Dagur - 16.09.1980, Side 5
BMSOR
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur: Tryggvabraut 12, Akureyri
Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207
Simi auglýsinga og afgreiðslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON
Blaðamaöur: ÁSKELL ÞÓRISSON
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf.
Vísitölukerfið
eykur launamisrétti
Það vísitölukerfi sem við búum við
í dag hefur sætt mikilli gagnrýni.
Flestir eru sammála um að það
gæti verið betra, en menn greinir á
um hvernig eigi að lagfæra það
eða hvað eigi að koma í staðinn.
Því er haldið fram að vísitölukerfið
skrúfi upp allt verðlag í landinu og
sé eins og sjálfvirk olíudæling á
verðbólgubálið. Á hinn bóginn er
svo haldið fram að vísitölukerfið
sé eina trygging launafólks gegn
kjaraskerðingaráhrifum þessa
sama verðbólgubáls. Bæði þessi
sjónarmið hafa nokkuð til síns
máls því raunin er sú, að vísitölu-
kerfið er að hluta bæði orsök og
afleiðing verðbólgunnar. Við erum
í vítahring, sem erfitt er að rjúfa.
Nýlega hefur verið bent á það í
Tímanum, að vísitölukerfið er ekki
sú trygging launafólki sem margir
ætla. Með tölum var sýnt fram á,
að það vísitölukerfi sem við búum
við sé stórkostlega ranglátt og
fjandsamlegt láglaunafólki. Þar
var tekið dæmi um hækkun hita-
veitugjaldsins í Reykjavík og
greint frá því, að hefði 60% hækk-
un þess náð fram að ganga, hefði
framfærsluvísitalan hækkað um
1%. Þessi 60% hækkun hitaveitu-
gjaldsins hefði þýtt 82 þúsund
króna hærri hitakostnað á ári hjá
svonefndri vísitölufjölskyldu en
árslaun verkamanns í Dagsbrún
hefðu hækkað um 37 þúsund
krónur. Mismunurinn er 45 þús-
und krónur, sem er nálægt 1,2%
launalækkun. Þannig hefði
hækkun hitaveitugjaldsins þýtt
beina kjaraskerðingu fyrir verka-
manninn í Reykjavík, þrátt fyrir að
vísitöiukerfið eigi að tryggja
kaupmátt launa hans í verðbólg-
unni.
Gagnvart hátekjumanni eins og
t.d. ráðherra hefði dæmið litið allt
öðruvísi út. Hann hefði fengið 240
þúsund króna launahækkun á ári,
ef hitaveitugjaldið hefði verið
hækkað um 60%. Launahækkunin
hefði gert meira en greiða hækkun
hitaveitugjaldsins og ráðherrann
hefði átt 158 þúsund krónur eftir,
og er þá einnig miðað við vísitölu-
fjölskylduna.
Þannig hefði hækkun hitaveitu-
gjaldsins valdið launalækkun hjá
láglaunamanninum en launa-
hækkun hjá hátekjumanninum.
Hækkunin hefði aukið launabilið
milli verkamannsins og ráðherr-
ans um 203 þúsund krónur miðað
við árslaun beggja.
Hér þarf augljóslega breytinga
við og að því ættu stéttasamtökin
og ríkisvaldið að vinna í samein-
ingu.
Skagafirði þar sem ég ólst
upp. Þar var maður í göngurn í
tvo daga. Það var sko smala-
mennska.“
Við Óli litum yfir féð í al-
menningnum og það lá beint
við að spyrja hve býlin í
hreppnum væru mörg sem
ættu hér fé. í ljós kom að þau
eru 30, en eins og venjulega
slæðist með fé frá ýmsum
stöðum. Þarna áttu t.d. Akur-
eyringar töluvert af fé, og síð-
ar um daginn var von á úrtín-
ingi af Þelamörk.
Eins og Óli sagði áðan hefur
andrúmsloftið í réttum breyst
töluvert, en það á líka við um
göngurnar. Nú fóru menn
hest- og hundlausir. „Við urð-
um að gera þetta allt sjálfir,"
sagði Óli. Óg þar með var
fjallskilastjórinn þotinn.
Hér rennur féð inn í réttina. Það er vel á sig kmnið, en bændur tclja að lömbin séu fremur smá. Mynd: á.þ.
Margir bæjarbúar komu í Þórustaðarétt, en ýmsir Akureyringar áttu þarna fé.
Vmi
„Ingi, hvað á ég að segja að sé
margt í réttinni,“ kallaði Óli í
Garðshorni, fjallskilastjóri,
þegar blaðam. spurði um
fjölda fjár í Þórustaðarétt í
Glæsibæjarhreppi, en þar var
réttað síðastliðinn laugardag.
Þeir félagar báru saman bæk-
ur sínar og komust að þeirri
niðurstöðu að í lagi væri að
gefa upp töluna 2000.
Það var illt að ná í Óla, Ólaf
Ólafsson, enda var mikið um
að vera í réttinni, en með
smávegis fortölum fékkst
hann til að halla sér upp að
réttarvegg. „Blessaður, það er
ekki spor varið í réttirnar nú til
dags. Nú sést ekki lengur
fleygur og slagsmál eru horfin.
Við lögðum af stað snemma í
morgun og það var komið
með safnið í réttina um há-
degi. Þetta er öðru vísi í
Óli í Garðshorni: Þefta er ckki eins gaman og í gamla daga.
Stefán á Hlöðum lét sitt ekki eftir
•'ggja.
Það hjálpuðust allir að
aldnir.
— ungir sem
i
i
■
i
i
■
i
i
i
■
I
■
i
i
s
Ingvar Gíslason:
Almenningur vill að ríkis
stjórnin hafi starfsf rið
Ég dreg enga dul á það að ríkis-
stjórnin á við erfið vandamál að
glíma. Hluti þessara vandamála
hefur lengi fylgt íslendingum, og
á ég þá fyrst og fremst við efna-
hagsvandann, verðbólguvöxt og
minnkandi gildi krónunnar. Þetta
vandamál er nú 40 ára gamalt, og
við það hafa glímt allar ríkis-
stjórnir á tímabilinu 1940-1980
með ærið misjöfnum árangri.
Núverandi ríkisstjórn tók efna-
hagsvandann í arf og hefur auk
þess orðið fyrir mótlæti af utan-
aðkomandi ástæðum, sem ekki
gera það auðveldara að losna við
þennan óheillaarf efnahagsmál-
anna, þótt fullur vilji sé fyrir
hendi. Söluverð íslenskra afurða
á erlendum markaði hefur stór-
hækkað og viðskiptakjörin
versnað að sama skapi.
Viðnámsbarátta
Ég leyfi mér að fullyrða að rík-
isstjórnin hefur gert allt sem í
hennar valdi stóð þá 6 mánuði
sem hún hefur verið við völd til
þess að hafa hemil á langvarandi
verðbólguþróun og tryggja rekst-
ur atvinnuveganna. Hitt ber að
viðurkenna að fram að þessu
hefur ríkisstjórn Gunnars Thor-
oddsens orðið að sætta sig við að
heyja viðnámsbaráttu, enda hlýt-
ur hver skynsamur maður að sjá
að annars var ekki kostur. Ríkis-
stjórnin hefur því risið undir
ábyrgð sinni og gert það sem
henni bar að gera.
Þar með er ekki sagt að sigur sé
unninn. Þvert á móti.
Það er langur vegur frá því að
efnahagsvandinn sé leystur.
Hann er mikill og margslunginn.
En þessi vandi verður ekki leystur
með því að magna upp mótþróa
gegn ríkisstjórninni og nauðsyn-
legum efnahagsráðstöfunum á
hennar vegum. Vitlegasta ráðið er
að tryggja ríkisstjórninni starfs-
frið það sem eftir er af kjörtíma-
bilinu og gefa henni tíma til þess
að vinna skipulega að rðbólgu-
hjöðnun og vaxtalækkun og
framtíðargengi íslensku krón-
unnar. Þetta eru þau markmið
sem að er keppt. En þau nást ekki
ef ríkisstjórnin hefur ekki starfs-
frið eða ef hún fær ekki að lifa út
kjörtímabilið. Varanlegar ráð-
stafanir í efnahags- og atvinnu-
málum taka langan tima, a.m.k.
meira en 6 mánuði. Á það minni
ég og legg á það höfuðáherslu að
ríkisstjórnin setti sér það mark að
vinna að hjöðnun verðbólgunnar
á 3 árum þannig að í árslok 1982
yrði verðbólgan svipuð og í helstu
viðskiptalöndum íslendinga.
Ríkisstjórnin þarf því um 2'/2-3 ár
til þess að ná takmarki sínu í
þessum efnum.
Staða ríkis-
stjórnarinnar
Ekki ætla ég að gerast spá-
maður um það hvort ríkisstjórnin
fær nauðsynlegan starfsfrið þegar
til kastanna kemur. Því miður
gefur reynsla siðustu ára ekki til-
tngvar Gíslason.
efni til eintómrar bjartsýni í því
sambandi. Á hinn bóginn er ekki
fyrir það að synja að íslendingar
hafa lært af reynslunni og finna
að ekki er skynsamlegt að setja
traust sitt á neikvæða og sundr-
aða stjórnarandstöðu þegar þörf
er fyrir þjóðareiningu.
Og óhætt er að fullyrða að nú
er þörf fyrir slíka einingu þjóðar-
innar.
Ég ætla ekki að gera mig sekan
um alltof mikla bjartsýni um
eilífar vinsældir núverandi ríkis-
stjórnar. En ég þykist þó ítala af
raunsæi þegar ég held því fram,
að meirihluti þjóðarinnar gerir
sér góðar vonir um þessa ríkis-
stjórn og ætlast til þess að hún fái
þann starfsfrið, sem hún biður
um og henni er nauðsynlegur, ef
hún á að geta sýnt árangur af
stefnu sinni. Ég held að ráða-
menn stjórnarandstöðuflokka og
hagsmunasanitaka stétta og
starfshópa, svo og fjölmiðlavald-
ið, ættu að kynna sér almenn-
ingsálitið í þessu efni.
Reyndar er það skoðun mín að
hagsmunasamtök stétta og starfs-
hópa hafi í mörgu sýnt ríkis-
stjórninni traust og vilja sinn til
góðrar samvinnu. Því ber að
fagna. Og það er vissulega mikið
undir slíkri samvinnu komið
hvemig til tekst á næstu árum um
stjóm efnahagsmála og afkomu
atvinnuveganna. Eins og valda-
hlutföllum er nú skipt í þjóðfé-
laginu milli eiginlegs ríkisvalds
og hagsmunasamtaka starfsstétta,
þá er samvinna þessara valdaafla
nauðsynlegt skilyrði fyrir árang-
ursríkri landsstjórn. Ég treysti
því, meðan ekki kemur annað í
ljós, að þessi samvinna haldist, og
meðan hún varir eru vonir til þess
að hægt verði að halda uppi hik-
lausri stefnu um hjöðnun verð-
bólgu á næstu 2-3 árum.
Veik stjórnar-
andstaða
Stjómarandstaðan, sem nú er,
þ.e. armur Geirs Hallgrímssonar í
Sjálfstæðisflokknum og Alþýðu-
flokkurinn, mun að sjálfsögðu
láta ófriðlega. Og við því er ekk-
ert að segja. Aldrei var á öðru
von.
En er líklegt að Sjálfstæðis-
flokkurinn, sem er lamaður af
klofningi og forystuleysi, hafi það
traust sem til þarf að koma ríkis-
stjórninni frá? Svo mun ekki vera.
Og hver trúir því að Alþýðu-
flokkurinn hafi traust kjósenda
eins og högum hans er nú háttað?
Þótt hávaðapólitík og ábyrgðar-
leysi hafi stundum náð eyrum
fólks, þá gæti margt bent til þess
að menn séu ekki ginnkeyptir
fyrir slíku nú.
Ég held því að rikisstjórn
Gunnars Thoroddsens hafi von-
irnar með sér. Það er a.m.k. víst
að innan ríkisstjórnarinnar er vilji
fyrir því að halda stjórnarsam-
vinnunni áfram til loka kjörtíma-
bilsins. Það merkir einfaldlega að
þeir flokkar sem að stjórninni
standa vilja einbeita sér að fram-
kvæmd og lausn þeirra mála sem
flokkarnir urðu ósáttir um við
stjórnarmyndunina og finna má
heimildir fyrir í skriflegum
stjórnarsáttmála. Stjórnarsam-
vinnan er annars reist á mála-
miðlun hvað varðar djúpstæð
pólitísk ágreiningsefni, og þau
eiga því ekki að koma við sögu
meðan samvinnan helst. Það er
svo auðskilið mál að ekki þarf
sérstakrar útskýringar við.
Stjómarsamvinna í þingræðis-
landi er ávallt reist á málamiðlun.
(Framhald á bls. 6).
Toppurinn og botninn áttust við
Ármann átti enga
möguleika gegn KA
KA lék sinn sfðasta heima-
leik í annarri deildinni í
knattspyrnu á föstudags-
kvöldið. Þá mættu þeir Ár-
menningum sem börðust fyr-
ir tilveru sinni í deildinni. KA
sigraði í leiknum eins og liðið
hefur gert í öllum sínum
heimaleikjum á þessu sumri.
KA gerði fjögur mörk en fékk
á sig tvö. Óskar Ingimundar-
son gerði tvö þessara marka,
og eru það 19. og 20. markið
hans í deildinni og er hann
þar með nokkuð öruggur
markakóngur deildarinnar.
KA fékk sitt fyrsta tækifæri í
leiknum strax á fyrstu mín.
þegar Óskar lék alveg upp að
endamörkum og að markinu,
en markmaður varði skot hans.
Það voru hins vegar Ármenn-
ingar sem gerðu fyrsta markið.
Það kom á 10. mín., en þá sofn-
aði KA vörnin á verðinum og
Bryngeir Torfason (Bryngeirs-
sonar) komst inn fyrir vörnina
hjá KA, og þrátt fyrir gott út-
hlaup hjá Aðalsteini skoraði
Bryngeir örugglega. Allan fyrri
hálfleikinn sóttu KA menn stíft
að niarki Ármanns en tókst
samt ekki að skora. Ármenn-
ingar nýttu hins vegar öll tæki-
færi til að tefja í leiknum, og
mótmæltu flestum dómurn
dómara og línuvarða.
Á 29. mín. fengu KA menn
gullið tækifæri að jafna metin
þegar Gunnari Blöndal var
brugðið inni í vítarteignum og
dæmd vítarspyrna. Þá brást
Eyjólfi Ágústssyni bogalistin og
hann skaut í stöng.
I hálfleik var því staðan eitt
mark gegn engu fyrir Árrnann.
Á fimmtu mín. síðari hálf-
leiks tókst KA mönnum loks að
jafna, og var þar Óskar að verki.
Sjö mín. síðar var Óskar aftur á
ferðinni og kom KA mönnum
yfir. Einni mín. síðar lék Eimar
upp hægri kantinn og gaf vel
fyrir til Gunnars Gíslasonar
sem skoraði örugglega.
Við þessi mörk brotnuðu Ár-
menningar niður og áttu enga
möguleika gegn KA liðinu.
Síðasta niarkið hjá KA kom á
35. niin. eftir geysilegan sprett
Elmars sem hreinlega hljóp af
sér Ármannsvörnina og lagði
síðan boltann fyrir fætur
Gunnars Blöndals sem var í
dauðafæri og skoraði örugg-
lega. Skömniu síðar minnkuðu
Ármenningar aðeins muninn er
þeir skoruðu mark eftir kæru-
leysi hjá vörn KA.
Sigur KA var nijög sanngjarn •
i þessuni leik enda var þarna
um að ræða leik topp- og botn-
liðs í deildinni.
Dómari var Þóroddur
Hjaltalín og línuverðir Sævar
Frímannsson og Steingríniur
Björnsson, og höfðu þeir mátt
taka harðar á sifelldu röfli Ár-
menninga út í dómgæslu þeirra,
sem annars var ágæt.
Ekki tjáir að deila við dómarann. Mynd: Ó.Á.
Mæðgin
sigruðu
Keppnin um Gullsmiðabikar-
inn fór fram um helgina á veg-
um Golfklúbbs Akureyrar.
Keppni þessi er 36 holu keppni
með forgjöf. Jón Þór Gunnars-
son sigraði í keppninni, var rétt
á undan móður sinni, Jónínu
Pálsdóttur. Jón fór seinni
hringinn á vellinum á pari vall-
Annars urðu úrslitin þessi:
1. Jón Þór Gunnarsson
2. Jónína Pálsdóttir
3. Þórhallur Pálsson
4. Sverrir Þorvaldsson
5.-6. Gunnar Þórðarson
5.-6. Páll Pátsson....
arins sem er 72 högg, og þykir
það mjög góður árangur.
Það eru gullsmiðirnir Sig-
tryggur og Pétur sem gefa veg-
legan farandbikar sem keppt er
um, og einnig gefa þeir ein-
staklingsverðlaun fyrir keppn-
ina.
*
ÞOR NÆGIR
JAFNTEFLI
Á miðvikudagskvöldið kl.
18 leika KA og Þór síðari
umferðina á Akureyrar-
mótinu í knattspyrnu. I
fyrri umferðinni sigraði Þór
með 3 mörkum gegn 2.
Þórsurum nægir því jafn-
tefli í þessum leik til þess að
hljóta Akureyrarmeistara-
titilinn.
Ef KA sigrar þarf annan
úrslitaleik um það hver
verður meistari.
Áhorfendur eru hvattir til
að fjölmenna á völlinn og
nú eru síðustu forvöð að
upplifa Þórs og KA stemn-
ingu á vellinum á þessu
keppnistímabili.
MUNIÐ HÓP-
FERÐINA TIL
HUSAVIKUR
Á laugardaginn kl. 12 verð-
ur hópferð á leik KA og
Völsungs til Húsavíkur.
Farið verður frá biðskýlinu
við Geislagötu.
Væntanlegir þátttakend-
ur vinsamlcgast látið skrá
sig í Sporthúsinu fyrir
föstudagskvöld. Fargjald er
kr. 5.000 og er þá miðað við
að rútan sé full.
★
Högg
. 143
. 147
. 147
. 149
. 151
. 151
4.DAGUR
DAGUR.5