Dagur - 13.01.1981, Qupperneq 8
I IMfil O R
Akureyri, þriðjudaginn 13. janúar 1981
0303
Bflapernr
6-12 og 24 volta
FLESTAR
TEGUNDIR
SAMLOKUR
fyrir og án
peru
Brenna fyrir sjötíu
þúsund á sólarhring
í aflstöð Laxárvirkjunar við
Rangárvelli á Akureyri er
stærsta díselvél landsins nú
keyrð á fullum afköstum allan
sólarhringinn og hefur svo verið
síðan 5. janúar. Frá 25. nóvem-
ber og til þess tíma var vélin
keyrð í 16 tíma á sólarhring.
Kostnaðurinn er um 7 milljónir
gkr. eða 70 þúsund nýkr. á sól-
arhring. Frá 25. nóvember er
kostnaðurinn samtals tæplega
200 milljónir gkr. eða 2 milljónir
nýkr. Þessi mikla díselkeyrsla
stafar að sjálfsögðu af þeim
miklu erfiðleikum sem nú er við
að etja í vatnsbúskap virkjana
landsmanna.
Eins og kunnugt er hafa þessir
erfiðleikar valdið þvt að skammta
hefur þurft rafmagn til stórra
orkukaupenda s.s. ísals, Járn-
blendiverksmiðjunnar og Kefla-
víkurflugvallar. Að sögn Knúts
Otterstedts, rafveitustjóra á Akur-
eyri og framkvæmdastjóra Laxár-
virkjunar, hefur ekki komið til
skömmtunar rafmagns til atvinnu-
rekstrar á Norðurlandi, nema hvað
verksmiðjur SÍS fá nú aðeins brot
af þeirri raforku sem þær hafa
fengið til rafhitunar á vatni og á
þrefalt hærra verði, þar sem nú er
það forgangsorka sem áður var
umframorka.
Vegna díselkeyrslunnar verða
orkuframleiðendur á landinu fyrir
verulegum beinum útgjöldum og
kvaðst Knútur ætla að þau næmu í
heild um 800-900 milljónum gkr. á
mánuði, eða 8-9 milljónum nýkr.
það sem nú er. Óhagstætt veðurfar
hefur valdið mjög miklu um þetta
vandræðaástand, auk þess sem
orkuþörf hefur aukist mjög mikið
með tilkomu Járnblendiverk-
smiðjunnar. Þá má geta þess, að
vegna leka í Sigöldulóni tapast um
50 kwst. á ári, sem er tæpur
þriðjungur af framleiðslu Laxár-
virkjunar. Rætt hefur verið um
sameiginlegar aðgerðir til að
bregðast við þessum vanda, s.s.
smávegis spennulækkun, um 5%
eða svo, minni götulýsingu um
(Framhald á bls. 7).
Íf'
ÉfJ
jriiiiji.'i
Aóveitustöðin á Rangárvöllum við Akureyri er mikið mannvirki. Mynd: E.D.
Við þetta bættist svo sölutap orku-
framleiðenda vegna skömmtunar,
tap orkukaupenda vegna minni
framleiðslu og tap sem ríkið verður
fyrir vegna minni gjalda orku-
kaupenda. Ofangreindar tölur
segja því ekki nema hálfa söguna.
í fyrravetur var töluverð
skömmtun, en ekkert í líkingu við
Rækjubátum
sem gerðir eru
út frá Kópaskeri
hefur fækkað
um helming
Rækjubátar frá Kópaskeri
fóru út s.l. þriðjudag, en síð-
an hafa þeir ekki komist út
vegna ógæfta. Aflinn þennan
eina dag lofaði góðu því hver
bátur fékk að meðaltali 20
kassa.
Nú eru gerðir út þrír rækju-
bátar frá Kópaskeri, en þeir
voru helmingi fleiri á vertíðinni
í fyrra. Einn báturinn fórst eins
og kunnugt er, annar var seldur,
en eigandi þriðja bátsins flutti
og tók bátinn með að sjálf-
sögðu.
Það var haft eftir sjómönn-
unum sem fóru út í s.l. viku að
rækjan hefði verið allgóð. Á
grunnu vatni urðu þeir varir við
smásíld í rækjunni, en dýpra var
lítið um að rækjan væri blönduð
öðrum tegundum.
Hross til trafala á vegum
Michael Clarke stjórnar strengjasveit á tónleikum sem haldnir voru á vegum Tón-
listarskólans á Akureyri. Mynd: Norðurmynd.
Tónleikar vegna Minning-
arsjóðs Þorgerðar Eiríksd.
Á undanförnum árum hafa kennar-
ar og nemendur við Tónlistarskól-
ann á Akureyri haldið tónleika til
fjáröflunar fyrir Minningarsjóð um
Þorgerði Eiríksdóttur. Sá sjóður
hefur þegar veitt 8 efnilegum tón-
listarnemendum frá skólanum styrk
til framhaldsnáms. Að þessu sinni
efna strengjasveitir skólans til fjöl-
breyttra tónleika í Akureyrarkirkju,
fimmtudagskvöldið 15. janúar n.k.,
og hefjst tónleikarnir kl. 20.30.
Stjórnendur á tónleikunum
verða þau Michael Clarke, Hrefna
Hjaltadóttir og Oliver Kentish, en
sá síðastnefndi stjórnar frumflutn-
ingi á eigin tónsmíð fyrir klarinett
og strengjasveit, en Sigurjón
Halldórsson nemandi við skólann
er einleikari með hljómsveitinni.
Auk þess verða flutt íslcnsk
þjóðlög í útsetningu Johan Svensen,
Rúmenskir dansar eftir Béla
Bartók og tónverk eftir franska
tónskáldið Erik Satie, en einleik í
því verki annast Fanny Tryggva-
dóttir þverflautunemandi. Fluttur
verður einnig Converto Grosso —I
tónverk eftir Ernst Bloch, og gegnir
píanóið veigamiklu hlutverki í
þeirri tónlist og annast einn af
kennurum skólans, Bjarni Jóna-
tansson þann þátt.
Strengjasveit yngri nemenda
kemur einnig fram á tónleikunum.
Ekki verður um ákveðin aðgangs-
eyri að ræða, en þess í stað er tekið
við frjálsum framlögum tónleika-
gesta við innganginn.
í vetur hafa a.m.k. þrír bílar
skemmst mikið og einn öku-
maður slasast þegar bílunum
hefur verið ekið á hesta á þjóð-
veginum milli Akureyrar og
Dalvíkur.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á Akureyri líður aldrei
sá vetur að ekki sé ekið á hesta í
nágrenni bæjarins og oft hefur það
komið fyrir að bílarnir hafa gjör-
eyðilagst og ökumenn og farþegar
stórslasast.
Að sögn Dalvíkings, sem vegna
atvinnu sinnar ekur nær daglega
milli Dalvíkur og Akureyrar hefur
sjaldan verið jafn mikið um hesta
við þjóðveginn og í vetur. Sérstak-
Sala á notuðum
bflum eykst
á ný eftir
áramótin
Sala á notuðum bílum á Akur-
eyri hefur verið fremur dræm
undanfarinn mánuð. Að sögn
Haraldar Gunnarssonar, sölu-
manns hjá Bílasalanum við
Tryggvabraut, er þetta nokkuð
árvisst ástand og nú kom gjald-
miðilsbreytingin til viðbótar og
bætti ekki úr skák.
Haraldur sagði að líf væri að
færast í bílasöluna, en það væri
líka ljóst að fólk hefði ekki jafn
mikla peninga handa á milli og oft
áður. Þeir sem eru að selja bíla sína
verða að lána mun meira í þeim en
venja var og oft er lánað til langs
tíma.
lega er þetta áberandi í
Kræklingahlíð, sagði Dalvíkingur-
inn. Stundum halda hestarnir sig í
hnapp á veginum í myrkri og sjást
því ekki fyrr en allt er um seinan.
Það er full ástæða til að hvetja
alla þá sem hlut eiga að máli að
forða hestunum frá þjóðvegunum
oggeyma þá á öruggum stöðum.
Bæjarstjórinn hættir
Ingimundur Einarsson, bæjarstjóri
á Siglufirði hefur sagt starfi sínu
lausu. Hann mun hætta sem
bæjarstjóri þann 20. maí n.k. Ingi-
mundur er annar bæjarstjórinn á
Siglufirði á þessu kjörtímabili, en
Bjami Þór Jónsson sagði líka upp
og gerðist bæjarstjóri í Kópavogi.
((U T MT ~xrz fn H ® r 1 i'nrr
Ö ii li1 1 Jjy _
0 Sjö íbúðir
til leigu
í fyrsta tölublaði Dags á árinu
voru samtals sjö íbúðir aug-
lýstar til leigu. Þykir ýmsum
sem hlutirnir hafi heldur bet-
ur breyst, því tll skamms tíma
var óalgengt að sjá íbúð aug-
lýsta til leigu. Ekki skal hér
neinum getum að því leitt af
hverju svo margar íbúðir eru
boðnar fólki, fyrir því kunna
að vera margar ástæður. Á
hitt skal minnst að það er
einkennilegt að enn þarf fólk
að bjóða háar mánaðar-
greiðslur fyrir íbúðir sem það
veit ekki annað um en þær
eru annaðhvort 2ja eða 3ja
herbergja.
0 Atvinna
í boði
Úr því að við erum farnin að
ræða um íbúðaleigu og boð í
vistarverur sem ekki eru til
sýnis, má minnast á skilt fyr-
irbrigði. I atvinnuauglýsing-
um — sérstaklega í Reykja-
vikurblöðunum — er auglýst
eftir fólki í ýmsar stöður, án
þess þó að þær séu til-
greindar nákvæmlega. T.d. er
beðið um „fulltrúa" og um-
sækjendum er sagt að skila
bréfi merkl AA eða BB á af-
greiðslu viðkomandi blaðs.
Tilfellið er að óprúttnir
náungar gætu hæglega mis-
notað þær upplýsingar sem
lesa má úr umsóknum fólks,
sem oft á tíðum er að sækja
um atvinnu sem það í raun-
inni veit ekkert um.
£ Herstöð
á Króknum?
Nú virðist sem Sauðárkrókur
sé að vinna stríðið við Húsa-
vík og Egilsstaði um vara-
flugvöll fyrir millilandaflugið,
því nefnd á vegum flugmála-
stjórnar hefur komist að því,
að best sé að hafa þann flug-
völl á Sauðárkróki. Slíkur
flugvöllur getur vafalaust haft
margvísleg góð áhrif á þeim
stað, þar sem hann yrði stað-
settur og hafa forsvarsmenn
þessara staða lagt mikla á-
herslu á að fá völlinn. Sagt er
að tvær grímur hafi þó runnið
á ýmsa, þegar Björn Bjarna-
son, annar fulltrúi Sjálfstæð-
isflokksins í öryggismála-
nefnd Alþingis, setti fram þá
skoðun sína, að í tengslum
við varaflugvöll ættl að huga
að öryggismálum landsins
og jafnvel setja upp herstöð
við Sauðárkrók og að Banda-
rfkjamenn og Nato tækju þátt
í gerð vallarins. Þetta gæti
vafalaust veitt „nýju blóði“ í
æðar og hugsanlega at-
vinnulíf Skagfirðinga, en að
mati sumra var það ekki þess
konar „ástand“ sem sóst var
eftir í tengslum við varaflug-
völl fyrir millilandaflugið.