Dagur - 16.10.1980, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
LXIII. árgangur.
Akureyri, fimmtudaginn 16. október 1980
73. tölublað
Vandræðaástand á elliheimilunum:
Tugir þyrftu vistun
annars staðar
Lausn er ekki í sjónmáli
Nú líður að þvl að bókaútgefendur fari að senda bækur sínar á glugga á bókaverslun Jónasar. Þar sem myndin var tekin í
markað enda er jólaösin á næsta leiti. Þessi mynd var tekin um gegnum gluggann spegluðust bækurnar í honum og útkoman
jól fyrir tveimur árum og sýnir þrjá Akureyringa skoða í varð sú sem við sjáum. Mynd: áþ.
Meðalbók á 15 þúsund
Mjög mikill skortur er hér um
slóðir á húsrými fyrir hjúkrun-
arsjúklinga. Jón Kristinsson,
Blaðið kom seint út
Kaupendur Dags eru beðnir vel-
virðingar á því hve seint síðasta
blað barst til þeirra. Ástæðan er
sú að tæki bilaði í Prentverki
Odds Björnssonar og seinkaði
bilunin útkomu blaðsins um
nokkra klukkutíma.
Búið að
aflétta yfir-
vinnubanni
Eins og kunnugt er settu
flugumferðarstjórar á Akur-
eyrarflugvelli á yfirvinnu-
bann í sumar með þeirra af-
leiðingu að Flugleiðir felldu
niður kvöldferð til Akureyr-
ar. Sumarfríum flugum-
ferðarstjóranna þriggja, sem
vinna á vellinum, lauk þann
1. október og hófust þá aftur
eðlilegar vaktir. Því er ekkert
yfirvinnubann lengur og ekk-
ert því til fyrirstöðu að völl-
urinn sé notaður á kvöldin.
Að sögn eins af flugumferð-
arstjórunum hafa yfirvöld sam-
göngumála ekkert rætt við
flugumferðarstjóra um skipulag
þessara mála í framtíðinni. Það
er því eins víst að flugumferð-
arstjórarnir setji aftur á yfir-
vinnubann þegar sumarfrí
þeirra hefjast næsta sumar.
forstöðumaður elliheimilanna
Hlíðar og Skjaldarvíkur sagði
að 1/5 til 1/4 af vistmönn-
um þessara heimila væru
hjúkrunarsjúklingar, sem þyrftu
hið bráðasta að fá annarsstaðar
inni, því elliheimilin væru ekki
búin þeim tækjum sem nauð-
synleg eru þegar hjúkrunar-
sjúklingar eru annars vegar. í
Hlíð og Skjaldarvík eru nú um
200 manns, svo hjúkrunarsjúkl-
ingamir eru því um 40 talsins.
Ekkert pláss er í sjúkrahúsinu
eða stofnunum á þess vegum
fyrir þetta fólk.
Jón Kristinsson sagði jafnframt
að viðkomandi aðilar væru þegar
famir að ræða um lausn á þessu
vandamáli og enn væri hún ekki í
sjónmáli. „Þetta starfar mjög mikið
vegna seinagangs í uppbyggingu
sjúkrahússins,“ sagði Jón.
Dvalarheimilin Hlíð og Skjald-
arvík eru alls ekki ætluð fyrir
hjúkrunarsjúklinga eins og fyrr
sagði. Sem dæmi má nefna að í
þeim eru engin sjúkrarúm og á
heimilnum starfar ekki nægjanlega
mikið af menntuðu hjúkrunarfólki.
„Talan 40 segir ekki alla söguna.
Til viðbótar eru fjölmargir aðrir á
Akureyri og í nágrenni, sem
sjúkrahúsið þyrfti að geta tekið á
móti,“ sagði Jón.
— Við gerum ráð fyrir að hefja
Ólafsfjarðarflugið strax á
mánudag. Þetta kentur sér fyrst
og fremst vel fyrir Ólafsfirðinga
en við vonumst til að fleiri get
notið góðs af. Staðsetning flug-
flota okkar veldur því að við
ættum oft að geta skotist til
Ólafsfjarðar og síðan suður,
þegar aðrir telja sig ekki geta
flogið að sunnan og lent hér,
sagði Sigurður Aðalsteinsson,
framkvæmdastjóri Flugfélags
Norðurlands í viðtali við Dag.
Eins og fram hefur komið í
fréttum veitti samgönguráðherra,
„Staðreyndin er sú að ef við
bókaútgefendur eigum að halda
í við hækkanir sem orðið hafa
síðan um síðustu jól verður að
hækka bækur um 50 til 60%,“
sagði Björn Eiríksson, prent-
smiðjustjóri og eigandi Bókaút-
gáfunnar Skjaldborgar á Akur-
eyri. „Ég geri t.d. sjálfur ráð
fyrir að hækka mínar bækur um
50%, en það gerir það að verkum
að meðalbók frá Skjaldborg
mun kosta um 15 þúsund krónur
um næstu jól.“
Steingrímur Hermannsson, Flug-
félagi Norðurlands flugrekstrar-
leyfi á leiðinni Akureyri-Ólafs-
fjörður-Reykjavík. Flugráð hafði
áður mælt með því að F.N. fengi
aðeins að fljúga milli Akureyrar og
Ólafsfjarðar, en Arnarflug fengi
flugrekstrarleyfi milli Reykjavikur
ogÓlafsfjarðar. Bæði bæjarstjórnir
Ólafsfjarðar og Akureyrar mæltu
eindregið með því að F.N. fengi
leyfið, auk þess sem alþingismenn
kjördæmisins og aðrir beittu sér
mjög fyrir þessu máli.
— Ég er mjög ánægður með þessi
málalok og það var ánægjulegt að
finna þá samstöðu og þann stuðn-
Geir S. Björnsson, fram-
kvæmdastjóri Prentverks Odds
Bjömssonar, sagði að frá Bókafor-
lagi Odds Björnssonar yrðu bækur
á svipuðu verði og Björn Eiríksson
nefndi hér að framan.
Gera má ráð fyrir að fjölmargar
bækur verði þó á hærra verði en 15
þúsund krónur, því þegar rætt er
um meðalbók er átt við 200 síðna
íslenska bók I venjulegu bókar-
broti.
Bókaforlag Odds Björnssonar
gefur út 8 bækur fyrir þessi jól.
„Skrautfjöðrin" í þeim hópi verður
ing sem við fengum og réði úrslit-
um I málinu að mínu mati, sagði
Sigurður Aðalsteinsson. Hann
sagði að F.N. renndi blint í sjóinn
með það, hversu góð flugleið þetta
væri, en sagðist vona að þetla gæti
orðið öllum aðilum til góðs, lyfti-
stöng fyrir félagið bg mikil sam-
göngubót fyrir Ólafsfirðinga, auk
þess sem Ólafsfjarðarflugið gæti
veitt Flugleiðum nokkurt aðhald.
Farmiðaverð hefur enn ekki
verið reiknað út, en gera má ráð
fyrir að flug milli Akureyrar og
Ólafsfjarðar kostaði svipað og milli
Akureyrar og Húsavíkur, þ.e. rösk-
lega 12 þúsund krónur.
Ættbók og saga islenska hestsins
(annað bindi) eftir Gunnar
Bjarnason. Skjaldborg gefur út 12
bækur fyrir jólin.
Nýr
gæsluvöllur
í síðustu viku var tekinn í
notkun nýr gæsluvöllur við
Borgarhlíð í Glerárhverfi á
Akureyri, austan nýju versl-
unarmiðstöðvarinnar.
Gæsluvellir Akureyrar eru þá
orðnir 10, en fjórir eru starf-
ræktir yfir vetrartímann.
Nýi völlurinn verður opinn
frá kl. 13-16 virka daga eins og
hinir vellirnir þrír, en gæslu-
vellirnir eru einkum ætlaðir
bömum á aldrinum 2ja-6 ára.
Að sögn Jóns Arasonar. um-
sjónarmanns með barnaleik-
völlum bæjarins, eru gæsluvell-
irnir töluvert mikið notaðir, en
aðsóknin fer allmikið eftir
veðri, því aðstaða er takmörkuð
og ætlast til að börnin séu úti
við. Tvær gæslukonur eru á
hverjum velli.
Auk nýja Borgarvallarins
verða Lundarvöllur, Byggða-
völlur og Hlíðavöllur opnir I
vetur.
Flug til Ólafsfjarðar
hefst í næstu viku
Heimilishjálp á ný
Vegna verkefnaskorts féll heimil-
ishjálp aldraðra á Siglufirði niður
I sumar. Formaður félagsmála-
ráðs, júlíus Júlíusson, hefur
kannað hvernig þessi mál standa
nú og virðast vera næg verkefni
fyrir hendi á þessum vettvangi
sem þarf að sinna. Félagsmálaráð
Siglufjarðar hefur því samþykkt
að koma starfseminni í gang að
nýju.
Aðalfundur
Framsóknar-
félags Eyfirðinga
Aðalfundur Framsóknarfélags
Eyfirðinga var haldinn nýlega.
Stjórn félagsins var öll endur-
kjörin, en hana skipa Stefán Val-
geirsson, alþingismaður, formað-
ur, Helgi Jónsson, Dalvík, vara-
formaður, Snorri Kristjánsson frá
Krossum, ritari, og Stefán
Halldórsson, Hlöðum, og Sigurð-
ur Jósefsson, meðstjórnendur. í
varastjórn eiga sæti Ármann
Þórðarson, Ólafsfirði, Ingimar
Brynjólfsson, Ásláksstöðum, og
Jónmundur Zophoníasson,
Hrafnsstöðum.
Land og synir
Sýningar á kvikmyndinni Landi
og sonum hafa nú verið teknar
upp að nýju I Regnboganum i
■■BHH
Reykjavík. Jafnframt verður
myndin sýnd um allt land, þar
sem ekki vannst tími til að sýna
hana til hlítar fyrr á árinu.
Land og synir hafa fengið
frábærar viðtökur hvarvetna er-
lendis þar sem rnyndin hefur ver-
ið sýnd. Sýningar standa nú yfir i
Noregi þar sem gagnrýnin er ein-
róma lof og jafnvel bent á að
norskir kvikmyndagerðarmenn
mættu margt af þeirn vinnu-
brögðum læra sem koma fram í
myndinni.
í þýska sjónvarpinu ZDF fékk
kvikmyndin Land og synir þá
umsögn að hún væri eitthvað það
allra besta sem sést hefði frá
Norðurlöndum
Þær sýningar sem nú eru hafn-
ar á Landi og sonum að nýju I
Regnboganum verða þær síðustu
því kvikmyndin verður ekki sýnd
I sjónvarpinu.