Dagur - 10.03.1981, Qupperneq 6
Árekstrar
Um helgina urðu átta árekstrar á
Akureyri — stórir og smáir. Eigna-
tjón var mikið, en meiðsl á fólki
ekki umtalsverð. Ölvun var lítil um
helgina og enginn ökumaður var
tekinn grunaður um ölvun við
akstur. Að sögn lögreglunnar er
það nokkuð óvenjulegt
— Skógerð...
(Framhald af bls. 1).
vegna aðildar að EFTA, verndar-
ráðstafanir af hálfu EBE, sam-
keppni frá láglaunalöndum og
fleira. Skógerð á hinum Norður-
löndunum eigi við svipaða erfið-
leika að stríða, en þar hafi verið
reynt að snúast til varnar og að-
stoða viðkomandi aðila til að halda
rekstri áfram, bæði af félagslegum
ástæðum svo og með öryggissjón-
armið í huga. Ekki sé óeðlilegt að
íslendingar hugsi eitthvað svipað
þessu og reyni í lengstu lög að
halda gangandi sinni einu skó-
verksmiðju, jafnvel þó það kosti
einhver fjárútlát af hálfu hins op-
inbera.
í tillögunni er nefnt sem dæmi að
veittur verði fjárfestingastyrkur eða
lán til að auka hagræðingu og hag-
kvæmni í rekstri, veitt verði aukin
og hagkvæmari afurðalán, orku-
verð verði lækkað og að notuð
verði heimild í lögum til að leggja
aðlögunar- eða jöfnunargjald á
innfluttar samkeppnisvörur. Þá
megi athuga möguleikana á að
lækka eða fella niður enn frekar en
gert hefur verið tolla og að-
flutningsgjöld á hráefni, tækjum og
vélum, svo og opinber gjöld á
starfseminni.
Um þessar mundir sé mikið leit-
að eftir nýiðnaðartækifærum og
fjármagni varið af hálfu ríkisins til
rannsókna og athugana á ýmsum
möguleikum þar að lútandi. Sum
þessara nýiðnaðartækifæra veiti
álíka mikla atvinnu og skóiðnað-
urinn og því vakni sú spurning
hvort ekki eigi að leita allra leiða til
að koma í veg fyrir að gamlar og
grónar iðngreinar leggist niður
jafnframt því sem hugað sé að nýj-
um atvinnumöguleikum.
Norðurlandameistara -
mót í golfi á Akureyri?
Golfklúbbi Akureyrar hefur
borist um það ósk frá Golf-
sambandi íslands að halda
Norðurlandameistaramót í
golfi á Akureyri 1982. Til
þess að það sé mögulegt
verður að hraða framkvæmd-
um við golfvöllinn verulega í
sumar ef taka ætti því boði.
Óneitanlega yrði það G.A.,
íþróttalífi bæjarins og Akur-
eyrarbæ mikill heiður að
standa fyrir slíku stórmóti.
Golfvöllur G.A. að Jaðri hef-
ur verið notaður undanfarin 10
ár af félögum klúbbsins og
gestum. Það þykir gott að leika
golf á þessum velli, sem er yfir-
leitt nothæfur frá miðjum maí
og fram í október. Völlurinn er
enn 9 holu völlur, 2945 m. á
lengd, byggður í fjölbreyttu
landslagi og þykir fremur erfið-
ur á íslenskan mælikvarða.
Nú er verið að stækka völlinn
í 18 holu völl og er búið að
ganga að mestu frá 7 flötum en
2 eru enn í vinnslu.Gert var ráð
fyrir að 18 holu völlur yrði tek-
inn í notkun sumarið 1982.
Á vallarsvæðinu er félags-
heimili G.A., allrúmgóður sai-
ur, afgreiðsla og snyrting auk
íbúðar fyrir húsvörð. Við
félagsheimilið eru geymslu-
skápar fyrir félagsmenn og að-
staða til fataskipta auk áhalda
og efnisgeymslu. Helstu fram-
kvæmdir hin síðari ár hafa verið
fólgnar í uppbyggingu teiga,
gerð sandgryfja, lagfæring á
svæðinu utan brauta og lagn-
ingu á vatnsvökvunarkerfi um
völlinn.
Samsöngur karla-
kórsins Geysis
Svalbarðseyr
Hlé á borunum
Hlé var gert á borunum með
jarðbornum Narfa á Svalbarðs-
eyri í síðustu viku, en þá var búið
að bora síðan um miðjan janúar
og borinn kominn niður á 1200
metra dýpi.
Narfi er nú við Kröflu að hreinsa
út holur, en að því loknu verður
aftur hafist handa við borun hol-
unnar á Svalbarðseyri og jafnvel
borað niður á 1800 metra dýpi.
Reiknað er með að komið verði
niður á vatnsæð á borstaðnum og
að þar megi fá talsvert vatn. Nú
seytlar lítilsháttar úr holunni af 52°
heitu vatni. Holan sem boruð var
fyrir tveimur árum og nýtist nú til
fORÐDjfáSINS1
gefur vatn með svipuðu hitastigi,
en það vatn er nú fullnýtt.
Karlakórinn Geysir heldur sam-
söng í Akureyrarkirkju sunnu-
daginn 15. mars n.k. Verða þar
tvennir tónleikar kl. 16.30 og kl.
21.00. Eru tónleikar þessir fyrir
styrktarfélaga og aðra þá sem
áhuga hafa á að hlýða á karla-
kórssöng.
Söngstjóri kórsins að þessu sinni
er Ragnar Björnsson skólastjóri
Minna sprengt
á öskudag
Að sögn Ólafs H. Oddssonar, hér-
aðslæknis, virðist svo sem bæjar-
búar hafi tekið tillit til tilmæla hans
og fleiri aðila úr heilbrigðisstéttum
þess efnis, að draga úr hávaða á
öskudag. Mun minna var um skot-
hvelli og smásprengjur en í fyrra,
en hávaði af slíku var farinn að
setja ljótan svip á öskudaginn. Vildi
Ólafur koma á framfæri þakklæti
til bæjarbúa vegna þessa.
Nýja tónskólans í Reykjavík. Hefur
hann komið nokkrum sinnum í
vetur til æfinga og verður hér þessa
viku. Er hér farið inn á nokkuð
nýjar leiðir með kórstjórn að fá til
menn utan Akureyrar til þessara
hluta.
Við aðstoð á æfingum í vetur
hefur kórinn notið Áma Ingi-
mundarsonar auk annarra en hann
hefur veitt kórnum mesta aðstoð.
Undirleikari kórsins er Bjarni
Jónatansson kennari við Tónlistar-
skólann á Akureyri.
Fyrri hluti söngskrár kórsins er
að mestu byggður upp á íslenskum
þjóðlögum en í síðari hluta eru á
efnisskrá lög eftir bæði innlenda og
erlenda höfunda.
Þá má geta þess að frumflutt
verður lag eftir Sigvalda Snæ
Kaldalóns.
Fjórir einsöngvarar eru með
kórnum að þessu sinni, þeir Ragnar
Einarsson, Sigurður Sigfússon,
Sigurður Svanbergsson og örn
Birgisson.
Lausir aðgöngumiðar verða
seldir í Bókval og við innganginn.
Lionsklúbbur Akureyrar:
25 ára af mæli
'SÍMI
Lionsklúbbur Akureyrar á aldar-
fjórðungsafmæli þann 10. mars.
Klúbburinn var stofnsettur þann
10. mars 1956 af eftirtöldum sextán
mönnum, sem alTir eru Akureyr-
ingum að góðu kunnir:
Albert Sölvason, Ásgeir Valdi-
marsson, Bjarni Rafnar, Eyþór H.
Tómasson, Friðjón Skarphéðins-
son, Geir S. Björnsson, Gunnar
Þórsson, Haukur P. Ólafsson, Jón
G. Sólnes, Jónas G. Rafnar, Jónas
H. Traustason, Ólafur Sigurðsson,
Sigtryggur Júlíusson, Sveinn
MLiiUIÍ
Akureyrarkirkja. Messað n.k.
sunnudag kl. 2 e.h. Kristinn
Jóhannsson ritstjóri predik-
ar. Samleikur á lágfiðlu,
fiðlu og selló. Guðrún
Þórarinsdóttir, Ólöf Jóns-
dóttir og Sigurlaug Arn-
grímsdóttir. Föstumessa í
Akureyrarkirkju niðvikudag
kl. 8,30 e.h.
Stjórutjarnarskóli. Fjölskyldu-
guðsþjónusta í Stórutjarnar-
skóla fimmtudagskvöldið
12. mars n.k. kl. 20.30.
Gunnar Gunnarsson
menntaskólanemi predikar.
Fólk á skólasvæði Stóru-
tjarnarskóla, hvatt til að
sækja guðsþjónustuna.
Sóknarprestar.
Kökubasar verður í Kristni-
bosðhúsinu Zion laugardag-
inn 14. mars n.k. kl. 4.00 e.h.
K.F.U.K.
Náttúrugripasafnið. Sýningar-
salurinn opinn á sunnudög-
um kl. 1-3 sd. Tekið á móti
hópum utan þess tíma. Haf-
ið samband við gæslumann-
inn, Kristján Rögnvaldsson,
í síma 24724.
wm
I.O.O.F. Rb 2 = 130311 —'/: =
Atk. 9 III
□ RÚN 598113137 = 2
□ RÚN 59813117 = 2
Kiwanisklúbburinn Kaldbakur.
Fundur fimmtudaginn 12.
mars í Kiwanishúsinu kl.
19.15.
Lionsklúbbur Akureyrar. 25 ára
afmælishófið föstudag 13.
mars kl. 7.30.
— Nei, úrið mitt er farið að ganga
aftur, Viggó!
Hjálpræðisherinn. Miðvikudag-
inn 11. mars kl. 20.30.
Gaspel kynning í Strand-
götu 21. Föstudag 13. mars
kl. 17,00. Opið hús fyrir börn
í Strandgötu 21. Sunnudag
15. mars kl. 13.30 er sunnu-
dagaskóli og kl. 17,00vitnis-
burðarsamkoma. Mánudag-
inn 16. mars kl. 16,00
heimilissambandið og kl.
20,30 hjálparflokkurinn.
Verið velkomin.
Fíladelfía Lundargötu 12.
Fimmtudagur 12. mars.
Biblíulestur kl. 8,30, allir
velkomnir. Sunnudagur 15.
mars. Sunnudagaskóli kl.
11,00 f.h., öll börn velkomin.
Almenn samkoma kl. 17,00.
Gestir frá Reykjavík tala,
allir velkomnir.
Kristniboðshúsið Zíon. Sunnu-
daginn 15. mars sunnudaga-
skóli kl. 11. Samkoma kl.
20.30. Bogi Pétursson kynnir
Gídeonfélagið. Fórn tekin
til félagsins. Ræðumaður
Björgvin Jörgenson. Allir
velkomnir.
Hinn 27. febrúar voru gefin
saman í hjónaband í Akur-
eyrarkirkju ungfrú Sigrún
Arnþórsdóttir og Aðalgeir
Guðmundsson verkamaður.
Heimili þeirra verður í
Sandgerði Glerárhverfi Ak-
ureyri.
Tómasson, Tómas Steingrímsson
og Vésteinn Guðmundsson.
Fyrstu stjórn klúbbsins skipuðu:
Jón G. Sólnes, formaður, Friðjón
Skarphéðinsson, ritari og Eyþór
Tómasson, gjaldkeri.
Núverandi félagar og stjórn
klúbbsins þakka þessum gömlu
kempum fyrir gott starf og framtak
í málum Lionshreyfingarinnar.
Haldið verður upp á þennan
merka áfanga í sögu klúbbsins á
tvennan hátt:
a) Vistheimilinu Sólborg verða
færðar 27.000,- nýkrónur (2,7 millj.
gamlar krónur), en það er ágóðinn
af sölu konudagsblóma þann 2.
febrúar s.l.
b) Afmælishátíð, sem haldin
verður í Sjálfstæðishúsinu föstu-
daginn 13. mars 1981 kl. 19.30.
Vistheimilið Sólborg hefur
margt á prjónunum þessa dagana. f
byggingu er á þess vegum fyrsti
verndaði vinnustaðurinn á íslandi
fyrir þroskahefta. Vistheimilið
stendur og fyrir kaupum húss, er
nota á sem sambýli fyrir allt að 19
vistmenn Sólborgar. Þeir. sem í
þetta sambýiishús flytja, hafa notið
ýmissar þjálfunar á Sólborg og er
að mati starfsfólks stofnunarinnar
best þjónað með því að búa utan
veggja heimilisins.
Þetta örláta framlag Akureyr-
inga er því mjög tímabært til
stuðnings við hið mikla framtak í
þágu þroskaheftra nú á ári fatlaðra.
Lionsklúbbur Akureyrar kann
bæjarbúum heilhuga þakkir fyrir
stuðning þeirra nú sem fyrr við
þennan verðuga málstað.
Félagar fjölmennið á afmœlis-
hátíð okkar.
Stjórnin.
Öllum þeim sem sýndu mér vinsemd á sjötugs-
afmceli mínu 5. mars fœri ég bestu þakkir.
JÓHANNES EIRÍKSSON.
J€
X
Húseigendur
athugið!
Viljum leigja fjögurra herbergja íbúð strax eða
fljótlega fyrir fimm manna fjölskyldu í raðhúsi
eða fjölbýlishúsi.
Góðri umgengni heitið.
Vinsamlegast hafið samband við Jón Arnþórs-
son sem gefur nánari upplýsingar.
Iðnaðardeild Sambandsins,
Akureyri, simi 21900.
xv
6•DAGUR