Dagur - 16.09.1980, Blaðsíða 1

Dagur - 16.09.1980, Blaðsíða 1
LXIII. árgangur. Akureyri, þriðjudagur 16. september 1980 TRÚLOFUNAR- HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS GULLSMiÐIR , SIGTRYGGUR & PÉTUR ' AKUREYRI 64. tölublað Byrja aftur í desember — í útibúi KS í Varmahlíð sem brann til grunna sl. laugardag „Það er nú ekki fullkannað hversu mikið tjón hefur orðið en það er Ijóst að það skiptir hundruðum milljóna og ég myndi áætla að það væri á milii þrjú og fjögur hundruð milljón- ir,“ sagði Guðmann Tobíasson, útibússtjóri Kaupfélags Skag- firðinga í Varmahlíð í viðtali við Dag, en eins og fram hefur komið í fréttum varð þar stórtjón í eldsvoða á laugardagsmorgun. „Við höfum unnið við að hreinsa út úr íbúðunum og versluninni um helgina og ef eitthvað er, lítur þetta verr út en á horfðist í upphafi. Við vitum ekki enn hvað hægt er að nota af húsinu, en starfsmanna- íbúðin er gjörónýt nema útveggir, sprunga kom á suðurvegg verslun- arinnar og hann bungaði út, en virðist nú hafa rétt sig eftir að hit- inn minnkaði. Þá má geta þess að Einar í Gallery Hóhóli Einar Helgason, kennari, sýnir þessa dagana í Gallery Háhóli. Sýningin var opnuð þann 13. þessa mánaðar og lýkur 21. sept- ember. Háhóll er opinn virka daga frá klukkan 20 til 22 og um helgina frá klukkan 16 til 22. lagerinn eyðilagðist gjörsamlega og allt innbú í starfsmannaíbúðinni, auk þess sem allt okkar innbú sýn- ist ónýtt, ef ekki af eldi þá af vatni og reyk. Allir hafa verið boðnir og búnir að aðstoða okkur og má t.d. nefna það, að verið er að þvo fatnað sem bjargaðist, á bæjum hér í kring, og vil ég gjarnan koma á framfæri alúðarþökkum. Við stefnum að því að byggja þetta upp eins fljótt og kostur er því um annað er ekki að ræða. Við vonumst til að geta hafið verslun hér á ný í desember, en við munum hefja verslun með brýnustu nauð- synjar í einhverju horninu mjög fljótlega. Fram að þvi munum við fá bíla þrisvar í viku frá Sauðár- króki með nauðsynjar og afgreiða þær úr skúr sem við höfum í tengslum við olíu- og bensínaf- greiðsluna,“ sagði Guðmann Tobíasson. Hann sagði að þau hjónin hafi vaknað við væl í innanhússkalltæki um kl. 7.30 á laugardagsmorgun- inn. Örskömmu síðar var ekki unt annað að ræða en forða sér vegna reykjarkófsins og hitans og fóru alíir sem voru í húsinu, fimm tals- ins, út á þakið og niður af svölum. Stóð það mjög glöggt að fólkið bjargaðist og er mikil mildi að ekki varð manntjón. Um helgina fór fram torfærukeppni í Bæjarkrúsunum. Fjöldi fólks kom í krúsimar til að sjá ökumennina leika listir sínar. Mynd: HSv. Linda ræður starfsfólk Sælgætisiðnaðurinn á leið upp úr öldudal „Það er alveg laukrétt — við vorum að auglýsa eftir fimm starfsstúlkum. Iðnaðurinn er aðeins að lifna við,“ sagði Eyþór Tómasson, framkvæmdastjóri Lindu h.f., en í síðustu viku voru sett bráðabirgðalög um 40 og 32% innflutningsgjald á sælgæti og kex, sem gilda á í 18 mánuði. Þetta var gert til að veita inn- lendum fyrirtækjum svigrúm til að laga sig að breyttum markaðsað- stæðum, en samkvæmt tollasamn- ingi EFTA var innflutningur á þessum vörutegundum gefinn frjáls fyrr á þessu ári. Einnig hefur Félag íslenskra iðnrekenda ákveðið 500 tonna togari til Þórshafnar: Ákvörðun í þessari viku „Engir samningar hafa enn ver- ið gerðir um kaup á togaranum er við skoðuðum um daginn í Noregi. Málið er í athugun og Fyrsti heiðursborgarinn f síðustu viku kaus bæjarstjórn Dalvíkur fyrsta heiðursborg- ara bæjarins. Sá sem þennan virðingarvott hlaut er Jón Emil Stefánsson, bygginga- meistari. Jón Emil Stefánsson hefur lagt mikinn skerf til uppbyggingar Dalvíkur. Hann var fyrsti vatnsveitustjórinn og liefur byggt m.a. skóla og kirkju á Dalvík. Bæjarstjórnin sæmdi Jón nafnbótinni við at- höfn síðastliðinn sunnudag. Jón Emil Stefánsson er 78 ára að aldri. það verður Ijóst í lok næstu viku hvort við munum kaupa þennan togara. Ef niðurstaðan verður neikvæð verður farið að athuga næsta skip á !istanum,“ sagði Ólafur Rafn Jónsson, sveitar- stjóri á Þórshöfn í samtali við Dag sl. föstudag. Þórshafnarbú- ar hafa í hyggju að kaupa togara með Rauðanúpi h.f. á Raufar- höfn, en það fyrirtæki á sam- nefndan togara. Togarinn sem Ólafur skoðaði í Noregi er eins árs og tæplega 500 tonn að stærð. Ólafur sagði það skoðun heimamanna að ekki bæri að kaupa eldra skip en fjögurra ára. Enn sem komið er a.m.k. verða skipin að fara t.d. í viðgerðir í aðra landshluta því viðhaldsþjónusta er í lágmarki á Þórshöfn og Raufar- höfn. „Við vonumst til að fá annan togara sem fyrst. Venjulega kemur dauður tími í atvinnulífið þegar haustvertíð lýkur og fer atvinna ekki að glæðast fyrr en nokkru eftir áramót. En við erum bjartsýnir á að togarinn fáist. hvort sem það er umrætt skip eða eitthvert annað, og að sú miðlun afla sent er fyrirhuguð á milli Raufarhafnarog Þórshafnar muni stórbæta atvinnuástandið," sagði Ólafur Rafn Jónsson. að beita sér fyrir „hagræðingar- átaki“ í fyrirtækjum sem framleiða sælgæti og kex. Þetta verður gert í samvinnu við iðnaðarráðuneytið, sem hefur ákveðið að véita 20 milljónum króna til verksins strax. „Það er til óhemju mikið af er- lendu sælgæti í landinu og hvað það endist lengi í verslunum er erfitt að segja, en ég geri ráð fyrir að þær birgðir þrjóti fyrir jól. Sem dæmi um söluna að undanförnu get ég sagt að í síðasta mánuði seldi ég stórum viðskiptavini vörur fyrir 44 þúsund, en venjulega keypti hann fyrir hundruðir þúsunda." sagði Eyþór. Ráðstafanir þær sem getið var í upphafi hafa hlotið nokkra gagn- rýni — t.d. kvað formælandi reyk- vískrar sælgætisgerðar þær vera ófullnægjandi. Eyþór sagðist vera fullviss að um óþarfa svartsýni hefði verið að ræða. Eftir árarnót mætti búast við að sælgætisiðnað- urinn rétti úr kútnum og eins vænti Eyþór sér mikils af „hagræðingar- átakinu". Eins og Dagur greindi frá á sín- um lima var nokkrunt Starfsmönn- um i Lindu sagt upp vegna verk- efnaskorts. Þrátt fyrir ráðningar nú gerði Eyþór ekki ráð fyrir að fvrri starfsmannatölu yrði náð fvrr en á næsta ári. Eyfirðingar í Reykjavík Vetrarstarf Eyfirðingafélagsins í Reykjavík er nú hafið. Áformað er að halda hlutaveltu í haust og félagið heldur spilakvöld að Hallveigarstöðum 16. október, 30. október og 13. nóvember. Áformað er að þetta verði 3ja kvölda keppni. Byrjað verður að spila kl. 20.30. í sumar fóru fé- lagar í Eyfirðingafélaginu í skóg- ræktarferð í Heiðmörk og gróð- ursettu um 100 furuplöntur. I byrjun júní færðu Eyfirðingafé- lagið og kvennadeildin, Dvalar- heimilinu Hlíð á Akureyri, lita- sjónvarp að gjöf. Formaður kvennadeildarinnar er Gunnlaug Kristjánsdóttir, en formaður Ey- firðingafélagsins er Ásbjörn Magnússon. Gljúfurárrétt 21. september Samkvæmt hefð hefur verið rétt- að í Gljúfurárrétt í Höfðahverfi I6. september undanfarin ár og sagt var frá í því í siðasta tölublaði af Degi að svo yrði einnig nú, skv. þeim upplýsingum sem blaðið fékk. Þessu hefur nú verið breytt og verður ekki réttað í Gljúfurár- rétt fyrr en næsta sunnudag. þ. 2I. september, og leiðréttist það hér með. Sænskur karlakór í heimsókn Einn þekktasti karlakór Svía, Lunds Studentsángförening, er á tónleikaferð um landið. Kórinn. sem skipaður er 40 körlunt. held- urtónleika i Reykjavík. Skálholti. Dalvík og á Akureyri. Tónleik- arnir á Dalvík fara fram í Víkur- röst þriðjudaginn I6. sept. kl. 2I. en kórinn dvelur þar í boði Dal- víkurkaupstaðar sem er vinabær Lundar. Á Akureyri syngur kór- inn í kirkjunni miðvikudaginn 17. sept. og hefjast tónleikarnir kl. 20.30. Móttöku á Akureyri annast Karlakór Akureyrar og Karla- kórinn Gevsir.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.