Dagur - 13.01.1981, Qupperneq 1
r
TRULOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIDIR
, SIGTRYGGUR & PÉTUR
1 AKUREYRI
■■■■■■■■■■
64. árgangur
m Imut kiayetat japP'*
FII_MUhÚSI» AKUKEYKI
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■i
■■■■■■■■■■■■■Ml
■HBi
Akureyri, þriðjudaginn 13. janúar 1981
on
■■■■■
■■■
—wm—rniin ilflgBtninMMW—Ml
3. tölublað
■■■■■■■■■■■■■■■I
S.Í.S. langstærsta fyrir-
tæki landsins:
Kaupfélag
Eyfirðinga
var í
7. sæti
Samkvæmt yfirliti tímaritsins
Frjálsrar verslunar yfir 100
stærstu fyrirtæki landsins árið
1979 er Samband íslenskra
samvinnufélaga langstærsta fyr-
irtækið með heildarveltu 107,5
milljarða króna. Síðan koma
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
með 76,6 milljarða og Flugleiðir
með 39 milljarða gkr. Kaupfélag
Eyfirðinga er í 7. sæti með tæp-
lega 34,6 milljarða gkr. heildar-
veltu.
Um önnur norðlensk fyrirtæki
sem ofarlega eru á listanum má
nefna, að Útgerðarfélag Akureyr-
inga er í 20. sæti með tæplega 9,9
milljarða heildarveltu, Kaupfélag
Skagfirðinga með rösklega 9 millj-
arða í 22. sæti, Kaupfélag Þingey-
inga í 25. sæti með 8,5 milljarða,
Kaupfélag Húnvetninga,
Blönduósi, í 35. sæti með rösklega
6,1 milljarð og Slippstöðin á Ak-
ureyri í 42. sæti með 5,1 milljarð
gkr. í heildarveltu.
Meðallaunagreiðslur til starfs-
manna eru mjög mismunandi en
áberandi háar hjá útgerðarfyrir-
tækjum togara. Meðal þeirra fyrir-
lækja sem hæstar launagreiðslur
hafa til hvers einstaklings er Út-
gerðarfélag Skagfirðinga með 10,6
milljónir í árslaun að jafnaði. Hæst
greiðir Ögurvík h.f. 14,3 milljónir.
Þau fyrirtæki sem flesta hafa
starfsmennina eru Sambandið með
1432 að meðaltali, Flugleiðir næst-
flesta með 1342, KEA í þriðja sæti
rheð 1040 og Eimskip í fjórða sæti
með 1004 starfsmenn að meðaltali
árið 1979.
Rafmagnsmál hafa
vcrið I brennidepli
að undanfömu og
vegna skorts á raf-
magni frá vatnsafls-
virkjunum hafa
landsmenn eytt há-
um upphæðum í
dísilvélakeyrslu.
Sjáhls. 8.
SAMIÐÁ
NORDURLANDI
Á miðvikudag í síðustu viku hófust
viðræður milli Alþýðusambands
Norðurlands og VSf og Vinnu-
málasambands Samvinnufélag-
anna um frágang á kjarasamning-
um fyrir fólk í-almennu verkalýðs-
félögunum. Áður hafði verið geng-
ið frá samningum við starfsmenn í
Síldarverksmiðjum ríkisins á
Siglufirði og á Raufarhöfn, einnig
samningum við sveitarfélög á
Norðurlandi vegna starfsfólks á
sjúkrahúsum, vistheimilum og
bamadagheimilum. Aðfararnótt
laugardags tókust samningar milli
aðila með venjulegum fyrirvara.
Samningarnir eru í meginatriðum
hinir sömu og heildarsamtök
vinnumarkaðarins höfðu áður
samið um.
Fannst sofandi í bílnum
Fjórir ökumenn voru teknir um
helgina grunaðir um ölvun við
akstur. Tveir þeirra voru að aka
um í bænum, einn var tekinn
þegar hann var að leggja af stað,
en sá fjórði fannst sofandi í bíl
sínum.
Að sögn lögreglunnar var síðast
nefndi ökumaðurinn búinn að aka
talsvert um bæinn, en í Lækjargiii
stöðvaðist bíllinn vegna hálku og
þá lagðist ökumaðurinn til svefns í
bílnum og rumskaði ekki fyrr en
lögreglan kom á staðinn.
Frá föstudagskvöldi til sunnu-
dags gistu fjórir fangageymslur
lögreglunnar.
Skömmu fyrir síðustu helgi var
tveimur bílum stolið á Akureyri.
Lyklarnir voru í báðum bílunum
svo þeir voru auðveld bráð. Báðir
bílarnir fundust aftur óskemmdir.
Sökudólgurinn er fundinn.
Á sjó eftir jólafrí
Rækjubátar heimamanna hafa
verið í höfn síðan fyrir jól, en
munu fara út í fyrramálið. Einn
bátur frá Hvammstanga hefur
verið á línuveiðum og aflanum
hefur verið lagt upp á Skaga-
strönd. Framan af gengu þær
veiðar vel, en ógæftir voru
miklar í desember.
Á Hvammstanga ríkir nú ró
og friður og fátt markvert i
fréttum, en fólki líður vel og
það er fyrir mestu. P.M.
Siæmar framtíðarhorfur
eru í byggingaiðnaði
Ungt fólk getur varla lengur f járfest í nýjum íbúðum
Verður mun minna byggt á Ak-
ureyri í sumar en undanfarin
sumur? Svo virðist vera að
verktakar sem hafa byggt hús
fyrir einstaklinga undanfarin ár
ætli að fara sér hægt í að taka
lóðir því eftirspurn er lítil og
smærri verktakar verða að vera
búnir að selja meirihlutann af
íbúðum raðhúss áður en fram-
kvæmdir eru hafnar. Einn við-
mælenda blaðsins í verktaka-
stétt sagði að nú virtist málum
svo komið að fólk gæti gert mun
hagstæðari fjárfestingu í notuðu
húsnæði en að hefja byggingu á
nýju. Annar viðmælenda blaðs-
ins sagði að nú væri nokkuð um
það að verktakar væru farnir að
selja eigur sínar og blaðinu er
kunnugt um að atvinnuleysi er
farið að gera vart við sig meðal
manna í byggingariðnaði.
Einnig er kunnugt um að
byggingafyrirtæki hafa hætt við
aó byggja raðhús sem átti að
byrja á s.l. haust og enn er eitt-
hvað af óseldum íbúðum í rað-
húsum sem gerð voru fokheld
s.l. haust.
Matthías Björnsson, húsasmiður
benti á að núverandi vaxtastefna
gerði það að verkum að ungt fólk
með meðaltekjur gæti vart lengur
fjárfest í nýjum íbúðum og hann
bætti við: „Verktakar geta ekki
farið af stað upp á eigin spýtur og
byggt íbúðir. Við getum ekki fengið
nein lán til að fjármagna slíkar
framkvæmdir og þó við fengjum
skammtimalán í banka eru vext-
irnir slíkir að hugsanlegur hagnað-
ur hverfur eins og dögg fyrir sólu.“
Matthías sagði að verði á nýjum
Dýr mistök á Kópaskeri:
Hafnargarðurinn styttist!
Stöðugt styttist nýi hafnargarð-
urinn á Kópaskeri. Dagur
greindi frá því fyrir jól að komið
væri skarð framarlega i garðinn,
en nú hefur það breikkað og er
svo komið að hausinn fremst á
garðinum er horfinn. Með sama
áframhaldi er hægt að leiða lík-
ur að því að garðurinn, sem var
200 metra langur í upphafi, verði
orðinn helmingi styttri í vor, en
þá stendur til að hefjast handa
um viðgerð. Garðurinn kostaði
60 tii 70 milljónir gkr. þegar
gerð hans „lauk“ s.l. sumar.
„Fremstu hlutinn á garðinum er
að mestu leyti kominn í sjó,“ sagði
Ólafur Friðriksson, kaupfélags-
stjóri á Kópaskeri, „en ástæðan er
sú að verkstjóri Vita- og hafnar-
mála notaði of smátt grjót í garðinn
og kápan var of þunn. Ráðamenn
syðra segja að ekki hafi verið til
staðar grjót, en tilfellið er að þeir
sem gerðu garðinn tóku það smáa
en létu stórgrýtið eiga sig.“
Ólafur tók það fram að garður-
inn gæti enn komið í veg fyrir að
stórsjór gengi inn í höfnina, en það
brýtur yfir garðinn. engin hindrun
því þar er garðurinn kominn niður
að sjávarmáli.
„Heimamenn halda því fram að
þetta séu mistök sem megi skrifa á
reikning þeirra sem framkvæmdu
verkið. Við vöruðum við því á
meðan á byggingu garðsins stóð að
grjótið væri of smátt, en ekki var á
okkur hlustað,“ sagði Ólafur.
Framkvæmdir á vegum fyrirtækja, sem
byggja fyrir cinstaklinga, virðast ætla að
vera með minnsta móti. Mynd: á.þ.
íbúðum væri í raun haldið niðri og
að verktakamir fengju þvi ekki í
sinn hlut það sem þeir þyrftu á að
halda. Hann kvað það ætlunin að
fara á skrifstofu byggingafulltrúa
ogathuga lóðir, en sagði jafnframt
að það væri með öllu óráðið hvort
það fyrirtæki sem hann er eigandi
að, Kjörviður, myndi byggja hús í
sumar.
„Ef ekkert breytist í lánamálum
sjáum við ekki neinn grundvöll
fyrir því að halda áfram í þessu
lengur.“
Jón Gíslason, trésmiður og verk-
taki sagði að það væri með öllu
óráðið hvort hann byggði raðhús í
sumar. „Við erum ekki einu sinni
búnir að ákveða hvort við tökum
yfirleitt lóð,“ sagði Jón. „Það er
ekki hægt að byggja öðru vísi en að
fá greitt inn á þetta og ég sé ekki að
það verði seld nokkur íbúð fyrir-
fram.“ Jón sagði að sitt fyrirtæki
væri að því leyti betursett en önnur
að það hefði verkefni sem entist í
nokkra mánuði. Hann bætti því við
að sér virtist staða iítilla bygginga-
fyrirtækja vera orðin ákaflega erfið
— sum þeirra hefðu þegar selt eitt-
hvað af eigum sínum.
Dagur ræddi einnig við
Guðmund Þ. Jónsson, sem hefur
byggt nokkur ráðhús. Guðmundur
sagði að eftirspurn væri nokkur, en
greiðslugeta almennings væri ekki
nein. „Ég er ekki búinn að taka
ákvörðun um framkvæmdir í sum-
ar. Ég þarf að kynna mér hvað er á
markaðnum af lóðum,“ sagði
Guðmundur.
iAUGI
SING
A
i.J®
SKRIFT11 _ RIT^TJÓRN11 OA4
twllk* S • m"t. b Adr m m kII b Bb ■ miF■ ■ ■ Yi■ mm'mW S
“JP ■■■■■