Dagur - 13.01.1981, Qupperneq 6
~wm
Lögmannshlföarkirkja. Messað
n.k. sunnudag 18. jan. kl. 2
e. h. Sálmar 218-114-113-
345-524. B.S.
Svalbarðskirkja. Sunnudaga-
skóli n.k. sunnudag kl. 11
f. h. Fermingarbörn mæti
einni klst. fyrr. Sóknarprest-
ur.
Messað f Akureyrarkirkju n.k.
sunnudag 18. jan. kl. 2.00.
Upphafsdagur Alþjóðlegrar
bænaviku. Jóhann Purkhus
deildarstjóri predikar. Fólk
úr nokkrum trúfélögum á
Akureyri tekur þátt í mess-
unni.
Sálmar 177-114-113-43-96.
Allir velkomnir. P.S.
Möðruvallaklaustursprestakall.
Barnaguðsþjónusta að
Möðruvöllum n.k. sunnu-
dag 18. jan. kl. 11 f.h. Sókn-
arprestur.
I.O.O.F. Stúkan Isafold Fjall-
konan no. 1. Fundur
fimmtudaginn 15. þ.m. kl.
8.30 í félagsheimili templara
Varðborg. Fundarefni,
vígsla nýliða. önnur mál.
Eftir fund kaffiveitingar
Æ.T.
I.O.O.F. Rb 2 = 1301148 'A
□ Huld 59811147 IV/V — 2
□Huld 59811172IV/V—4
Konur f styrktarfélagi Vangef-
inna. Fundur verður að Sól-
borg, miðvikudaginn 14.
jan. kl. 8.30. Stjórnin.
Brúðhjón. Hinn 26. des. 1980
voru gefin saman í hjóna-
band í Möðruvallakirkju,
brúðhjónin Margrét Jósefs-
dóttir og Sigmundur Sigur-
jónsson heimili þeirra er að
Keilusíðu 4c Akureyri.
Hinn 27. des. 1980 voru gef-
in saman í hjónaband í
Glæsibæjarkirkju brúðhjón-
in Harpa Hrafnsdóttir og
Ásbjörn Árni Valgeirsson,
heimili þeirra er að Ytri-
Skjaldarvík, Glæsibæjar-
hreppi.
Sama dag voru gefin saman
í hjónaband í Glæsibæjar-
kirkju brúðhjónin Gerður
Guðrún Þorvaldsdóttir og
Jón Lárus Ingvason. Heimili
þeirra er að Þverholti 4 á
Akureyri. Þ.H.
Hjálpræðisherinn. Sunnudag-
inn n.k. kl. 13.30 sunnu-
dagaskóli fyrir börn og kl.
17.00 almenn samkoma.
Anna Ona stjórnar og talar.
Allir velkomnir. Mánudag-
inn 19. jan. kl. 16. Heimilis-
samband fyrir konur og kl.
20.30 hjálparflokkur. Anna
Anna Ona kemur á fundina.
Allar konur velkomnar.
Ffladelfía Lundargötu 12,
Fimmtudag 15. biblíulestur
kl. 20.30. Allir velkomnir.
Sunnudagur 18. sunnudaga-
skóli kl. 11 f.h. Öll börn vel-
komin. Almenn samkoma
kl. 20.30. Allir velkomnir.
Sjónarhæð. Almenn samkoma
n.k. sunnudag kl. 17.00.
Drengjafundur á laugardag
kl. 13.30. Sunnudagaskóli í
Glerárskóla kl. 13.15. Verið
velkomin að hlýða á boð-
skap Guðs orðs.
Kristniboðshúsið Zíon. N.k.
föstudagskvöld kl. 8.30
verður biblíulestur og ann-
ast hann séra Jónas Gísla-
son, lektor. Almennar sam-
komur verða laugardags- og
sunnudagskvöld kl. 8.30
ræðumaður séra Jónas
Gíslason. Allir velkomnir.
Í0RÐ DflgSIHS
ORKURAÐSTEFNA
— Hefst á Akureyri næstkomandi föstudag
Fjórðungsþing Norðlendinga
seni haldið var á Akureyri 31.
ágúst til 2. september 1980 benti
á að virkjun vatnsfalla og nýting
raforku, svo og virkjun og nýting
jarðvarma til iðnaðar treysti
hagvöxt og hagsæld í landinu.
Jafnframt fól þingið iðnþróun-
ar- og orkumálanefnd sam-
bandsins að gangast fyrir ráð-
stefnu, sem fjallaði um orku-
búskap og orkufrekan iðnað í
Lundaskólanum á Akureyri.
Ráðstefnan stendur föstudag 16.
janúar og laugardag 17. janú-
ar. Ráðstefnan verður sett kl. 4
e.h. Þá verður rætt um orku-
búskapinn. Jakob Björnsson, orku-
málastjóri ræðir um orkubúskap í
víðara samhengi. Kristján Jónsson,
rafmagnsveitustjóri ræðir um
virkjunarkosti á Norðurlandi.
Knútur Ottestedt, rafveitustjóri
ræðir um skipulag orkuöflunarfyr-
irtækja með tilliti til Norðurlands.
Á laugardag kl. 10 f.h. verður
ráðstefnunni framhaldið. Þá verður
rætt um orkunýtingu og stærri iðn-
þróun. Dr. Vilhjálmur Lúðvíksson,
framkvæmdastjóri Rannsóknar-
ráðs ríkisins ræðir um stærri iðn-
þróun í tengslum við landkosti.
Finnbogi Jónsson, deildarstjóri í
Iðnaðarráðuneytinu fjallar um
iðnþróun sérstaklega tengda stærri
orkunýtingu. Eftir hádegi kl. 1:30
ræðir Þorsteinn Vilhjálmsson, for-
maður Staðarvalsnefndar um iðn-
þróun, um staðarval meiriháttar
iðnreksturs. Síðar mun Bjarni Ein-
arsson, framkvæmdastjóri Byggða-
deildar Framkvæmdastofnunar
ríkisins ræða um gildi orkufreks
iðnaðar fyrir byggðaþróun á Norð-
urlandi frá þjóðhagslegu sjónar-
miði. Jón Sigurðsson, formaður
Jámblendiverksmiðjunnar ræðir
um samstarf við erlenda fjár-
magnsaðila um uppbyggingu stór-
iðnaðar á íslandi.
Pallborðsumræður verða á eftir
framsöguerindum. Umræðustjóri
verður Gunnar Ragnars, fram-
kvæmdastjóri á Akureyri. Ráð-
stefnan er öllum opin með mál-
frelsi og tillögurétti. Umræður
verða teknar upp á segulband.
Þetta er ekki ályktunarráðstefna.
Efni ráðstefnunnar verður gefið út
og haft til hliðsjónar við stefnu-
mótun á vegum Fjórðungssam-
bands Norðlendinga. Megintil-
gangur með ráðstefnunni er að ræða
stöðu Norðurlands í vali virkjunar-
kosta, sem geta haft úrslitaáhrif á
byggðaþróun til næstu aldamóta.
Jafnframt að ræða möguleika á
staðsetningu orkufreks iðnaðar í
samstarfi við erlenda fjármagnsað-
ila á Norðurlandi.
Frá Samvinnu-
tryggingum
Iðgjald af endurnýjun á brunatryggingum féll í
gjalddaga 1. janúar sl. Við væntum þess aö okkar
góóu og mörgu viðskiptavinir komi á skrifstofuna til
okkar og greiði áfallin iðgjöld. Skrifstofan er opin
frá kl. 8-5 fyrst um sinn, einnig í hádeginu.
Vátryggingardeild
K.E.A.
FRAMSÓKNARFELAG
AKUREVRAR
Opiðhús
er að Hafnarstræti 90
öll miðvikudagskvöld frá kl. 20-23.30.
Spil — Tafl — Umræður
Sjónvarp á staðnum
Lesið nýjustu blöðin
Kaffiveitingar
Allir velkomnir
Innilegar þakklr færum vlð öllum þeim sem vottuðu okkur
samúð og vlnáttu við andlát og útför móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu
MARGRÉTAR RÖGNU ÞORSTEINSDÓTTUR,
frá Lóni.
Sérstakar þakkir færum við söngfélögum úr Karlakórnum Geysi
fyrir söng þeirra og vinarhug.
Björg Slgurjónsdóttir, Árnl Ingólfsson,
Gunnlaug S. Custis, Robert Custis,
Erla Slgurjónsdóttir, Kjartan Slgurðsson,
Ólína Slgurjónsdóttir, Haraldur Óli Valdimarsson,
Guðrún Sigurjónsdóttir, Valur Valsson,
Tómas Sigurjónsson,
bamabörn og barnabarnabörn.
Þökkum af alhug öllum þeim nær og fjær, sem auðsýndu okkur
samúð og vinarhug við fráfall og útför
STEFÁNS HANSEN.
Guð blessi ykkur öll.
Þorbjörg J. Hansen,
Guðrún Jóna Hansen, Erllngur Jónasson,
Öm Hansen, Freygerður Geirsdóttir,
Ásta Hansen, Símon Þorsteinsson,
Harpa Hansen, Gunnar Skarphéðinsson,
Gigja Hansen, Árni Friðriksson,
Auður Sesselja Hansen, Guðmundur Sigurðsson
og barnabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem auðsýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og jarðarför móður minnar og
ömmu
MARÍU JÓHANNESDÓTTUR,
Lundargötu 15.
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks lyfjadeildar Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri og séra Birgis Snæbjörnssonar.
Jóhannes Emilsson og börn.
Alúðar þakkir til allra þeirra, sem glöddu mig á
sjötugsafmceli m'mu þann 23. desember s.l.
BALDUR EIRÍKSSON
frá Dvergsstöðum
- Bátamiðin
(Framhald af bls. 4).
Hvað höfum við að
gera með Maliorca?
Nú höfum við 200 mílna land-
helgi en með alls konar kúnstum
teljum við okkur trú um að við sé-
um að auka við aflann úr sjónum,
en við erum að fórna jörðinni,
landinu, angan lyngsins, en fáum í
staðinn eitrað andrúmsloft, meng-
aðan mat og drykk eiturvilpur og
sviðna jörð...Jú, sólarlanda-
ferðir.
Hvað höfum við að gjöra með
Mallorca, Costa del Sól? Við eigum
barmafullar bugtir, flóa og firði
sjávarfenginn í fanginu, allt frá
stórhvelum til smásíla, þetta gló-
bjarta land og lífsglaða geislandi
haf. Nei, við erum að afbyggja
landið en ekki að byggja það.
„Þær“ fara í sólbað til Spánar og
koma með sundmaga gljáandi húð,
sólbrenndar, sprungnar og snarpar
varir. En Halldór Laxness mætir
(Islands klukkan) „hinum“ hér
heima hjá Stapa eða Jöklu. „Með
þetta sæla bros af sól og vori á hári,
vörog kinn.“ og Þorsteinn Erlings-
son sá sólina þannig:
„Sláttu bæði og Horni hjá
heldur græðir anda,
meðan hæðir allar á
aftanklæðum standa."
°g
„á um njólu aldin mar
út hjá póli gaman
árdagssól og aftan þar
eiga stóla saman.“
Sólin er ekki bjartari að heiman
en heima.
Sauðaneshreppurá
ríkissjóði?
Nú þegar ég er að hripa þetta
niður, glymur útvarpið að „tripp-
in“ (túristahóparnir) séu að koma
heim frá Spáni og Sauðaneshrepp-
ur sé kominn á sinn eigin hrepp og
hreppurinn allur á ríkissjóðinn fyr-
ir togarakaup.
Það tvennt verður að fara saman,
að leyfa ekki togarann, því enn er
hiðgamalkunna í gildi: Eigi leið þú
oss í freistni og það er hverjum
togaraskipstjóra erfitt að sækja á
fjarlæg mið ef vitað er um góðar
fiskigöngur í torfum á bátamiðun-
um við Langanes og í öðru lagi þarf
að beita allri varnargetu landhelg-
isgæslunnar til að verja framan-
greint hafsvæði fyrir innlendum
togurum og erlendum og fyrir öðr-
um tortímingartækjum, og þá fyrst
og fremst innan þriggja mílnanna.
Göngurnar koma sprelllifandi
upp að landsteinum. Þær eru til-
tölulega hnitmiðaðar (concret),
lenda í þrengslum eftir því sem nær
dregur landinu og þess vegna auð-
veld bráð fyrir buslutæki þau, sem
trollin eru. Þetta er sú aðstoð, sem
þessu byggðarlagi er nauðsynleg.
Togarinn yrði óbætanleg mistök.
7. j. 1981
Jóh. M. Kristjánsson.
Minningarspjöld kvenfélagsins
Hlífar fást í bókabúðinni
Huld, í símaafgreiðslu
sjúkrahússins og hjá Lauf-
eyju Sigurðardóttur Hlíðar-
götu 3, Allur ágóði rennur til
barnadeildar F.S.A.
6.DAGUR