Dagur - 05.12.1980, Blaðsíða 11

Dagur - 05.12.1980, Blaðsíða 11
MAÐUR OG UMHVERFI Lifandí land Þegar ég var lítill hugsaði ég oft um það, að jörðin myndi vera lifandi á sama hátt og skepnurnar. Moldin gat þá samsvarað húðinni, gróður- inn hárunum, og sjálf værum við auðvitað bara „lýs“ á þessari miklu skepnu. Ég vogaði jafnvel að bera þessa heimspeki undir mömmu, eitt sinn er við gistum á kirkjustað og sváfum í prestsherberginu (en það fannst mér afskaplega hátíð- legt), og mun víst hafa ymprað á því að þessi mikla skepna væri e.t.v. sjálfur guð, enda fékk ég snuprur fyrir þessa vitleysu. Ég varð því ekki lítið upp með mér þegar ég svo nokkrum árum síðar, las það í rit- um Snorra Sturlusonar (Heims- kringlu) að fornir fræðimenn hefðu haft eitthvað svipaðar hugmyndir um jörðina, þótt nokkuð væri úr því dregið með þeirri athugasemd Snorra að „þeim var eigi gefin sú andlega spektin'.“ Ýmsir hinna margvísu land- námsmanna, sem hingað lögðu leið sína frá Noregi eða Bretlandseyj- um, þóttust verða þess varir að hér væri mikið af landvœttum, svo nauðsynlegt þótti að setja það í lög, að ekki mætti sigla að landinu „með gapandi höfði eða gínandi trjónu," (átt er við útskorin dreka- höfuð o.fl. þessháttar, sem oft prýddu stefni hinna fornu vikinga- skipa), heldur skyldi taka slíkt pírumpár niður þegar landsýn væri tekin, til að forðast að ögra land- vættum. í Landnámu er þess getið um Þórhadd gamla af Mæri, er nam Stöðvarfjörð eystra að hann „lagði Mærinahelgi á allan fjörðinn og lét engu tortíma þar nema kvikfé himilu.“ Alkunn er og dýrkun Þórsnesinga á Helgafelli á Snæ- fellsnesi og svipaðar sögur eru til úr Vatnsdal, Fnjóskadal og fleiri stöðum. Ýmiss konar bannhelgi hefur verið við lýði í landinu alll til vorra daga, t.d. í mynd hinna svo- nefndu álagabletta, sem ekki mátti raska á nokkurn hátt, jafnvel ekki slá, svo ekki hlytist verra af. Á síðari tímum er bannhelgin oftast tengd huldufólkstrú, sem er á ýmsan hátt séríslenzkt fyrirbæri. Huldufólk á heima í klettum og hólum og þessum bústöðum þeirra má að sjálfsögðu ekki raska. Ekki eru nema þrír áratugir síðan fresta varð grjótnámi i kletti einum (Stofuklöpp) við Syðra-Krossanes, vegna þess að þar reyndist búa huldufólk og þurfti að semja við það um flutning úr klöppinni. Huldufólkstrú hefur víða verið rík, en þó misjafnlega mikil eftir landshlutum. í Mývatnssveit fer t.d. mjög litlum sögum af huldu- fólki, (það er líklega ekki hrifið af brunnu grjóti) en þvi meira er af því í Eyjafirði. Þar hefur það verið mörgum manni veruleiki ekki minni en sjálft mannlífið og marg- vísleg samskipti hafa átt sér stað milli þessara tveggja „mann- flokka“, sem á ýmsan hátt minna á það þegar tvær óskyldar þjóðir búa í sama landi.- Er skemmst að minnast frásagna Margrétar frá Öxnafelli, sem varpa á ýmsan hátt nýju ljósi á þennan merkilega kyn- stofn. Hún getur þess m.a. að hún hafi fyrst komist í kynni við rafljós hjá huldufólkinu í fjallinu við Öxnafell, og lýsir m.a. slökkvurum (rofum) í húsum þess. Rafstöð huldufólks sá hún í Glerárgili (hún er sennilega enn í notkun), og helzta kaupstað þess taldi hún vera Huldufólksbyggðir á Akureyri. Þekktir huldufólksbústaðir eru merktir með stjömum, en liklegir með húsum. í klettunum við Hallland (Hall- landsnes). Þannig lifir huldufólks- trúin enn og blómgast á okkar „upplýstu" tímum, og lagar sig jafnvel eftir þeim. Landið okkar er ennþá fullt af lífi, ekki aðeins af fuglum og fisk- um, ormum eða skorkvikindum, heldur einnig af duldu lífi, sem fá- um er gefið að sjá, og enginn getur skilið eða skilgreint, en flestir hafa þó eitthvert veður af því við vissar kringumstæður. Vísindin hafa lil þessa leitt hjá sér að kanna þetta dularlíf, en eru þó smám saman að opna sinn glugga einnig á því sviði. Fornir spekingar töldu að allir hlutir hefðu einhverskonar líf og sál. Sálarfar jurtanna var að vísu heldur ófullkomnara en sálarfar dýranna, sem aftur stóð mannssál- inni neðar, jafnvel steinarnir voru ekki alveg skyni skroppnir, þeir höfðu sitt sérstaka líf og einhvern vott af sál. Maðurinn gat einnig gætt þá vissu lífi, gefið þeim hlut- deild í sálarfari sínu. Þannig skýrist trúin á „stokka og steina", sem hefur verið býsna algeng og er raunar enn í nýju formi (skyldu ekki margir íslendingar trúa mest á bílinn sinn?). Sögustaðirnir svonefndu eru fyr- irbæri af þessu tagi, en það eru staðir sem á einhvern hátt eru tengdir sögulegum atburðum eða atburðarás. Þingvellir við Öxará eru frægastur sögustaður á íslandi og í flestum sveitum er fjöldi staða sem tengdir eru atburðum úr Is- lendingasögum, þar sem X barðist við Y eða Z var drepinn. Oftast eru örnefni tengd þessum stöðum, sem vísa til atburðanna, og stundum hefur maður það á tilfinningunni að það séu örnefnin sem hafa skapað söguna, en ekki sagan ör- nefnin, enda fullvíst að til eru ýmsar slíkar örnefnasögur, a.m.k. í þjóðsögum. Þjóðsögur okkar hafa yfirleitt þá sérstöðu rneðal þjóð- sagna heimsins, að þær eru lang- oftast bundnar ákveðnum stöðum, en gerast ekki „fyrir austan sól og sunnan mána“ eins og títt er um Mokka- fatnaður Akureyringar, nærsveitamenn. Verðum með sölu á mokkafatnaði í Gildaskála Hótel K.E.A. föstudaginn 5. des. n.k. frá kl. 13.00 til 21.00. Úrval af fallegum mokkafatnaði. Ath. greiðslukjör- in. Lúffur í mörgum litum og öllum stærðum, hentugt til jólagjafa. 1 *« Saumastofan Dalvík sími 61405. Helgi Hallgrímsson ævintýri. Þannig skapa þjóðsög- umar einnig sína sögustaði eða þjóðsögustaði, sem oft skipta tugum í einni sveit. Huldufólkssögurnar fyrrnefndu eru dæmi um slíka staði, en við það má svo bæta stöð- um þar sem aðrar vættir, svo sem tröll, dvergar eða draugar hafa gert vart við sig, að ógleymdum þeim fjölmörgu stöðum sem tengdir eru atburðum úr mannlegu lífi þjóð- sagnanna. Á þennan hátt má segja að við mannfólkið, höfum gætt landið okkar lífi og gefið því hlutdeild í hugarheimi okkar og daglegu amstri. En jafnframt höfum við tengst því á sérstakan hátt. Jafnvel svo einfalt atriði eins og að gefa landslagseinkennum nöfn, hefur í för með sér vissa samtengingu og vissa „mennskun'* landslagsins. Ónefndur klettur verkar ókunnug- lega, en hafi kletturinn nafn er viðhorfið annað, og mörgum þykir landslag lítils virði ef það heitir ekki eitthvað. Tilfinning manna fyrir landinu og sérstaklega næsta umhverfi, er annars mjög misjöfn. af eðlilegum ástæðum. Sveitamaðurinn hlýtur að skynja landið á annan hátt en borgarbúinn, einkum ef hann er borinn og barnfæddur á staðnum. Þó virðst tengsl manna við landið hafa rofnað og minnkað hvarvetna á síðustu áratugum, kannske ekki sizt í sveitum, þar sem ótaldir „hulduhólar" hafa orðið að vikja fyrir túnræktinni. Á hinn bóginn hafa margir kaupstaðarbúar „uppgötvað" landið að nýju, en tengsl þeirra við landið eru oftast næsta einhæf og grunnristin, t.d. einskorðuð við laxveiðar, eða þá svokallaða „náttúrufegurð," sem þeir njóta þó oft aðeins á þann hátt að taka litmynd af henni. Vegna þessa rótleysis aldarfars- ins er nu mikil nauðsyn að halda öllu til haga sem eflt getur tengsl mannsins við landið og bjarga því yfir þær holskeflur annarlegra áhrifa sem velta yfir þjóðfélag nútímans. í því felst m.a. að hafa gát á sögulegum minjum af öllu tagi. Þær þarf að kanna og skrásetja í hverjum hreppi og á hverri jörð, og friðlýsa sumar þeirra merkustu. Best væri þó að allar sögulegar minjar úti í náttúrunni væru sjálf- krafa friðlýstar fyrir hvers konar raski, og mun það vera komið I lög hjá sumum þjóðum. En betri en öll friðlýsing er þó sú vernd sem jákvætt almenningsálit skapar, að ekki sé talað um raun- veruleg tilfinningatengsl. Ég vil svo enda þetta spjall með orðurn Jónasar úr Gunnarshólma: „Flúinn er dvergur, dáin hamra- tröll, dauft er í sveitum. hnípin þjóð í vanda, en lágum hlífir hulinn verndarkraftur, hólmanum þar sem Gunnar sneri aftur." H.Hg. "^Íorli»gs^biib^" SÍVINSÆL " "...... BARNABOK SALÓMON SVARTI eftir HJÖRT GISLASON Sagan um Salómon svarta átti gífur- legumvinsældum að fagna þegar hún kom fyrst út, en hefur verið ófáanleg am árabil. Því gefur Bókaforlag Odds Björnssonar bókina út að nýju. í bókinni segir frá þeim bræðrum Fía og Fóa, en þeir alast upp hjá Skúla afa sínum og Þuríði ömmu sinni. Óvænt bætist einn meðlimur í fjölskylduna, svart hrútlamb, sem þeir bræður nefna Salómon svarta. Skúli í Smiðjubæ fann hann hjá mömmu sinni sem lá dauð milli þúfna og var lambið heldur óburðugt í fyrstu. En það færist líf í Salómon svo um munar og ævintýri þau sem hann og bræöurnir lenda í eru óvænt og skemmtileg. Hjörtur Gíslason segir söguna á eðlilegan og kíminn hátt svo allir geta haft gaman af, bæði börn og fullorðnir. Bókina prýða teikningar eftir Hall- dór Pétursson. Verð gkr. 4.940 — nýkr. 49,40 BÓKAFORLAG ODDS BJÖRNSSONAR ATBURÐIR SEM SKIPTU SKÖPUM FYRIR ÍSRAEL ÞRENNING eftir KEN FOLLETT Áriðer 1968. Leyniþjónusta ísra- els hefur komist að því um seinan að Egyptaf, með aóstoð Sovét- manna, munu .. eignast kjarn- orkuvopn innan nokkurra mán- aða — sem þýddi ótímabæran endi á tilveru hinnar ungu þjóð- ar. (sraelsmenn brugðu þá á það ráð að stela úrani útiárúmsjóog segir frá því einstaka þrekvirki í þessari bók. Þetta er eitthvert furðulegasta njósnamál síðustu áratuga og best geymda leyndar- mál aldarinnar. Jafnframt því að vera hörkuspennandi er ÞRENNING stór- furðuleg ástarsaga. Verð gkr. 15.930 — nýkr. 159,30 BÓKAFORLAG ODDS BJÖRNSSONAR DAGUR . 11

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.