Dagur - 25.09.1980, Side 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIDIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
LXIII. árgangur.
Akureyri, fimmtudagur 25. september 1980.
Hver borgar viðgerðina?
Sex kílómefrar verða eftir í haust
Nýi vatnsgeymirinn, sem er rétt
sunnan við veginn upp í Skíða-
hótel, hefur verið tómur í tvo
Bruninn í
Varmahlíð
Unnið
við endur-
byggingu
Enn er ókunnugt um eldsupptök
i húsi Kaupfélags Skagfirðinga í
Varmahlíð sem brann 13. sept-
ember s.l. og verður væntanlega
seint upplýst svo óyggjandi sé.
Strax og rannsóknarmenn höfðu
lokið störfum sínum var tekið til
við hreinsun hússins og endur-
byggingu. Er lokið við að endur-
nýja þakviði og loka húsinu.
Gluggum hefur verið lokað til
bráðabirgða, en þeir brunnu flestir
svo að skipta þarf um þá, en sum-
um verður hreinlega lokað, einkum
á bakhlið hússins. Brjóta þarf upp
múrhúðun á mörgum veggjum og
einangra upp á nýtt, því eins og títt
er um steinhús var þetta húsein-
angrað með plasti, sem rýrnaði
mjög við hitann. Veggir og steypt
loftplata eru hins vegar talin ósk-
emmd. Húsið var ekki einu sinni
fokhelt þegar bruninn var afstað-
inn.
Nauðsynjavamingur er nú seld-
ur úr skúr í Varmahlíð og kemur
þangað sendiferðabíll með vörur
frá Sauðárkróki.
í siimar hefur verið unnið við
vegagerð i Víkurskarði og ef
allar áætlanir standast'er gert
ráð fyrir að hægt verði að hleypa
umferð á veginn árið 1982.
Framkvæmdir við Vtkurskarðs-
veg hófust 1977 og var þá undir-
byggður 2,1 km. vestan við
svonefndan Hrossadal í Víkur-
skarði og 1.8 km. austan við
hann. Síðan lágu framkvæmdir
niðri þar til að hafist var handa á
ný í sumar.
Guðmundur Heiðreksson,
tæknifræðingur hjá Vegagerð rík-
isins sagði að í ár væri áætlað að
vinna í Víkurskarði fyrir 115
milljónir. Stærstur hluti fjárins fer í
ræsisgerð í Hrossadalsgili og í veg-
fyllingu þvert yfir Hrossadalinn.
Þessifyllingermikiðmannvirki: 20
metra löng og mesta hæð er 25
metrar.
Þegar vinnu lýkur í haust verður
eftir að undirbyggja 1,6 km.
Eyjafjarðarmegin og 4,3 km.
Fnjóskadalsmegin. Einnig er eftir
að aka burðar-, jöfnunar- og slitlagi
í allan kaflann, en vegurinn verður
alls um 10 kílómetra langur þ.e.
milli Grenivíkurvegar og Fnjóska-
dalsvegar vestri.
Samkvæmt vegaáætlun á að
verja 200 milljónum til vegarins
(Framhald á bls. 6).
mánuði. Ástæðan er sú að nú
stendur yfir viðgerð á geymin-
um, en sprungur mynduðust í
göflum geymisins. Undirstaðan
var ekki nógu traust og því seig
austurkanturinn með fyrr-
greindum afleiðingum. Svo
virðist sem ekki hafi verið gerð-
ar nægar athuganir á jarðvegin-
um í upphafi og því fór sem fór.
Að svo komnu máli er ekki hægt
að gera sér nána grein fyrir
kostnaði sem hlýst af viðgerð-
inni, og það er álitamál hvort
það komi í hlut bæjarins að
greiða viðgerðina. Verkfræði-
stofa Sigurðar Thoroddsen sá
um hönnum geymisins.
Eins og fyrr sagði stendur nú yfir
viðgerð á geyminum og er talið að
henni ljúki ekki fyrr en í byrjun
nóvember. Viðgerðin er m.a. fólgin
í því að settar eru stoðir, sem ná
niður í móhellulag, undir austur-
kanntinn og eftir að verkinu lýkur á
geymirinn að komast í samt lag.
Mikilvægi geymisins sést m.a. af
því að hann rúmar 4000 rúmmetra
vatns, en þrír aðrir geymar Vatns-
veitu Akureyrar rúma helming þess
magns.
Þegar geymirinn var byggður á
sínum tíma töldu menn að jarð-
vegurinn væri nægjanlega traustur
— þ.e. að undirstaðan væri úr möl
og móhellu. Þegar málið var hins-
vegar kannað fyrir nokkrum mán-
uðum var það niðurstaðan að aust-
urkanturinn standi að hluta á fyll-
ingu eða úrkasti frá gömlu malar-
námi. Vesturkanturinn er á hinn
bóginn á traustum grunni svo segja
má að geymirinn vegi salt — eða
hafi gert það öllu heldur. Heimild-
armaður blaðsins sagði að það væri
auðvelt að vera vitur eftir á og ef-
laust er það rétt — en eftir stendur
hver borgi brúsann fyrir þessi mis-
tök.
Unnið við styrktarstoðirnar. Mynd: H.Sv.
Heybrunar
fyrir vestan
Hvammstanga 23. septcmber
Tveir heybrunar hafa verið
hér um stóðir með stuttu
millibili. í fyrra skiptið brann
hey að Söndum í Miðfirði, en
í gærmorgun var slökkviliðið
kvatt að Hindisvík. Þar er
Ijóst að um milljóna tjón er
að ræða. í Hindisvík brunnu
inni átta ær.
Á laugardagsmorguninn var
slökkviliðið kvatt að Söndum,
en þar var eldur laus í 400 hesta
heystabba, sem stóð við hlið
fjárhúss og hlöðu. Slökkvistarf
gekk greiðlega. Þegar slökkvi-
liðið kom hins vegar að Hindis-
vík í gærmorgun var 2000 hesta
hlaða alelda og sömuleiðis stórt
hesthús. I hlöðunni voru 1500 til
1600 hestar af heyi og brann
það nær allt.
Slökkviliðinu gekk vel að fá
vatn í Hindisvík, en þar tókst að
stífla læk. Hins vegar háði
vatnsskortur nokkuð slökkvi-
starfinu að Söndum. í báðum
tilfellum voru mjólkurbílar
notaðir til að flytja vatn.
Sunnlenskir menn eiga
hrossabú í Hindisvík, en bónd-
inn á Söndum er Þorvarður
Júlíusson. P.M.
NYIVATNSGEYMIRINN
SEIG NIÐUR OG SPRAKK
Arskógsströnd
NÝTT BIFREIÐAVERKSTÆÐI OG
IÐNAÐARHVERFI FYRIRHUGAÐ
Nú er byrjað að steypa undir-
stöður að nýju bílaverkstæði í
stað þess sem brann við Engihlfð
á Árskógsströnd 10. september
s.l. Verkstæðið verður sunnan
Þorvaldsdalsár og austan
þjóðvegar, eða mitt á milli
þorpanna á Árskógssandi og
Hauganesi.
Að sögn Sveins Jónssonar,
bónda í Kálfsskinni, sem sæti á-í
hreppsnefnd og bygginganefnd
Árskógsstrandarhrepps var gengið
í það þegar eftir óhappið að útvega
lóð fyrir verkstæðið og raunar
iandssvæði fyrir iðnaðarhverfi, sem
risið gæti í framtíðinni. Vilyrði
fékkst frá rikinu sem á land á þessu
svæði.
Bílaverkstæðið sem Hjalti Sig-
fússon og Þorsteinn Marinósson,
eigendur verkstæðanna sem
brunnu, ætla að reisa verður á 450
m2 gólffleti. Eins og áður sagði er
verið að steypa undirstöður, verið
er að teikna húsið og útvega efni.
Húsinu hyggjast þeir koma upp
sem allra fyrst.
Septem ’80
í Gallerí Háhóli
Næstkomandi laugardag verður
opnuð sýningin Septem ’80 í
Gallerí Háhóli á Akureyri. Þau
sem sýna eru Guðmunda
Andrésdóttir, Jóhannes
Jóhannesson, Kristján Davíðs-
son, Þorvaldur Skúlason og
ValtýrPétursson.Sýninginstendur
til 5. október og er opin virka
daga kl. 20-22 og um helgar kl.
16-22.Óhætt er að hvetja Akur-
eyringa og nærsveitamenn til að
sjá þessa sýningu, því hún er mjög
athyglisverð og listamennirnir
eru allir í röð fremstu listamanna
þjóðarinnar.
Oðalið endursýnt
Kvikmyndin „Óðal feðranna"
verður endursýnd í Borgarbíói á
Akureyri um helgina. Myndin
verður sýnd á laugardag og
sunnudag kl. 5 e.h. báða dagana.
Einnig er fyrirhugað að endur-
sýna kvikmyndina „Land og syn-
ir“ síðar.
Fundur um um-
ferðamál og ör-
yggisbelti
I boði landlæknisembættisins og
Alfa-nefndar fslands er staddur
hér á landi dr. Rune Adreasson,
ráðgjafi Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunarinnar. Hann mun verða
á fundi kl. 13.30 á laugardag á
Hótel KEA, þar sem fjallað verð-
ur um umferðarmál og einkum
um reynslu af notkun bílbelta. Á
fundinn mæta einnig Ólafur
Ólafsson, landlæknir, og
Guðmundur Ingvi Guðmunds-
son frá Aifa-nefndinni. Fundur-
inn er ölium opinn.
Amtsbókasafnið
á Akureyri
Um mánaðamótin gengur í gildi
vetraropnunartiminn á Amts-
bókasafninu. Eins og að venju
verður safnið nú opið á laugar-
dögum kl. 10-16, mánuðina okt-
óber — apríl. Jafnframt fellur
niður sá tími sem opið hefur verið
á miðvikudagskvöidum í sumar.
Sjá nánar í auglýsingu.