Dagur - 16.09.1980, Síða 6
Akureyrarkirkja. Messað verður
n.k. sunnudag kl. 11 f.h.
Sálmar: 18-428-194-48-527.
B.S.
Takið eftir. Spilakvöldin hjá
Sjálfsbjörg byrja fimmtu-
daginn 18. sept. í Alþýðu-
húsinu kl. 8.30 e.h. Allir vel-
komnir. Nefndin.
Til Minjasafnskirkjunnar á Ak-
ureyri frá Guðrúnu Huld
sem skírð var í kirkjunni, kr.
5.000,- og frá brúðhjónum
kr. 5.000.- Bestu þakkir.
Safnvörður.
Hjálpræðisherinn. Á fimmtu-
dögum kl. 17, fundur fyrir
börn. Sunnudaginn n.k. kl.
13.30 sunnudagaskóli, og kl.
17 almenn samkoma, þar
sem yngri liðsmenn verða í
fararbroddi. Á mánudögum
kl. 16, heimilissamband,
fundur fyrir konur. Verið
velkomin.
mm ob unff™
Ferðafélag Akureyrar
20.-21. september. Öxar-
fjörður, Melrakkaslétta —
haustlitaferð.
26.-28. september. Herðu-
breiðarlindir. Haustferð
með tilheyrandi. Dvalið í
Lindunum. Skrifstofan er
opin mánudaga og fimmtu-
daga kl. 18.00-19.30 Sími
22720.
Vorum að taka upp
skyrtur, peysur, jac-
pot gallabuxur og
margtfleiraá dömur
og herra.
SKIPAGÖTU 5 ' AKUREYRI
SIMI 22150
íþróttafélag fatlaðra Akureyri.
Verðum með hlutaveltu í
Alþýðuhúsinu á Akureyri,
sunnudaginn 21. sept. kl. 2
e.h. Margt góðra muna svo
sem kjöt, kartöflur og alls
konar vörur frá flestum
verslunum og fyrirtækjum í
bænum. Akureyringar
styðjið íþróttir fatlaðra.
Lögmannshlíðarkirkja. Messað
verður n.k. sunnudag kl. 2
e.h. Sálmar: 18-428-194-48-
527. Bílferð verður úr
Glerárhverfi kl. 1.30. B.S.
85 ára er á morgun 17. septem-
ber Elín Jónsdóttir nú vist-
kona á Dalbæ heimili aldr-
aðra á Dalvík. Hún verður á
afmælisdaginn stödd á
heimili sonar síns Ránargötu
9, Akureyri.
Minjasafnið á Akureyri er opið
á sunnudögum kl. 2-4 e.h.
Aðra daga fyrir skóla og
ferðafólk eftir samkomulagi
við safnvörð. Sími á safninu
er 24162 og hjá safnverði
24272.
Opnum aftur 1. september.
Opið allan daginn frá kl.
7,30 til 19.00.
Nýir megrunar- og matar-
kúrar.
Lausir tímar í leikfimi fyrir
konur á öllum aldri.
Nýi sólarlampinn kemur í
september.
Pantið tíma strax, í síma
24888.
Innilegar þakkir til ykkar allra sem glöddu mig á
75 ára afmœli mínu með gjöfum, blómum og
heillaóskum. Sérstakar þakkir til barna, tengda-
barna og barnabarna sem gerðu mér daginn
ógleymanlegan. Guð blessiykkur öll.
VALTÝR AÐALSTEINSSON
Hjartans þakkir til allra sem sýndu mér vináttu og
hlýhug á 70 ára afmæli minu 8. sept. sl. Guð blessi
ykkur öll.
SIGURGEIR JÓNSSON
HEILSURÆKTIN
KAUPANGI
Fimm vinabæir
kynntir
í þessari viku verður borinn út í
hvert hús á Akureyri bæklingur
sem ber heitið: Við fimm í
norðri. { þessum bæklingi er sagt
frá Akureyri, Lahti í Finnlandi,
Randers í Danmörku, Vásterás í
Sviþjóð og Álasundi í Noregi, en
þetta eru vinabæir. Bæklingnum
verður dreift í bæjunum fimm á
sama tíma. Sérhvert eintak ber
númer, sem jafnframt er happ-
drættisnúmer.
Sá sem getur framvísað bækl-
ingnum með útdregnu númeri fær
ferð fyrir eina fjölskyldu (tveir
fullorðnir og tvö börn) til þess
vinabæjar sem hann óskar. Vinn-
ingshafar verða að eiga lögheimili í
einhverjum þessara vinabæja og sá
vinabær sem vinningshafi velur
mun sjá um uppihald fjölskyld-
unnar í eina viku. Vinningsnúmer-
ið verður birt l. október n.k. Ails
verða veitt fimm verðlaun — þ.e.
ein í hverjum bæ.
Hermann Sigtryggsson, æsku-
lýðsfulltrúi á Akureyri, sagði að
með þessari útgáfu væri einkum
verið að kynna vinabæina fyrir
íbúunum, en vinabæjartengsl hafa
lengi verið milli umræddra bæja. Í
bæklingnum eru greinargóðir text-
ar um hvern bæ og fallegar lit-
myndir prýða hann. Hann er gef-
inn út á fimm tungumálum, en ís-
lenska textann samdi Gísli Jónsson,
menntaskólakennari.
Samskipti milli þessara bæja
hafa sífellt verið að aukast hin síð-
ari ár og árlega eru t.d. fundir bæj-
arstjórnarmanna, æskulýðsleiðtog-
arar koma saman á hverju ári og
íþróttamót unglinga úr bæjunum
fimm er annað hvert ár.
Tuttugu
löndunarsvæði.
(Framhald af bls. 8).
Steingrímur sagði í lok ræðu
sinnar, að við mættum nú vaxandi
samkeppni á mörkuðum okkar.
Samkeppnisaðilar okkar styrktu
sinn sjávarútveg verulega og við
ættum aðeins eitt svar og það væri
að gera betur. Lykillinn að framtíð
okkar væri að hafa gæði vörunnar
ávallt í hámarki. Við ættum fyrir-
taks sjómenn og fiskvinnslumenn
og allgóðan flota, en það sem
vantaði væri skynsamleg fiskveiði-
stefna.
6. DAGUR
Okkar innilegustu þakkir færum við öllum sem auðsýnt hafa
okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns,
föður og tengdaföður,
ÁRNA VALDIMARSSONAR.
Ágústa Gunnlaugsdóttir, Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri,
böm og tengdabörn.
Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur velvild
og samúö við andlát og útför eiginmanns, föður, tengdaföður og
afa,
ARNAR STEINÞÓRSSONAR,
prentara,
Löngumýri 19, Akureyri.
Helga Magnúsdóttir,
Guðfinna Ásdís Arnardóttir, Þorsteinn Kr. Björnsson,
Sigrún Ingibjörg Arnardóttir, Guðmundur Pétursson,
Ema Sigurbjörg Arnardóttir,
Magnús Þór Arnarson ,
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir,
SIGURVIN JÓHANNESSON
Völium, Saurbæjarhreppi
sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, 10. þessa mán-
aðar, verður jarðsunginn að Saurbæ, fimmtudaginn 18. þ.m. kl.
2 e.h.
Guðlaug Friðriksdóttir,
dætur og tengdasynir.
Hússtjórnarskóli
Akureyrar
auglýsir námskeið í gerð haustmatar, þ.e. frystingu,
niðurlagningu, áleggsgerð, úrbeiningu og nýtingu
innmatar.
Innritun í síma 24199 milli kl. 14 og 16.
Skólastjóri.
Húsnæði óskast
Viljum taka á leigu húsnæði fyrir kennslu í bifvéla-
virkjun og bílaviðgeröum. Æskileg stærð 50-70
ferm.
Iðnskólinn á Akureyri
Námsflokkar Akureyrar
símar 21663 og 21792.
— Almenningur vill
(Framhald af bls. 5).
Ráðstafana
er þörf
Ég dreg ekki dul á, að vanda-
mál ríkisstjórnarinnar eru um-
talsverð. Hagur sumra undir-
stöðuatvinnuvega þjóðarinnar er
slíkur að ekki verður komist hjá
að gera ráðstafanir til úrbóta.
Þess verður naumast krafist
með réttu að efnahagsráðstafanir
nú komi hvergi við fjárhagsaf-
komu manna, þó að gætt sé
hagsmuna lágtekjufólksins. En að
mínum dómi er aðalatriði þessara
mála nú sem jafnan áður að
tryggja verður fulla atvinnu í
landinu. Án alls efa er brýnasta
hagsmunavandamál almennings
að atvinna sé nægileg. Þess vegna
er það grundvallaratriði í efna-
hags- og atvinnumálum að höf-
uðatvinnuvegirnir séu reknir með
hagnaði, en ekki með tapi eins og
nú á sér stað. Lífskjör fólks ráðast
að sjálfsögðu af því hversu vel
atvinnuvegunum vegnar.
Lögmál árferðis
og viðskipta
Þær stundir geta komið að
nokkuð harðnar á dalnum. Það er
ekkert óeðlilegt við það þó að
skiptist á góðæri og lakari ár.
Þjóð, eins og íslendingar, sem er
jafnákaft háð veðráttufari og
ýmsum öðrum náttúruaðstæðum
sem raun ber vitni auk einhæfra
viðskipta við aðrar þjóðir, — slík
þjóð getur varla búist við því að
ekki kreppi að högum hennar
endrum og eins.
En stundum finnst manni eins
og fólk geri sér ekki grein fyrir
eðlilegum lögmálum árferðis og
viðskipta. Það kemur m.a. fram í
því að hagsmunahópar, — sem
reyndar eru vel seltir sumir
hverjir, — eru með kröfugerð um
lífskjarabætur, samtímis því að
þjóðarbúskapurinn er rekinn við
erfiðar aðstæður umfram venju.
Menn gleyma því að lífsafkoma
fólks er algerlega reist á því
hvernig þjóðarbúskapnum vegn-
ar í heild, sem einfaldlega þýðir
það að atvinnuvegirnir fái risið
undir kostnaði og geti skilað
hagnaði. Þetta er algilt efnahags-
lögmál og á ekkert skylt við
kapitalisma eða smáborgaralega
gróðahugsun. Hækkun kaup-
gjalds er nafnið tómt ef ekki
stendur raunveruleg aukning
framleiðsluverðmætis þar á bak
við. Kauphækkun, sem knúin er
fram í trássi við afurðaverð á er-
lendum markaði þýðir á mæltu
máli verðbólgu og gengisfellingu.
Þetta lögmál gildir jafnt í Pól-
landi sem á Islandi.
Þess vegna' lít ég svo á, hvað
sem líður lífsafkomu einstakra
starfshópa og tekjuskiptingu, að
fara verði með mikilli varúð hvað
varðar kauphækkanir. fiskverðs-
hækkun og ákvörðun búvöru-
verðs um þessar mundir. Nú
verða menn að slá af kröfum sín-
um og láta raunsæi ráða.