Dagur - 10.03.1981, Blaðsíða 1
Fermingar-yí
gjafir
Í MIKLU
ÚRVAU
GULLSMIÐIR
v SIGTRYGGUR & PÉTUIÍ1
; AKUREYRI
Blönduvirkjun:
Undirskriftalistar
til ríkisstjórnar
Skíðafþróttin á sífellt meiri vinsældum að fagna meðal
fólks. Um helgar er fjöldi fólks í Hlíðarfjalli — annaðhvort
á göngu- cða svigskíðum eða cinfaldlega á tveimur jafn-
fljótum. Þessir ungu menn voru „á uppleið" þegar myndin
var tekin af þeim um síðustu helgi.
Vilja að ríkið styrki
einu skógerð landsins
Undanfarna daga hafa fylgjend-
ur Blönduvirkjunar í Norður-
landskjördæmi vestra staðið
fyrir undirskriftasöfnun til
stuðnings virkjuninni. Listana
átti svo að afhenda fulltrúum
ríkisstjórnarinnar eftir hádegi í
dag og búist var við umræðum
Suður til
stuðnings
virkjun
„Það er geysilega mikill
hugur í ntönnum og sýnir best
áhugann, að fólk skuli yfir-
leitt leggja út í þessa undir-
skriftasöfnun og ferðalög
suður í því vetrarríki sem nú
er“, sagði Grímur Gíslason,
gjaldkeri á Blönduósi og einn
þeirra sem stendur fyrir
undirskriftasöfnuninni til
stuðnings Blönduvirkjun.
,,Það er ljóst að þátttaka í
undirskriftasöfnuninni er mjög
rnikil og fast að 80% kjósenda í
A.-Húnavatnssýslu hafa skrifað
undir", sagði Grímur ennfrem-
ur.
Samkvæmt upplýsingum sem
Dagur fékk í morgun, höfðu
þegar borist suður eitthvað yfir
3250 undirskriftir, en til saman-
burðar má nefna að tæplega
5.800 kusu í síðustu forseta-
kosningum í Norðurlandskjör-
dæmi vestra. Búist var við fleiri
listum suður þegar líða tæki á
daginn, en ófærð hamlaði tals-
vert söfnun undirskrifta.
í morgun fór 40 manna rúta
frá Blönduósi og allmargir fóru
suður á einkabílum í gær. til að
leggja máli þessu lið.
um Blönduvirkjun utan dag-
skrár á Alþingi.
Eftir því sem næst verður komist
hefur undirskriftasöfnunin gengið
mjög vel, þrátt fyrir það að hún
hófst ekki fyrr en fyrir um það bil
viku síðan. Mun t.d. mikill meiri-
hluti kjósenda í Húnavatnssýslum
hafa undirritað skjalið og hefur
heyrst talað um 70-80% kjósenda í
sýslununt.
í skjalinu er skorað á ráðamenn
orkumála að taka ákvörðun ufn
Blönduvirkjun sem næsta skref í
orkumálum og lögð er áhersla á að
samningum við heimamenn verði
hraðað. Þykir ýmsum sem síðustu
áföll í rafmagnsmálum, þegar
línubilun varð á Skarðsheiði, með
þeim afleiðingum að rafmagns-
laust varð á Vesturlandi, Vest-
fjörðum og Norðurlandi vestra,
sýni ljóslega kosti Blönduvirkjunar
með tilliti til staðsetningar í dreifi-
kerfinu.
Þá má geta þess, að á miðviku-
dag og fimmtudag verða viðræðu-
fundir rnilli fulltrúa hreppanna
sem hagsmuna eiga að gæta og
ráðgjafanefndar ríkisstjórnarinnar
um samningamálin og bætur fyrir
landsspjöll, þannig að mikil hreyf-
ing er á Blönduvirkjunarmálinu
um þessar mundir.
Ellefu tonna bátur frá Grímsey
sökk í gærkvöldi við svokallaðar
Flesjar, sem eru syðst á eyjunni.
Tveir menn voru um borð í
bátnum og var báðum bjargað.
Að sögn heimamanna mátti litlu
muna að verr færi.
Grímseyjarbátar réru í gær og
voru flestir komnir til hafnar, er
skilaboð bárust frá Siglufjarðar-
radíói þess efnis að Valþór EA
hefði strandað og leki væri kominn
að bátnum. Um borð var Haraldur
Guðmundur Bjarnason og fleiri
þingmenn í Norðurlandskjör-
dæmi eystra hafa lagt fram
þingsályktunartillögu þar sem
Jóhannesson og með honum piltur
frá Akureyri. Magnús EA, skip-
stjóri Sigfús Jóhannsson, fór þegar
á vettvang og bjargaði skipverjum.
en Valþór EA sökk skömmu síðar.
Þegar rætt var við fréttaritara
DAGS í Grímsey í morgun var ekki
vitað með vissu hvað olli því að
Valþór strandaði á Flesjunum, en
það mun væntanlega koma fram í
sjóprófum. Valþór var búinn að
vera að veiðum í allan gærdag og
um borð var töluvert af fiski.
skorað er á ríkisstjórnina að
láta nú þegar fara fram könnun
á með hvaða hætti hægt sé að
efla og styrkja rekstrargrundvöll
skóiðnaðar og stuðla að áfram-
haldandi rekstri skógerðar í
landinu. Sé þörf sérstakrar
lagasctningar í þessu sambandi
skuli ríkisstjórnin láta útbúa
slíka Iöggjöf og leggja fyrir Al-
þingi hið fyrsta.
I greinargerð með tillögunni
segir meðal annars. að skógerð sé
með eldri iðngreinum í landinu, en
nú sé svo komið á þessari öld iðn-
aðar, að aðeins ein skóverksmiðja.
Iðunn á Akureyri, sá starfrækt í
landinu. Þegar starfsemi Iðunnar
hafi staðið nieð sem mestum blóma
hafi unnið hjá fyrirtækinu um 120
nianns, en vegna mikilla erfiðleika
í rekstri og samdráttar í frantleiðslu
og sölu sé starfsfólk nú um 50
manns. Nú sé svo koniið eftir ;tð
verksmiðjan hafi verið rekin með
rekstrarhalla nokkur undanfarin
ár. að með bréfi til félagsmála-
ráðuneytisins í október 1980 hafi
Iðnaðardeild Sambandsins til-
kynnt að ákveðið hafi verið að
hætta starfsemi skóverksmiðjunnar
og segja upp starfsmönnum.
Flutningsmenn tillögunnar telja
að hér sé um að ræða verulegt
félagslegt vandamál, þar sem
starfsmenn Iðunnar séu margir
fullorðnir og eigi án efa erfitt með
að fá vinnu við sitt hæfi. ef rekstr-
inurn verði hætt. Stjórnvöld verði
að leita allra hugsanlegra leiða til
að koma I veg fyrir að iðngreinin
verði lögð niður.
Ástæður fyrir samdrætti í ís-
lenskri skógerð séu vafalaust
ntargvíslegar, en nefna rnegi t.d.
lækkaða innflutningstolla af skóm
(Framhald á bls. 6).
Bátur sökk
GLÆSILEG FERÐAGETRAUN
Það mun ekki væsa um lescndur Dags á þessari strönd.
Ferðaskrifstofa Kjartans
Helgasonar efnir til stórglæsi-
legrar ferðagetraunar fyrir
lesendur Dags í tveimur næstu
blöðum. Vinningurinn verður
ferð fyrir tvo til Búlgaríu þar
sem dvalist verður í þrjár vikur
á Grand Hotel sem er á
Svartahafsströndinni Varna
Drushba. Vinningshafi getur
farið utan á tímabilinu frá 25.
maí til 14. september og inni-
falið cr hálft fæði.
Þeir sern standa að þessari
ferðagetraun í samvinnu við Dag,
auk Ferðaskrifstofu Kjartans
Helgasonar, eru Ferðamálaráð
Búlgaríu, Balkantourist og
Balkanairlines, auk Flugleiða.
Getraunin verður með þeim
hætti, að í næsta blaði birtast 10
spurningar, sem fjalla um Búlg-
aríu á einn eða annan hátt, og
jafnmargar spurningar birtast
siðan í þriðjudagsblaðinu eftir
viku. Þeir sem hafa kynningar-
bækling um Búgaríu frá Ferða-
skrifstofu Kjartans Helgasonar
við hendina þegar spurningunum
er svarað, ættu að reynast það
auðvelt. Bæklinginn er hægt að fá
hjá gullsmiðunum Sigtryggi og
Pétri í Brekkugötu á Akureyri.
Síðast liðin fjögur ár hafa sífellt
fleiri íslenskir ferðamenn farið til
Búlgaríu á vegum Ferðaskrifstofu
Kjartans Helgasonar. Einkum
hefur verið farið á baðströnd sem
er skammt norðan við stórborg-
ina Varna. Á þessu ári verður
fjölbreytni ferða til Búlgaríu enn
meiri en áður og t. d. er hægt að
búa í smáhýsum á baðströnd. sem
er róniuð fyrir fegurð. Frá við-
komustöðum i Búlgaríu býður
Ferðaskrifstofa Kjartans upp á
margs konar skoðunarferðir til
nærliggjandi staða, bæði innan-
lands og utan. Auk Búlgaríuferða
býður Ferðaskrifstofa Kjartans
Helgasonar, sem hefur aðsetur í
Reykjavík, upp á ýmiskonar
ferðir. sem ekki er rúm til að rekja
hér.
•t. ii Ai# ■
8
>7
RITSTJÓRN: 24166 OG 23207