Dagur - 07.08.1980, Blaðsíða 1

Dagur - 07.08.1980, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR- HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS GULLSMIÐIR , SIGTRYGGUR & PÉTUR ' AKUREYRI LXffl. árgangur. Akureyri, fimmtudagur 7. ágúst 1980 mmmmm^^mmmmmmtmmmmmmmmm 54. tölublað Megn óánægja með fóðurbætisskattinn á almennum fundi bænda í Eyjafirði „Almennur bændafundur Bún- aðarsambands Eyjafjarðar, haldinn að Freyvangi 5. ágúst 1980, harmar þá lítt hugsuðu tilraun til stjórnunar á fram- leiðslumálum landbúnaðarins, sem felst í álagningu 200% kjarnfóðurskatts“. Þannig hefst ályktun sem samþykkt var á ofangreindum fundi á þriðju- dagskvöld, en á honum kom fram hörð gagnrýni vegna álagningar kjarnfóðurskattsins. Fundinn sóttu um eða yfir 250 Kappsigling á Polfinum Á föstudagskvöld hefst á Pollinum á Akureyri íslands- mót í kappsigiingum, Flipp- er-flokki. Þetta er í fyrsta sinn sem íslandsmót í sigl- ingum er haldið á Akureyri. Keppendur verða 20 á 10 bátum og er gert ráð fyrir að keppni ljúki á laugardag, ef allt gengur að óskum, en annars á sunnudag. Helmingur kepp- enda er frá Stór-Reykjavíkur- svæðinu og hinn helmingurinn frá Siglingaklúbbnum Nökkva á Akureyri. Að sögn Sævars Arnar Sig- urðssonar, formanns Nökkva, verður keppt í fimm umferðum um svokallaðan Ólympíuþrí- hyrning. Keppt er samkvæmt alþjóðlegum staðli og ræður meðalhraði úr fimm umferðum því, hver sigrar. bændur við Eyjafjörð og stóð hann langt fram á nótt. Ennfremur segir í ályktun fund- arins: „Fundurinn telur að slík að- gerð valdi bændastéttinni skaða og sé með öllu óþörf, þar sem aðal- fundur Stéttasambands bænda 1979 ákvað að taka upp búmarks- kerfi (kvóta), til að stjórna búvöru- framleiðslunni í landinu." í ályktuninni segir ennfremur, að telja verði að búmarkskerfið hafi borið verulegan árangur og vart að búast við meiri árangri á fyrsta ári búmarks. Kjarnfóðurskattur í þeirri mynd sem hann sé nú lagður á komi mjög misjafnlega niður á bændum, m.a. vegna þess að að- staða fóðursala til blöndunar á fóðri úr innlendu hráefni sé mis- jöfn. Þá stuðli hann eindregið að aukningu í framleiðslu sauðfjáraf- urða og verði ekki séð að það sé nein lausn að færa vandann milli búgreina. Þá segir að þeir bændur, sem dregið hafi úr framleiðslu sinni vegna fyrirhugaðs búmarks, verði nú fyrir auknu tekjutapi vegna kjarnfóðurskattsins. Samhliða þessu sé tekið eitt hæsta innvigtun- argjald á mjólk, sem nokkurntíma hafi verið tekið, þrátt fyrir það, að búmarkskerfið eigi að draga mjög úr þörfinni fyrir verðjöfnun á mjólk. „Fundurinn telur eðlilegra að tekin verði upp skömmtun á kjarn- fóðri á afurðaeiningu og umfram- magn síðan skattlagt", segir enn- fremur í ályktuninni og jafnframt að harmað sé, að hlaupið skuli úr einu í annað með stjórnunarað- gerðir. Megn óánægja kom fram í máli manna með verðjöfnunargjald og kjarfóðurskatt ofan á kvótakerfi, sem flestir bændur við Eyjafjörð hefðu verið byrjaðir að koma sér inn á með sýnilegum árangri. Bent var á það, að ekki dygði að endur- greiða skattinn í haust til að ná nyt kúnna upp yfir vetrarmánuðina og að þessi skattur væri með þeim eindæmum, að hann væri inn- heimtur löngu áður en framleiðsl- an yrði til. Pálmi Jónsson, landbúnaðarráð- herra, og Ingi Tryggvason, for- maður Framleiðsluráðs, mættu á fundinum. I máli Pálma kom m.a. fram, að kjarnfóðurskatturinn gæfi svigrúm til að leggja kvótakerfið niður, hvað svo sem gert yrði í þeim Salurinn i Freyvangi var þétt setinn á bændafundinum. málum. Komu fram eindregin andmæli gegn þessari hugniynd og þess krafist að skattinum yrði breytt í skömmtun á fóðurbæti og það skattlagt, sem væri umfram eðlilega þörf. Raufarhöfn og Þórshöfn: Keyptur nýr skuttogari Síðast liðinn föstudag sam- þykkti rfldsstjórnin að verða við beiðni hraðfrystihúsanna á Þórshöfn og Raufarhöfn um kaup á skuttogara vegna alvar- legs atvinnuástands á þessum stöðum og var Framkvæmda- stofnun falið að aðstoða við þessi kaup. Gert er ráð fyrir að kaupa notað skip erlendis frá og nú eru í athug- un kaup á togara m.a. frá Noregi og Kartöfluuppskeran: Allt að því ellefuföld Svalbarðsströnd 6. ágúst. Nokkrir kartöflubændur eru nú byrjaöir að taka upp og búast má við að almennt hefjist upp- taka við Eyjafjörð í næstu og þarnæstu viku, þ.e. tveimur til þremur vikum fyrr en venjulega. Uppskeruhorfur eru mjög góðar og sem dæmi má nefna, að um síð- ustu helgi tók bóndinn á Áshóli upp Bintje-kartöflur og taldi hann að uppskeran væri hvorki meira né minna en ellefu-föld. í fyrra var uppskera bænda við Eyjafjörð að meðaltali einföld og það besta sem þekktist þá var fjór- föld uppskera og fór niður í ekki neitt. Búast ntá við því að nokkur geymsluvandræði verði í vetur, ef framleiðsla sunnlenskra kartöflu- bænda verður látin sitja fyrir á markaðnum, eins og gert var 1978. Sv.Lax. Frakklandi. Til dæmis munu vera á söluskrá eins árs skip í Noregi, 50 metra langt, og fjögurra ára gamalt skip í Frakklandi, nokkru stærra. Samkomulag er á milli staðanna um rekstur á þessu skipi og jafn- framt um skiptingu afla af Rauða- núpi og nýja togaranum. Afráðið er að Ólafur Kjartansson á Raufar- höfn verði útgerðarstjóri beggja skipanna. Nú lítur því út fyrir, að lang- þráðu takmarki verði náð fyrir umrædda staði, þar sem atvinnu- ástand hefur verið næsta ótryggt. Að mati fróðra manna voru ekki sýnileg önnur úrræði til að fá hrá- efni, en skuttogarakaup. Ólafur Kjartanss. sagði í viðtali við Dag, að nýtt skip hefði geysi- lega þýðingu fyrir þessi byggðar- lög. Gert væri ráð fyrir að afli bær- ist á báða staðina vikulega, því afla yrði ekið á milli. Ýmislegt hefði verið reynt til að auka atvinnuör- yggi á svæðinu, t.d. með því að gera samninga við eigendur togara i öðrum byggðarlögum, en það hefði gengið illa og efndir verið litlar, eins og dæmið um Dagnýju sýndi hvað best. Ólafur sagðist lítið vita hvernig gengið hefði að koma þessu máli í gegn urn kerfið, því það hefði að mestu hvílt á þingmönnum, eink- um Stefáni Valgeirssyni. Hins veg- ar væru ýmsir þröskuldar eftir, t.d. í sambandi við fjármögnun, sem væri óviss. Nauðsynlegt væri hins vegar að fá skipið í október eða nóvember, þar sem þá hyrfi allur handfæraafli. Hann sagði að þeir væru að kynna sér möguleg skip þessa dagana. Hvenær fer næsti diskur suður? Orðið hefur vart við ókenni- lega hluti í ratsjá flugturns- ins á Akureyri tvo daga í röð. Á mánudag sást hlutur á rat- sjánni. sem ekki fengust skýr- ingar á hvað var. Flugmaður hjá FN hélt á eftir fyrirbærinu, en það hvarf í þokubakka í Hliðarfjalli. Um kl. 20 á þriðju- dagskvöld sást svo einnig eitt- hvað ókennilegt í ratsjánni. Telja margir, að þarna hafi ver- ið um svokalláða fljúgandi furðuhluti að ræða, og munu jafnvel einhvcrjir, sem áður töldu slík fyrirbæri firru. hafa linast í trúnni. Einn kunningi Dags var fljótur að eygja möguleikana og spurði starfsmenn á vellinunt hvenær næsti diskur færi suður. því hann þyrfti að koma pakka til Reykjavikur með hraði. Málverkasýning í Dalbæ Opnuð hefur verið sýning á verk- um fjögurra finnskra listmálara í húsakynnum Dalbæjar — heim- ilis aldraðra á Dalvík. Margar myndanna eru úr íslensku um- hverfi. Einnig eru til sýnis nokkr- ar uppstillingamyndir og myndir frá Finnlandi. Flestar myndirnar eru til sölu. Sýningin stendur til 14. ágúst. Dalvíkingum, Svarf- dælingum og öðrum þeim er áhuga hafa á að skoða ágæt lista- verk er velkomið að líta við í Dalbæ á þessu tímabili. Hestamót Hrings á laugardag Hestamót Hrings verður haldið á Flötutungu, laugardaginn 9. ágúst og hefst kl. 9.30 f.h. með því að dæmdir verða gæðingar í A og B flokki. Eftir hádegið kl. 1, verður hópreið hestamanna, gæðingar sýndir og keppt í eftir- töldum greinum: 250 m og 300 m stökki, 150 m og 250 m skeiði og 300 m brokki. Þátttaka tilkynnist fyrir 5. ágúst til Friðriks Berg- mann, sími 61461 Dalvik, Vil- hjálms Þórarinssonar, sími 61183, Dalvík og Hilmars Gunnarsson- ar, Dæli, sími um Dalvík. Hólahátíð Þann 17. ágúst n.k. verður Hóla- hátíð, sem hefst með guðsþjón- ustu kl. 14 í Hóladómkirkju. Séra Guðmundur Örn Ragnarsson á Raufarhöfn predikar við messu og kirkjukór Sauðárkróks syngur við undirleik Jóns Björnssonar. Eftir messu verður samkoma, þar sem Pálmi Jónsson, landbúnað- arráðherra, flytur ávarp og Guðrún Tómasdóttir syngur ein- söng við undirleik Hauks Guð- laugssonar, söngmálastjóra þjóð- kirkjunnar, en hann leikur jafn- framt á orgelið fyrir messu. Golfkennsla Þorvaldur Ásgeirsson golfkennari verður með síðasta námskeið sumarsins í golfi nú á næstunni. Nántskeiðið hefst þann 8. ágúst. Væntanlegir þátttakendur láti skrá sig i Sport og Hljóð.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.