Dagur - 25.11.1980, Blaðsíða 4

Dagur - 25.11.1980, Blaðsíða 4
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS Skrifstofur: Tryggvabraut 12, Akureyri Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207 Sími auglýsinga og afgreiðslu: 24167 Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON Blaðamaöur: ÁSKELL ÞÓRISSON Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf. Raunhæfar að- gerðir um áramót Sá áratugur sem nú er senn að renna sitt skeið á enda hefur verið mikið uppgangstímabil í sögu ís- lensku þjóðarinnar. Atvinnu- uppbyggingin hefur verið stór- kostleg, einkum í sjávarútvegi og fiskiðnaði og hún hefur leitt til þess, að hlutur dreifbýlisins og landsbyggðarinnar allrar hefur vaxið á ný, eftir niðurlægingar- tímabil viðreisnaráranna, þegar atvinnuleysi var víða orðið land- lægt. Þessi þróun hefur komið öllum landsmönnum til góða og velmegun er nú meiri hér á landi en þekkst hefur áður og nálgast það sem best þekkist í öðrum löndum. Kaupmáttur launa hefur aukist um því sem næst helming á þessum áratug. Þennan sama áratug hefur verðbólga farið vaxandi svo til ár frá ári, en þrátt fyrir verðbólguna, sem allir tala um að sé af hinu illa, hefur hagur landsmanna farið batnandi. Því má ætla að ekki hafi verið fyrir hendi raunverulegur áhugi á að kveða niður verð- bólgudrauginn, fyrr en e.t.v. núna. Og ástæðan fyrir því að nú fyrst virðist eiga að takast á við verð- bólguna af alvöru er að sjálfsögðu sú, að undanfarið ár eða svo hefur hallað undan fæti. Nú er að því komið, að fyrirtæki og einstaklingar verði að fara að greiða fyrir það að hafa á undan- förnum árum eytt meira en aflað hefur verið. Nú er svo komið að ekki sýnist unnt að velta boltanum lengur á undan sér því hann hefur hlaðið svo utan á sig að hann er að verða óviðráðanlegur. Raunhæf niðurtalning verðbólgunnar er ekki hafin, en áramótin verða að marka tímamót í þeim efnum. Auk þess brýna verkefnis að draga úr verðbólgunni og skapa atvinnuvegunum jafnframt rekstr- argrundvöll, verður að leita eftir nýjum tækifærum til atvinnu- uppbyggingar. Leggja verður áherslu á uppbyggingu iðnaðar og nýtingu þeirrar orku sem býr í fallvötnum og iðrum jarðar. Þess- ar orkulindir eiga að gera okkur kleift að verða að verulegu leyti óháðir innfluttri orku og auðvelda okkur að skjóta fleiri stoðum undir atvinnu- og efnahagslíf okkar. Með nýjum áratug fá íslendingar nýja mynt, hundrað sinnum verð- meiri krónur. Myntbreytingunni er meðai annars ætlað að skapa til- tnj á gjaldmiðlinum í þeirri von að sparnaður og ráðdeildarsemi aukist. Þessi aðgerð er hjómið eitt nema samhliða verði gerðar víð- tækar efnahagsráðstafanir. Ef ekki kann svo að fara, að á næsta áratug fari saman óðaverðbólga og samdráttur á öllum sviðum, í stað verðbólgu en mikillar uppbyggingar eins og á þeim ára- tug sem er að líða. Minning Eiríkur Sigurðsson fyrrverandi skólastjóri Fæddur 16. október 1903. — Dáinn 17. nóvember 1980. Fallinn er nú frá merkur skóla- maður, sem einnig var afkastamik- iU rithöfundur og traustur félags- hyggju- og samvinnumaður. Hann var flestum fróðari um menn og málefni, vinsæll og virtur. Hans munu margir sakna. Eiríkur fæddist í Hamarsseli í Geithellnahreppi S.-Múl. Foreldr- ar hans voru Sigurður Þórðarson, bóndi þar, og kona hans Valgerður M. Eiríksdóttir. Þau bjuggu síðar í Borgargarði við Djúpavog og á Dísastöðum á Breiðdaí. Eiríkur átti alla tíð mjög sterkar taugar til æskustöðvanna og ótaldar ferðir austur á Breiðdalinn og til Djúpa- vogs. I andanum var hann ætíð Austfirðingur, þó að ævistarfið færi að mestum hluta fram hér á Akur- eyri. Haustið, sem Eiríkur varð 19 ára, hóf hann nám við Alþýðuskólann á Eiðum. Þar var hann í tvo vetur. Að því námi loknu gerðist hann heim- iliskennari á Breiðdal í eitt ár. Fróðleiksþorstinn var honum í blóð borinn og því lét hann ekki staðar numið á menntunarbraut- inni, heldur hélt utan til fram- haldsnáms. Á þessum árum voru lýðháskólarnir á Norðurlöndum mjög hátt skrifaðir, enda brunnar féíagshyggju- og lýðræðisstefnu. Eiríkur innritaðist í lýðháskólann í Askov haustið 1925 og var þar samfleytt í námi til haustsins 1926, er hann hóf nám í Kennaraháskól- anum í Kaupmannahöfn. Árið 1927 gerðist hann skólastjóri ung- lingaskólans á Seyðisfirði og var það í tvö ár, en síðan 3 ár á Nes- kaupstað. Þaðan lá leið hans í Kennaraskólann og kennaraprófi lauk hann 1933. Að loknu því prófi hóf hann kennslu við Barnaskóla Akureyrar og varð yfirkennari skólans árið 1949. Þegar nýi Odd- eyrarskólinn tók til starfa, árið 1957, var hann ráðinn skólastjóri hans og var hann það til 1967, en þá hafði hann náð eftirlaunaaldri. Eiríkur var afkastamikill og sí- starfandi allt fram til síðustu sjúkralegu. Ungur að árum hóf hann ritstörf og eftir hann liggja mikil og margþætt verk. Fyrst í stað ritaði hann aðallega fyrir yngstu kynslóðina. Frumsamdi þá og þýddi fjölmargar barnabækur, skrifaði smásögur og sagnaþætti fyrir blöð og tímarit og ritstýrði bamablaðinu Vorinu, sem hann gerðist annar eigandi að 1939. Hann skrifaði einnig fjölmörg leik- rit fyrir börn og unglinga og hafa þau verið sýnd víða um land. Þá ritaði hann margar greinar um uppeldis- og skólamál og flutti fjölmörg útvarpserindi um þau efni. Hann safnaði miklum fróðleik um byggðir og mannlíf á æsku- stöðvunum og hefur hluti af því þegar verið gefinn út í bókarformi, annað er að koma út þessa dagana og enn annað í handriti, að mestu tilbúið til prentunar. Félagsmálin tóku mikinn hluta af frístundum hans og í félögum þótti hann áhugasamur og ómiss- andi liðsmaður. Nær hálfa öld starfaði hann að bindindismálum, var m.a. gæzlumaður í stúku í fulla þrjá áratugi og um skeið stór- fræðslustjóri í Stórstúku Islands. Þegar hann lést var hann formaður framkvæmdanefndar I.O.G.T. hér á Akureyri, en eins og allir vita rekur Reglan hér hótel og kvik- myndahús. Hann var einnig formaður og í stjórnum margra annarra félaga um lengri eða skemmri tíma, má þar til nefna Bamaverndarfélag Akureyrar, Austfirðingafélagið á Akureyri, Samband norðlenskra barnakenn- ara o.fl. Öllum þessum félögum vann hann mikið. Kæmi upp ágreiningur milli félagsmanna, var hann glöggur á aðalatriði hvers máls, erfði ekki vanhugsuð orð í baráttuhita, en var góðgjarn og sáttfús. Hann var málamiðlunar- maður að eðlisfari, án þess þó að skorta einurð til þess að halda fram því sem hann taldi sannast og best. Ég kynntist Eiríki fyrst þegar ég kom sem kennari að Barnaskóla Akureyrar. Hann var þá yfirkenn- ari skólans. „Spurðu Eirík“ var hið sígilda svar á kennarastofunni, ef einhver kennarinn spurði einhvers um skólamálin. Eiríkur vissi líka flest og var öllum greiðviknari, en hann var líka flestum hláturmildari ogglaðværari og næmur á skoplegu hliðar lífsins. Þessi eiginleiki gerði hann mjög vinsælan. Nemendun- um, sínum stjórnaði hann líka með vinsemd og ástríki, en ekki með hörðum boðum og bönnum. Þegar nýi Oddeyrarskólinn tók til starfa kom það í hans hlut að byggja þar upp skólastarf. Það var mikið og erfitt verk, en hann gekk til þess af alþekktum dugnaði og afkastaði miklu. Hann unni istofn- uninni, nemendunum og starfslið- inu og hefur átt margvísleg sam- skipti við skólann öll þau ár sem liðin eru síðan hann hætti skóla- stjóm. Oft hefur hann komið fær- andi hendi, því að hann var maður gjafmildur og safnaði ekki auði. Alltaf, þegar ég hitti hann, var hann hress og kátur, fullur lífsorku, starfslöngunar og áhuga á mönn- um og málefnum. Síðast þegar fundum okkar bar saman, ræddi hann um örnefnasöfnun á Austur- landi og þá námu af fróðleik, sem þar væri að finna. Það væru síðustu forvöð að safna þeim fróðleik, til varðveislu fyrir komandi kynslóðir. Að þessu verki vann hann, ásamt fleirum. Þeir hafa nú orðið af ötul- um liðsmanni. Eirikur var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Guðrún Signý Jóns- dóttir frá Ytrikleif á Breiðdal. Fósturdóttir þeirra hjóna var Björg Ömólfsdóttir. Þær eru nú báðar dánar. Síðari kona hans var Jónína Kristín Steinþórsdóttir frá Vík í Héðinsfirði. Kjörsonur þeirra er Hákon Eiríksson og fósturdóttir, Þóra Guðlaug Ásgeirsdóttir. Oft kom ég á heimili þeirra hjóna, Eiríks og Jónínu, ýmissa erinda og ætíð mætti mér þar innileg vinátta, hjálpfýsi og glaðværð. Fyrir það vil ég þakka. Með Eiríki Sigurðssyni er horf- inn á braut mikiíl mannkostamað- ur. Ritstörf hans voru mikil og merk og munu um ókomin ár halda nafni hans á lofti. Ég sendi eftirlif- andi konu hans og öðrum aðstand- endum samúðarkveðjur. Við sem þekktum hann munum ætíð minnast þessa trausta og hjálpfúsa vinar og þekkta skólamanns með virðingu og innilegri þökk. lndriði Úlfsson. Stökur Að (gefnu) tilefni Þjóðin sig ei skóa á lengur, sama á hverju gengur. Hvar eru nú und rifjum ráð, eymd og vesöld í lengd og bráð. Inn að flytja útlent dót, ýmsum þykir henta. Landans hérna, hönd og fót, helst ei vilja renta. Frá útlandinu á ei að kaupa alla hluti sem þurfum við. Betur búum, án þess að rauþa og björgum oss sjálfir, þess ég bið. Útlendum nú vinnu veitum, í vösum sjálfir, hendur geymum. Þetta skal gert í bæ og sveitum, skóna „danska" svo að oss reimum. Nú höggva þeir sem hlífa skyldu, heldur er málið leitt. Bara þeir hugann herða vildu, hjá vandræðum yrði sneitt. Fyrirtækin fertug vel, forðast þeir á vetur setja. Þetta alít ég ekki fel, einatt mun það málið vekja. Skóari stattu við leistinn þinn, svo verði til hagsbóta þjóð. Og arðinn fáir, en ekki hinn — er í útlendan leggur sjóð. Við skulum klæða, óss sjálfir, og snæða vort eigið brauð. Verum heilir, ei hálfir, og hafandi eiginn auð. 8361-8469 Málefni aldraðra í Skagafjarðarsýslu: Skagfirðingar eru á effir þeim sem best hafa gert Með breyttum þjóðfélagshátt- um og aukinni velmegun hefur gamla fólkið einangrast. Það dvelur ekki lengur í skjóli barna sinna og snerting þess við æsk- una er að rofna, segir í fréttatil- kynningu frá öldrunarnefnd Skagafjarðar. Síðan segir orð- rétt: Þegar börnin hverfa að heiman verða eigin hús og íbúðir, í flestum tilfellum, bæði of stór og óhentug öldruðu fólki, að annast þar um sjálft sig. I hæfilegu húsnæði og með tilheyrandi aðstoð, getur líf aldurhniginna hjóna og einhleyp- inga orðið innihaldsríkt og ánægjulegt, samskipti aukist inn- byrðis og samband við umhverfið haldist. Ellin á ekki að vera óbæri- leg einsemd, heldur skemmtileg hvíld og afþreying við tómstunda- störf og önnur hugðarefni. Hér þarf samfélagið að koma til hjálpar og veita þá aðstoð, sem unnt er. Skagfirðingar eiga ekkert starf- andi elliheimili. í sjúkrahúsinu á Sauðárkróki er hjúkrunardeild og íbúðir fyrir átta aldraða einstak- linga, byggt fyrir nokkrum árum. Ljóst er, og hefur lengi verið, að full þörf er á að bæta hér úr. Það mun hafa verið árið 1977, að bæjarstjórinn á Sauðárkróki og sýslumaður Skagfirðinga fengu Húsnæðismálastjórn ríkisins til að gera athugun á þörfum fyrir slíka starfsemi í byggðum Skagafjarðar. Könnun þessi var unnin af Gylfa Guðjónssyni, arkitekt, og Ásdísi Skúladóttur, félagsfræðingi, og skiluðu þau áliti 1978. Lögðu þau allmikla vinnu í þetta, ferðuðust um allan Skagafjörð. Heimsóttu staði, stofnanir og gamalt fólk víðsvegar um héraðið. Á þann hátt drógu þau saman mikinn fróðleik um þessi mál í sýslunni, en fleiri staðir ættu að geta notið skýrsl- unnar að miklu leyti. Að lokinni könnun þeirra Ásdís- ar og Gylfa var málið enn á um- ræðustigi og áttu aðilar sýslu og bæjar með sér fundi um skipan þessara mála. Á fundi sýsluráðs, bæjarráðs og félagsmálaráðs Sauð- árkróks í jan. s.l. var gengið frá því, að Skagafjarðarsýsla og Sauðár- króksbær gerðu með sér samstarfs- samning um sameiginlega bygg- ingu hjúkrunar- og dvalarheimilis í tengslum við sjúkrahúsið á Sauð- árkróki. Einnig skyldu reistar íbúðir fyrir aldraða á Hofsósi og í Varmahlíð. Nú í sumar kusu sýslu- nefnd Skagafjarðar og bæjarstjórn Sauðárkróks þrjá menn hvor í byggingarnefnd, er hafa skyldi á hendi framkvæmd þessa málefnis. Byggingarnefndin er tekin til starfa. Hún hefir yfirfarið skýrslu Húsnæðismálastjórnar, kynnt sér á hvem hátt þessum málum er best fyrir komið annarsstaðar, rætt við heilbrigðisyfirvöld, Húsnæðis- málastofnun ríkisins og sótt um lóðir undir umræddar byggingar. Komið hefur verið að máli við arkitekta og vonast er til, að hægt verði að hefja störf á næsta vori. Augljóst má vera, að mikla fjár- muni þarf til að standa straum af slíkri framkvæmd. Fyrirhugað er, að fá félagasamtök til að taka þátt í allsherjar fjársöfnun þessu máli til framdráttar. Áhugi er allsstaðar mikill. Rausnarlegar gjafir hafa borist frá eldra fólki og fylgir þar góður hugur. Nokkur félög hafa þegar lýst sig reiðubúin til sam- starfs um rnálið með fjáröflun o.fl. Húsnæðismálastjórn hefur heitið allri þeirri lánafyrirgreiðslu, er lög heimila og einnig lífeyrissjóðir í Skagafirði. Hinsvegar er óljóst enn sem komið er um þátttöku ríkisins, en það mál verður kannað nánar. I Skagafjarðarhéraði búa nú um 4500-5000 manns og fer fjölgandi. Þarfir þessa fólks fyrir hverskonar heilbrigðisþjónustu er hin sama og gerist annarsstaðar. Ljóst er, að Skagfirðingar hafa orðið á eftir að skipa þessum málum eins og best gerist í öðrum héruðum. Við svo búið má ekki lengur standa. Allir héraðsbúar verða að hefjast handa og sameinast um farsæla lausn málsins. I byggingarnefnd aldraðra í Skagafirði eiga sæti: Frá Skaga- fjarðarsýslu, sýslunefndarmenn- imir: Gunnlaugur Steingrímsson, Hofsósi, Sigurður Jónsson, Reyni- stað og Þórarinn Jónasson, Hró- arsdal. Frá Sauðárkróksbæ, bæjar- fulltrúamir: Friðrik J. Friðriksson, Hörður Ingimarsson og Sæmundur Hermannsson. Skákfélag Akureyrar: Hólmgrímur Heiðreksson haustmeistari 1980 Haustmóti S.A. lauk mánudag- inn 17. 11. síðastliðinn. Haust- mótsmeistari S.A. 1980 er Hólmgrímur Heiðreksson en hann hlaut 7,5 v. af 9 möguleg- um. í öðru sæti varð Gylfi Þórhalls- son með 7v. Þriðji varð Sigurjón Sigurbjörnsson með 6v. I fjórða og fimmta sæti komu svo þeir Jakob Kristinsson og Jón Björgvinsson með 5,5 vinninga. í B-flokki sigraði Bjarni Jóna- tansson örugglega en hann hlaut 6 vinninga af 6 mögúlegum. I öðru og þriðja sæti urðu jafnar þær Sveinfríður Halldórsdóttir og Ás- rún Árnadóttir með 4 vinninga hvor. Skákfélag Akureyrar telfdi við Taflfélag Seltjarnarness laugar- daginn 15.11 s.l. í deildarkeppni S.í. Þeirri viðureign lauk með því að bæði liðin fengu fjóra vinninga. Á fyrsta borði fyrir Akureyri telfdi Gylfi Þórhallsson og sigraði hann besta mann þeirra Seltirninga, Jónas Þorvaldsson örugglega. Gylfi hefur ávalt staðið sig mjög vel í deildarkeppninni og til gamans má geta þess að hann hefur verið með í deildarkeppninni frá upphafi. Sunnudaginn 30. 11. verður haldið hraðskákmót haustmótsins í Hvammi kl. 1.30. Einnig fer þá fram verðlaunaveiting fyrir haust- mótið. Glaðlegir Skagfirðingar. Mynd: Stefán Pedersen. Friðjón átti stórleik — þegar K.A. sigraði Breiðablik Á föstudagskvöldið léku í íþróttaskemmunni KA og Breiðablik úr Kópavogi í ís- landsmótinu i annarri deild. Blikarnir eru nýliðar í deild- inni, en þeirkomu upp úr þriðju deild í fyrra. Það er skemmst frá því að segja að KA vann mjög sannfærandi sigur í leiknum, en þeú skoruðu 29 mörk á móti 21 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 14 mörk gegn 10 KA í vil. Þór tapaði Á laugardaginn léku síðan Blik- amir við Þór, og var sá leikur mun jafnari en leikurinn kvöldið áður. I hálfleik var staðan 13 mörk gegn 12 Blikunum í vil, og þá hafði fyrri hálfleikur verið mjögjafn. í síðari hálfleik héldu Blik- amir forskoti sína og framanaf eitt til tvö mörk yfir. Uppúr miðjum hálfleiknum, þegar staðan var 22 gegn 21 Blikunum í vil, kom slæmur kafli hjá Þór og Blikarnir skoruðu þrjú mörk í röð án þess að Þór tækist að svara fyrir sig. Þegar aðeins þrjár mín. voru til leiksloka var staðan orðin 30 gegn 24 Blikunum í vil. Þá var einum þeirra vikið af leikvelli. Þá fóru Þórsarar að leika maður á mann, og sú leikaðferð heppnaðist mjög vel, því þeir gerðu fjögur mörk í röð, þrátt fyrir það að Blikarnir gerðu það sem þeir gátu til að tefja tímann. Þegar flautað var til leiksloka var munurinn orðinn tvö mörk (30 gegn 28) og sigur Blikanna í höfn. Eins og í fyrri leiknum var Bjöm Jónsson bestur og markhæstur hjá Blikunum, og einnig átti markmaður þeirra góðan dag. Hjá Þór var enginn leikmaður sem af öðrum bar, en flestir áttu þokkalegan leik. Tap & sigur Þórsarar léku tvo leiki í fyrstu deildinni í körfubolta um helgina. Léku þeir tvívegis í Borgarnesi við heimamenn, en í deildinni er fjórföld um- ferð og þess vegna tveir úti- leikir og tveir heimaleikir við hvert lið. I fyrri leiknum tap- aði Þór með 78 stigum gegn 100, en í þeim síðari sigruðu þeir með 90 stigum gegn 80. Það voru Bandaríkjamenn- imir í báðum liðum sem voru atkvæðamestir, hjá Þór Cary Shwarts en Dakasta Vebster eða „spóinn" svokallaði hjá Borgnesingum. KA byrjaði leikinn af fullum krafti og gerði fjögur fyrstu mörkin, en þau gerðu Þorleifur, Gunnar Gísla og Friðjón sem gerði 2. í fyrri hálfleiknum komust KA menn mest í sjö marka mun, og áttu Blikarnir aldrei möguleika á að ógna veldi þeirra. Undir lok hálfleiksins náðu Blikamir aðeins að rétta úr kútnum og komast í fjögurra marka mun. Um miðjan síðari hálfleik voru KA menn komnir í 21 mark gegn 13, en 21. markið var nokkuð sögulegt. Gunnar Gíslason var kominn í dauða- færi inn á línuna og skaut hörkuskoti sem hafnaði í stöng- inni, en boltinn fór síðan í gólfið og í bakið á markmanninum og þvínæst í netið. Þegar þessum markamun var náð, var aðeins um formsatriði fyrir KA að ljúka leiknum, en honum lauk eins og áður sagði með 29 mörkum gegn 21. Mikið af vítum var í leiknum og skorað úr þeim öllum nema einu, en þá var skotið í stöng. KA fékk fjögur víti og skoraði úr þeim öllum, en Blikarnir fengu níu og skoruðu úr átta. Fimm Blikum var vikið af leik- velli í tvær mínútur, en tvívegis fékk Friðjón að hvíla sig. Frið- jón var bestur KA manna og einnig komust vel frá leiknum þeir Þorleifur og Erlendur, en þeir sýndu báðir mikið öryggi. Björn Jónsson var bestur hjá Blikunum ásamt markmannin- um en Björn gerði einnig 9 mörk. Flest mörk KA gerði Friðjón 11, Þorleifur 6, Gunnar Gíslason og Erlendur gerðu 4 hvor, Erlingur 2 og Magnús Guðmundsson 1. Sigurður gerði flest mörk Þórs. Lið Þórs er ungt og ekki eins reynslumikið eins og t.d. lið KÁ, en ungu strákarnir hjá Þór eiga eftir að „springa út“ og vinna góða sigra. Flest mörk Þórs gerði Sigurður 7, Guðmundur Skarðhéðinsson 6, Einar Arason og Árni Gunnarsson 3 hver, Rúnar og Sigtryggur 2 hver. Ekki þekkti blaðam. íþróttasiðunnar nöfn dómaranna en þeir voru greinilega reynslulitlir, en það hjálpar þeim ekki í þeirra erfiða hlutverki að leikmenn og áhorfendur séu að segja þeim til. Slíkt kann ekki góðri lukku að stýra. Aðalfundur knattspyrnudeildar Þórs Aðalfundur knattspyrnudeildar Þórs verður haldinn fimmtudag- inn 27. þessa mánaðar klukkan 20.30. Fundurinn verður í íþróttahúsi Glerárskóla. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. 4.DAGUR DAGUR.5

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.