Dagur - 08.01.1981, Blaðsíða 6

Dagur - 08.01.1981, Blaðsíða 6
Sjónarhæð almenn samkoma n.k. sunnudag kl. 17.00.* Drengjafundur á laugardag kl. 13.30, Sunnudagaskóli í Glerárskóla n.k. sunnudag kl. 13.15 í Lundarskóla kl. 13.30. Verið hjartanlega vel- komin. U.M.S.E. Skákmenn. 15 mín. skákmót verður n.k. sunnudag 11. jan. í Hrafnagils- skóla og hefst kl. 13.00. Teflt verður eftir Monradkerfinu. Munið að koma með töfl og klukkur. ^CVIKMYNDIS—— Borgarbíó sýnir í kvöld kl. 9 hina sprenghlægilegu mynd „Funny people" Myndin sýnir hugmyndaflug höf- unda og framleiðenda við að koma fólki á förnum vegi í örgustu klípu við fáránlegar og skrýtnar aðstæður. Fátt eitt má nefna af því, sem sýnt er í myndinni. Hitt má fullyrða, að það sé dauður maður, sem hlær ekki dátt að því, sem upp er brugðið á tjaldinu. Hvernig þætti mönnum til dæmis, ef þeir væru á gangi á götu og heyra t.d. mannsrödd úr póstkassa, sem yrði á vegi þínum, — og röddin kvartaði yfir að hafa þurft að húka þar dögum saman eftir að hafa verið „stungið inn“ og að loftið væri orðið fúlt. Það eru líka skrítin viðbrögð þeirra sem ræða við „kallinn í kassan- um.“ rDET ER GRIN AT VÆRE TIL SJOV-’1 MEN DETERIKKE SJOVT ATVÆRE TILGRIN "Detskj'ultekamerá’i en perlerække af morsomme situationer Lionsklúbburinn Hængur fund- ur í kvöld á Hótel K.E.A. I.O.O.F. 2-162198 Vi GJAFIR OG AHEIf Áheit og gjafir til Munka- þvcrárklausturskirkju í árs- lok 1980: Áheit frá G.J. kr. 5.000. (Allar upph. gkr.) Frá N.N. kr. 25.000. Frá Þóreyju kr. 2.000. Nafnlaust, kr. 30.000. Gjöf frá Hrund Kristjánsdóttur til minning- ar um látna kórfélaga, Bald- ur Sigurðsson frá Syðra-Hóli og Harald Þórarinsson, áður skólastjóra Syðra-Lauga- landi, kr. 50.000. Þá hafa kirkjunni borizt tveir vand- aðir þríarma kertastjakar, gylltir, ásamt 5 eint. af sálmabók frá 1972, sem er gjöf frá systkinunum Margréti, Sesselju og Bene- dikt, gefin til minningar um foreldra þeirra, hjónin Rósu Benediktsdóttur og Valde- mar Þórðarson frá Þröm. Fyrir hönd kirkju og safn- aðar þakka ég gefendum aí hjarta og óska þeim, og öll- um vinum Munkaþverár- kirkju, árs og friðar. Bjart mar Kristjánsson. Þann 2. janúar voru gefin sam- an í hjónaband á Akureyri brúðhjónin Guðrún Þórdís Þorláksdóttir starfsstúlka Sólborg og Ólafur Rafn Ólafsson starfsmaður hjá Norðurverki. Heimili þeirra er að Brekkugötu 21, Akur- eyri. Þann 20. des. voru gefin saman í hjónaband í Akureyrar- kirkju brúðhjónin ungfrú Sigríður Guðrún Friðriks- dóttir skrifstofustúlka og Guðmundur Guðmundsson sjómaður. Heimili þeirra er í Pétursborg. Þann 20. des. voru gefin saman i hjónaband í Akureyrar- kirkju brúðhjónin ungfrú Sigurlaug Stefánsdóttir og Randver Karl Karlsson raf- virkjanemi. Heimili þeirra er að Tjarnarlundi 17h Ak- ureyri. Þann 21. des. voru gefin saman í hjónaband í Akureyrar- kirkju brúðhjónin ungfrú Roxanna Morales starfs- stúlka Skjaldarvík og Haf- steinn Andrésson verka- maður. Heimili þeirra er að Smárahlíð 3e, Akureyri. Þann 25. des. voru gefin saman í hjónaband í Akureyrar- kirkju brúðhjónin ungfrú Guðbjörg Huld Grétars- dóttir verslunarstúlka og Vésteinn Finnsson smiður. Heimili þeirra er að Brekkugötu 12 Akureyri. Þann 26. des. voru gefin saman í hjónaband í Akureyrar- kirkju ungfrú Kara Guðrún Melstað kennaraskólanemi og Alfreð Gíslason sagn- fræðinemi. Heimili þeirra er að Hamragerði 18, Akur- eyri. Þann 28. des. voru gefin saman í hjónaband í Akureyrar- kirkju brúðhjónin ungfrú Anna Kristín Pálsdóttir af- greiðslustúlka og Jón Frím- ann Ólafsson rafvirki. Heimili þeirra er að Hjalla- lundi 15h Akureyri. Þann 28. des. voru gefin saman í hjónaband í Akureyrar- kirkju brúðhjónin ungfrú Þrúður Ingibjörg Jónsdóttir þroskaþjálfi og Hermann Óskarsson phil cand. Heim- ili þeirra er Uppstigen 102- 31 412 80 Gautaborg Sví- þjóð. Þann 30. des. voru gefin saman í hjónaband á Akureyri brúð- hjónin ungfrú Jónhildur Valgeirsdóttir kennari og Ásgeir Pétur Ásgeirsson lög- fræðingur. Heimili þeirra er að Heiðarlundi 7e Akureyri. Hantx: —Ástin mín! Ég hef misst alla mína peninga. Ég á ekki eyris virði eftir. Hún: — Það gerir ekkert til, vinur minn! Ég mun alltaf elska þig, jafnvel þó að við sjáumst ekki framar. Æfingatafla Skautafélags Akureyrar Ís-Hockey Mánudagar. Kl. 17.30-19.00 13 ára og yngri. Þriðjudagar. Kl. 17.30-19.00 14-17 ára. Kl. 20.00-21.30 17 ára og eldri. Hmmtudagar. Kl. 17.00-18.00 13 ára og yngri. Kl. 18.00-19.00 14-17 ára. Kl. 20.00-21.30 17 ára og eldri. 6.DAGUR Laugardagar. Kl. 15.00-16.00 13 ára og yngri Kl. 16.00-17.00 14-17 ára. Kl. 17.00-18.30 17 ára og eldri. Sunnudagar. Kl. 16.00-17.00 14-17 ára. Kl. 17.00-18.30 17 ára og eldri. Mætið vel og stundvíslega. Stjórnin. Sveit Alfreðs er í efsta sæti fyrir 11. um- ferð Sveitakeppni Bridgefélags Akur- eyrar hefst að nýju, þriðjudags- kvöldið 13. janúar kl. 20 að Félagsborg. Eftir 10 umferðir af 13 er röð efstu sveita þessi: stjg 1. Alfreð Pálsson 162 2. Jón Stefánsson 158 3. Stefán Ragnarsson 155 4. Magnús Aðalbjörnsson 144 5. Páll Pálsson 142 6. Ferðaskrifstofa Akureyrar 124 7. Stefán Vilhjálmsson 113 í elleftu umferð spila saman fjórar efstu sveitirnar, sveit Alfreðs spilar við sveit Stefáns og sveit Jóns við sveit Magnúsar, og verður ef- laust hart barist því hvert stig er dýrmætt í jafnri og spennandi lokabaráttu. Laus staða. Vanur vélritari óskast um óákveðinn tíma vegna forfalla. Um hálfsdagsstarf gæti verið að ræða. Bæjarfógetinn á Akureyri, 7. janúar 1981. Dalvíkingar Umboðsmaður óskast á Dalvík frá áramótum. Til greina kemur að ráða tvo unglinga er bæru út í sinn hvorn helminginn af bænum. Nánari upplýsingar á skrifstofu blaðsins. Dagur Tryggvabraut 12, sími 24167. Opiðhús er að Hafnarstræti 90 öll miðvikudagskvöld frá kl. 20-23.30. Spil — Tafl — Umræður Sjónvarp á staðnum Lesið nýjustú blöðin Kaffiveitingar Allir velkomnir -Ólafur, minning ... (Framhald af bls. 4). sem oft var mest áberandi á mann- fundum. Ólafur Björgvin Jónsson er fæddur á Freyshólum í Skógum á Fljótsdalshéraði, 23. marz árið 1895, sonur Jóns Ólafssonar bónda þar og Hólmfríðar Guðmunds- dóttur frá Hofteigi. Standa að hon- um góðar ættir á Héraði. Svo ein- kennilega vill til að við Ólafur er- um aldir upp sitt hvoru megin við vatnið mikla, sem nú er farið að kalla Löginn, en heitir að réttu Lagarfljót, og má kalla að bæir okkar standist á. Ólafur var horfinn burt úr héraðinu fyrir mitt minni, en af einhverri undarlegri tilviljun höfum við aftur orðið nágrannar og eins konar andbýlingar í fræðunum hér á norðurslóð. Ég kynntist Ólafi ekki fyrr en á efri árum hans og samskipti okkar urðu aldrei mikil. Ég minnist sérstaklega einnar ferð- ar er ég fór méð honum og Jóni frá Helluvaði austur í Mývatnssveit, en á heimleiðinni var látið fjúka í kviðlingum, eins og það er kallað og varð af kátína rnikil, en Ólafur virtist hafa af þessu hina bestu skemmtun ekki síður en við „ungu mennirnir". Ólafur hefur ritað æviminningar í tveimur bindum og segir þar að- allega frá æsku sinni og námsárum ogferðalögum um landið. Er bókin skemmtileg á köflum og nýtur gamansemi höfúndar sín óvíða betur en í frásögn af ýmsum atvik- um frá þessum árum. Ég hafði orð á því við Ólaf, að mér fyndist vanta 3ja bindið í þessa „ævisögu", þ.e. þroskasögu Ólafs og vísindasögu, en hann lét fátt yfir því og taldi að þá sögu yrðu aðrir að skrá. Hygg ég að sú saga yrði á margan hátt sér- stök og lærdómsrík ef samin yrði. „Svo þegar öll kurl koma til grafar, er það ef til vill æðsta skylda hvers manns að fylgja rödd hjarta síns,“ segir Ólafur í forspjalli Skriðufalla og snjóflóða. Það hygg ég að hann hafi oftast gert og því hefur hann aldrei unnið neitt starf með hangandi hendi eða vegna launanna einna saman. Hann var heill í öllu sem hann tók sér fyrir hendur. Þessvegna var Ólafur mik- ill gæfumaður og gerði sér fulla grein fyrir því. Hins vegar verður ekki sagt um Ólaf, að hann gengist upp í embættum. Honum var m.a. boðið öruggt þingsæti af tveimur flokkum og staða búnaðarmála- stjóra árið 1950 en þáði hvorugt. Honum var eðli starfsins aðalatriði, en ekki hvað það hét. Ólafur kvæntist árið 1925 eftir- lifandi konu sinni, Guðrúnu Halldórsdóttur og eignuðust þau tvær dætur og son, er þau misstu ungan. í minningum sínum getur Ólafur þess er hann sá þessa konu fyrst á Hvanneyri og fék þá strax hugboð um að hún ætti að verða konan sín. Jafnvel á því sviði brást Ólafi ekki sú furðulega hand- leiðsla, sem hann virtist jafnan verða aðnjótandi á sinni löngu og viðburðaríku æfi, en upp frá þeim degi mun eiginkonan ekki hafa átt lítinn þátt í handleiðslunni, sem best kom fram síðustu árin er hún annaðist Ólaf sjúkan. Þökk sé henni fyrir það hlutverk sitt. H.Hg. Kvenfélagið Framtiðin, vill minna á minningaspjöld fé- lagsins. Þau eru til sölu í Skemmunni, Blómabúðinni Lilju, Dvalarheimilinu Hlíð, Dvalarheimilinu Skjaldar- vík og hjá Margréti Krauer Helgamagrastræti 9. Allur ágóði rennur í elliheimilsi- sjóð félagsins.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.