfti 8 til 10 menn í hvert
skipti. S.S.
Prýðih/f
Veltan
120
millj.
Aðalfundur saumastofunnar
Prýði á Húsavík var haldinn
fyrir skömmu. Heildarvelta fyr-
irtækisins á árinu 1979 var rúm-
ar 120 milljónir króna og
hagnaður 858 þúsund — þegar
búið var að taka í varasjóð og
lögleyfða frádrætti.
Hjá Prýði vinna í dag 15 manns
miðað við full störf. Möguleiki er á
að veita 3-4 atvinnu til viðbótar í
núverandi húsnæði. Góðar horfur
eru á sölu á framleiðsluvöru fyrir-
tækisins á þessu ári.
„Svo vil ég bæta því við að ég er
orðin 83ja ára og þetta er fyrsta
ræðan sem ég held á ævinni,“
sagði Guðrún Andrésdóttir úr
Reykjavík, er hún gerði grein
fyrir niðurstöðum umræðuhóps
á Löngumýri í fyrrahaust.
Umræðuefnið var, „kostir þess
og gallar að eldast“. Þátttakendur í
tilraunanámskeiði þjóðkirkjunnar
fyrir aldraða höfðu margt um mál-
ið að segja enda flestir komnir á
eftirlaun eða í nánd þeirra.
Þessi tilraun kirkjunnar til þjón-
ustu við aldraða reyndist mæta
umtalsverðri þörf í þjóðfélaginu.
Aðsókn var mikil og rösklega
gengið að verki. í sumar verða tvö
slík 3ja vikna námskeið á Löngu-
mýri í júní og í septemberlok. Á
Sl. laugardag voru 12 íbúðir við
Dvalarhcimilið Hlíð afhentar
formlega, en þær eru í tveimur
raðhúsum, 4 hjónaíbúðir og 8
cinstaklingsíbúðir. Aðalverktaki
við framkvæmdirnar var Hamar
s.f. Byggingakostnaður er um
170 milljónir króna.
Vistmenn í Hlíð verða þá samtals
111, auk 83 í Skjaldarvík. Nú bíða
tæplega 200 manns eftir dvöl í Hlíð
og milli 240 og 250 manna biðlisti
er að báðum heimilunum. Fyrir-
hugað er að malbika og gróðursetja
öðrum tímum sumarsins verður
orlof aldraðra að Löngumýri.
Þessi námskeið eru ætluð eldra
fólki til undirbúnings þeim nýju
aðstæðum sem ellin skapar gjarnan
— þá er oft mikill frítími, breyttar
heimilisaðstæður og jafnvel nokkur
einmanaleiki. Á námskeiðunum
eru tryggingamál kennd, hagnýt
matargerð og líkamsrækt að hæfi
aldraðra, leðurvinna og hnýtingar.
Auk þess verða fyrirlestrar um
bókmenntir, sögu og biblíufræði og
mikil áherzla á þátttöku í umræð-
um.
Þátttakendur geta valið hversu
margar greinar þeir stunda, því að
hvíld og næði er líka nauðsynleg.
Skipulögð verða ferðalög um hér-
aðið og kvöldvökur með góðum
gestum. Kostnaði verður mjög í hóf
á lóð húsanna hið fyrsta. Myndin
var tekin í einni íbúðinni á laugar-
dag og er af stjórnarmönnunum
Auði Þórhallsdóttur, Freyju Jóns-
dóttur, Heiðdísi Norðfjörð í fremri
röð, auk Ingibjargar Halldórsdótt-
ur, fulltrúa kvenfélagsins Framtíð-
arinnar, sem einnig situr stjórnar-
fundi. I aftari röð eru Jón Kristins-
son, forstöðumaður heimilanna,
Magnús Ásmundsson, sem er
varamaður Jóns Ingimarssonar í
stjóm, og Ingólfur Jónsson, for-
maður stjómar dvalarheimilanna.
Mynd: h.s.
stillt. Þátttakendur greiða fæði,
efniskostnað og ferðir.
Margrét Jónsdóttir, skólastjóri á
Löngumýri stýrir námskeiðunum
sem í fyrra. Veitir hún allar nánari
upplýsingar og annast innritun
(sími 95-6116), svo og Biskupsstofa.
Vilja baka
brauð á
Þórshöfn
Miklar f ramkvæmdir
á döfinni hjá Kaupfé-
lagi Langnesinga
„Það á að byrja á nýju verslun-
arhúsnæði í sumar. I þessu hús-
næði, sem er 550 fermetrar,
verður byggingarvörudeild
kaupfélagsins. Um þessar mund-
ir er trésmíðaverkstæði kaupfé-
lagsins flytja í nýtt húsnæði, en
eftir að það brann á sínum tíma
hefur trésmíðaverkstæðið verið í
leiguhúsnæði,“ sagði Þórólfur
Gíslason, kaupfélagsstjóri á
Þórshöfn.
Á dagskrá er að stofna brauð-
gerð á Þórshöfn, en Þórólfur sagði
að tæplega yrði af stofnuninni á
þessu ári. Sölusvæði brauðgerðar-
innar yrði væntanlega nyrðri hluti
Þingeyjarsýslu og austur á Hérað.
Þess má geta að engin brauðgerð er
starfrækt í Þingeyjarsýslu. Af öðr-
um fyrirhuguðum framkvæmdum
má nefna að endurbæta á sláturhús
félagsins, nánar tiltekið fjárrétt og
gærusöltun.
Kaupfélag Langnesinga hefur
staðið í miklum framkvæmdum
undanfarin ár. I fyrra var nýtt hús-
næði fyrir bílaverkstæðið tekið í
notkun og á sama ári var lokið við
endurbætur á matvöruversluninni.
0 Tommi, Jenni
og Traustí
Sjónvarpið llggur æði oft
undir þungri gagnrýni lands-
manna — það er sakað um
lélega dagskrá, of fáar kvik-
myndir, of margar kvikmyndir
og allt þar á milli. Sumir velja
úr einstaka þætti eins og
kunningi Dags, sem sagðist
aðeins horfa á Tomma,
Jenna og Trausta.
# Evita
Söng- og dansleikritið Evita
var frumsýnt í Sjallanum sl.
töstudagskvöld við mikla
hrifningu viðstaddra. Margir
mættu hins vegar bæði mjög
seint og illa og sýndu þar
með þessu ágæta listafólki
litla virðingu, atit að því lítils-
virðlngu. Sumir hafa verið að
gera þvi skóna, að aðstand-
endur sýningarinnar hafí tek-
ið á það ráð, að frumsýna
verkið í dreifbýlinu og láta
þannig reyna á það, hvernig
fólki líkaði, áður en það væri
sýnt meðal kröfuharðra lista-
snobbara í Reykjavík. Hvað
um það, sýningin var góð og
aðstandendum öllum til
sóma. Norðlendingar ættu
hins vegar að hafa í huga, að
meta að verðleikum og mæta
vel og tímanlega á atburði,
eins og frumsýninguna á
Evitu.
# Umgengni
í þessum dálkl hefur stund-
um verlð fundið að umgengnl
bæjarbúa — kvartað undan
sóðaskap og þ.h. Þess skal
líka getið sem vel er gert, en
nú er verið að mála húsnæði
verslunarlnnar Vörubæjar við
Tryggvabraut og í fyrradag
var byrjað að máia kaffl-
brennsiuna. Búið er að mal-
bika bílastæði Þórshámars
og Shell hússins við
Tryggvabraut og nú er hafinn
undlrbúningur að malbikun
bílastæða hjá íþróttaskemm-
unnl.
• Unglingar
og vinna
Svo virðist vera að það sé
miklum erfiðleikum bundið
fyrir unglinga að fá vinnu í
sumar. Nú er liðin sú tíð að
unglingar, allt niður í 12-13
ára, gátu fengið sumarstarf
og því mlður ganga of margir
um götur, ón verkefna við sitt
hæfi. Ef til vill ættu bæjarfé-
lög að stórauka unglinga-
vinnuna og sjá til þess, að
þeir ynnu störf er vektu
áhuga þelrra; störf sem eru
að auki krefjandi og þokka-
lega launuð. Það þýðir ekki
að bjóða unglingunum eitt-
hvað tllgangslaust dútl. Það
getur komið sér vel fyrir
þjóðfélagið að búa svo um
hnútana að unglingarnir hafl
nóg að gera yfir sumartímann
DVALARHEIMILIÐ HLIÐ:
Afhentu 12 íbúöir