Dagur - 27.01.1981, Síða 7
RÆTT UM ULL OG
GÆRUR
Að frumkvæði Búnaðarfélags fs-
lands var efnt til fundar á Akureyri
um miðjan nóvember s.l. þar sem
sérfræðingar og starfsmenn við ull-
ar- og gæruiðnaðinn báru saman
bækur sínar. Samtals tóku 36
manns þátt í fundinum. Flutt voru
12 erindi þar sem gerð var grein
fyrir helstu þáttum er varða þessa
framleiðslu. Halldór Pálsson fyrr-
verandi Búnaðarmálastjóri ræddi
um eldri viðhorf í sauðfjárræktinni
hvð varðar gæði ullar og gæra.
Hann benti á að allt fram til ársins
1870 hafi ull, smjör, tólg og skinn
verið eftirsóttari vörur til útflutn-
ings en kjöt. Þá breyttist viðhorfið
og kjötið varð verðmeira, með til-
komu útflutnings lifandi sláturfjár
til Bretlands. Ullin hélst í tiltölu-
lega háu verði fyrri hluta þessarar
aldar og á unglingsárum Halldórs
fengu bændur jafnmikið fyrir 1 kg af
handþveginni góðri ull og fyrir 1 kg.
af smjöri. í lok erindisins gaf Hall-
dór kaupendum ullar og gæra
nokkra ádrepa og taldi þá vilja helst
kaupa þessar afurðir ómetnar, á
sem allra lægstu verði og skamma
síðan bændur fyrir alla galla sem
finna má í vörunni.
Sveinn Hallgrímsson flutti erindi
sem hann nefndi „Hvaða stefnu
eigum við að fylgja í ræktun fjár
með tilliti til ullar.“ Hann benti á
að við ættum að stefna að því að
-,,Sigalda“
sígur enn ...
(Framhald af bls. 1).
um öðrum hafnarframkvæmdum á
Akureyri fyrir þrifúm síðustu árin.
Fyrirhugað var að lengja kantinn
bæði til austurs og vesturs, en
mönnum sýnist það ekki fýsileg
lausn í dag vegna sigsins og verður
nú jafnvel að leita nýrra leiða
varðandi stækkun vöruhafnar fyrir
Akureyri. Sjá nánar um heildar-
skipulag hafnarsvæðisins á bak-
síðu.
Bjóðum fullkomna viðgerðarþjónustu á sjón-
varpstækjum, útvarpstækjum, steríomögnur-
um, piötuspilurum, segulbandstækjum, bíl-
tækjum, talstöðvum, fiskileitartækjum og sigl-
ingartækjum.
Isetning á bíltækjum.
viðhalda eiginleikum íslensku ull-
arinnar, sem gerir hana öðruvísi en
aðra ull, þ.e.a.s. hæfilega blöndu af
þeli og togi. Ennfremur benti'
’ Sveinn á að ullin væri orðin fínni en
hún var áður, þannig að togið hefur
minnkað hlutfallslega, sem að hans
áliti væri ekki æskileg þróun. Stef-
án Aðalsteinsson flutti erindi um
ullarrannsóknir og ullargæði. I er-
indinu skýrði hann frá arfgengi á
ullarþunga og rauðgulum illhær-
um. Þá benti hann á að í rannsókn
hefði komið í ljós að dætur alhvítra
hrúta hefðu reynst þyngri-en dætur
gulra hrúta ásetningshaustið. I til-
raun kom einnig fram að fallþungi
dilka var nokkru meiri undan vetr-
arklipptum ám en vorklipptum.
Ingi Garðar Sigurðsson flutti erindi
um „úrvinnslu úr Reykhólaull" en
á tilraunastöðinni á Reykhólum
hefur um nokkurt árabil verið í
gangi tilraun með ræktun fjár með
alhvíta ull. Ingi skýrði frá saman-
burði, sem gerður var á prjónlesi úr
hvítri ull frá Reykhólum og venju-
legri ull. Niðurstaða varð allir þeir
eiginleikar ullarflíkur, sem taldir
eru ákjósanlegir voru mun betri úr
flíkum Reykhólaullarinnár en
hinnar. Miðað við stigagjöf fyrir
gæði, þá fengu flíkur úr Reykhóla-
ullinni 43% hærri einkunn en hinar
flíkumar. Þessi kynbótastarfsemi á
Reykhólum hefur staðið í 17 ár.
TVfMENNINGS-
KEPPNI
Bridgefélags Akureyrar hefst
þriðjudaginn 3. febrúar kl. 20.00.
Þátttöku skal tilkynna til Ólafs í síma 24135, og
ÞóraHins í síma 22244 fyrir fimmtudagskvöld.
Þeir Sveinn Hallgrímsson og Stefán
Aðalsteinsson fluttu sitt hvort er-
indið um gærur, Stefán um gæru-
rannsóknir og Sveinn gaf yfirlit um
kosti íslensku gærunnar. Ónnur er-
indi sem flutt voru á fundinum
fjölluðu um ýmsa þætti í meðferð
ogsölu á gærum.
Agnar Tryggvason ræddi um
ullarverslun og verðlagningu ullar,
Kjartan Kristjánsson hélt erindi
um ullarvinnslu. Markaður og út-
flutningur á ullarvörum hét erindi
Þráins Þorvaldssonar og að síðustu
flutti Oddur Eiríksson erindi um
sútun og kröfur til gærugæða.
Fundur tókst vel og að dómi
þátttakanda og fóru flestir heim
fróðari en þeir komu.
24167
DAGUR
Slm. (96) ?36?6
GUirðigótu 3? • Akureyn
TEIK N f STOFAN
stilu;
AUGLÝSINGAR-SKIL.TAGERÐ
TEIKNINGAR-SILKIPRENT
SÍMi: 2 57 57
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 86., 91. og 94. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1980 á húseigninni nr. 18a við Lækjar-
götu, Akureyri, talin eign Jóhanns Sigvaldasonar,
fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 30. janúar
n.k. kl. 16.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
LETTIH
Aðalfundur verður í
Glerárskóla miðvikudag-
inn 28. janúar kl. 20.30.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 86., 91. og 94. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1980 á húsinu nr. 24 við Hrafnagilsstræti,
efri hæð, Akureyri, þingl. eign Gunnars Brynjólfs-
sonar, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 30.
janúar n.k. kl. 15.00.
Stjórnin.
Bæjarfógetinn á Akureyri
ni
Atvinna Starfsmenn óskast. Upplýsingará Óseyri 18. Úretaneinangrun Akureyri.
Skrifstofustarf
Laust er til umsóknar skrifstofustarf á bæjarskrif-
stofunni.
Upplýsingar um starfið veitir undirritaður.
Umsóknir, sem tilgreini aldur, menntun og fyrri
störf sendist á bæjarskrifstofuna fyrir 3. febrúar
næstkomandi.
Akureyri, 26. janúar 1980,
Bæjarritari.
Tilkynning
1. janúar 1981 var skipt um nafn á Sveinafélagi
járniðnaðarmanna á Akureyri, og heitir það nú
„Félag málmiðnaðarmanna Akureyri." Skamm-
stafað F.M.A. Ath. nýtt nafnnúmer er 2308-3744.
F.h. F.M.A. —STJÓRNIN.
Skódaeigendur
athugið
Erum fluttir með umboó okkar og þjónustu í Skála
við Kaldbaksgötu.
Skálafell s.f. sími 22255
EININGARFÉLAGAR
„Opið hús“ að Þingvallastræti 14 fimmtudaginn 29.
janúar n.k. kl. 20.30 Jón Björnsson félagsmálastjóri
ræðir um heimilið og vinnuna. Almennar umræður.
Stjórnin.
Töpuð prjónavoð
15. janúar s.l. tapaðist af fluttningabifreið frá
Kaupfélagi Þingeyinga Húsavík er var á leið á milli
Blönduóss og Húsavíkur, 10 strangar af prjónavoö.
Pakkaðir í glært plast. Strangarnir eru merktir
Krafla og prýði.
Finnandi vinsamlegast hafi samband í síma 41680
Húsavík.
Frá Vestfirð-
ingafélaginu á
Akureyri
Sólarkaffi Vestfirðinga verður haldið í Alþýðuhús-
inu laugardaginn 31. jan. n.k. kl. 20.30.
Allir Vestfirðingar á Akureyri og nærsveitum hvattir
til að mæta.
Aðgöngumiðar seldir við innganginn.
Nefndin.
DAGUR.7