Dagur - 07.08.1980, Blaðsíða 8
DAGUR
Akureyri, fimmtudagur 7. ágúst 1980
RAFGEYMAR
í BÍLINN, BÁTINN, VINNUVÉUNA
VEUIÐ RÉTT
MERKI
Mikil fjölbreytni er í náttúrufari innan bæjarlands Akureyrar. M.a. er að finna þessa undarlegu plöntu, sem ber
nafnið Lófótur. Mynd: H. Hg.
Norræn nefnd um samgöngumál:
Tilraunir til samgöngu-
bóta í N-Þingeyjarsýslu
Umhverfiskynn
ing á Akureyri
Fyrsta skoðunarferðin verður farin
á laugardaginn upp Glerárgil
Nú er unnið að því á vegum
norrænnar embættismanna-
nefndar um samgöngumál að
finna leiðir til þess að bæta
samgöngur á dreifbýlissvæðum á
Norðurlöndunum fimm. Kann-
aðar eru ólíkar samgöngulausn-
ir í fyrirfram ákveðnu samfé-
lagsformi og markmiðið er að
reyna síðan lausnirnar á til-
raunasvæðunum. Hér á landi
varð Norður-Þingeyjarsýsla fyr-
ir valinu og í síðustu viku tóku
íbúar þar 16 ára og eldri þátt í
Hægt
miðar
— í barnsfaðernis-
málinu
Það er ekki ofsögum sagt af
kerfinu þegar það tekur sig til.
Fyrir rösklega hálfu ári greindi
Dagur frá því að rekið væri fyrir
norðlenskum dómstóli mál, þar
sem ung kona vildi fá mann
dæmdan föður að barni sínu, en
faðernisviðurkenning lá ekki
fyrir þegar maðurinn lést.
Barnið verður tveggja ára í okt-
óber, það hefur enn ekki verið
feðrað og þar sem ekkert faðernis-
vottorð liggur fyrir fær móðirin ekki
greitt meðlag með barninu.
Móðirin fór suður til Reykjavíkur
í blóðrannsókn í maí og átti að fá
niðurstöður innan viku, en ekkert
hefur enn gerst. Blóðsýni hafa verið
tekin úr aðstandendum meints föð-
urs. Svo virðist sem fremur lítið sé
gert til að flýta málinu, bæði hjá
Rannsóknastofu Háskólans og em-
bætti fógeta sem í hlut á.
Vafalaust er málið erfitt viður-
eignar og þess eðlis, að það verði
ekki leyst með blaðaskrifum, en alla
varðar um seinagang í kerfinu og
sleifarlag, ef um það er að ræða, og
því mun Dagur áfram fylgjast með
og greina frá gangi þessa máls.
ferðakönnun, sem tengist þessu
verkefni.
Framundan er að velja þær
samgöngulausnir, sem hæfa rann-
sókninni eða tilrauninni á svæðinu
og undirbúa og skipuleggja hana.
Gert er ráð fyrir að tilraunin sjálf
verði gerð á næsta ári, en áður þarf
að afla upplýsinga um ferðaþarfir
íbúa tilraunasvæðisins, þ.e. íbúa
Norður-Þingeyjarsýslu. Því var öll-
um heimilum í sýslunni sendir
könnunarseðlar í formi ferðadag-
bókar. Áttu menn að skrá niður
ferðir sínar vikuna 27. júlí-2. ágústs
og segja auk þess álit sitt á þeirri
samgönguþjónustu, sem fyrir hendi
er, bæði innan sýslunnar og til og
frá svæðinu.
Samgönguráðuneytið hefur
beint þeim eindregnu tilmælum til
íbúa Norður-Þingeyjarsýslu að þeir
taki þátt í könnuninni, þar sem
frekara starf íslenska starfshópsins
að þessu norræna verkefni er að
verulegu leyti háð niðurstöðum
könnunarinnar. Til starfa að verk-
efninu hér á landi voru ráðnir
Halldór S. Kristjánsson, deildar-
stjóri í samgönguráðuneytinu, Sig-
tryggur Þorláksson, bóndi að Sval-
barði í Þistilfirði og formaður
Þó að menn séu nú miklum mun
bjartsýnni á að nægilegt vatn
fáist fyrir hitaveitu Akureyrar,
einkum eftir að nýja holan á
Ytri-Tjarnar svæðinu var tekin í
notkun með góðum árangri, er
talið nauðsynlegt og að því
stefnt, að koma upp kyndistöð í
haust. Hún mun rísa vestan við
dælustöðina í Þórunnarstræti.
Kyndistöðin verður í 2700 rúm-
metra húsi, sem þegar hefur verið
grafið fyrir, auk þess sem þar verð-
ur olíugeymir og all hár reykháfur.
Gert er ráð fyrir að í kyndistöðinni
verði hægt að hita um 50 sekúndu-
lítra af 40 gráðu heitu affallsvatni í
samgöngunefndar N.-Þingeyjar-
sýslu, Tómas B. Sveinsson, við-
skiptafræðingur, og Þórir Sveins-
son, viðskiptafræðingur.
Mestur samdráttur
á Norðurlandi
I máli Inga Tryggvasonar á al-
mennum bændafundi í Frey-
vangi á þriðjudagskvöld koma
m.a. fram, að frá áramótum
hefur orðið að meðaltali 1,9%
samdráttur í mjólkurframleiðslu
á öllu landinu. Hins vegar hefur
samdrátturinn orðið mun meiri
á Norðurlandi.
Til dæmis varð 4,8% samdráttur í
innveginni mjólk hjá Mjólkursam-
lagi KEA, þ.e. hjá bændum á
Eyjafjarðarsvæðinu, 10,7% sam-
dráttur innveginnar mjólkur á
Sauðárkróki, 5% á Blönduósi, 5,4%
á Húsavík og 8,6% á Þórshöfn.
Sumstaðar jókst innvegið mjólkur-
magn á þessum tíma, t.d. sunnan-
lands.
Virðist samkvæmt þessu, sem
bændur á Norðurlandi hafi aðlag-
að sig kvótakerfinu mun fyrr en
bændur annars staðar á landinu.
90 gráðu heitt vatn, sem verður því
hrein viðbót við vatnsmagnið, sem
nú er fyrir hendi.
Síðustu dagana hefur vatnið úr
nýju holunni á Ytri-Tjörnum verið
notað eingöngu, en úr henni koma
um 55 sekúndulítrar af tæplega 80
gráðu heitu vatni. Áður var dælt
um 110 sekúndulítrum af Lauga-
svæðinu og 15-17 lítrum á sekúndu
af Ytri-Tjarnarsvæðinu.
Aðsögn Inga Þórs Jóhannssonar,
sem nú gegnir störfum hitaveitu-
stjóra, er nú unnið að því að koma
upp dælustöð i húsnæði gömlu
dúkaverksmiðjunnar við Glerá til
að dæla affallsvatni upp í kyndi-
stöðina.
Bæjarland Akureyrar og næsta
nágrenni býður upp á meiri fjöl-
breytni í náttúrufari en flesta
grunar. Það er því engin brýn
þörf að þeysa í önnur héruð til
að skoða fagurt Iandslag, at-
huga fuglalíf, grös eða steina.
Þótt ýmsu hafi verið raskað í
umhverfi bæjarins er enn til
mikils að vinna, að vernda þær
náttúruminjar sem enn eru heil-
legar og beina byggðarþróun á
heillavænlegar brautir.
Með hliðsjón af þessum stað-
reyndum hefur Náttúrugripasafnið
ákveðið að gangast fyrir skoðunar-
ferðum um bæjarlandið og næsta
nágrenni þess austan fjarðar. Verða
þessar skoðunarferðir á laugardög-
um um næstu helgar, og hefjast kl.
2 sd. Þetta eru að sjálfsögðu
gönguferðir, og verða menn að
notast við eigin bíla til að komast á
staðinn eða frá honum. (Ef veður
verður slæmt falla ferðirnar niður)
Fyrsta ferðin verður laugardag-
inn 9. ágúst, til alhliða náttúru-
skoðunar 1 Glerárgili, og hefst kl. 2
við neðstu brúna á Glerá (á Hörg-
árbraut). Þaðan verður gengið upp
með ánni að norðan (vestan) og
upp í mynni Glerárdals. Áætlaður
tími er um 3 klst.
I ferðinni gefst sérstakt tækifæri
til að skoða fjölbreyttar jarðsögu-
minjar, bergtegundir, grös og smá-
dýr. Starfsmenn safnsins, þeir
Helgi Hallgrímsson og Jóhann
Pálsson munu leiðbeina um grein-
ingu á jurtum og öðrum náttúru-
fyrirbærum eftir því sem þekking
þeirra leyfir.
Laugardaginn 16. ágúst er svo
áætluð skoðunarferð í Eyjafjarðar-
hólma og Vaðlaskóg. Safnast verð-
ur við Miðbrúna í Hólmunum og
litið á jurtir þar, en síðan haldið að
Veigastöðum og gengið þaðan nið-
ur í skóginn. Auk náttúruskoðunar
gefst tækifæri til að athuga fyrir-
hugað vegstæði um Leirur og
Vaðlareit.
Laugardaginn 23. ágúst verður
svo alhliða skoðunarferð um Ak-
ureyrarland ognágrenni, í tengslum
við aðalfund SUNN, sem fram fer í
Menntaskólanum 23.-24. ágúst.
Verður þá stuðst við rútubíl á milli
staða og lagt upp frá M.A. um tvö-
leitið.
Síðasta ferðin verður svo vænt-
anlega gönguferð um Krossanes-
borgir, laugardaginn 30. ágúst.
Hefst hún við Lónsbrú um kl. 2., og
verður gengið niður með Lóninu
að Djáknatjörn og til baka.
0 Mogginn
og Geir
Alveg er það hreint kostulegt
að fyfgjast með Mogganum
þessa dagana. Halda mætti
að hann fylgdi leiðtoganum
hvert á land sem er, því það
líður varla svo vika, að ekki
sé birt ræða sem Geir hefur
haidið einhvers staðar úti á
landi. Á fréttasíðu er svo
vanalega langur úrdráttur úr
ræðunni og leiðari blaðsins
fjallar undantekningalaust
um spakmælin sem féllu.
Þetta er rétt eins og í fyrir-
myndaríkinu fyrir vestan, þar
sem fréttamenn fylgja forset-
anum jafnan eftir, því aldrei
er að vita nema hann segi
eitthvað stefnumótandi, jafn-
vel þó að um minniháttar
kurteisisræður sé að tefla.
Fyrst var það Bolungarvíkur-
ræðan, síðan Hallorms-
staðaræðan og þannig á það
vafalaust eftir að ganga fram
að landsfundi Sjálfstæðis-
manna í haust. Þar er nefni-
lega búist við miklum átökum
og mikiivægt að svo líti út,
sem Geir hafi heillað lands-
byggðafólkið með snilli sinni
og orðgnótt og að Albert
komist ekki með tærnar þar
sem Geir hafi hælana, jafnvel
þótt Albert hafi hlotið allt
þetta fylgi i forsetakosning-
unum.
% Geirog
landsbyggðin
f einni slíkri ræðu sagði Geir
eitthvað á þá leið, að Sjálf-
stæðisflokkurinn væri best til
þess fallinn, að jafna þann
ágreining og þá togstreitu
sem væri á milli landsbyggð-
arinnar og höfuðborgar-
svæðisins sökum þess, að
þessi ágreiningur hefði end-
urspeglast í Sjálfstæðis-
flokknum. Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur því samkvæmt
þessu bestan skilning á eigin
klofningi og þar með tog-
streitunni milii landsbyggðar
og höfuðborgarsvæðis. Það
er svo hins vegar annað mál,
hvort Geir og hans menn hafa
skilning og getu til að jafna
ágreininginn í flokknum.
Margir efast um að svo verði
og þar af leiðandi hafi þeir
engar forsendur til að draga
úr togstreitunni miili lands-
byggðarinnar og höfuðborg-
arsvæðisins. Miklu meiri lík-
ur virðast á því, að Geir og
hans mönnum tækist að
kljúfa landsmenn í tvær hat-
rammar fylkingar lands-
byggðafólks og höfuðborg-
arbúa, a.m.k. ef nota ætti
sömu aðferðirnar til sátta og
notaðar eru í flokksdeilunni í
Sjálfstæðisflokknum. Þar er
nefnilega ekki pláss fyrir
nema annan deiluaðilann.
Hitaveita Akureyrar:
Kyndistöð í haust