Dagur - 13.01.1981, Side 7
Geðverndarfélag Akureyrar:
Fyrsti almenni
félagsfundurinn
—Sérþjálfað starfslíð vantar til að annast geðsjúka, segir
Brynjólfur Ingvarsson
Á laugardag kl. 14 verður fyrsti
almenni félagsfundur
Geðverndarfélags Akureyrar
haldinn í Félagsheimili Einingar
í Þingvallastræti. Þar verða m.a.
rædd almenn málefni félagsins,
útgáfustarfsemin og húsnæðis-
málin. Fólk er hvatt til að mæta
á fundinn, því geðvernd er mál-
efni sem snert getur alla. Nýir
félagsmenn verða teknir inn á
fundinum. Næstkomandi
fimmtudagskvöld kl. 20.30 verð-
ur spilakvöld Geðverndarfélags-
ins í Alþýðuhúsinu.
í samtali sem Dagur átti við
Brynjólf Ingvarsson, geðlækni og
formann félagsins, um það sem efst
væri á baugi í málefnum þess og
varðandi umönnun geðsjúkra,
sagði hann að eftir tvær til þrjár
vikur hæfist starfsemi iðjuþjálfunar
við taugadeildina, í kjallara hússins
við Skólastíg. Miklar vonir eru
bundnar við þessa starfsemi og á
hún að geta breytt miklu til batn-
aðar varðandi meðferð og bata-
horfur sjúklinga. Kiwanis-menn
hafa lagt fram fé til að 'fjármagna
iðjuþjálunina. Kostnaðurinn við að
koma þessu upp er um 15 milljónir
og hafa Kiwanismenn lofað að
leggja fram helming þeirrar fjár-
hæðar.
Um málefni geðsjúkra í heild
sagði Brynjólfur, að menn biðu sí-
fellt og vonuðu að þeim yrði sinnt
betur og á skipulegan hátt. Opin-
berir aðilar gerðu lítið og því færi
það að verulegu leyti eftir því hve
talsmenn geðsjúkra hefðu sig mikið
í frammi, þ.e. ýmiss konar félags-
samtök. Brynjólfursagði, að ef ekki
væru félög og einstaklingar sem
bæru fyrir brjósti málefni ýmissa
minnihlutahópa í þjóðfélaginu,
sem ættu undir högg að sækja, þá
Árshátíðin verður
haldin á Hótel K.E.A.
17. janúar n.k.
og hefst 'með borðhaldi
kl. 19.30.
FRAMSOKN AR FELAGS
AKUREYRAR
Dagskráin innifelur: Glæsilegan veislu-
kost sem framreiddur verður við þægi-
lega dinnermúsík Ingimars Eydal.
Gestur kvöldsins verður Páll Pétursson
alþingismaóur og flytur hann aðalræð-
una en Hákon Aðalsteinsson sér um
gamanmálin í bundnu og óbundnu máli,
bæði sungin og mælt af munni fram,
með undirleik þar sem við á.
Veislustjóri Valur Arnþórsson kaupfé-
lagsstjóri mun ugglaust sjá um að við
„höldum gleði hátt á loft“ Að lokum mun
dansinn duna við fjöruga tónlist Astró
tríós.
Til þess að tryggja sér miða þarf að hafa
samband við skemmtinefnd í „Opnu
húsi" Hafnarstræti 90 — miðvikudags-
kvöld 14. janúar n.k. eftir kl. 20.00 en
síðan verða miðar seldir og borðapant-
anirteknar í gestamóttöku Hótels K.E.A.
fimmtudag og föstudag 15. og 16. janúar
n.k. sími 22200. Hittumst hress.
Skemmtinefndin.
TILB.OI)
næstu daga
Lení eldhúsrúllur 2 stk. í pk.
Kjönriarkaósv erð er:
yóar hagur
^ aðeins
kr. 7.60
A
KAUPFELAG EYFIRÐINGA AKUREYRI
ksvKjörmarkadur
\ ▼ I I r\ ■ a i ■ 1*1 r-v ■ r—
væri áreiðanlegt að fullt af fólki
lifði í algerri eymd.
Nú er á Akureyri 10 rúma deild
fyrir fólk með langvinna geðsjúk-
dóma og 7 rúma deild fyrir bráða-
sjúklinga. Einn geðlæknir er á Ak-
ureyri og að sögn Brynjólfs vantar
sérþjálfað starfslið. Þá væri mjög
nauðsynlegt að auka almenna um-
ræðu um þessi mál t.d. um það
hvemig fólk lifði lífi sínu og hvað
það gerði til að varðveita heilsu
sína. Þeir væru margir smápyttirnir
að varast og gott fyrir alla að þekkja
þá og kunna að varast. Geðvernd-
arfélagið gæti komið þar að góðu
gagni. í því eru nú á annað
hundrað manns. Starfsemi félags-
ins hefur einkum byggst á stuðningi
við geðdeildirnar á Akureyri með
sjálfboðaliðastarfi og ýmisskonar
leiðbeiningarstarfsemi fyrir sjúk-
lingana. Félagið gefur út ritling
fjórum sinnum á ári, sem nefnist
Geðfræðsla. Fyrirhugað er að end-
urskoða útgáfustarfsemina. Varð-
andi húsnæðismál félagsins sagði
Brynjólfur, að allt væri í strandi og
lítið hefði miðað. Komið hefut til
tals að bærinn léti nokkrum félög-
um í té aðstöðu í gamla barna-
skólahúsinu sunnan samkomu-
hússins og þeirra á meðal yrði
Geðverndarfélag Akureyrar.
Eins og áður sagði er fólk hvatt
til að mæta á almennum fundi
félagsins á laugardag.
íþróttamenn
og áfengi
í Degi 9. desember s.l. er skrifað
um áfengisneyslu íþróttamanna á
ferðalögum. Ég efast ekki um að sá
sem þetta skrifaði, hafi séð íþrótta-
menn undir áhrifum áfengis, en ég
er líka jafn viss um að sá hinn sami
hafi séð hóp íþróttamanna koma úr
keppnis- eða æfingaferðalagi, án
þess að nokkur hafi neytt áfengis og
án þess að hafa ljáð því rúm í blaði
sínu. Þar af leiðandi er mér það
bæði ljúft og skilt að segja frá
ferðalagi sem ég fór í sem farar-
stjóri til Noregs s.l. vetur ásamt 15
unglingum. Var þetta bæði langt og
strangt ferðalag, sem stóð í 16 daga.
Ekkert þeirra neytti tóbaks né
áfengis og var framkoma þeirra og
dugnaður til fyrirmyndar.
Ég sendi öllum íþróttamönnum
ósk um gæfu og gengi á nýju ári.
RF.
... brennir olíu —
(Framhald af bls. 8).
nætur og að fá almenning til að
draga úr notkun rafmagns.
Díselrafstöðin sem nefnd var í
upphafi er eins og áður sagði
stærsta díselvél hér á landi, eða tíu
þúsund hestöfl. Hún er 16 strokka
og brennir 37 tonnum af svartolíu á
sólarhring. Næst stærsta olíuvél
landsmanna er einnig rafstöð á
Eyrinni á Akureyri, 5 þúsund hest-
öfl. Hún brennir gasolíu og hefur
því ekki verið notuð til raforku-
framleiðslu að þessu sinni, a.m.k.
ekki ennþá. Næstar á eftir þessum
koma svo aðalvélar tveggja varð-
skipa, en þær eru 4200 hestöfl og
tvær slíkar í hvoru.
HRISALUNDI5
Launa-
greiðendur
Kynniö yður skipan á
greiðslu orlofsfjár
Samkvæmt reglugerð nr. 161/1973 ber launagreið-
endum að gera skil á orlofsfé fyrir 10. hvers mánaðar,
vegna launa næsta mánaðar á undan. Greiðslunni
skal fylgja skilagrein á þar til gerðu eyðublaði sem
Póstur og sími gefur út.
Gætið þess sérstaklega að nafnnúmer séu rétt.
Launþegar fá reikningsyfirlit á 3ja mánaða fresti frá
Pósti og síma. Það sýnir hve mikið orlofsfé hefur
verið móttekið þeirra vegna.
Geyma þarf launaseðlana til að geta séð hvort rétt
upphæð hefur verið greidd inn á orlofsreikninginn.
Við lok orlofsárs fær launþegi senda ávísun á orlofs-
fé sitt.
Eyðublöð fást á póststöðum og eru þar veittar nánari
upplýsingar.
PÓSTGÍRÓSTOFAN
Ármúla 6, Reykjavík. Sími 86777.
DAGUR.7