Dagur - 16.10.1980, Blaðsíða 6

Dagur - 16.10.1980, Blaðsíða 6
Svalbarðskirkja. Sunnudaga- skólinn n.k. sunnudag kl. 11 f.h. Ath. fermingarbörn mæti klukkustund fyrr. Sóknarprestur. □ RÚN 598010177 = 2 I.O.O.F. 2 16210178 Vi Fíladelfía, Lundargötu 12. Fimmtudagur 16. okt. Biblíulestur kl. 20.30. Allir velkomnir. Laugardagur 18. okt. safnaðarsamkoma kl. 20.30. Sunnudagur 19. okt. sunnudagaskóli kl. 11 f.h. Öll börn velkomin. Almenn samkoma kl. 20.30. Allir velkomnir. Slysavarnarfélagskonur Akur- eyri. Haustfundurinn verður í félagsmiðstöðinni Lundar- skóla mánudaginn 20. okt- óber kl. 8.30. Liesel Malm- quist sýnir jólaföndur. Hverfisstjórar eru hvattir til að mæta. Nýir félagar vel- komnir. I.O.G.T. St. Brynja nr. 99 held- ur fund mánudaginn 20. október kl. 20.30 í félags- heimili templara, Varðborg. Upplestur. Afmælisfundur. Mætið vel, félagar, Æ.t. I.O.G.T. Barnastúkan Samúð nr. 102 heidur fund laugar- daginn 19. okt. kl. 10 árd. í Oddeyrarskólanum. Inntaka nýrra félaga. Myndasýning (M.Ó.G.) Mætið vel á fyrsta fundi haustsins. Gæslu- Borgarbíó sýnir kl. 9 Gullræsið, hörkuspennandi nýja lit- mynd um eitt stærsta gullrán sögunnar. Byggt á sann- sögulegum atburðum er áttu sér stað í Frakklandi árið 1976. Kl. 11 verður sýnd myndin Fórnarlambið. AUGLYSIÐ I DEGI Úrslitin ráðast á þriðju dagskvöld Nú er lokið tveimur umfeiðum í Thule-tvímenningskeppni Bridge- félags Akureyrar, spilað er í 3 riðl- um. Röð efstu para er þessi: Stig. 1.-3. Ólafur Ágústsson — Grettir Frímannsson 274 1.-3. Arnald Reykdal — Gylfi Pálsson 274 1.-3. Ragnar Steinbergsson — Gunnar Sólnes 274 4. Stefán Sveinbjörnsson — Sigurður Búason 259 5. Einar Sveinbjörnsson — Sveinbjörn Jónsson 254 6.-7. Pétur Guðjónsson — Stefán Ragnarsson 251 6.-7. Soffía Guðmundsdóttir — Ævar Karlesson 251 8. Júlíus Thorarensen — Sveinn Sigurgeirsson 249 Meðalárangur er 220 stig. Þriðja og síðasta umferð verður spiluð að Félagsborg n.k. þriðju- dagskvöld kl. 20. Herstöðvaand- stæðingar þinga Dagana 18. til 19. okt. verður landsráðstefna Samtaka her- stöðvaandstæðinga haldin á Ak- ureyri. Margir umræðuhópar munu starfa á ráðstefnunni, sem haldin er í Sjálfstæðishúsinu. í hópnum verður m.a. rætt um þjóðaratkvæðagreiðslu um her- inn og NATO, afstöðu til al- þjóðamála, erlenda stóriðju og erlent fjármagn á íslandi. Hóp- amir munu sjá um skemmtiatriði. Auk þess verður reynt að bjóða upp á kabarett, sem félagar í L.A. sjá um. Dagskráin hefst klukkan 13 á laugardag. Veiðimenn Athugið Að gefnu tilefni er öll rjúpnaveiði bönnuð í landi Laufáss í Grýtubakkahreppi. Bolli Gústafsson. Vatnsveitugeymirinn: Faðir minn og mágur EINAR SIGURBJÖRNSSON, fyrrum bóndi að Litlu-Tjörnum í Ljósavatnsskarði, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 10. október s.l. Jarðar- förin fer fram að Hálsi laugardaginn 18. október kl. 2 e.h. Sigurður Einarsson, Kristbjörg Kristjánsdóttir. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu vegna fráfalls ÁRNA KÁRASONAR, dýralæknis, Arnartanga 59, Mosfellssveit. Gréta Aðalsteinsdóttir, Kárí Árnason, Herborg Árnadóttir, Kári Johansen, Sigríður Árnadóttir, Gunnar Kárason, Svana Þorgeirsdóttir. Innilegt þakklæti færum við öllum þeim, nær og fjær, er sýndu okkur samúö og vinarhug, sendu blóm og kransa, við andlát og jarðarför mannsins míns GUNNARS NÍELSSONAR, Hauganesi. Helga Jónsdóttir, börn og tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRIÐUR ÞORSTEINSDÓTTIR, Hjúkrunarkona, Langholti 7, Akureyri, verður jarösungin frá Akureyrarkirkju laugardaginn 18. okt. n.k. kl. 1.30 e.h. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Sjálfsbjörg Brynja Barðadóttir, Jónas Sigurjónsson, Lóa Barðadóttir, Jón Garðarsson og barnabörn. Fóðraður að innan með tref japlasti Nú er unniö að þvi að klæða hinn nýja vatnsgeymi Vatnsveit- unnar innan með trefjaplasti, auk þess sem unnið er við að steypa styrktarstoðir undir tankinn. Eins og greint var frá í Degi ekki alls fyrir löngu seig tankurinn og sprakk með þeim afleiðingum, að ekki hefur verið hægt að nota hann í rösklega tvo og hálfan mánuð. Nýi vatns- geymirinn er geysistór, rúmar um 4 þúsund rúmmetra af vatni, en þrír aðrir geymar Vatnsveit- unnar rúma aðeins helming þess magns. — Viðgerðinni miðar vel og ég geri ráð fyrir að hún taki þennan mánuð, en það er að nokkru háð veðráttu, sagði Sigurður Svan- bergsson, vatnsveitustjóri Akureyr- ar í viðtali við Dag. — Það er alveg óráðið ennþá hver kemur til með að greiða kostnaðinn við þessa viðgerð. Ég vil sem minnst ræða um hugsan- legar orsakir þessa óhapps meðan beðið er eftir skýrslu frá verk- fræðistofunni. Ég er þó persónu- lega þeirrar skoðunar að þarna hafi verið um ófyrirsjáanlegt atvik að ræða, sagði Sigurður ennfremur. — Undirstaða tanksins var möl og móhella og hún var þjöppuð mjög vel. Tankurinn var síðan steyptur og það sem gerðist var það, að sprunga kom í steypuna á botni tanksins með þeim afleiðing- um, að jarðvegurinn undir honum losnaði og rann undan. Það má e.t.v. segja að það hefði átt að setja trefjaplast innan í tankinn strax. Af því höfum við góða reynslu og steypan er eins og hún er — á það til að springa, sagði Sigurður Svanbergsson, vatnsveitustjóri. Átta manna vinnuflokkur frá Skagaströnd hefur unnið við að smyrja tankinn innan með trefja- plasti. Sigurður kvaðst ekki vita hve mikið viðgerðin kynni að kosta, en vafalaust skipti það tugum milljóna króna. Séð fyrir endann á hitaveitulögnunum Búið er að hleypa heitu vatni á í miðbænum og eru hafnar teng- ingar húsa á því svæði. Um þessar mundir er unnið að lagn- ingu hitaveitupípa í innbænum — þ.e. sunnan við kaupfélags- hornið og áður en hægt er að Ijúka við þennan bæjarhluta verður að skipta um jarðveg í Spítalavegi og Lækjargili. Um miðjan þennan mánuð verður væntanlega hleypt á kerfið i innbænum og það þrýstiprófað. Þá verður hægt að hleypa á hús við Hafnarstræti og Aðalstræti. Þegar framangreindum framkvæmdum lýkur verður aðeins eftir að leggja hitaveitu í Gerðahverfi II. í því hverfi er mjög mikið um rafkynt hús og því var það látið sitja á hak- anum, en búið er að ákveða að leggja hitaveitu í hverfið á næsta ári. Glevmum U ■ ■ ■ ekki geðsjúkum ■ 18.10.B0 6.DAGUR

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.