Dagur - 15.07.1980, Blaðsíða 8

Dagur - 15.07.1980, Blaðsíða 8
DAGTJR Akurevri, þríðjudagur 15. júlí 1980 ÞJÓNUSTA FYRIR HÁÞRÝSTISLÖNGUR OLÍUSLÖNGUR og BARKA PRESSUM TENGIN Á FULLKOMIN TÆKI VÖNDUÐ VINNA Hafnargaröurinn á Kópaskeri: Gjörbreytir að- stöðu bátanna Kópaskeri, 11. júlí. Þegar þýsku unglingamir komu á Akureyrarflugvöll tóku félagar í Létti á móti þeim á hestum með félagsfána. Mynd: á.þ. Þýskir unglingar koma til Akureyrar á vegum Léttis Akureyrskir unglingar fara til 3ja vikna dvalar í Þýskalandi í sumar I byrjun júlí lauk framkvæmdum við grjótvarnargarðinn í Kópa- skershöfn. Við erum sannfærðir um að hann muni gjörbreyta allri aðstöðu fyrir skip og báta í Mældu mótefni í 1617 konum í maí og júní voru mæld mótefni gegn rauðum hundum hjá 1617 konum á Akureyri og í nágrenni. Ánægjulegt var hve vel konurnar brugðust við og varð þátttakan góð. Þær, sem ekki komust ein- hverra hluta vegna geta farið í blóðrannsókn á Læknamiðstöð- inni mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga á milli kl. 10 og 12 í sumar. (Munið að hafa rann- sóknarmiðann með). Af fyrrgreindum 1617 konum, sem mótefni voru mæld hjá reynd- ust um 110 ekki hafa verndandi mótefni og þurfa þær þess vegna bólusetningu. Allar hinar, eða 1507 konur, reyndust hafa nægileg mót- efni í sér og munu því ekki þurfa að láta bólusetja sig. (Þessi hópur mun ekki fá bréf frá Rannsóknarstofu Háskólans í veirufræði). „í morgun erum við búin að ræða við fólk af 4 eða 5 þjóð- ernum og það skal tekið fram að morguninn var fremur rólegur. Aðstoð við ferðamenn er sjálf- sögð, ef hún tengist þeirri starf- semi sem við rekum hér, en oft þurfum við að segja fólki til vegar eða t.d. að aðstoða við að finna tjaldstæðið svo eitthvað sé nefnt. Gera má ráð fyrir að að- stoð, sem við veitum á háanna- tíma og er starfseminni óvið- Síðastliðinn föstudag opnaði Raf- tækni h/f nýja verslun að Óseyri 6. Til þessa hefur verslun fyritækisins verið að Geislagötu I, en nú hefur hún verið flutt og sameinuð verk- stæðinu, sem er á Óseyri. Gólfpláss nýju verslunarinnar er 120 fermetr- ar. Verslunarstjóri er Eyrún Ingva- dóttir. höfninni og erum mjög ánægðir og þakklátir fyrir að nægjanlegt fjármagn fékkst til að Ijúka við hann í einu lagi. Þurrkur hefur verið hér óskap- lega mikill og spretta því ekki nógu góð. Heyskapur, þar sem hann er hafinn, hefur þó gengið allbæri- lega. Bátarnir róa en fiskurinn er nú heldur tregur. Við erum að vinna að því að fá báta til að leggja í út- hafsrækjuna. Það veitir ekki af því, fólkið sem unnið hefur í rækjunni er verkefnalaust og vantar eitthvað að gera. Það eru aðallega unglingar og kvenfólk og ef úthafsrækjuveið- ar kæmust á mundi ástandið batna til muna. Það er ekkert búið að ákveða í þessum málum ennþá, samningar standa yfir við útgerð- armenn um hvort þeir vilji leggja upp frá okkur, því við höfum ekki nógu stóra báta. Það er ekki þor- andi að segja neitt um hvenær eða hvort af þessu verður. Hér er vaxandi áhugi á hesta- mennsku og nú á dögunum var starfræktur reiðskóli á vegum hestamannafélagsins Feykis. Kennari var Eyjólfur ísólfsson. Þátt tóku um 40 manns á öllum aldri úr Kelduhverfi, Öxarfirði og Núpa- sveit. Mikil ánægja ríkti með þetta fyrirtæki og góður árangur náðist. Á.S. komandi, taki tíma eins starfs- manns hálfan daginn alla vikuna a.m.k.“ sagði Kolbeinn Sigur- björnsson, sölustjóri hjá Ferða- skrifstofu Akureyrar við Ráð- hústorg. Rætt hefur verið um að koma upp upplýsingamiðstöð fyrir ferða- menn á Akureyri, en ekkert orðið úr framkvæmdum. Frásögn Kol- beins bendir til að full þörf sé að slíkri miðstöð, en ugglaust geta ýmsir aðilar í miðbæ Akureyrar sagt svipaða sögu. Ingvi Rafn Jóhannsson, raf- virkjameistari og eigandi Raftækni, sagði að í versluninni yrði lögð áhersla á heimilistæki t.d. frá Ignis og Girmi. Einnig selur verslunin rafmagnshandverkfæri frá Miller Falls. Frá Kína koma kínverskar mottur og sérlega ódýr reiðhjól. Sl. sunnudag komu til Akureyr- ar 9 þýskir unglingar á aldrinum 14-18 ára og verða hér í þrjár vikur, eða til 2. ágústs. Þau eru öll í hestamannafélaginu Kaufungen í úthverfi Kassel í V.-Þýskalandi, og koma hingað í Reykjavík er starfræktur upp- lýsingaturn þar sem ferðamenn geta fengið ýmsar upplýsingar um höfuðborgina. Hefur turninn gefið góða raun. „Ef slík miðstöð yrði sett á laggimar hér á Akureyri yrði að vera þar greinargóður maður, sem gæti vísað fólki veginn 1 réttar stofnanir, sagt ökumönnum til um ástand vega, um leiðir á öræfum og hvemig komast megi héðan og til ísafjarðar svo eitthvað sé nefnt. Þar yrðu líka allar helstu upplýsingar frá þeim sem starfa að ferðamál- um,“ sagði Kolbeinn. Eftirfarandi sagði Kolbeinn að væri dæmigert fyrir þá þjónustu sem starfsfólk Ferðaskrifstofu Ak- ureyrar þyrfti að veita. Sl. fimmtu- dag kom þangað Þjóðverji sem vildi kaupa radial dekk undir bíl sinn.-Honum gekk illa að gera sig skiljanlegan á dekkaverkstæðum bæjarins og leitaði því til ferða- skrifstofunnar. Þaðan var hringt á dekkaverkstæði og Þjóðverjinn fékk sitt dekk. Aðspurður sagðist Kolbeinn telja að það væri í verkahring bæjaryfirvalda að koma á fót upp- lýsingamiðstöð í miðbænum, „en við megum ekki láta þar við sitja,“ sagði Kolbeinn. „Bæjaryfirvöld ættu e.t.v. líka að hafa forgöngu um að skipa ferðamálanefnd, því t.d. með tilkomu lengri flugbrautar kemst Akureyri 1 beint samband við útlönd, en það eru fjölmörg önnur atriði sem þessi nefnd þyrfti að fjalla um. Eitt af verkefnum nefndarinnar ætti að vera hvernig bæjarfélagið getur haft meiri tekjur af ferðamönnum — með því t.d. að hafa forgöngu um að hér séu haldnar ráðstefnur.'1 á vegum þess og hestamannafé- lagsins Léttis. Ætlunin er einnig að 9 akur- eyrskir unglingar héðan fari til Kassel og dvelji þar í 3 vikur en enn sem komið er hefur ekki tekist að fá nema 6-7. Þýsku unglingarnir búa á heimilum þeirra íslensku sem fara síðan utan og svo öfugt, þannig að þetta eru gagnkvæm skipti. Uppi- hald er því allt frítt og það eru bara ferðirnar sem krakkarnir, í hvoru landi um sig, þurfa að borga. „Þetta byrjaði eiginlega allt saman 1974 á hestamannamóti á Vindheimamelum, en þá kynnt- umst við Björn þýskum manni sem er reiðkennari hjá Kaufungen. Hann stakk upp á þessum skiptum og það hefur tekið allan þennan tíma að fá þetta í gegn,“ sagði Sísí Mývatnssveit 10. júli Veðrið hefur verið mjög gott að undanförnu hér í Mývatnssveit og heyskapur því gengið all bærilega. Það rigndi smávegis í gær en það hefur ekki gerst lengi og því var orðið ansi þurrt. í fyrrakvöld var hér haldinn al- mennur fundur sem stjórn Rannsóknarstöðvarinnar við Mývatn boðaði til. Þar var skýrt frá rannsóknum og gangi þeirra og Steindórsdóttir í samtali við Dag, en hún ásamt Birni Mikaelssyni hafa skipulagt dagskrá og ferðir þýsku unglinganna hér og annast fararstjóm. Unglingarnir þýsku munu ferð- ast um mest allt Norðurland, fara til Húsavíkur, Mývatnssveitar og Fnjóskadals, þau fara til Skaga- fjarðar og koma við á Dalvík, Ólafsfirði, Siglufirði og Sauðár- króki. Þar sem unglingarnir eru allir í hestamannafélagi og áhuga- samir um hesta, verður dvöl þeirra hér aðallega miðuð við það. Farið verður á hestamannamót á Mel- gerðismelum og stutta útreiðartúra hér auk þess sem farið verður á hestum austur í Fnjóskadal. Einnig verður skagfirski hestamótsstaður- inn að Vindheimamelum skoðað- rætt almennt um náttúruverndar- mál í Mývatnssveit. Þ^tta var ágætur og mjög fjölsóttur fundur. Framan af sumrinu, í maí og fyrri hluta júní, var mikið um ferðamenn hér en seinni hluta júní hefur verið dálítil lægð. Um síðustu helgi jókst ferðamannastraumur- inn aftur og er nú með mesta móti. Þetta eru aðallega útlendingar, mest í hópum, en þó er talsvert af einstaklingum sem ferðast á putt- anum. J. I. Liðssafnaður í Hrísey um versl- unarmannahelgina í Hrísey á Eyjafirði ætla her- stöðvaandstæðingar á Norður- landi að hittast föstudaginn 1. ágúst og dvelja þar um verslun- armannahelgina. Þar á að halda sumarmót, sambland af útilegu, samveru og umræðum. Dvalið verður í tjöldum. Ef herstöðva- andstæðingar eiga ekki upp á pallborðið hjá veðurguðunum þessa helgi, eiga þeir þó alltént í gott hús að venda, nefnilega samkomuhúsið í eynni. Þeir sem ekki eiga tjald eða af öðrum or- sökum treysta sér ekki til að sofa í tjaldi geta sofið í samkomuhús- inu. Farið verður í skoðunarferðir um eyna. Ætlunin er að umræður á sumarmótinu verði einkum rabb um starfsemi herstöðvaandstæð- inga og um ástandið 1 heiminum. Sérstök dagskrá verður alla helg- ina fyrir bömin. Mjög mikilvægt er að fólk skrái sig til þátttöku svo hægt sé að undirbúa allt sem best. Hringið því sem fyrst og ekki síð- ar en helgina fyrir verslunar- mannahelgina í síma (96)21788 eða (96)25745. Ferðamenn oft í vandræðum: Upplýsingamiðstöð vantar í nýja verslunarhúsnæðinu: Ingvi R. Jóhannsson ásamt eiginkonu, Sólveigu Jóns- dóttur. Mynd: á.þ. Ný verslun á Óseyri ur. MIKIÐ UM FERÐAFOLK

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.