Dagur - 07.10.1980, Blaðsíða 1

Dagur - 07.10.1980, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR- HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI LXIII. árgangur. Akureyri, þriðjudaginn 7. október 1980 ■■■■■■■■■ 70. tölublað Geta ekki borg- að fyrir olíuna Eins og kunnugt er berjast mörg fyrirtæki nú í bökkum og mikið hefur t.d. verið rætt um erfið- leika útgerðarinnar. Erlendar olíuverðshækkanir koma hvað verst niður á útgerðinni og hefur gengið erfiðlega að greiða olíu- reikningana. Um mánaðamótin síðustu var allt útlit fyrir að fiskiskipafloti Húsvíkinga stöðvaðist algjörlega, þar sem olíuskuldirnar voru orðnar það miklar, að Olíufélagið setti þau skilyrði, að ef eldri skuldir yrðu ekki greiddar fengist engin olía afhent nema gegn staðgreiðslu. Málið hefur verið leyst til bráðabirgða með samkomulagi, Bíll fór í höfnina Á sunnudagskvöldið fór ný- legur fólksbíll í höfnina. Tveir menn voru í bílnum og tókst báðum að komast út úr bflnum áður en hann sökk. Nánari tildrög eru þau að ökumaður og farþegi, sem sat við hlið hans, fóru út úr bílnum, en í aftursæti voru tveir farþeg- ar. Ökumaðurinn skildi við bíl- inn, sem er sjálfskiptur, í gangi, en telur að hann hafi komið við gírstöngina um leið og hann yf- irgaf bílinn. Við það rann bíll- inn afturá bak vestur af syðri bryggjunni við Torfunef. Bíllinn náðist upp úr höfn- inni á sunnudagskvöldið. en vandamálið er hins vegar cnnþá fyrir hendi og fer vaxandi. Olíuúttekt togara Húsvíkinga og bátanna hefur verið skuldfærð hjá Fiskiðjusamlaginu, sem síðan hef- ur dregið upphæðina af hráefnis- verði bátanna og greitt Olíufélag- inu. Hins vegar hafa verið erfið- leikar hjá Fiskiðjusamlaginu, eins ogsvo mörgum öðrum fyrirtækjum í fiskverkun, þannig að þegar út- gerðaraðilarnir gátu ekki greitt skuldir við frystihúsið fór að standa á greiðslum fyrir olíuna. Eins og áður sagði var ekki ann- aðséð um tíma, en olíuafgreiðslu til flotans yrði stöðvuð, en samkomu- lag náðist til bráðabirgða. Skuldir vegna togarans og tíu báta nema um 120 milljónum króna, að sögn Bjama Aðalgeirssonar, bæjarstjóra á Húsavík. — Málið er mjög einfalt i reynd og snertir ekki aðeins útgerðina. Fyrirtæki almennt eiga við mikla rekstrarerfiðleika að etja, skuldir hafa safnast upp og samhliða þess- ari erfiðu stöðu er mikil útlána- tregða hjá bönkunum. Þessu til viðbótar hefur afli hjá bátunum verið tregur á árinu og þeir eru nú reknir með 10-15% tapi. Flotinn getur einfaldlega ekki tekið þessar gífurlegu olíuverðshækkanir óbættar inn í reksturinn, sagði Bjarni Aðalgeirsson. Vandi fiskiskipaflotans á Húsa- vík hefur ekki verið leystur, heldur hefur málinu verið slegið á frest. Olíufélagið mun hafa sett að skil- yrði fyrir frestun, að einhver hluti skuldarinnar yrði greiddur fyrir miðjan október. Um síðustu helgi voru sjónvarpsmenn að kvikmynda í Odd- evrarskólanum, en ætlunin er að gera grein fyrir umferðar- fræðsiu hér um slóðir f barnatíma sjónvarpsins. Jafnframt er það hugmyndin að kynna umferðarsvæðið sem slysavarnarfé- lagskonur létu útbúa við Oddeyrarskólann. Á myndinni eru sjónvarpsmennirnir, Björn Mikaelsson lögregluþjónn og tveir kennarar við Oddeyrarskóla. Börnin eru öll í 3ja bekk í fyrr- nefndum skóla. Mynd: áþ. Eldur um borð í Gullveri Eldur kom upp í Gullver NS frá Seyðisfirði um klukkan 9,45 í gærmorgun, þar sem skipið var til viðgerða hjá Slippstöðinni á Akureyri. Slökkvilið Slipp- stöðvarinnar réðist þegar til at- lögu við eldinn og hélt honum niðri og aðstoðaði síðan Slökkvilið Akureyrar við að ráða niðurlögum hans. Skipið skemmdist lítið af eldi, en lítils- háttar af reyk. Neistar komust í gamlar svampdýnur sem átti að fara að henda, en þær lágu á millidekki skipsins. Einnig komst eldur í olíu- leka og torveldaði það slökkviliði fyrirtækisins störf. Hins vegar hélt það eldinum niðri og aðstoðaði Slökkvilið Akureyrar þegar það kom á vettvang. Að sögn Tómasar Búa Böðvarssonar, slökkviliðs- stjóra á Akureyri, mátti litlu muna að eldurinn færi í milliskilrúm úr tré og í stakkageymslu. Þakkaði hann það slökkvistarfi starfsmanna stöðvarinnar, að ekki fór verr. Slökkvilið Slippstöðvarinnar var sett á laggirnar eftir brunann í Breka fyrir tveimur og hálfu ári síðan og lýtur það stjórn sérstaks öryggismálastjóra, sem hefur það starf að annast öryggiseftirlit í Vaða aurinn upp í ökkla „Blessaður maður þarf að vera í stígvélum. Annars kemst maður ekki í skólann“, sagði 10 ára hnokki við Ijósmyndarann er Svona lítur leið barnanna út. Mynd: á.þ. hann var að skoða leðjuna og pollana, sem börn í Lundarskóla þurfa að vaða yfir á leið sinni í skólann. Það eru cinkum þeir vestan skólans, sem fá börn sín heim ötuð í for og eru þau orðin lang þreytt á umhverfi skólans. En það er ekki bara drulla og pollar sem eru á vegi barnanna í skólann. Vestan við hann er heljar- mikill skurður — tæplega 2ja metra djúpur og um 1.5 metrar á breidd. Skurður þessi er óvarinn með öllu og gæti hæglega orðið einhverju barninu skeinuhættur — t.d. í leysingum. „I rigningartíð koma börnin oft haugdrullug heim, enda er varla . Sýning í Listhús- inu á verkum Mou Keightley við öðru að búast“, sagði faðir bams sem býr við Tjarnarlund. „Við höfum gert ótal tilraunir til að fá það upp hvenær framkvæmdum umhverfis skólann, og þó sérstak- lega vestan við hann muni ljúka, en án árangurs." Þegar ljósmyndarinn var að sinna sínum störfum við Lundar- skóla fyrir helgi, kom til hans ungur maður með skólatösku á baki. Hann var í leðjulituðum striga- skóm og sjálfsagt hefur hann verið að stappa í mjúkri drullunni því sletturnar höfðu gengið Iangt upp á bak. Ungi maðurinn brosti sæll og glaður með tilveruna, en ekki vit- unt við hverjar móttökur hann fékk þegar heim kom. stöðinni og brunavarnir. Tómas Búi sagði, að Slippstöðin væri eina stórfyrirtækið á Akureyri sem komið hefði slíku slökkviliði á laggirnar, en mikil þörf væri á að gera svipaðar ráðstafanir í öðrum stórfyrirtækjum. Húsabakka- skóli settur Ytra Hvarfi, Svarfaðardal 2. október Þann 30. september var Húsa- bakkaskóli settur í 25. sinn. í vetur stunda 39 nemendur nám við skólann — í sex bekkjum og þar af eru sex í fyrsta bekk. Börn í sjöunda og áttunda bekk stunda nám í Dalvíkurskóla og nemendur í þeim síðari eru í heimavist að Húsabakka. Skólastjóri Húsabakkaskóla er Björn Þórleifsson, en hann tók við því starfi nú í haust af Heimi Kristinssyni, sem er í ársleyfi frá störfum. Aðrir kennarar eru Júlí- anna Lárusdóttir og Björn Daníelsson, sem starfað hefur við skólann á 3ja áratug og Valborg Sigurjónsdóttir, sem kennir handa- vinnu. Kári Gestsson kennir tón- mennt. Fjóla Guðmundsdottir og vaiuorg iigurjónsdóttir annast ræstingu skólahúsnæðis og gæslu yngstu nemenda. Um matseld sér Ósk Þórsdóttir, en hún á að baki áratuga starf við skólann og henni til aðstoðar er Halla Einarsdóttir. J.Ó. Nú stendur yfir sýning í Listhús- inu á Akureyri á verkum ensku listakonunnar Mou Keightley. Á sýningunni eru 60 vatnslita- myndir, sem flestar eru málaðar á Norðausturlandi. Sýningin var áður í Listmunahúsinu í Reykja- vík. Moy Keightley hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir list sína. Hún er nú kennari við The Central School og Art and Design i Lundúnum og stjórnar listadeild North London Collegiate School. Hún hefur gefið út bók sem heitir Investigating Art. Sýningin er opin virka daga frá 20-22 en henni lýkur um helgina og þá verðuropið frá kl. 16-22. Vinnuskólinn Fyrir skömmu var lögð fram starfsskýrsla Vinnuskólans og niðurstöður reikninga miðað við 12. september. Ljóst er að kostnaður fer fram úr áætlun og í því sambandi er rætt um 5 milljónir króna. Aðalástæðan fyrir þessu er sú að fjöldi unglinga var mun meiri en gert var ráð fyrir í upphaflegri áætlun og jókst vél- og tækjakostur í samræmi Bensínstöð í Glerárhverfi? Fyrir skömmu kom urnsókn til skipulagsnefndar frá Olíufélag- inu Skeljungi h.f., en félagið vill fá að reisa bensínsölustöð í nýjunt hverfum í Glerhverfi. Ráðamenn Skeljungs gera ráð fyrir að ein bensínstöð geti þjónað öllu þessu svæði og gerðu þá fyrirspurn til skipulagsnefndar hvort hún gæti samþykkt að reist verði bensín- stöð norðan eða sunnan þeirrar brautar, sem er framhald Hlíðar- brautar austan Hörgárbrautar. . Svartolía l.ndanfarið hefur verið unnið '' skipulega að því að breyta flest- urn Sambandsskipunum þannig að þau brenndu svartolíu. Ganga nú sex af níu Sambandsskipum fyrir henni. Fiskiskipafloti Húsvíkinga: (

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.